Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018
skornirthinir.is
Útivistadagar til 31.mars
Tonale Fas
Ítalskir leðurskór
Tepor dry filma veitir 100% vatsheldni
4mm gúmmíborði (grjót- og sandvörn)
Innsóli: Ortholite
Þyngd: 840gr (í stærð 42)
Tilboðsverð: 14.998
Verð áður: 29.995
Stærðir 39-44
30-50%
afsláttur af
Lytos útivist-
arskóm
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Vorjakkar
Kr. 17.900
Str. 38-52 • Tveir litir
Nafn maka
misritaðist
Nafn maka Ragnheiðar Mörthu
Jóhannesdóttur misritaðist í bak-
síðuviðtali í laugardagsútgáfu Morg-
unblaðsins. Hann heitir Benjamín
Þór Þorgrímsson. Þá lauk Ragn-
heiður læknanámi hér heima 2012 en
ekki 2010 eins og stóð í greininni.
LEIÐRÉTT
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Tekjur Hafnasamlags Norður-
lands af komum skemmtiferða-
skipa fóru yfir 244 milljónir króna
í fyrra og höfðu þá aukist hratt
árin á undan, en í Hafnasamlag-
inu eru hafnirnar í Grímsey, Hrís-
ey, Grenivík, Svalbarðseyri, Hjalt-
eyri og Akureyri. Á næsta ári er
áætlað að tekjurnar fari í 325
milljónir króna og er meðalfjölgun
farþega með skemmtiferðaskipum
til Akureyrar 10,5% á ári frá 1989,
samkvæmt upplýsingum Péturs
Ólafssonar hafnarstjóra.
Í ár er ráðgert að 128 þúsund
manns komi með skemmtiferða-
skipum til Akureyrar og fjöldinn
fari í 150 þúsund manns á næsta
ári. Í fyrra komu 115 þúsund
manns með skemmtiferðaskipum
til höfuðstaðar Norðurlands og 85
þúsund 2016, en þrjú ár þar á
undan hafði fjöldinn verið liðlega
70 þúsund á ári.
Hrísey á áætlun
í fyrsta skipti
Bókaðar eru 124 komur
skemmtiferðaskipa til Akureyrar í
ár og „úthverfi Akureyrar“ fá sinn
skerf af heimsóknum. Þannig eru
38 heimsóknir til Grímseyjar á
áætlun í ár og tvær heimsóknir til
Hríseyjar, en skipin geta þó ekki
lagst upp að bryggju í eyjunum.
Hrísey hefur ekki áður verið á
áætlun skemmtiferðaskipa, en
fyrsta skemmtiferðaskipið kom þó
þangað árið 2016. „Þá var ráðgert
að skipið Fram færi til Siglu-
fjarðar, en vegna veðurs reyndist
það ekki hægt,“ segir Pétur. „Þá
þurfti að finna aðra lausn og var
ákveðið að skipið færi til Hrís-
eyjar. Heimamenn skipulögðu
ferðir um eyjuna með stuttum
fyrirvara og mikil ánægja var
meðal farþega. Fyrir vikið ákvað
útgerðin að bóka tvær komur
skipsins 2018 og síðan fjórar kom-
ur 2019.“
Auknar tekjur Akureyrarhafnar
vegna skemmtiferðaskipa munu
m.a. fara í endurbyggingu á
Torfunesbryggju, lengingu á
Tangabryggju, auk uppbyggingar
smábátahafnarinnar í Hofsbót og
Sandgerðisbót og síðast en ekki
síst smíði á nýjum dráttarbát,
sem kostar hátt í hálfan milljarð.
Seifur eykur öryggi
Pétur hafnarstjóri reiknar með
nýja bátnum, sem fengið hefur
nafnið Seifur, til heimahafnar um
mánaðamótin maí-júní. Smíði
hans er langt komin í Oviedo á
Spáni og er nýi dráttarbáturinn
22 metrar að lengd, níu metrar á
breidd og togkrafturinn verður
um 40 tonn. Báturinn er áþekkur
Magna, dráttarbáti Faxaflóa-
hafna. Fyrir á Hafnasamlagið
Sleipni með 11,2 tonna togkraft
og Mjölni með 2,5 tonna togkraft.
Seifur er með tvær skrúfur og
verður með búnað sem hægt er
að stilla þannig að hann getur
siglt af krafti út á hlið og er fyrsti
dráttarbáturinn hérlendis með
þennan búnað. Nýi báturinn verð-
ur öflugur og segir Pétur að hann
auki mjög öryggi, til dæmis gagn-
vart olíuskipum sem koma í
Krossanes og þeim flutningum
sem eiga sér stað fyrir norðan
land.
