Morgunblaðið - 30.01.2018, Side 30

Morgunblaðið - 30.01.2018, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018 VISTVÆNAR BARNAVÖRUR Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is Við bjóðum gott úrval af reimum í flesta snjósleða, fjórhjól og bíla. Ekki bara jeppar Reimar í bíla, vélsleða og fjórhjól Ólafur Egill Egilsson hefur verið ráðinn til að leik- stýra verkinu Sjeikspír eins og hann leggur sig hjá Leikfélagi Akureyrar. Ólafur lék þjófaforingjann Fagin í uppfærslu leikfélagsins á Óliver! skömmu eftir að hann útskrifaðist úr leiklistarnámi árið 2002 og er haft eftir honum í fréttatilkynningu að hann sé spenntur fyrir því að snúa aftur í Sam- komuhúsið á Akureyri. Hann hlakki mikið til að koma „þessu brjálaða og bráðskemmtilega verki“ á fjalirnar í samstarfi við leikhópinn og allt það góða fólk sem starfi hjá leikfélaginu. Ólafur leikstýrir Sjeikspír Ólafur Egill Egilsson Hvað eigum við að kallamannlífsvinkil Lóu Hlín-ar Hjálmtýsdóttur sembirtist í teikningum hennar í blöðum, vefjum og bókum, og er nú kominn á svið? Fyrir utan „fyndinn“ og „nauðsynlegan“ auð- vitað. Mér dettur í hug orðin „martraðarraunsæi“ og „hvunn- dagsgróteska“ yfir þessar grát- hlægilegu myndir af fólki – aðallega konum – að mistakast sú list að hafa betur gagnvart áreiti og kröfum umhverfisins. Að reyna án árangurs að skapa sér einhverskonar vett- vang eða griðastað til að líða sæmi- lega í þessum tryllta sirkus sem samtíminn er. Langoftast hittir Lóa í mark, er morðfyndin og sannsögul um það ástand sem hún lýsir. Auð- vitað er freistandi að gefa svona efnivið frekara líf á fjölum leikhúss- ins. Vandasamt er það samt. Það er bæði kostur og galli að í listheimi Lóu, rannsóknarstofunni Lóabora- toríum, er engin framvinda, engir fastagestir með nafn og kennitölu, hvað þá forsögu. Límið felst í afstöðu höfundar, persónuein- kennum sem ganga manna – aðallega kvenna – á milli. Hendur leikskáldsins Lóu eru því óbundnar hvað þetta varðar, en um leið færra að halda sér í. Eins þarf að ákveða að hve miklu leyti handritið á að taka mark á kröfum og hefðum leik- hússins. Leikhúsgestir nútímans eru orðnir öllu vanir hvað þetta snertir og að sumu leyti gengst Lóa meira inn á leikreglurnar en bráð- nauðsynlegt getur talist. Tvær íbúðir í Reykjavík. Eða eig- inlega lítil einbýlishús, ef skemmti- leg umgjörð Sigríðar Sunnu Reynis- dóttur er tekin á raunsæisorðinu. Í öðru þeirra býr hinn rauðvínslegni bókaútgefandi Stella, og þegar verkið hefst er Anna, stillingarljósið dóttir hennar, að flytja inn eftir að hafa heykst á lokahnykknum í mast- ersnáminu sínu. Handan götunnar (girðingarinnar?) býr geðhvarfa- sjúka YouTube-stjarnan Inga í húsi foreldra þeirra Brynju, hvataferða- fararstjórans sem leitar heim eftir ástarlífsskipbrot. Þarna er komin hæfileg rann- sóknarstofa fyrir Lóu og upphefst mikið, beitt og á köflum alveg óborganlegt grín þar sem útlit, hagsmunir, lífsviðhorf, matar- smekkur, stíll, farsæld og árangur í hamingjukapphlaupinu mynda ein- hverskonar sjöþraut sem konurnar fjórar keppa í af mismiklu harðfylgi og ójöfnum árangri, öllum þó frekar dapurlegum og eftir því hlægileg- um. Orkan í handritinu tekur dálitl- ar dýfur þegar reynt er að búa til framvindu, tengja saman atriði, gangast undir formkröfur leikrit- unar. Reyndar er ruglingurinn með pizzusendingarnar fjári skemmti- legur, eins einfaldur og hann þó er, ekki síst vegna tilhugsunarinnar um að einhver panti sér Hawaii-pizzu með engum ananas. Stórkostlega sér-Lóu-leg hugmynd og synd að forseti lýðveldisins var ekki á þess- ari frumsýningu til að verða vitni að þessu. Önnur element sem eiga að skapa framvinduspennu, svo sem æskuminningar og áhugi Brynju á að koma húsi þeirra systra í verð, verður meira til trafala. Annars er best og skemmtilegast þegar repl- ikkutennisinn