Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018 ✝ Sigríður HelgaÍvarsdóttir fæddist 1. desember 1929 á Ísafirði. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli 22. febrúar 2018. Hún var dóttir hjónanna Stefaníu Eiríksdóttur, f. á Geirseyri 22. ágúst 1899, d. 20. mars 1930, og Ívars Alex- anders Jónssonar, f. á Ísafirði 21. júlí 1903, d. 29. febrúar 1972. Al- bróðir Sigríðar var Jón Gunnar Ívarsson, f. 30. janúar 1927, d. 10. ágúst 2006. Hálfsystkini sam- mæðra voru Björgvin Leó, Lára og Pétur Jens sem öll eru látin. Hálfbróðir samfeðra var Elías Alexander Ívarsson sem einnig er látinn. Hinn 31. desember 1949 giftist Sigríður Guðjóni Magnússyni frá Vestmannaeyjum, f. 12. ágúst 1927, d. 8. júní 1997. Þau eiga fjögur börn 1) Guð- rún Stefanía, f. 26. ágúst 1949, gift Sigurði V. Gunnarssyni, hún á tvo syni, Rúnar Stein og Ragn- ar Stein, og fjögur barnabörn. 2) Sólrún Ása, f. 1. ágúst 1952, gift Rúnari Friðgeirs- syni, þau eiga þrjár dætur, Sigríði Helgu, Bryndísi og Önnu Dögg og 10 barnabörn, þar af er eitt látið. 3) Vign- ir, f. 26. júlí 1962, kvæntur Guðnýju Atladóttur Hraun- fjörð, eiga þau fjög- ur börn, Arnar Má, Katrínu Huld, Vikt- oríu Ósk og Guðjón Atla, og tvö barnabörn. 4) Guðjón, f. 9. júní 1966, kvæntur Margréti Grét- arsdóttur. Sigga, eins og hún var alltaf kölluð, ólst upp á Ísafirði með Nonna bróður sínum hjá Guð- rúnu föðurömmu þeirra sem þá var orðin ekkja með tvö yngstu börnin sín, en móðir þeirra lést þegar Sigga var þriggja mánaða og faðir þeirra var sjómaður. Hún fluttist til Reykjavíkur um 14 ára aldur og var í vist þar til hún kynntist eiginmanni sínum, Guðjóni Magnússyni, og þau byrjuðu ung að búa saman. Útför Sigríðar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 6. mars 2018, klukkan 13. Elsku mamma. Augun eru tárvot þegar ég skrifa þessi fátæklegu orð til þín. Það sem kemur upp í huga mér er allur sá kærleikur sem þú gafst okkur börnunum þínum og síðar barnabörnum og barnabarna- börnum, fjölskyldan var þér allt. Eldamennskan þín, baksturinn og að sjálfsögðu brauðterturnar, margir hafa reynt að ná fram þeim töfrum. Tónlist var ofarlega í þínum huga og manni er minnisstætt þegar húsið var þrifið, þá var út- varpið á hæsta styrk. Nágrann- arnir sögðu að nú væri hún Sigga að þrífa. Ferðalög ykkar pabba, fyrst innanlands og síðar erlendis, voru ykkur hugleikin og margar ferðir planlagðar fram í tímann. Þegar ég og Guðný mín flutt- um til Kaupmannahafnar þá var ekki annað tekið í mál en að koma með og sjá til þess að við kæmum okkur almennilega fyrir. Eins þegar þú fréttir að von væri á fyrsta barni okkar, honum Arnari Má, þá ákvaðstu að koma út til okkar og aðstoða okkur eins og kostur væri. Margar skemmtileg- ar minningar eru frá þessum tíma enda komuð þið pabbi nokkrum sinnum í heimsókn til okkar. Öll eiga börnin mín góðar og skemmtilegar minningar. Hjálp- semi og dugnaður eru mjög of- arlega í minningaflóðinu, morg- unleikfimi, göngutúrar og þegar þú fluttir í Hátúnið þá varð stig- inn frekar fyrir valinu en lyftan. Börnin mín kölluðu þig Hvítu ömmu til aðgreiningar frá hinni ömmunni þar sem þið hétuð sama nafni, alltaf var gleði hjá þeim þegar farið var í heimsókn til Hvítu ömmu, þá var þar hlaðborð