Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 40
LESBÓK Um helgina lýkur í Gerðubergi í Breiðholti áhugaverðri sýningu Kristbergs Péturssonar myndlistarmanns. Hann sýnir þar ný verk, olíumálverk, vatnslita- og grafíkmyndir, teikningar og þrívíð verk. Sýningu Kristbergs lýkur 40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018 Þegar við, fyrir tæpu ári, völdum þettaleikrit til uppsetningar grunaði ekkertokkar að þetta yrði svona ótrúlega aktú- elt, því leikritið hefur afar sterka skírskotun inn í umræðuna sem verið hefur ríkjandi síðustu mánuði – fyrst um #höfumhátt og uppreist æru og síðan #metoo,“ segir Stef- án Baldursson leikstjóri um leikritið Efi – dæmisaga eftir John Patrick Shanley í þýð- ingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar sem Þjóðleik- húsið frumsýnir í Kassanum í kvöld, laugardagskvöld. „Verkið gerist í klaustur- skóla í Bronx í New York 1964 og fjallar um það að skólastýran í þessum skóla grunar einn kennarann, sem er prestur, um að vera í óeðlilegu sambandi við einn nem- andann. Hún sakar hann í raun um að vera barnaníðingur. Leikritið snýst fyrst og síðast um það hvort skólastýran hafi rétt fyrir sér, því presturinn kemur alveg af fjöllum og neitar öll- um ásökunum. Höfundurinn er þarna að fjalla um mikilsvert málefni og tekst listavel að halda áhorfendum í spennu yfir því hvort þeirra hafi á réttu að standa,“ segir Stefán og tekur fram að vegna þess hversu vel leikritið sé skrifað bjóði það upp á dúndurflott hlutverk fyrir góða leik- ara að takast á við. Með hlutverk skólastýrunnar fer Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, sem snýr þar með aftur á leiksviðið eftir 13 ára fjarveru. Prestinn leikur Hilmir Snær Guðnason, móður drengsins leikur Sólveig Guðmundsdóttir og unga kennslukonu leikur Lára Jóhanna Jónsdóttir. „Þetta eru allt afburðaleikarar. Ég var svo heppinn að fá alla þá fjóra leikara sem ég óskaði eftir þannig að það er búið að vera einstaklega gaman að æfa þetta,“ segir Stefán sem unnið hefur mikið með Hilmi Snæ í gegnum tíðina og þekkir hina leikarana líka vel. Báðar persónur hafi rétt fyrir sér „Hilmir hefur tvisvar fengið Grímuna fyrir hlutverk í okkar samvinnu, fyrir Veisluna sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu 2003 og Mín eigin kona sem við sýndum undir merkjum Skámána í Iðnó 2005. Ég leikstýrði Steinunni Ólínu í tveimur stórum hlutverkum í Þjóðleikhúsinu, sem Elisa Doolittle í My Fair Lady 1992 og Heiðveig í Villiöndinni 1997. En ég hef auðvitað fylgst með henni lengi eða frá því ég var leikhússtjóri í Iðnó og við Kjartan Ragnarsson völdum hana, þá 13 ára, til að leika í Landi míns föður. Ég vann með Láru Jóhönnu í Sporvagn- inum Girnd í Þjóðleikhúsinu 2015 og hafði áður unnið með henni í Nemendaleikhúsinu. Sól- veigu hef ég aldrei unnið með, en hún er að leika sitt fyrsta hlutverk í Þjóðleikhúsinu. Ég hef vitað af henni lengi, enda hefur hún átt lang- an og farsælan feril með sjálfstæðum leik- hópum,“ segir Stefán. Leikmynd og búninga uppfærslunnar hannar Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. „Okkar sam- starf er bráðum farið að spanna fjóra áratugi, en við unnum fyrst saman í Stundarfriði árið 1979 og höfum unnið mjög oft saman síðan.“ Inntur eftir því hver sé helsta áskorunin við uppfærslu verksins segir Stefán það vera að skapa trúverðugar persónur af holdi og blóði. „Mikil vinna felst því í smáatriðum í persónu- sköpun og samskiptum, tilslípun tilfinninga og blæbrigða. Í þessu verki þarf til dæmis að vinna aðalpersónurnar tvær þannig að báðar virðist hafa rétt fyrir sér. Það er síðan undir áhorf- endum komið að skera úr um málið. Þetta er ein allsherjar áskorun sem er afar spennandi með svona flottu fólki. Ég hef stundum sagt, þótt það móðgi kannski einhverja, að bestu leik- ararnir þurfa oft mestu leikstjórnina. Ástæðan er sú að þessir leikarar eru svo fjölhæfir að þeir geta allt – farið í allar áttir í túlkuninni og þá verða valkostirnir svo margir að leikstjóri verð- ur að hafa skýra sýn á hvert hann vill beina þeim.“ Aðspurður segist hann vera trúr höfundinum þegar komi að stað og stund atburðanna. „Und- irtitill verksins er dæmisaga og við treystum áhorfendum til að yfirfæra atburðina til sam- tímans,“ segir Stefán og rifjar upp velgengni leikritsins og höfundarins á erlendri grundu. „Leikritið sló í gegn þegar það var frumsýnt í New York árið 2004. Frumuppfærslan var sýnd yfir 500 sinnum og leikritið hlaut Pulitzer-- verðlaunin, Tony-verðlaunin, Drama Desk- verðlaunin, New York Drama Critic’s Circle- verðlaunin og Obie-verðlaunin sem besta leikrit ársins.“ Breytingar eiga upphaf sitt í efa Að vanda verður boðið upp á umræður að lok- inni sjöttu sýningu, sem verður 26. janúar. „Verkið er þess eðlis að það liggur við að það ætti að bjóða upp á umræður eftir allar sýn- ingar. Við erum mjög spennt að sjá hvaða aug- um áhorfendur líta persónur verksins og að hvaða niðurstöðu þeir komast,“ segir Stefán og bendir á að áhugavert sé einnig að velta fyrir sér þeim heimspekilegu spurningum um efa sem leikskáldið takist á við í verkinu. „Leik- skáldinu er mjög umhugað um að fólk gangi ekki út frá einhverri staðhæfingu sem algildum sannleika heldur leyfi sér að efast. Hann segir til dæmis að allar breytingar og framfarir eigi upphaf sitt í efa og að efi geti skapað samkennd sem sé jafn máttug og styrk og vissa,“ segir Stefán að lokum. Ljósmynd/Hörður Sveinsson „Mikilsvert málefni“ Þjóðleikhúsið frumsýnir í Kassanum í kvöld leikritið Efi – dæmisaga eftir John Patrick Shanley í leikstjórn Stefáns Baldurssonar. Hann segir leikritið hafa afar sterka skírskotun inn í umræðu síðustu vikna undir merkjum #höfumhátt og #metoo. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is ’Ég hef stundum sagt, þóttþað móðgi kannski ein-hverja, að bestu leikararnirþurfa oft mestu leikstjórnina. Ástæðan er sú að þessir leikarar eru svo fjölhæfir að þeir geta allt. Stefán Baldursson Steinunn Ólína og Hilmir Snær fara með hlutverk skólastýrunnar og prestsins.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.