Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 24
Auðvelt er að fletta sloppnum frá þegar þess þarf. Nemendur listaháskólans Parsons School of Design í New York unnu með fyrirtækinu Care+Wear, sem framleiðir meðal annars sjúkra- sloppa, í að útfæra nýja sloppa sem bæði hylja líkamann og gefa lækn- um á sama tíma auðveldan aðgang að þeim líkamspörtum sem þeir þurfa að sinna hverju sinni. Nemendurnir unnu fimm út- færslur á sjúkrasloppum og fara þær eftir sjúkdómsgreiningum og aðgerðum hverju sinni. Þá er auð- velt að fletta sloppnum frá á ýms- um stöðum án þess að þurfa að afklæðast eða líða illa. Sloppurinn er unninn út frá sniði japanskra kimonoa og er gerður úr bómullar- og pólýester- blöndu. Markmið samstarfsins er að finna leið til þess að láta sjúkling- unum líða betur á meðan verið er að sinna þeim. Nemendur Parsons ráðfærðu sig við sjúklinga, fatahönnuði, hjúkr- unarfræðinga, lækna og starfsfólk þvottahúss við hönnun sloppanna. Endurhanna sjúkrasloppa Nemendurnir unnu fimm útfærslur nýrra sloppa sem henta út frá sjúkdóms- greiningum og aðgerðum. Ný og áhugaverð auglýsinga- herferð IKEA hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Auglýsingin, sem birtist fyrst í sænsku tímariti, lítur út líkt og hefðbundin auglýsing á barna- rúmi. Neðst á henni má síðan finna leiðbeiningar að einskonar þungunarprófi sem virkar þannig að ef ólétt kona lætur þvag sitt á prófið breytist auglýsingin og verðið á barnarúminu lækkar. Auglýsingin er ætluð til þess að auglýsa meðlimaklúbbinn IKEA Family. Það var sænska auglýs- ingastofan Åkestam Holst sem vann með IKEA að þessari frum- legu og skemmtilegu hugmynd. Þegar óléttar konur setja þvag sitt á flipann á auglýsingunni kemur annað í ljós. Hvattar til þess að pissa á auglýsingu Auglýsingin er sér- staklega frumleg og áhugaverð. Smátt og smátt breytist auglýsingin og tilboðið kemur í ljós. 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018 HÖNNUN Breski fatahönnuðurinn Rick Owens hefur verið fenginn til þess að hanna eigin útgáfu af þremur þekktustu útgáfum sandala frá þýska skómerkinu Birkenstock. Sandalarnir Arizona, Madrid og Boston hafa fengið nýtt útlit en Owens nýtti sér ýmist filt, smá- hestahár eða gróft leður í hönnun sinni. Owens er þekktur fyrir dökka litapalletu og djarfa hönnun og gætir þessara áhrifa í útfærslu hans á Birkenstock. Samstarfið er hluti af verkefninu „The Birkenstock Box,“ sem er færanleg Pop-up verslun skómerk- isins sem verður komið fyrir í nokkrum borgum víðsvegar um heiminn. Owens fékk því að útfæra sína útgáfu af „The Birkenstock Box,“ sem verður komið fyrir fyrir utan verslun hans í Los Angeles í mars þegar samstarfið fer í sölu. Sandalarnir eru ýmist gerðir úr filti, smáhestahári eða grófu leðri. Rick Owens fyrir Birkenstock The Birkenstock Box, verður komið fyrir fyrir utan verslun Rock Owens í Los Angeles. The Birkenstock Box er Pop-up verslun sem ferðast á milli borga. Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 www.husgagnahollin.is 558 1100 10 – 18 virka daga 11 – 17 laugardaga 13 – 17 sunnudaga 10 – 18 virka daga 11 – 16 laugardaga Ísafjörður Skeiði 1 REYKJAVÍK I AKUREYRI I ÍSAFJÖRÐUR Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru. Gildir til 4. febrúarr eða á meðan birgðir endast. EMPIRE Grátt slitsterkt áklæði. Stærð: 80 × 70 × 102 cm 71.992 kr. 89.990 kr. AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR 30% ELLIOT Borðstofuborð. Spónlögð hn Stærð: 180 x 90 x H: 75 cm Stækkanlegt í 219,5 cm með innbyggðum stækkunum. ota. 62.993 kr. 89.990 kr. TUB Hægindastóll. Svart leður. Fæst einnig í áklæði 55.993 kr. 79.990 kr. AFSLÁTTUR 30%

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.