af veitingum og eða uppáhalds- maturinn framreiddur. Já, ég gæti haldið endalaust áfram því þær eru svo margar minningarnar. Elsku mamma, hvíl þú í friði og megir þú njóta þess að vera kom- in í faðm pabba. Elskulega mamma mín mjúk er alltaf höndin þín. Tárin þorna sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðin er allt það skal ég launa þér. (Sigurður Júlíus Jóhannesson) Þinn sonur, Vignir Guðjónsson. Jæja, elsku mamma mín. Nú er því miður komið að kveðjustund. Ég hefði ekki getað óskað mér betri móður en þig. Margar minningar koma upp í hugann hjá mér sem framkalla ýmist hlátur eða grát. Ég var nú ekki alveg auðveldasta barn í heimi en alltaf hafðir þú lag á mér. Fyrsta sem ég man eftir var þegar ég var sendur í leikskóla – og var ekki alls kostar sáttur við það. Eftir skamma dvöl mína þar gengur systir mín framhjá – og Gaui litli byrjar að væla. Endar það með að systir mín tekur mig með sér og fór ég aldrei aftur í leikskólann, heldur var heima hjá mömmu ásamt systkinabörnum mínum – enda var ég nú alltaf svolítið ofdekraður. Ógleymanlegar eru allar ferð- irnar til Ísafjarðar – en þar voru alltaf rætur þínar, elsku mamma mín, og varstu ætíð stolt af að vera Ísfirðingur. Gistum við yfirleitt í litla gula húsinu hjá henni Gunnu frænku, þar sem sturtan var á miðju gólfi í kjallaranum. Oft og iðulega var farið niður að tjörn að dorga og komum við oft heim með litla titti sem þú neyddist til að elda. Man alltaf þegar fór að gjósa í Vestmannaeyjum og amma hringdi í þig, þú varst alveg full- viss um að gamla konan væri nú alveg komin út úr heiminum. Síð- an dvaldi amma og Gísli hjá okk- ur þar til húsnæði fannst fyrir þau. Þið pabbi fóruð mikið til út- landa saman en eftir að hann dó fórum við Magga mín með þér í fjölmargar ferðir. Margar skemmtilegar minningar á ég úr þeim ferðum. Nú hef ég þann ósið að taka í vörina, en þú trúðir því nú aldeilis ekki upp á litla gutt- ann þinn. Svo í einni ferðinni til Mallorca biður þú mig um að hætta að drekka bjór því ég verði alltaf svo skrítinn til munnsins við það. Einnig í ferðinni kynnt- umst við þjóni sem við kölluðum herra klaufabárð, alltaf þegar hann sá þig varð hann svo ofsa- kátur að hann gleymdi hvað hann var að gera og kom og fagnaði okkur, t.d. missti hann hnífapör á gólfið og í eitt skiptið missti hann fullan kassa af kóki. Ógleymanleg er líka ferðin til Lagos í Portúgal – þegar við löbbuðum upp á hæð til að sjá út- sýnið betur – þú vildir sko ekki missa af fegurðinni þannig að með þrjósku og mikilli vatns- drykkju komstu alla leið upp og sást sko ekki eftir því – því feg- urðin var einstök. Í þeirri ferð fannst þér ótrúlega gaman að ferðast með litlu „lestinni“ og njóta útsýnisins. Sú ferð var síðasta ferðin sem þú komst með okkur þar sem heilsu þinni hrakaði mjög það ár. Því miður, elsku mamma mín, fékkstu þann sjúkdóm sem þú óttaðist mest, minnistap og voru síðustu ár þér mjög erfið. Við átt- um þó inn á milli yndislegar stundir þar sem þú virtist þekkja okkur – þær stundir mun ég ætíð varðveita í hjarta mínu. Elsku mamma mín – ég mun ætíð ylja mér með öllum fallegu og skemmtilegu minningunum um þig – sakna þín alveg enda- laust. Elska þig, elsku mamma! Sem ungu barni þú ruggaðir mér í svefninn, með söng á vörum þér svaf ég þá vel og svaf ég fast því ég vissi, alla þína ást mér gafst (Höf.