fær að ganga ótrufl- aður og nokkurn veginn stefnulaust. Sokkabandskonur njóta sín vel í þessum efnivið og Kolfinna Nikulás- dóttir stýrir þeim af skilningi og smekkvísi. Stella, þessi drafandi og uppgerðarsjálfsörugga subba, varð ljóslifandi og morðfyndin hjá Arn- dísi Hrönn Egilsdóttur. Brynja er mögulega sú „venjulegasta“ í gall- eríinu, en þá kemur sér vel hvað Maríu Hebu Þorkelsdóttur lætur vel að lýsa óöryggi. Það er vanda- samt að halda uppi orkunni í senum þar sem persóna mótleikarans er nánast óstarfhæf af þunglyndi, en það tekst Maríu Hebu og þegar Elma Lísa Gunnarsdóttir skríður loksins undan sænginni eins og pallíettufiðrildi og svífur á djammið á vængjum maníunnar er það líka listavel gert og fjári vel skrifað. Þær þrjár hafa lengi verið nokkuð áberandi í sýningum í leikhópageir- anum og það nýtist þeim í týpuleik- húsi eins og hér er á ferð. Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir er nær því að vera óskrifað blað og það er kannski meðal annars þess vegna sem það er í persónu Önnu sem mér fannst ég fá hreinustu myndina af hinum teiknaða heimi Lóu. Mér þótti Jóhanna Friðrika til dæmis hreyfa sig eins og ég ímynda mér að þessar persónur myndu gera. Svona myndu þær ganga, einmitt svona myndu þær spritta á sér hendurnar, svona væri að sjá þær hekla. Og auðvitað myndu þær hekla. Fínlega unnin persóna og viss furða að hún skili sér til áhorfenda í gegnum brussuganginn allt í kring. Ekki fylgir sögunni í leikskrá hvað dreng- urinn heitir sem færir þeim pizz- urnar en hann skilaði sínu óaðfinn- anlega. Nema pizzunum reyndar. Þó umbúnaður sé hvorki ríkuleg- ur né fágaður þá er hann áhrifarík- ur. Leikmyndin þénug og sannfær- andi og mikil prýði, ef það er rétta orðið, að draslinu hjá þeim systrum Ingu og Brynju. Búningar Sigríðar Sunnu meira og minna nákvæmlega jafn ósmekklegir og þörf er á. Víd- eóin sniðug og „rétt“ og tónlistin vel valin og unnin hjá Árna Rúnari Hlöðverssyni. Gaman að dansútgáf- unni af hringitóninum og dans- uppbrotin öll skemmtileg, en Ásrún Magnúsdóttir á heiðurinn af sviðs- hreyfingum. Litla svið Borgarleikhússins hef- ur verið mikilvægur vettvangur fyr- ir rannsóknir á þjóðarsálarástand- inu í vetur. Kartöfluætur Tyrfings Tyrfingssonar og nú Lóaboratóríum Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur eru tvær vel heppnaðar atlögur að því að skoða persónur á jaðrinum tak- ast á við samtímann. Í báðum er boðið upp á frumlega nálgun og húmor af súrara og svartara taginu. Lóaboratóríum hefði grætt á meira sjálfsöryggi gagnvart forminu, að efniviðnum sjálfum hefði verið treyst betur. Eða þá ef stigin hefðu verið fleiri og markvissari skref í átt að rétt formuðu leikriti. Eða jafnvel söngleik, ég heyri hann alveg fyrir mér. Engu að síður stendur það sem Sokkabandið ber á borð algerlega fyrir sínu og mun vekja hlátur og skapa hroll hjá öllum þeim sem voga sér inn á tilraunastofuna. Við lifandi komin Ljósmynd/Þorbjörn Þorgeirsson Borgarleikhúsið Lóaboratóríum bbbbn Eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur. Leik- stjórn: Kolfinna Nikulásdóttir. Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna Reynis- dóttir. Lýsing: Valdimar Jóhannsson. Sviðshreyfingar: Ásrún Magnúsdóttir. Tónlist: Árni Rúnar Hlöðversson. Leik- arar: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Jóhanna Friðrikka Sæmundsdóttir og María Heba Þorkels- dóttir. Sokkabandið frumsýndi á Litla sviði Borgarleikhússins 26. janúar 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Hvunndagsgróteska „Mér dettur í hug orðin „martraðarraunsæi“ og „hvunn- dagsgróteska“ yfir þessar gráthlægilegu myndir af fólki – aðallega konum – að mis- takast sú list að hafa betur gagnvart áreiti og kröfum umhverfisins,“ segir í rýni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.