Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018
Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi.
Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is.
ICQC 2018-20
Óskarsverðlaunin bandarísku voru
afhent í nítugasta sinn í Hollywood
aðfaranótt mánudags og hlaut kvik-
mynd mexíkóska leikstjórans Guill-
ermo del Toro, The Shape of Wa-
ter, flest verðlaun eða fern og
tvenn af þeim sem eftirsóttust
þykja, þ.e. sem besta kvikmyndin
og fyrir bestu leikstjórn. Næstflest
verðlaun eða þrenn hlaut kvikmynd
Christophers Nolan, Dunkirk. Fátt
kom á óvart á heildina litið, þ.e.
hvar verðlaunin lentu að þessu
sinni. Og sem betur fer tókst þeim
Faye Dunaway og Warren Beatty
að kynna rétta mynd sem þá bestu,
ólíkt því sem gerðist í fyrra, eins og
frægt er.
Verðlaun fyrir bestan leik í aðal-
hlutverki hlutu Gary Oldman fyrir
Darkest Hour og Frances
McDormand fyrir Three Billboards
Outside Ebbing, Missouri og fyrir
bestu frammistöðu í aukahlutverki
hlutu verðlaun Sam Rockwell fyrir
Three Billboards Outside Ebbing,
Missouri og Allison Janney fyrir I,
Tonya. Verðlaun sem besta erlenda
kvikmyndin, þ.e. á öðru tungumáli
en ensku, hlaut Una Mujer Fantás-
tica, eða Stórkostleg kona, eftir sí-
leska leikstjórann Sebastián Lelio
og besta heimildarmyndin í fullri
lengd þótti Icarus eftir leikstjórann
Bryan Fogel. Af öðrum helstu
verðlaunum má svo nefna að Alex-
andre Desplat hlaut verðlaun fyrir
bestu frumsömdu tónlist, fyrir The
Shape of Water; Roger A. Deakins
hlaut verðlaun fyrir bestu kvik-
myndatöku fyrir Blade Runner
2049, besta frumsamda handritið
þótti handrit Get Out eftir Jordan
Peele og besta handrit byggt á áð-
ur útgefnu efni það sem James
Ivory samdi fyrir Call Me by Your
Name. Þess má geta að Ivory er
elsti handhafi verðlaunanna frá
upphafi, 89 ára að aldri.
Þó fátt hafi komið á óvart kom
þó eitthvað á óvart, t.d. að Kobe
Bryant, körfuboltastjarnan fyrrver-
andi, skyldi hljóta Óskarsverðlaun
en þau hlaut hann fyrir bestu
teiknuðu stuttmyndina, Dear Bas-
ketball, sem byggð er á bréfi sem
hann skrifaði árið 2015 um ást sína
á íþróttina og þá fyrirætlan að
leggja skóna á hilluna. Glen Keane,
leikstjóri myndarinnar, tók við
verðlaununum með Bryant en eins
og enska dagblaðið The Guardian
fjallar um þykir mörgum það bera
merki um tvöfalt siðgæði – á tímum
#MeToo og afhjúpana á kynferð-
islegu ofbeldi karla og áreitni í
garð kvenna í Hollywood og víðar –
að veita Bryant verðlaunin þar sem
hann var fyrir 15 árum kærður fyr-
ir nauðgun. Konan sem kærði hann
treysti sér ekki til að bera vitni fyr-
ir rétti og var málinu því vísað frá.
Einn af föstum liðum Óskars-
verðlaunahátíðarinnar er að minn-
ast látinna listamanna og að þessu
sinni var tónskáldið Jóhann Jó-
hannsson þeirra á meðal en Jóhann
lést í síðasta mánuði. Jóhann var
tilnefndur til Óskarsverðlauna
tvisvar, árið 2014 fyrir tónlist sína
við kvikmyndina The Theory of
Everything og ári seinna fyrir
Sicario. Jóhann hlaut fjölda verð-
launa og tilnefninga á ferli sínum,
m.a. Golden Globe-verðlaunin fyrir
The Theory of Everything.
Aðalkynnir kvöldsins, spjall-
þáttastjórnandinn Jimmy Kimmel,
sló að sjálfsögðu á létta strengi og
benti m.a. á í upphafi hátíðarinnar
að Óskar gamli, þ.e. styttan eftir-
sótta, ætti að vera körlum í Holly-
wood fyrirmynd því hann héldi að
sér höndum, talaði aldrei dónalega
og væri auk þess ekki með typpi.
helgisnaer@mbl.is
Fengsæll Mexíkóski leikstjórinn Guillermo del Toro hafði ástæðu til að
gleðjast og sést hér með tvenn verðlaun af fernum sem mynd hans hlaut.
AFP
Stórkostlegt Síleski leikstjórinn Sebastián Lelio hlaut verðlaun fyrir bestu
erlendu kvikmyndina, Una mujer fantástica, eða Stórkostleg kona.
Best Sam Rockwell, Frances McDormand, Allison Janney og Gary Oldman kát með Óskarsstytturnar sem þau hlutu
sem bestu leikarar og leikkonur í aðal- og aukahlutverkum, McDormand og Oldman í fyrrnefnda flokknum.
Óskar del Toro
The Shape of Water hlaut fern Óskarsverðlaun, m.a. sem
besta kvikmyndin Jóhanns Jóhannssonar minnst
Ofurhetjumyndin Black Panther,
Svarti pardusinn, var sú sem mestum
miðasölutekjum skilaði í bíóhúsum
landsins um helgina og það þriðju
helgina í röð. Miðasölutekjur voru
rúmar fjórar milljónir króna og sáu
myndina um 3.000 manns. Frá upp-
hafi sýninga hafa um 30.000 manns
séð hana og stefnir því í að hún verði
ein af vinsælustu kvikmyndum ársins.
Njósnahasarmyndin Red Sparrow
var sú næstvinsælasta um helgina en
hana sáu um 1.400 manns og grín-
myndin Game Night var einnig ágæt-
lega sótt, um 1.300 manns sáu hana.
Black Panther 1 3
Red Sparrow Ný Ný
Game Night 4 2
Fullir vasar 2 2
Lói - Þú flýgur aldrei einn 3 5
Bling 8 3
Early Man – Steinaldarmaðurinn Ný Ný
The Shape of Water 7 3
Paddington 2 5 8
Deep (Ævintýri í undirdjúpum) 16 7
Bíólistinn 2.–4. mars 2018
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Svarti pardusinn
enn á toppnum
Vinsæll Svarti pardusinn.
Bíóaðsókn helgarinnar