Morgunblaðið - 06.03.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Garðar Kári Garðarsson, yfirkokkur
á lúxushótelinu Deplar Farm í Fljót-
um í Skagafirði, var nýlega valinn
kokkur ársins 2018. Garðar hafnaði í
öðru sæti í keppninni í fyrra og var
stuttu seinna ráðinn til Deplar
Farm, sem rekið er af bandaríska
fyrirtækinu Eleven Expierence. Að
sögn Garðars er afar hár gæðastuð-
ull á eldamennskunni á lúxushót-
elinu.
„Já, þetta er eins og að vera á
Michelin-stjörnustað erlendis. Þetta
er ótrúlega ólíkt öllu sem ég hef
prófað,“ segir Garðar en ekki er allt-
af eldað í eldhúsinu á hótelinu sjálfu.
„Ég er með tvo Ástrala hér í mat
núna og þeir fóru á vélsleðum yfir
heiðina að leika sér og skíða. Við fór-
um með hádegismatinn yfir heiðina
til þeirra. Elduðum hann í litlum
kofa sem við eigum hinum megin við
heiðina,“ segir Garðar en Deplar
keypti eyðibýli og gerði upp að innan
þar sem hægt er að elda mat fyrir
gesti sem yfirgefa hótelið.
Spurður hvort mikið sé um sér-
stakar óskir hjá gestum á hótelinu
segir hann það stundum koma fyrir,
en það sé nú bara gaman að því. „Ég
er með mjög elskuleg hjón í húsinu
núna sem eru grænmetisætur og
borða ekki egg á mánudögum og
föstudögum þannig að það koma al-
veg ótrúlegustu óskir. Þetta er nýtt
fyrir manni en maður tekst á við það
eins og hvað annað. Það er yfirleitt
ekkert mál, við erum með allt til alls
hérna fyrir vegan. Við reynum alltaf
að eiga allt fyrir glutenfree eða hvað
sem gæti komið upp.“
Nýtur sín í náttúrunni
Garðar segist spurður njóta sín í
kyrrðinni fyrir norðan en hann vann
áður hjá Fiskfélaginu í Reykjavík í
nokkur ár. „Ég er fæddur í Reykja-
vík en ég kann mjög vel við mig
hérna fyrir norðan. Ég nýt þess
mjög mikið að vera hér í náttúrunni.
Þegar ég var að vinna á Fiskfélaginu
var það það eina sem var að hvað
margir voru alltaf í eldhúsinu. Mað-
ur var ekki í eins mikilli í snertingu
við matinn. Ég var kannski bara orð-
inn gæinn sem raðaði á diskana og
maður var búinn að vera gera það í
hálft ár. Ég var ekkert endilega sá
sem var að steikja fiskinn eða búa til
sósurnar þannig að persónulegri
tenging við matinn minnkaði. Hérna
er maður svolítið einn og þetta
stendur og fellur með þér bara.“
Hins vegar getur það oft verið erf-
iðara að fá hráefnið í Skagafjörð en
ef unnið væri í Reykjavík. Garðar
segi það vera auðleyst. „Við fáum
vörur svona tvisvar til þrisvar í viku.
Við erum með menn í fullri vinnu
sem fara og sækja vörur á Siglu-
fjörð. Þetta er raunverulega ekkert
mál, maður er í raun bara hálftíma
að keyra á Sigló en það kemur fyrir
að það sé ófært og við höfum alveg
farið á vélsleðum og náð í vörur.“
Eldar fyrir hótel-
gesti í Fljótum
Kokkur ársins
vinnur á Deplum
Ljósmynd/Deplar Farm
Kokkur ársins Garðar Kári Garðarsson vann keppnina Kokkur árins árið
2018. Hann starfar sem yfirkokkur á lúxushóteli í Fljótum í Skagafirði.
Keppnin í ár var með hefðbundnu
sniði og þurftu keppendur að
senda myndir af þremur smárétt-
um ásamt uppskriftum til að kom-
ast inn. Einn smárétturinn þurfti
að innihalda ýsu, annar grísakinn
og þriðji rófur. Bestu myndirnar
og uppskriftir fóru í forkeppni í
Hörpu þar sem keppendur elduðu
réttina sína. Fimm fóru úr for-
keppni í úrslitakeppnina en þar er
eldað úr óvissukörfu sem kepp-
endur fá ekki að vita hvað inni-
heldur fyrr en daginn áður.
Garðar segist hafa undirbúið
sig fyrir keppnina með því að
fletta í bók sem hann á um hrá-
efni og íhuga hvað hann myndi
elda ef það hráefni kæmi upp í
keppninni. Elda þurfti þriggja
rétta máltíð fyrir 12 manns í úr-
slitunum og fengu allir keppendur
aðstoðarmann. Í forrétt voru m.a.
rauðspretta og argentískar risa-
rækjur. Nautalundir, nautakinn og
kálfabris (hóstarkirtillinn úr kálfi)
í aðalrétt og svo mysuostur, súr-
mjólk, sítrónutimían og salthnetur
fyrir eftiréttinn.
