Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 36

Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Skúli Halldórsson sh@mbl.is B jarni var 19 ára II. vélstjóri Hugrúnar ÍS-7 þegar skipið lagði úr Bolung- arvíkurhöfn í ofsaveðri, undir stjórn Hávarðs Ol- geirssonar skipstjóra frá Bolung- arvík. Stefnan var sett inn á Ísafjörð til að koma þessum 200 tonna bát í var, og voru aðeins þeir tveir um borð. Aðeins nokkru síðar hóf áhöfn- in á Heiðrúnu II siglingu sína sömu leið, sem reyndist hennar hinsta. „Við vorum þeir síðustu sem komu lifandi í land. Við sluppum,“ segir Bjarni í samtali við 200 mílur. „En nú er Hávarður, sá blessaði maður, farinn héðan eins og sagt er.“ Bjarni segir svo frá atburða- rásinni þessa nótt: „Aðfaranótt 4. febrúar 1968 var ég annar vélstjóri á Hugrúnu ÍS-7, sem var gerð út frá Bolungarvík. Á þeim tíma var höfnin svo slæm að við þurftum í vondum veðrum að sigla skipum til Ísafjarðar. Þessa nótt var ég ræstur upp af skipstjóra mínum, Hávarði Olgeirs- syni, en hann bað mig að vera fljótan um borð því skipið væri að slitna frá bryggju. Þegar ég kom niður á brjót leist mér ekki á blikuna. Þá gekk haf- aldan yfir brjótinn. Ég man eftir því að mér fannst aldan vera eins og snjófjúk, því kuldinn var rosalegur. Til að komast um borð varð ég að halda mér í bryggjupollana og hlaupa á milli þeirra á milli þess sem öldurnar gengu yfir. Við það varð ég gegnblautur.“ Allir spottar slitnir nema einn „Þegar ég komst loks um borð bað Hávarður mig að vera fljótur að setja í gang, en þegar ég kom niður í vél sá ég að það var allt loftlaust. Leist mér þá ekki á blikuna en setti strax í gang loftpressuna og hljóp upp til skipstjórans og tilkynnti hon- um hvernig háttaði. Um leið leit ég út um brúargluggann og sá að allir spottar voru slitnir, utan einn. Þegar ég kom niður aftur sá ég að loftið var ekki nóg á öðrum kútnum til að ná vélinni í gang. Ég vildi þó ekki drepast þarna ráðalaus. Ég skrúfaði frá báðum krönum á loft- kútunum og skaut á vélina. Hélt ég jafnvel þá að hún færi ekki í gang en hún náði að venda sér yfir. Þegar ég var að fara aftur upp stigann mætti ég fyrsta vélstjóra, en þá var hann kominn um borð. Spurði hann mig hvort ekki væri allt í lagi og ég svaraði honum með því að það væri allt loftlaust hjá honum. Með það hvarf hann í land aftur. Fór ég þá fram á hvalbak til að sleppa þessum eina spotta sem var eftir, en mér leist ekki á hafrótið sem var fyrir utan endann á Brjótn- um. Þegar ég var búinn að setja end- ann inn í hvalbakinn hljóp ég niður í vél til að ganga frá loftkútunum og færa ljós yfir á aðalvél, en með því gat ég slökkt á ljósavélinni. Þá kom áfallið. Ég hélt að ég myndi hreinlega brotna niður. Í síð- asta róðri hafði hosan fyrir ytra vatnið á aðalvélinni farið í sundur á leiðinni í land og nú sá ég að vél- stjórinn var ekki búinn að gera við hana, en þó voru klemmur yfir gat- inu á henni sem við höfðum sett yfir. Ég gerði mér grein fyrir því að ef vélin stoppaði í þessu veðri yrðum við dauðans matur. Ég varð að fylgj- ast með henni. Þegar ég ætlaði upp úr vélarrúm- inu hallaðist stiginn öfugt svo ég varð að setja lappirnar í aðalvélina. Eftir góða stund fannst mér sem skipið ætlaði ekki að reisa sig við aft- ur, en svo gerði hún það rólega. Þá ætlaði ég upp stigann en fékk umsvifalaust kalda gusu framan í mig. Ég hélt að ég væri búinn að fá nóg af þessum sjó í bili, þó að hann væri ekki inni í miðju skipi eða niðri í vél.“ „Skipið varð fljótt alhvítt“ „Þegar ég kom upp í gang sá ég að gangurinn var fullur af sjó. Í öllum látunum þegar ég hljóp niður í vél hafði ég gleymt að loka dyrunum á eftir mér, með þessum afleiðingum. Ég varð því að vaða þennan leiðinda sjó aftur til að loka dyrunum, en það gekk ekki allt of vel að ná hurðinni í þessum veltingi. Það hófst að lokum og þá lá leiðin upp í brú. Þegar ég kom þangað sagði Hávarður við mig: „Ég hélt að hún ætlaði ekki að reisa sig þegar við fórum fyrir endann.