ók.) Guðjón Guðjónsson. Elsku hjartans mamma okkar, nú ertu búin að fá hvíldina eftir erfið síðust ár. Við eigum margar góðar minningar frá okkar æsku með þér og pabba. Hann vann mikið en þú varst heimavinnandi okkar fyrstu ár og þú tókst á móti okkur með heitu kakói og bakkelsi þegar við kom- um heim kaldar úr skóla, útvarp- ið á fullu og þú syngjandi með. Þú varst frábær húsmóðir, alltaf að þrífa, baka, elda góðan mat og svo saumaðir þú á okkur fullt af fallegum fötum. Alltaf var tekið vel á móti fólkinu okkar ut- an af landi og gistu margir þó þröngt væri. Vignir bróðir fæddist þegar við systur vorum 10 og 13 ára og 4 ár- um síðar bættist Guðjón við. Stuttu síðar fórstu að vinna úti við. Þegar við systur fórum að búa og eignast okkar eigin börn varstu alltaf tilbúin að aðstoða okkur og börnin okkar elskuðu að vera hjá ömmu og afa. Elsku mamma, þér fannst gaman að fara í leikhús og á tón- leika með okkur og fórum við mjög oft. Þér fannst einnig gam- an að dansa, svo varstu dugleg að labba og fara í leikfimi. Þú varst mitt líf, þú varst mitt skjól í veröld sem hverful er. Öll þín bros, öll þín hól, ætíð gleði vöktu hjá mér. Nú ertu horfin og ég einmana er, ég sakna þín alla daga. Enginn sem heldur í höndina á mér, eða hjálpar mér lífið að laga. Í mínu hjarta samt hef ég þig og hugurinn hjá þér er. Ég veit þú ávallt verndar mig og vakir áfram yfir mér. Elsku mamma, ég kveð þig nú, með ekkatárum á kinn. Mín huggun er og hjartans trú á himni þig seinna ég finn. (Heiða Jónsd.) Elsku mamma, það mun eng- inn geta fyllt það skarð sem þú hefur skilið eftir í hjörtum okkar en við munum ylja okkur við allar þessar minningar sem við eigum um þig og þökkum fyrir þann tíma sem við höfðum þig hjá okk- ur. Við vitum að pabbi tók vel á móti þér. Þínar dætur, Guðrún og Ása. Hún opnaði hurðina og bauð mér inn. Strauborðið var á miðjum ganginum, á því voru ný- pússaðir skór, hún sagði mér að hún væri að klára að strauja skyrtuna. Þarna var hún Sigga mín ljóslifandi að passa upp á það að drengurinn færi glansandi fínn út með nýju kærustunni. Það var eins og ekkert væri of mikið verk þegar það sneri að syninum. Eig- inmaðurinn hann Gaui var ekki síður stífstraujaður og glansandi. Ég hafði ekki verið lengi hluti af fjölskyldunni þegar Sigga ákvað að það væri best að þjálfa mig í því að sjá um drenginn hennar. Þó svo ég hafi verið sein til að læra eldamennskuna þá skemmtum við okkur mikið við að útbúa veitingar í veislur. Þessi lærða smurbrauðsdama var fag- maður fram í fingurgóma, öll smáatriði voru skoðuð, útlit og bragð alltaf óaðfinnanlegt. Hún reyndi á mjúklegan hátt að segja mér að ég gæti alveg lært að strauja af honum Vigni, það var algjör óþarfi að hann væri greyið að strauja. Sigga hafði meiri trú á að ég gæti orðið almennileg hús- móðir en efni stóðu til. Mér þótti ofurvænt um þegar hún saumaði á mig kornunga buxnadragt, það hafði enginn gert áður. Ógleymanlegt er líka þegar við vorum í Danmörku og von var á fyrsta krílinu, þá kom hún til okkar og saumaði barna- treyjur sem hún handsaumaði munstur í. Hún kom einnig með treyjur af pabbanum sem hún