Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 34

Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Hildarleikur í Djúpinu Skúli Halldórsson sh@mbl.is Þ rír togarar frá bresku hafnarborginni Hull hurfu í Norðurhöfum á tæpum mánuði í janúar og byrjun febrúar 1968. Alls fórust 58 sjómenn frá borg- inni. Togarinn St. Romanus fórst við Noregsstrendur hinn 11. jan- úar og Kingston Peridot hvarf í hafið fyrir norðan land tveimur vikum síðar. Síðast hafði heyrst til hans við Grímsey. 20 manna áhafn- ir beggja skipa fórust. Togarinn Ross Cleveland var þriðji og síðastur þeirra til að sökkva en atburðirnir eru vel þekktir í Bretlandi sem The Triple Trawler Tragedy, eða Þriggja tog- ara harmleikurinn. Aðeins einn maður lifði af þessi ósköp, hinn 26 ára Harry Eddom, sem fjallað var um á síðu 32. Sex þúsund sjómenn farist Samfélagið í Hull var ekki ókunnugt sjóslysum og missi mannslífa. Talið er að fleiri en sex þúsund sjómenn frá borginni hafi farist frá árinu 1835 og fram til 1980. En þessar fregnir, um að þrír togarar hefðu farist á aðeins þremur vikum, voru samfélaginu reiðarslag. Að því er fram kemur í umfjöllun borgarblaðsins Hull Daily Mail, þá að minnsta kosti þekktu allir í Hull einhvern sem slysin höfðu áhrif á. Sorgin lá yfir borginni. Síðar kom að minningarathöfn- inni þar sem 800 manns komu saman í Kirkju heilögu þrenning- arinnar í Hull og hlýddu á þegar nöfn hinna 58 látnu voru lesin upp. „Átakanlegasta stund borg- arinnar,“ sagði í borgarblaðinu. En ekkjur þeirra sjómanna sem höfðu farist og eiginkonur sjó- manna sem enn stunduðu sjóinn létu ekki þar við sitja. Harmleik- urinn olli enda ekki aðeins sorg heldur einnig reiði. Konunum í landi fannst sem þær hefðu verið sviknar. Of lengi hefðu útgerðir notfært sér það viðhorf sjómanna að sú hætta sem fylgdi veiðunum væri óumflýjanleg. Margefldist nú barátta þeirra fyrir bættu öryggi sjómanna þar sem konurnar kröfðust þess að komið yrði í veg fyrir að harm- leikur sem þessi gæti endurtekið sig. Þær mættu þó ekki aðeins andstöðu útgerðanna, heldur einn- ig sjómannanna sjálfra. „Mörgum mönnum gramdist sú staðreynd að konur væru að berj- ast fyrir þeirra málstað,“ sagði ein þeirra sem leiddu baráttuna, Yvonne Blenkinsop, í samtali við Hull Daily Mail fyrr í vikunni. „Þeir sem þó komu fram og börð- ust með okkur áttu það á hættu að finna enga vinnu á sjó framar. En við vorum ekki að reyna að valda usla, heldur aðeins að berjast fyrir bættu öryggi.“ Tíu þúsund undirskriftir Atburðarásin var hröð. Hinn 5. febrúar hafði Blenkinsop, ásamt þeim Mary Denness, Christine Smallbone og Lillian Bilocca farið niður á höfn til fundar við útgerð- areigendur. Þá breiddust út þær fregnir að þriðja skipið, Ross Cle- veland, hefði sokkið. Höfðu þær þá hraðar hendur og náðu að afla tíu þúsund undirskriftum á kröfulista sinn þar sem krafist var loft- skeytamanna fyrir hvert skip, ná- kvæmari veðurspáa, þjálfunar fyrir unga háseta, meiri öryggisbúnaðar og loks sérstaks fylgdarskips með læknisþjónustu sem fylgja myndi flotanum. Aðeins næsta dag voru konurnar á leið til Lundúna til að funda með viðskiptaráðherra landsins, með listann í hönd. „Ég sýndi honum þennan langa lista yfir örygg- isráðstafanir og sagði honum að ég vildi að þær yrðu allar gerðar. Ég fékk það sem ég vildi,“ segir Blenkinsop. Fyrir hópnum fór áðurnefnd Bi- locca, einnig þekkt sem „Big