Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 30
Ekki skyldi vanmeta tengsl félagslegs umhverfis og heilsu. Elín Ebba segir manneskjuna hafa þróast sem hópveru og því þurfi ekki að koma á óvart að einmanaleiki og félagsleg ein- angrun geti haft djúpstæð áhrif á heilbrigði og vellíðan fólks og stytt lífaldur. „Einmanaleiki get- ur valdið lífeðlislegum áhrifum, þar sem ónæmiskerfið les vit- laust í umhverfisógnanir á borð við bakteríur svo að líkaminn á erfiðara með að verjast sjúk- dómum og jafnvel krabbameini. Einmanaleiki eykur líka magn streituhormónsins kortisóls og hækkar blóðþrýsting, sem hefur áhrif á blóðflæði og eykur álag á hjarta. Áhrif einmanaleika á heilsuna geta verið á við það að reykja margar sígarettur á dag, drekka ekki eða borða, eða vera undir stöðugum sársauka.“ Einangrun skaðleg á margan hátt HEILSA Á síðasta ári gerðist það fimmta árið í röð að slegið var met í fjöldalíffæragjafa í Bandaríkjunum. Er aukningin rakin til fleiri dauðsfalla afvöldum of stórra fíkniefnaskammta. Er iðulega um að ræða ungt fólk sem er að öðru leyti heilsuhraust og því góðir líffæragjafar. Aldrei fleiri líffæragjafar 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018 Ný bresk rannsókn bendir til þess að mjög auðvelt sé að ánetjast sígarettum með sak- leysislegu fikti. Rannsóknin skoðaði spurn- ingalista sem lagðir voru fyrir 215.000 manns í Bandaríkjunum, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Bretlandi á tímabilinu 2000-2016 og kom í ljós að 60,3% svarenda höfðu prófað reykingar. Af þeim sögðust 68,9% hafa byrjað að reykja reglulega. Rannsakendurnir segja niðurstöðurnar sýna fram á mikilvægi þess að koma í veg fyrir fikt með sígarettur enda þurfi ekki mikið til að þróa með sér fíkn í reykingarnar. Að sögn BBC kom á óvart hversu algengt það var að fólk sem prufaði að reykja einu sinni byrjaði að reykja að staðaldri. Góðu fréttirnar eru þær að unga fólkið virð- ist vara sig á tóbakinu. Í Bretlandi reykja núna 19,3% fólks á aldrinum 18 til 24 ára en árið 2010 var hlutfallið 25,8%. ai@mbl.is AUÐVELT AÐ ÞRÓA MEÐ SÉR VANANN Fiktið leiðir fljótt til reykinga Það virðist stórvarasamt að prufa aðeins eina sígarettu. Morgunblaðið/Golli Einhugur er um að efla heilsu-gæsluna enn frekar og leggjaþessum hluta heilbrigðiskerf- isins til meira fjármagn. En í því starfi væri mikilvægt að huga betur að ýmsum sjúkdómum af andlegum toga, og gefa heilbrigðisstarfs- mönnum úrræði til að bæta það um- hverfi sem skjólstæðingar þeirra koma úr,“ segir Elín Ebba Ás- mundsdóttir iðjuþjálfi. „Heilsugæsl- an hefur ekki haldið í við þá þekk- ingu sem við höfum öðlast á áhrifum umhverfisþátta á heilsu og vellíðan.“ Elín Ebba hefur um alllangt skeið rekið Hlutverkasetur í Borgartúni þar sem áhersla er lögð á að gefa fólki kost á að vinna úr og sporna gegn ýmsum andlegum kvillum með félagslegri virkni. Þekkt er að oft getur rót vandamála á borð við þunglyndi og kvíða legið í því að ein- staklinga skortir réttan stuðning í námi sínu eða starfi, eða einangrast félagslega og finna sér ekki farveg í samfélaginu. „Heilbrigðiskerfinu hættir til að einblína á að vinna á einkennunum frekar en orsökinni, og nota til þess efnafræði frekar en að laga það sem bjátar á í félagslegu umhverfi fólks.“ Einangruð og veik Elín Ebba nefnir dæmi af ímynd- uðum unglingi sem finnur sig ekki í skóla og er strítt af jafningjum sín- um. „Útkoman gæti verið sú að hann sogast í staðinn inn í tölvuleiki, þar sem hann fær umbun fyrir að standa sig, fær tækifæri til að nota styrk- leika sína, og upplifir heim sem mætir tilfinningalegum þörfum hans. Smám saman missir hann áhuga á því sem er fyrir utan þenn- an heim, flosnar upp úr skóla og stendur þá fátt annað til boða en lægst launuðu störfin. Vítahring- urinn þrengist æ meira utan um þennan einstakling, uns hann er á þrítugs- eða fertugsaldri lokaður inni í öðrum heimi og er í raun ekki að lifa lífinu,“ segir hún. „Það getur líka gerst ef ein- staklingur verður fyrir einhverskon- ar áfalli, s.s. ástarsorg eða vin- armissi, að hann missir traustið til annars fólks og sannfærist um að betra sé að vera einn. Núna vitum við að einvera getur verið mikill heilsuspillir og getur breytt því hvernig við umgöngumst annað fólk, og leitt til sjúkdóma af ýmsum toga.“ Lífsstílstengd andleg heilsa Elín Ebba tekur undir að rétt eins og mikið er lagt upp úr því að fyrir- byggja lífsstílstengda sjúkdóma, s.s. með hollu mataræði, reglulegri hreyfingu og með því að forðast ýmsa heilsuspillandi lesti, þá mætti líka leggja áherslu á að fyrirbyggja lífsstílstengda andlega sjúkdóma. Bæði ætti fólk að vera meðvitað um hætturnar, til að forðast það að fest- ast í vítahring andlegra veikinda en heilbrigðiskerfið ætti líka að huga að samspili lífsstíls, félagslegs um- hverfis og kvilla af andlegum toga og veita stuðning af réttum toga. Lausnin gæti, að mati Elínar Ebbu, verið fólgin í betra samstarfi á milli heilsugæslu, sálfræðinga og félagsþjónustu, og með því að bjóða upp á úrræði á borð við Hlutverka- setrið: „Það fólk sem um ræðir er oft ekki fært um að bæta félagslegar aðstæður sínar upp á eigin spýtur, heldur þarf leiðsögn og stuðning, og mögulega inngrip. Meðferð gæti jafnvel falist í því að starfa með vinnuveitanda, s.s. til að hjálpa ein- staklingi sem hefur ekki getuna til að vinna 40 stundir að fá að vinna í staðinn 20 stunda vinnuviku – og þá halda virkni frekar en að hrökklast út af vinnumarkaði og missa á endanum vinnugetuna með öllu,“ segir Elín Ebba. „Alls kyns litlar breytingar eru oft allt sem þarf, og getur dugað eitt og sér eða verið hluti af heildstæðri meðferð með lyfjagjöf og meðferð hjá sál- fræðingi.“ Morgunblaðið/Hanna Umhverfið mótar heilsuna Félagslegt umhverfi okkar getur haft mikil áhrif á andlega og líkamlega heilsu, og brýnt að tekið sé mið af því í heilbrigðiskerfinu. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Alls kyns litlar breytingar eru oft allt sem þarf, og getur dugað eitt og sér eða verið hluti af heildstæðri með- ferð,“ segir Elín Ebba Ásmundsdóttir. Hulda B. Ágústsdóttir Margrét Guðnadóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.