hafði passað vel upp á. Ég klæddi nýfæddan soninn í þessa dýrgripi og öll börnin eftir það. Það myndi færa þeim lukku var ég viss um. Hún lagði mikla vinnu í barna- teppi þegar það yngsta fæddist og barnið gat ekki sofnað án þess að hafa það hjá sér, ég var viss um að það væru svefntöfrar í teppinu sem hún hafði vafið inn í saum- ana. Hún lét okkur líka vita að hana hafði dreymt draum þar sem afinn vitjaði nafns síns og að sjálfsögðu fékk barnið Guðjóns- nafnið, hún Sigga mín hafði sínar leiðir til að fá sínu fram. Ég fæ seint þakkað henni fyrir þann tíma sem við eyddum mán- uðum saman eftir að Guðjón Atli fæddist. Ég fór að vinna fljótlega eftir að hann kom í heiminn og hvern vinnudag minn mætti hún með mér til að sinna krílinu svo ég gæti unnið, þegar hann tók síð- degislúrinn laumaði hún sér í strætó heim. Aldrei kvartaði hún og gerði þetta alltaf með bros á vör. Guðjón Atli sá ekki sólina fyrir ömmu sinni. Hún vildi barnabörnum sínum allt hið besta og lagði mikið á sig til að sýna það í verki. Mig langar að enda þetta á minningu þegar ég fór með Siggu mína og börnin í ferðalag upp á hálendið, þangað hafði hún aldrei farið. Við höfum oft áður gert nýja hluti saman og prófað okkur áfram og hlógum mikið þegar mistökin voru gerð en í þetta skipti fannst henni nokkuð langt gengið. Tengdadóttirin ætlaði að keyra hálendið sjálf, yfir læki og ár, upp fjöll og niður dali. Ertu viss? spurði hún oft, „já, já“ var svarið. Spenningurinn var stund- um alveg að fara með hana svo skríkti og ískraði í henni þegar við komumst yfir áfanga og hún dásamaði hverja þúfu. Þessi tími er sá sem ég ætla að geyma vel í minningunni um fallega konu sem vissi hvað hún vildi og elskaði sína ofur heitt. Guðný Atladóttir Hraunfjörð. Tveggja manna vist og spila- borg undir sófaborðinu, það er ein af fjöldamörgum minningum okkar um hana Siggu ömmu. Hún gerði morgunæfingarnar með út- varpinu á morgnana og við tókum stundum þátt. Hún fór með okkur í göngutúra, var stefnan oftast tekin á Klambratúnið og þar var farið í leiki. Í göngutúrana fór hún í glans-íþróttagallann og hæ- laskóna, setti á sig bláan augn- skugga, bleikan varalit og slæðu. Eftir göngutúrana var farið í búð- ina og keypt hvítt skyr í sellófani sem hún hrærði upp með rjóma og sykri. Ömmuskyr var besta skyr í heimi og svo gerði hún handa okkur örbylgjuaroma- tostabrauð sem enginn hefur náð að gera alveg eins. Ekki má gleyma ballerínukexi með sultu. Arnar fór sérferðir til ömmu þeg- ar hann vissi að hún átti rabar- baragraut. Viktoría fékk oft að fara með í Kringluna á sunnudög- um þar sem þær fóru í glugga- verslunarferð. Sigga amma fór í langan leiðangur með Katrínu til að finna hárband sem var auðvit- að flottasta hárband sem til var. Í hvert skipti sem Guðjón Atli kom var spilað og hann látinn vinna. Það var líka gaman þegar við fórum út í garð að finna fjögurra blaða smára, hún gat verið svo uppfinningasöm á skemmtilega hluti sem kostuðu ekkert annað en tíma sem hún gaf okkur enda- laust af. Sigga amma var dugleg að hnoðast með okkur barna- börnin, alltaf til í strætóferð og labb. Þó svo hún væri að elda eða baka gaf hún sér tíma til að lita smá eða spila við okkur. Við eigum minningar um góðar bíómyndir þar sem