„Ég las það þannig að bónus-
verkefnið væri að gera Wellington-
nautasteik, það var smjördeig í
körfunni og maður varð að nota
það. Það lá því í augum uppi að
þau vildu Wellington,“ segir Garð-
ar en það getur verið erfitt. „Það
er mjög áhættusamt að gera það
því þú ert að leggja öll eggin í
sömu körfuna. Ég var sá eini sem
gerði Wellington,“ segir Garðar og
bætir við að hann hefði aldrei gert
Wellington-naut í keppni nema
vegna þess að hann sé vanur að
gera það.
Vann með Wellington
KOKKUR ÁRSINS 2018
Beolit 17
kr. 69.900,-
A1
kr. 34.000,-
P2
kr. 21.500,-
A2
kr. 45.900,-
H8
kr. 45.900,-
F
e
rm
in
g
ar
ti
lb
o
ð
:
V
e
rð
áð
u
r
6
7.
0
0
0
,-
Góð hugmynd - magnaður hljómur
Velkomin í glæsilega verslun Bang &
Olufsen í Lágmúla 8 og heyrið hljóminn. Lágmúla 8 - Sími 530 2800
Tillaga áheyrnarfulltrúa Fram-
sóknar og flugvallarvina um áhorf-
endabekki við Sæbraut var felld á
síðasta fundi í menningar- og
ferðamálaráði Reykjavíkur. Til-
lagan var felld með fimm atkvæð-
um fulltrúa Samfylkingar, Bjartr-
ar framtíðar, Pírata og Vinstri--
grænna. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins sátu hjá við afgreiðslu
málsins.
Það var Trausti Harðarson,
áheyrnarfulltrúi Framsóknar og
flugvallarvina, sem lagði tillöguna
fyrst fram í ráðinu 11. desember
sl. og var afgreiðslu hennar þá
frestað. Eftir rúmlega tveggja
mánaða yfirlegu hafnaði meirihlut-
inn nú tillögunni.
Trausti lagði til að menningar-
og ferðamálaráð hæfi skoðun á
þeirri hugmynd/verkefni að setja
upp áhorfendabekk/áhorfenda-
stúku, sem gæti tekið góðan fjölda
í sæti, við sjóinn meðfram Sæ-
braut. Þannig gætu ferðamenn og
borgarbúar setið saman og horft á
Esjuna, Skarðsheiði og Akrafjall
og fylgst með fallegri náttúru Ís-
lands við höfuðborgina.
Svona áhorfendastúkur eru
þekktar á ferðamannastöðum er-
lendis þar sem fólk þarf að fá góð-
an tíma til að njóta þess að horfa
á umhverfið, náttúruna og annað
fólk í leik og starfi, segir Trausti.
Hjalti J. Guðmundsson, skrif-
stofustjóri reksturs og umhirðu
borgarlandsins, gaf umsögn um
málið. Hann sagði að sviðið gerði
ekki miklar athugasemdir við
þessa framkvæmd. Það þyrfti þó
að gæta að útfærslu á uppsetn-
ingu bekkja varðandi hreinsun
þeirra, sérstaklega undir bekkj-
unum.
„Svo má geta þess að það gæti
orðið napurt að sitja á bekkjunum
í norðangarranum sem mjög oft er
á þessu svæði. Spurning hvort
huga verði að einhvers konar
skjóli sem ekki er mjög frekt í
umhverfinu,“ sagði Hjalti. sis-
i@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ægifögur Esjan Það er fagurt að horfa yfir Sundin. Skemmtiferðaskipið
Crown Princess siglir að Sundahöfn með snjóhvíta Esjuna í bakgrunni.
Áheyrnarfulltrúinn
fékk ekki áheyrn
Tillaga um áhorfendabekki við
Sæbraut var felld í ferðamálaráði
„BMW-innbrotsfaraldur á Íslandi í
dag. Farið inn í bílinn okkar í
Muruholti í nótt, mælaborði og smá
dóti stolið,“ svona hefst færsla í fés-
bókarhóp íbúa á Álftanesi í gær.
Þar eru birtar myndir af tveim
BMW-bifreiðum með brotnum rúð-
um. Mælaborð úr báðum bílunum
hafði verið tekið og stýri úr öðrum
þeirra.
Sævar Guðmundsson, aðalvarð-
stjóri hjá lögreglunni í Hafnarfirði,
segir innbrotin afar óvenjuleg.
„Það var tekinn hluti af mælaborð-
inu og stýri úr öðrum. Þetta er svo-
lítið öðruvísi innbrot í bíla, það er
ekki vanalega verið að taka svona
hluti,“ segir Sævar. Hann segir að
lögreglan rannsaki innbrotin eins
og hver önnur innbrot en hafi afar
litlar vísbendingar um málið. „Við
skoðum þetta eins og hvert annað
mál en þetta er ekki auðvelt við að
eiga en mjög svo athyglisvert í báð-
um þessum tilfellum.“ mhj@mbl.is
Óvenjuleg bílainnbrot á Álftanesi
Morgunblaðið/Þorkell
BMW Mælaborði og stýri stolið úr öðrum
bílnum. Myndin tengist fréttinni óbeint.