Lil“, og leiddi hún stöllur sínar til fleiri funda með sjávarútvegsráðherra Breta og forystu sjómannasam- bands landsins. Og þegar ráðherra siglingamála flutti ræðu á þinginu, skömmu eft- ir að Ross Cleveland hafði farist, þar sem hann lýsti áætlun stjórn- valda um aðgerðir til að grípa inn í öryggisleysið í sjávarútvegi varð ljóst að sjö daga barátta kvennanna hafði trompað áralanga baráttu verkalýðssambanda og þingmanna frá Hull, fyrir hinu sama. Handtekin um borð í togara Bilocca varð í kjölfarið algeng sjón á bryggjum hafnarinnar í Hull, þar sem konur höfðu áður helst ekki verið leyfðar. Þar spurði hún áhafnir hvort þær væru ekki örugglega fullmannaðar og með loftskeytamann um borð, áður en þær létu úr höfn. Eitt sinnið þurfti fjóra lögregluþjóna til að halda aft- ur af Bilocca og handtaka hana en þá hafði hún kastað sér um borð í togara eftir að áhöfn hans hafði svarað spurningunni neitandi. Talið er að konurnar fjórar, sem gengu undir nafninu Headscarf Revolutionaries byltingarhetjurnar með höfuðklútana, hafi bjargað þúsundum mannslífa með þessari herferð sinni. „Mér finnst þetta mikilvæg saga til að segja fólki,“ segir leikkonan og leikskáldið Maxine Peake í sam- tali við fréttavef BBC, en hún frumsýndi í Hull í byrjun nóvember nýtt leikrit um Lillian Bilocca, „Big Lil“. Hún segir Bilocca og hinar þrjár byltingarhetjurnar hafa mætt fyr- irlitningu, kvenhatri og jafnvel hót- unum um líflát frá samborgurum sínum í Hull og eigendum útgerð- anna. Baráttan hafi þó haft til- ætluð áhrif, lögunum verið breytt og lífi fjölmargra án efa bjargað. Bilocca lést árið 1988, þá aðeins 59 ára, en hún fæddist árið 1929. Annað leikrit um Bilocca hefur einnig verið á fjölunum í Hull und- anfarna mánuði. Það samdi leik- skáldið Van Holmes, sem var 15 ára þetta atburðaríka ár, 1968. Holmes segir nafn Bilocca oft hafa fallið hatri blandið af vörum fólksins í borginni þegar hún var að alast upp. Kennt um ill örlög útgerðanna „Körlum í sjávarútvegi fannst kon- ur ekki eiga að vera að skipta sér af þeirra störfum,“ útskýrir Holm- es í umfjöllun BBC, „og þeim breytingum sem hún náði að koma í gegn – fullmönnuðum áhöfnum, loftskeytamönnum fyrir öll skip og fleira – var kennt um þegar arð- semi sjávarútvegsins fór að hrynja.“ Hún segir að fyrst nú sé að breiðast út vitneskja um þá bylt- ingu sem Bilocca leiddi. „Það gleymdu allir því sem hún raunverulega náði að koma í verk á sama tíma og ill örlög útgerð- anna voru sett á hennar axlir. Ég held að núna sé að renna upp fyrir fólki hverju hún náði. Lífi þúsunda var bjargað, þökk sé henni og öðr- um konum þessa tíma.“ Þriggja togara harmleikurinn Samfélagið í hafn- arborginni Hull var harmi slegið eftir ítrek- uð áföll á aðeins þriggja vikna tímabili árið 1968. Biðin Þessi mynd birtist í The Sunday Times sunnudaginn 4. febrúar 1968: „Faðir þessa drengs var á St. Romanus [...] Hann hefur ekki viðurkennt fyrir sjálfum sér að faðir hans sé horfinn.“ Hetjur Byltingarhetjurnar með höfuðklútana marsera á fund útgerðarmanna í fylgd lögreglu. Bilocca átti síðar eftir að eiga frekari kynni við lögregluna er hún hélt áfram baráttu fyrir bættu öryggi á sjó. Forsíða Morgunblaðið þriðjudaginn 6. febrúar 1968. Eddom var þarna talinn af. Björguðu lífi þúsunda Minning Þetta vegglistaverk prýðir húsvegg í hafnarborginni Hull. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.