Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 34
FERÐALÖG Sjávarfangið er óvíða ferskara en í Flórída, enda erríkið umlukt vatni. Það er vel þess virði að prófa sig áfram með nýtt fiskmeti á ferðalaginu. Ferskt sjávarfang 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018 Það er ekki lítið verkefni að farameð fimm manna fjölskyldu í20 daga frí og því þarf skipu- lagningin að vera góð. Eins og flestir eyddum við hjónin því dágóðri stund í að skoða möguleikana þegar lang- þráð sumarfrí, þótt í október væri reyndar, var í kortunum. Það kom okkur nokkuð á óvart að það væri hægt að gera betri kaup þegar kom að flugi og hótelum fyrir okkur með börn á aldrinum sex, sjö og 13 á Flórída en á Tenerife sem við vorum helst að skoða. Það helgast af því að Spánverjar gera eiginlega ekki ráð fyrir því að fimm manna fjölskyldur vilji vera saman í herbergi eða íbúð og stærðirnar bjóða einfaldlega ekki upp á það. Þetta kom nú ekki að sök og það þurfti ekki að eyða mikilli orku í að sannfæra smáfólkið um að Flórída væri góður áfangastaður með öllum sínum skemmtigörðum og mögu- leikum í afþreyingu. Helst var það ég sjálfur sem þurfti að sannfæra en ég sá fljótlega möguleika á að kom- ast þarna á NBA-leik sem lengi hafði verið á stefnuskránni og þá er Dali-safnið í St. Petersburg staður sem ég vissi að væri góður til að jafna út þennan risaskammt af afþreyingaráreiti sem Orlando er. Ekki síður var þetta tækifæri til að heimsækja nýja staði á Flórída. Gjörólíkar borgir Flogið var til Miami, borgar sem hef- ur lifað með manni frá því Sonny Crockett og Tubbs voru upp á sitt besta í Miami Vice. Það er ekki skrýtið að hún sé gjarnan sögusviðið í bíómyndum. Stærðin á öllu saman er það fyrsta sem grípur augað hjá Mosfellingnum en ekki síður sá mikli auður sem hefur safnast þarna sam- an enda er borgin miðstöð verslunar og flutninga. Þeim leiðist heldur ekki að sletta skyrinu þarna sem eiga það og bílarnir, snekkjurnar og tilkomu- mikil háhýsi setja sinn brag á kaup- staðinn. Fyrsta verk smáfólksins var að sjálfsögðu að hlaupa út í fagur- blátt og ylvolgt Atlantshafið við South Beach. Engin eftirsjá að hafa farið til Flórída á þessum tímapunkti. Arkitektúr borgarinnar er einnig vel þekktur og fólk sem kann að meta Útsýnið yfir Atlantshafið af svölunum á Setai-hótelinu á South Beach er fallegt. Það kom á óvart hversu hlýtt það var að svamla í öldurótinu við ströndina en í október er vatnið um 26-28° gráðu heitt. Fjölbreytilega Flórída Í október ferðaðist fimm manna fjölskylda frá Mosfellsbæ vestur til Flórída þar sem Miami, St. Petersburg og Orlando voru heimsóttar. Ríkið er margbreytilegt og borgirnar þrjár gjörólíkar. Ferðin var kærkomin framlenging á sumrinu. Texti og ljósmyndir: Hallur Már Hallsson hallurmar@mbl.is Á markaðnum í St. Petersburg þar sem hægt er að kaupa framleiðslu bænda og handverksfólks. Háhýsin í miðborg Miami eru mýmörg. Miami er ein stærsta borg Bandaríkjanna og ekki lítið að meðtaka fyrir sjö ára gamlan Mosfelling. Dalí-safnið í St. Petersburg er vel heppnað og geymir nokkur lykilverka meistarans.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.