Vertíð fram í október
Meðal skipanna sem koma til
Akureyrar í sumar er MSC Mera-
viglia, stærsta skemmtiferðaskip-
ið sem komið hefur til landsins.
Það er 315 metrar að lengd, með
rými fyrir rúmlega 4.500 farþega
og í áhöfn eru 1.540 manns. Skip-
ið er væntanlegt í fyrsta skipti 24.
maí.
Fyrsta skipið sem kemur til
Akureyrar í ár er Celebrity Ec-
lipse, sem er væntanlegt 5. maí.
Komum fjölgar síðan jafnt og þétt
og nokkra daga í júlí eru fimm
skip væntanleg til Akureyrar. Er
líður á september dregur úr
skipakomum, en vertíðinni lýkur
þó ekki fyrr en 22. október.
Stöðug fjölgun skemmtiferðaskipa
Áætlað að 128 þúsund manns komi með skemmtiferðaskipum til Akureyrar í sumar „Úthverfin“
Grímsey og Hrísey ekki útundan Tekjur m.a. nýttar í endurbætur og kaup á nýjum dráttarbáti
Ljósmynd/Hafnasamlag Norðurlands
Vertíð Þegar stór skip koma til Akureyrar kallar það á vinnu 12-14 manna
frá höfninni, en mörg störf verða til á landsbyggðinni vegna komu skipanna.
Komur skemmtiferðaskipa til Akureyrar og Norðurlands
300
250
200
150
100
50
0
150
125
100
75
50
25
0
þúsund farþegar
Tekjur, milljónir kr.
Farþegafjöldi með skemmtiferða-
skipum til Akureyrar, Grímseyjar
og Hríseyjar 1989-2019*
Tekjur Akureyrarhafnar af komum
skemmtiferðaskipa 2000-2019*
*Áætlun fyrir 2017-2019
**Samkv. könnun Cruise Iceland frá 2014
Heimild: Hafnasamlag Norðurlands
11
evrur
79
evrur
Meðaleyðsla í hverju
stoppi skemmtiferða-
skips**
Skipverji Farþegi
10,5%
7%
Fjölgun farþega með
skemmtiferðaskipum
Árleg meðalfjölgun frá 1989
Til Akureyrar Á heimsvísu
ferðamanna sem koma til
Íslands eru farþegar með
skemmtiferðaskipum
farþega með skemmti-
ferðaskipum eru að koma
í fyrsta sinn til Íslands**
’89 ’90 ’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96 ’97 ’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19
Heimsóknir skemmtiferðaskipa 2013 2014 2015 2016 2017* 2018* 2019*
Til Akureyrar 63 78 86 93 124 129 140
Til Grímseyjar 0 0 18 11 31 38 31
Til Hríseyjar 0 0 0 1 0 2 4
Heildarfjöldi heimsókna 63 78 104 104 155 167 175
Farþegafjöldi (þúsund) 71 72 72 85 116 128 150
85%6%
Það eru ekki aðeins komur
skemmtiferðaskipa sem hefur
fjölgað á Akureyri. Gestum sem
nýta sér þjónustu ferðaþjónustu-
báta hefur einnig fjölgað mikið.
Þeir voru tæplega 38 þúsund í
fyrra, 28 þúsund 2016, 14.500
árið 2015 og tæplega níu þúsund
2014. Alls gerðu fjögur hvala-
skoðunarfyrirtæki út frá höfnum
Hafnasamlags Norðurlands. Auk
þess hafa fyrirtæki gert út bæði
frá Hauganesi og Dalvík með
góðum árangri. Farþegar þeirra
eru ekki með í þessum tölum.
Margir fara í
hvalaskoðun
FERÐAÞJÓNUSTUBÁTAR
HB Grandi og
Samherji eru í
tveimur efstu
sætum á lista
Fiskistofu yfir
útgerðir sem
réðu yfir mestri
aflahlutdeild 1.
mars sl., eftir út-
hlutun aflamarks í deilistofnun um
áramótin og viðbótarúthlutun á
loðnu og norsk-íslenskri síld. HB
Grandi er með um 10,9% af hlut-
deild en var í september með 10,4%.
Samherji er með 6,3%.
Samanlagt ráða þessi tvö stærstu
útgerðarfyrirtæki landsins yfir
17,2% af hlutdeild í kvótakerfinu. Í
3. til 5. sæti eru Síldarvinnslan í
Neskaupstað, Þorbjörn í Grindavík
og FISK-Seafood, Sauðárkróki.
Í krókaaflahlutdeild er röðin á
stærstu útgerðunum hin sama og sl.
haust. Grunnur í Hafnarfirði er
stærstur með 4,6%, Jakob Valgeir í
Bolungarvík og síðan Einhamar
Seafood með um 4,1% hvor útgerð.
Óbreytt röð kvóta-
hæstu fyrirtækja
Viðskipti