Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 37
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 37 skipið beinlínis leggjast á hliðina. Það var hálfleiðinleg tilfinning að standa þarna úti í horni bakborðs- megin í brúnni, með aðra löppina í radarnum til að styðja sig. Ég held að við höfum ekki gert okkur grein fyrir hallanum á skipinu en ég fann að hún var orðin dálítið svög á bár- unni. Ég renndi glugganum niður til að góna út í sortann, rokið og ísingin var orðin svo rosaleg að maður átti ekki orð yfir það. Skipið var núna orðið einn hvítur klaki, það var ekki hægt að sjá í grindverk. Þarna þegar ég var að góna út lagðist hún svo mikið að sjórinn kom upp yfir lestarlúgu. Mér fannst þetta hálfótrúleg sjón, að sjá blautan sjó- inn fjúka yfir skipið og verða að ís- gufu sem hlóðst svo á skipið. Á þess- ari leið var lítið sagt. Ég held að við höfum báðir hugsað það sama, að reyna að ná í höfn sem fyrst. Sjórinn sem var undir grindum í brúnni var farinn að trufla mig, því þegar skipið valt kom hann upp eftir veggjum“ Varð að reyna að ná í höfn „Það var orðið þrútið loftið í brúnni svo ég fór að reyna að spyrja að ein- hverju. Þá sá ég að Hávarður var orðinn sveittur. Hann var búinn að standa við stýrið allan þennan tíma án þess að hreyfa sig. Ég fór að segja við hann að mér fyndist hún vera orðin dáldið svög á bárunni. „Já,“ svaraði hann, „hún er orðin meira en það. Það þýðir ekkert hjá okkur að snúa við. Við verðum að vona að við lendum á réttum stað þar sem við komum.“ Ég man eftir því að ég fékk hálf- gerðan hroll. Ég hugsaði með mér að vélardruslan fengi að fara í botn ef við lentum uppi í fjöru. Maður var farinn að hugsa um margt. Ég gerði mér grein fyrir því að við gerðum ekki mikið tveir hér um borð. Það varð að reyna að ná í höfn sem fyrst. Maður skildi ekki hvernig skipið reisti sig aftur og aftur. Stuttu eftir þetta bað Hávarður mig að stýra, hann ætlaði að reyna að pissa. Sagði hann um leið að hon- um fyndist við vera komnir undir Arnarnes. Á þessu sést hversu glöggur þessi maður var á tilfinn- ingu sína fyrir staðsetningu skipsins. „Það er farinn að minnka sjór,“ bætti hann við. Ekki fannst mér það, heldur fannst mér ísingin alltaf verða verri og verri. Það var farið að birta af degi. Ég renndi aftur niður glugganum til að grína út í sortann, en sá frekar lítið. Það er erfitt að lýsa þessari ísgufu sem lá yfir okkur. Loks fannst mér ég sjá blokkina hjá Guðjóni frænda en þorði ekki að segja Hávarði það strax, ég hélt að ég væri orðinn vit- laus af stressi. Áfram starði ég þó og þetta reyndist vera rétt sem ég sá. Í sömu andrá var eins og glugga- tjöld væru dregin frá og ég sá um leið að ég varð að beygja skipinu í bakborða til að ná innsiglingunni. Hélt ég að hún ætlaði að leggjast við það en hún rétti sig rólega við.“ Horfði á mennina ráðast á ísinn „Það var nokkuð bjart á meðan við sigldum inn rennuna á Ísafirði. Ég man eftir því að þegar við komum að innstu bauju þá tók ég hana bak- borðsmegin, sem er vitlaust. Þá sagði Hávarður, „Jæja vinur, þá sitj- um við fastir en það verður ekkert að okkur hér.