“ Þá fattaði ég þennan mikla halla niðri í vél. Ég þorði ekki að segja Hávarði frá því sem var búið að gerast niðri, heldur fór ég út að glugga bakborðs- megin og gríndi út í sortann. Það var eins og við keyrðum skipinu inn í snjóhengjur, því allur sjór sem kom yfir skipið var hvítur. Skipið varð fljótt alhvítt. Hávarður var búinn að reyna við radarinn þegar ég kom upp í brú og spurði mig hvort ég treysti mér til að fara upp á brú til að þurrka af skan- nernum, svo við gætum fengið punkta. Ég sagðist verða að reyna það og fór niður til að klæða mig í sjóstakk- inn. Það hefði ég aldrei átt að gera því um leið og ég fór út á dekk varð ég eins og loftbelgur. Þegar ég var kominn hálfa leið upp stigann aftan á brúnni vissi ég ekki fyrr en ég stóð í lausu lofti. Hafði þá komið svo snörp hviða, sem blés upp undir stakkinn hjá mér og lyfti mér upp svo ég dinglaði um eins og loftbelgur. Fari það í helvíti, hugsaði ég, og fór aftur inn í brú til að klæða mig úr stakknum.“ Ólgandi haf og erfitt að fóta sig „Hávarður spurði mig þá hvort ég hefði komist upp. Ég svaraði honum að ég gæti ekki farið upp í þessum galla. Klæddi ég mig í lopapeysu og lopavettlinga sem amma mín hafði gefið mér og gerði aðra tilraun til að fara upp á þak. Það gekk sæmilega en þegar upp var komið var erfitt að fóta sig. Ég passaði mig að sleppa ekki grindverkinu fyrr en ég náði í rörið á skannernum, en þegar ég ætlaði að klifra upp í skannerinn var rörið svo sleipt af ísingu að ég náði ekki taki. Mér var ekki orðið sama um þennan velting og var orðinn allur hrímaður að utan. Áfram varð ég þó að reyna að komast þarna upp og fór að berja ísinn af rörinu. Steig ég í þrepið, setti hægri höndina utan um rörið og greip með henni í vinstri öxlina. Þannig hélt ég mér á meðan ég þurrkaði af rörinu með vinstri hendi. Það var ekki gaman að horfa niður í ólgandi hafið þegar skipið valt fram og til baka, og erfitt var að fóta sig á þakinu. Þessar ferðir fór ég þrisvar eða fjórum sinnum, en í öll skiptin þegar ég kom niður aftur og við reyndum að ná landi var aftur komin ísing, svo við náðum aldrei að sjá hvar við vorum. Í síðustu ferðinni upp á þak var ís- inn orðinn svo harður að ég átti erfitt með að ná honum í sundur. Hávarð- ur sagði mér þá að hann ætlaði að keyra nær Bjarnanúpi til að ná betra sjólagi. Á meðan við vorum að dóla þessa leið var ég orðinn dálítið strekktur yfir vélinni og hafði augun alltaf á mælunum, sem ég treysti þó ekki út af stressi og var því alltaf að hlaupa niður í vél til að fylgjast með henni. Allan þennan tíma hafði ég ekki tíma til að skipta um föt, ég held að ég hafi verið hættur að finna fyrir því hvað ég var rakur.“ Skipið var orðið einn ísköggull „Eitt skiptið þegar ég kom upp í brú sá ég að Hávarði var ekki rótt. Þá var sjórinn farinn að minnka en mér fannst það ekki betra. Rokið var svo mikið að við vorum hreint og beint í skafrenningi. Þá var mér hætt að lí- tast á ísinguna, skipið var orðið einn ísköggull. Ég var því alltaf að fylgjast með Hávarði, hvort hann ætlaði ekki að snúa skipinu inn Djúpið. Svo heyrð- ist allt í einu; „Jæja drengur minn, ég held að við snúum inn. Það er ekkert annað að gera, við ráðum ekki við þessa ísingu.“ Það var alveg öruggt að Hávarður vissi hvað hann mætti bjóða skipi sínu mikla ferð í þessu ofsaveðri, en þó var það ekki notaleg tilfinning þegar við snerum skipinu inn Djúp- ið. Rokið var svo mikið að mér fannst Nítján ára í siglingu upp á líf og dauða Bjarni Benediktsson frá Bolungarvík rifjar upp atburði aðfaranætur 4. febrúar 1968, þegar hann og skipstjóri Hugrúnar ÍS-7 reyndu að sigla frá Bolungarvík til Ísafjarðar í ofsaveðrinu. Ferðin reyndist erfiðari en nokkurn hafði grunað. Ungur Bjarni Benediktsson, 18 ára að aldri, ári fyrir ferðina eftirminnilegu. Hildarleikur í Djúpinu Stema kerrurCompair loftpressur Breitt úrval atvinnutækja TMP bátakranarHeila bátakranar Við græjumþað Til sjós eða lands Opið 8:30 - 17:00 virka daga - Sími: 562 3833 asafl.is HJALLAHRAUNI 2, 220 HAFNARFIRÐI Gæðavörur fyrir sjávarútveginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.