Morgunblaðið - 30.01.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018
VELDU ÚR MEÐ SÁL
www.gilbert.is
– fyrir dýrin þín
Eigum mikið
úrval af
hundabeislum
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
Gerð er krafa um góða staðsetn-
ingu á höfuðborgarsvæðinu við út-
boð á nýju húsnæði fyrir Trygg-
ingastofnun ríkisins. Stofnunin þarf
að flytja sem fyrst úr núverandi
húsnæði við Hlemm vegna myglu-
vandamála.
Framkvæmdasýsla ríkisins óskar
eftir að taka á leigu um 2.600 fer-
metra húsnæði fyrir Trygginga-
stofnun. Auk góðrar staðsetningar
er gerð krafa um gott aðgengi,
meðal annars fyrir hreyfihamlaða,
hjólandi og gangandi, og næg bíla-
stæði.
Tekið er fram í auglýsingu að
Tryggingastofnun er þjónustu-
stofnun fyrir almenning og því
skipti staðsetning miklu máli, það
er að segja nálægð við helstu stofn-
brautir og almenningssamgöngur.
Róbert Jónsson, verkefnastjóri hjá
Framkvæmdasýslu, segir um stað-
arval að stofnunin þurfi að vera þar
sem samgönguleiðir koma saman
og strætó stoppar. Nefnir að núver-
andi staðsetning við Hlemm sé góð
að þessu leyti en ekki öðru því þar
vanti bílastæði. Samkvæmt þessu
eru Mjóddin, Hlemmur og Lækjar-
torg æskilegir staðir en Róbert seg-
ir að ýmsir fleiri komi til greina.
Nefnir nágrenni Smáralindar og
Kringlunnar sem dæmi um það.
Sýslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu hafi til dæmis verið valinn
staður í nágrenni Smáralindar.
Núverandi húsnæði Trygginga-
stofnunar er 3200 til 3300 fermetr-
ar, á fimm hæðum auk kjallara.
Nýja húsnæðið verður heldur
minna. Róbert segir þó að húsnæðið
þurfi samt ekki að þrengja að
starfsfólkinu. Það ráðist af skipu-
lagi. Þannig er gert fyrir að nýja
húsnæðið verði að hámarki á þrem-
ur hæðum og reiknað með að
starfsfólk verði þar í opnum rýmum
en ekki aflokuðum skrifstofum.
Borið hefur á veikindum starfs-
fólks Tryggingastofnunar og eru
þau rakin til myglu í húsnæðinu.
Því liggur á að finna nýtt húsnæði
og nýbygging kemur ekki til greina
af þeim sökum. Áskilinn er réttur
til að óska eftir því við leigusala að
lögð verði fram úttekt á ástandi
húsnæðisins með tilliti til myglu.
Það er gert að ósk starfsfólks.
Róbert reiknar með að hægt
verði að flytja starfsemina seinni-
hluta þessa árs. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
Staðsetning Tryggingastofnun fer væntanlega af Hlemmi í ár.
Tryggingastofnun
flytur á góðan stað
Leitað að húsnæði til leigu
samtali við mbl.is. Hann telur ferða-
menn sem koma að fossinum ekki
missa af neinu þó þeir fari ekki leið-
ina sem nú er lokuð.
„Það eina sem þú getur ekki gert
er að komast alveg að fossbrúninni.
Þú getur hins vegar séð fossinn frá
mörgum mismunandi sjónarhornum
en allir aðrir útsýnisstaðir eru opnir
og þjónustaðir. Þarna eru minnst
þrír mjög góðir útsýnisstaðir þar
sem þú getur horft frá mismunandi
sjónarhornum á fossinn,“ segir Ólaf-
ur. johann@mbl.is
Göngustígur að Gullfossi, svokölluð
neðri leið, verður lokuð fram til vors
enda er öryggi þar ógnað vegna
hálku og hættu á grjóthruni. Eins og
fram hefur komið á mbl.is eru brögð
að því að fólk virði lokunarskilti á
þessari leið að vettugi og ógni þar
með öryggi sínu.
„Það er eitthvað um grjóthrun
þarna á veturna og svo er oft viðvar-
andi hálka á þar sem úði frá foss-
inum frýs og myndar svell á stígn-
um,“ segir Ólafur A. Jónsson,
sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, í
Áfram verður lokað við Gullfoss
Hálka á stíg og grjót getur fallið Glannar við Gullfoss
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gullfoss Sígilt sjónarhorn á afar
fjölsóttum ferðamannastað.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Níu þingmenn úr fjórum flokkum
hafa lagt fram frumvarp þar sem
lagt er til að bann við framleiðslu
áfengis til einkaneyslu verði afnum-
ið. Frumvarpið var áður lagt fram á
145. þingi en hlaut ekki afgreiðslu.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, er fyrsti flutnings-
maður frumvarpsins. Píratarnir
Halldóra Mogensen, Smári
McCarthy, Jón Þór Ólafsson, Björn
Leví Gunnarsson eru meðflutnings-
menn og eins varaþingmaður Pír-
ata, Olga Margrét Cilia. Þá eru
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
þingmaður Viðreisnar, Vilhjálmur
Árnason, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins og Helga Vala Helgadótt-
ir, þingmaður Samfylkingarinnar
meðflutningsmenn.
Háð miklum takmörkunum
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að áfengisneysla sé rótgróinn
hluti af íslenskri menningu. Fram-
leiðsla þess, sala og neysla hafi
lengi verið háð miklum takmörk-
unum vegna þeirra skaðlegu áhrifa
sem áfengisneysla valdi bæði þeim
sem þess neyti og samfélaginu í
heild.
Orðrétt segir m.a. í greinargerð-
inni: „Síðustu ár hafa rutt sér til
rúms fjölmargar nýjar tegundir af
íslenskum bjór. Forvitni ferða-
manna og áhugi þeirra á íslenskum
bjór hefur aukist samhliða þeirri
þróun.
Óumdeilt þykir meðal þeirra sem
til þekkja að heimabruggun eigi
ríkan þátt í því að svo margar nýj-
ar gerðir bjórs hafi komið fram á
undanförnum árum og öðlast vin-
sældir. Það skýtur skökku við að
vaxtarbroddur íslenskrar bjór-
menningar og sú jákvæða ímynd
sem tekist hefur að afla íslenskum
bjór hvað varðar gæði, grundvallist
í reynd á afbroti sem þung refsing
liggur við.“
Vilja heimila
heimabruggun
Frumvarpið lagt fram öðru sinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bruggun Þingmennirnir vilja leyfa
heimabruggun til einkaneyslu.