“ Það var svo skrítið að vera um borð í skipinu þegar við lónuðum um pollinn á Ísafirði, það var eins og það væri engin kjölfesta í skipinu því hún tók svo langar veltur. Þá tók maður fyrst eftir því hvað ísingin var orðin gífurleg á skipinu. Ég held að það hafi orðið svo mik- ið spennufall hjá okkur þegar við náðum í höfn að við gerðum okkur ekki grein fyrir því. Ég man bara eftir því hvað ég var orðinn máttlaus í fótum út af kulda og stressi og álagi. Fötin mín og lopapeysan voru orðin gegnblaut. Það var mikill léttir þegar Há- varður setti stefnið í síðuna á Guð- mundi Péturs ÍS-1 til að ná mann- skap um borð til að brjóta ísinn af skipinu, svo hægt væri að binda skipið. Ég stóð í bakborðsglugg- anum og starði á mennina ráðast á ísinn. Hann virtist vera mjög harður og þetta tók góðan tíma. Ég fór niður í vél til að litast um, það virtist vera allt í lagi þar. Þá klæddi ég mig úr peysunni og skyrt- unni til að vinda þær. Núna fann ég hvað ég var orðinn svangur því ég hafði ekkert fengið mér að borða um morguninn. Ég fór upp og hellti upp á kaffikönnuna og þegar ég var bú- inn að nærast sagði ég Hávarði að ég ætlaði til frænda míns til að fá að láni þurr föt. Hávarður sagði að það væri allt í lagi, en ég yrði að vera um borð um nóttina.“ Sporin voru þung um borð „Ég klæddi mig í úlpu utan yfir blauta peysuna mína og arkaði af stað út í rokið. Það var ekkert of auð- velt að komast þessa leið, rokið og kuldinn var svo mikill. Þegar ég kom að Íshúsfélagi Ís- firðinga varð ég að hvíla mig upp við vegginn á húsinu og berja í mig hita. Ég fann að ég hafði ekki þann kraft sem ég átti að hafa í mér. Það var notalegt að komast heim til Guðjóns frænda og Eyju konu hans. Þegar hún sá að ég var allur svona blautur sagði hún mér að fara í bað, en ég var eitt klakastykki. Það var skrýtið að leggjast í heitt vatnið. Það var eins og það ætlaði að líða yfir mig. Þegar ég var búinn að jafna mig eftir þessa vosbúð spurði ég hvort ég mætti hringja út í Bol- ungarvík og láta vinkonu mína vita af mér. Hún er konan mín í dag. Það var léttara að labba um borð aftur þegar maður var búinn að fá allar þessar kræsingar og þurr föt. Þegar ég kom um borð heyrði ég að það væri farið að óttast um Heið- rúnu ÍS. Það leist mér ekki á, að hún væri ekki komin í höfn, svo ég dreif mig í að fara að gera við hosuna á að- alvélinni. Þetta tók hjá mér tals- verðan tíma og það var mikill ótti í manni út af Heiðrúnu. Maður svaf lítið þessa nótt. Morguninn eftir steig ég upp á bryggju. Þá voru menn að tala um að það ætti að fara að leita að Heiðrúnu og fleiri skipum. Það gerðum við næstu daga, en allan tímann var maður hálfpartinn utan við sig. Sporin voru þung um borð og mikil sorg hvíldi yfir mönnum.“ Að morgni sunnudagsins 4. febrúar var orðin slík ókyrrð í höfninni í Bolung- arvík að stærri bátum var þar ekki vært og tóku landfestar þeirra að slitna. Þeirra á meðal var vélbáturinn Heið- rún II ÍS-12, 153 tonna vélbátur, sem lá við Brjótinn þegar óveðrið færðist allt í aukana. Stukku þá sex menn um borð og hugðust sigla bátnum til Ísafjarðar í var. Fylgdi báturinn í kjölfar Hugrúnar sem leið lá inn Djúpið en örlög skip- anna reyndust ólík. Heiðrún sneri aldr- ei aftur til hafnar. Sex menn fórust með Heiðrúnu II, Rögnvaldur Sigurjónsson, 52 ára vél- stjóri sem var skipstjóri í þessari ferð, og tveir synir hans, Ragnar, 18 ára, og Sigurjón, 17 ára, sem báðir voru háset- ar, Páll Ísleifur Vilhjálmsson, 31 árs vél- stjóri á vs. Guðmundi Péturs, Kjartan Halldór Kjartansson, 23 ára háseti á vb. Einari, og Sigurður Sigurðsson há- seti, 17 ára. „Svo kolsvartur var hríðarbylurinn, og svo trylltur vetrarstormurinn, að skipið neyddist til þess að halda sjó norður í Djúpinu,“ segir í einni minn- ingargreina um mennina sex í Morg- unblaðinu sunnudaginn 18. febrúar 1968. „Þegar stórir togarar farast inn- fjarða geta flestir gert sér í hugarlund, hversu taumlaus ofsi hefur verið í veðrinu,“ stendur þar ritað og er vísað til togaranna Notts County og Ross Cleveland. „Ísafjarðardjúp, hinn voti vegur kyn- slóðanna, hefur enn krafizt þungra fórna. Vegna fiskisældar hefur það löngum verið nefnt gullkistan. En þar rísa á stundum stórir sjóar, þungir og krappir. Það þekkja sjómennirnir við Djúp. En oft er það slétt út í hafsauga. Þá gælir það freyðandi við stefni skip- anna, sem halda á miðin eða til heima- hafnar. Seiður hafsins er magnaður kynngikrafti sem laðar vaska og dug- andi menn til sóknar á sjóinn til þess að draga björg í bú. Þannig heldur bar- áttan við Ægi stöðugt áfram, einnig eftir að hann hefur kveðið sorg og söknuð að fólkinu í landi.“ Seiður hafsins magnaður kynngikrafti Páll Pálsson GK-360 frá Sandgerði. Síðar Heiðrún II ÍS-12. „Ég hef nú oft haft á orði að þetta sé versta veður sem ég hef komið í,“ sagði Hávarður Olgeirsson skipstjóri í viðtali við vestfirska miðilinn Bæj- arins besta árið 1998, þá 73 ára. „Þetta var alveg hryllilegt veður. Ég hefði ekki viljað vera úti á rúmsjó í þessu veðri, þó að þetta hafi verið góðir bátar sem við vorum á. Við vor- um í höfn og Hugrúnin var að slitna frá um morguninn. Það var allt að slitna hjá okkur þegar ég kom ofan eftir og við rétt komumst um borð.“ „Þegar við komum rétt fram á vík- ina var ísingin svo mikil að ég sá ekk- ert í radarnum og sá hreinlega ekki neitt,“ sagði Hávarður. „Strákurinn braust af harðfylgi upp á stýrishús til að krafsa af radarnum svo að ég sæi eitthvað. Ég held satt að segja að það hafi bjargað okkur að ég gat fengið aðeins staðarákvörðun upp undir Hnífsdalsvíkinni. Þar gat strákurinn krafsað nóg til að ég gat aðeins séð landið til að þekkja hvar við vorum og gat þess vegna hiklaust tekið stefn- una inn fjörðinn. Aftur á móti held ég að þeir á Heiðrúnu hafi ekki átt möguleika á því að komast inn fjörð- inn, vegna þess að þeir hafi ekki vitað neitt hvar þeir voru. Þeir hafa orðið að halda sjó og það var annað en gaman í þessu frosti.“ „Um líf og dauða að tefla“ „Þetta var mikil harðneskjuferð. Það varð eiginlega allt óvirkt um borð. Ég var búinn að vera á þessum bát í mörg ár án þess að dýptarmælir eða radar eða neitt hefði klikkað, en þarna hafði ég ekkert dýpi og ekki neitt. Það fór allt úr sambandi í þess- um ósköpum. Þetta veður lægði það fljótt að við fórum út daginn eftir til að leita. Þá var komið ágætt veður.“ Hávarður varð skipstjóri þrítugur að aldri og hætti ekki skipstjórn fyrr en hann varð 67 ára. „Ég man nú ekki lengur neinar tímasetningar, hvorki hvenær við fór- um né hvenær við komum inn á Ísa- fjörð, en við vorum nokkuð lengi, mið- að við það sem venjulegt er. En ég hafði það á tilfinningunni alla leiðina, að hér væri um líf og dauða að tefla. Ef maður fyndi ekki fjörðinn og kæm- ist inn, þá væri þetta búið spil. Ég var með einn nítján ára ungling með mér og við hefðum ekkert ráðið við að standa í að berja klaka. Sjórinn rauk yfir skipið og ísingin var alveg rosa- leg. Þetta var alveg með ólíkindum.“ Hávarður lést árið 2010, 85 ára að aldri. Sjóinn hafði hann stundað í meira en hálfa öld. „Búið spil ef fjörðurinn fyndist ekki“ Skipstjóri Hávarður í brú skipsins sem hann stýrði lengi, Dagrúnu ÍS-9. Ljósmynd/BB Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Við Brjótinn Bjarni þurfti að hlaupa á milli bryggjupoll- anna í bakgrunni, á milli þess sem öldurnar gengu yfir. Sturlaugur Jónsson & Co er umboðsaðili fyrir Selhella 13 Hafnarfjörður sími 412 3000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.