við sátum öll með ömmu að horfa á eða vorum undir stofuborði með smáa boll- astellið sem við héldum svo mikið upp á. Svo var það hvíti kassinn með tveimur spilastokkum, þar voru afaspil. Sigga amma passaði að við færum varlega með þau en hún lét samt eftir Viktoríu að fá alltaf drottningarnar því þær þurftu að kyssa kónginn. Amma var alltaf tilbúin með hitapoka fyrir fæturna hans afa þegar hann kom heim úr vinnu, hún var svo stolt af öllu sem afi smíðaði fyrir hana eins og rúmgaflinn og stofuskápinn. Já, hún amma elsk- aði afa afar heitt og kom aldrei neinn annar maður til greina fyrir hana. Amma sá um faðirvorskennsl- una og geymdi allar teikningar sem við gerðum og sýndi okkur stundum. Hún hvatti okkur áfram, hafði trú á okkur. Það verður líka að muna eftir öllum ferðalögunum sem hún kom með okkur í, það skipti engu máli hvað við vorum að gera hún var til í að vera með. Guðjón Atli byrjaði að kalla hana Hvítu ömmu og við hermd- um öll eftir því báðar ömmurnar voru Sigga amma. Hvíta amma var í miklu uppáhaldi hjá honum og á tímabilum hittust þau oft í viku. Hún sagði okkur margar sögur af uppvaxtarárum sínum á Ísa- firði þar sem hún bjó hjá ömmu sinni og með Nonna bróður. Ísa- fjörður átti sérstakan stað í hjarta hennar og þótti henni mjög vænt um fjörðinn sinn og alla ætt- ingjana sem hún átti þar. Amma var alltaf fín og sæt, fór í lagningu og passaði upp á fötin sín og vildi vera smart. Við vorum heppin með hana Hvítu ömmu okkar. Arnar Már, Katrín Huld, Viktoría Ósk og Guðjón Atli. Elsku Sigga okkar, nú ertu far- in af stað í ferðina sem bíður okk- ar allra. Þú varst húsmóðir fram í fingurgóma. Fallegu snitturnar, brauðterturnar, brúðarterturnar og góði maturinn, heimagerði ömmuísinn, aspassúpan, læris- sneiðarnar og ekki má gleyma bernaisesósunni. Allt svo skínandi hreint, þú svo flott alltaf með nýlagt hár, falleg- ar neglur og fallega klædd, rautt var í sérstöku uppáhaldi hjá þér og fór þér svo vel. Alltaf tilbúin að aðstoða okkur og alltaf tilbúin í flakk um borgina eða landið. Smurða nestið þitt var á öðrum og hærri stalli en hjá flestum öðr- um, heimabakað alltaf með í ferð og kaffibrúsinn aldrei langt und- an. Þú elskaðir að ferðast og við eigum öll skemmtilegar minning- ar með þér bæði innanlands og erlendis. Ísafjörður átti alltaf sérstakan stað í huga þér og minningarnar sem þú deildir með okkur voru margar þaðan og oftar en ekki lá leið ykkar þangað í sumarfrí. Best leið þér með alla fjöl- skylduna hjá þér í mat og kaffi og barnabörnin nutu þess að vera hjá Siggu ömmu sem gaf sér allt- af tíma til að leika við þau og dúkkan Greyið huggaði marga og hver kaffitími var eins og afmæl- isveisla. Næstum hvern dag röltir þú svo niður Laugaveginn með bláan augnskugga og varalit að kíkja í búðarglugga, fá þér kaffi- bolla og skoða mannlífið. Þú elskaðir að fara á tónleika, í leikhús, á kaffihús, og undir þér vel í föndrinu og félagsstarfinu hjá eldri borgurum, þar sem þú skapaðir fallegt glerverk, búta- saumsteppi, dúka og fleira. Þú sást aldrei neinn annan mann en hann Gauja þinn. Þið fellduð hugi saman ung að árum og voruð alla tíð samheldin og glöð saman. Þú saknaðir hans alla tíð eftir að hann féll frá og í dag eruð þið loksins sameinuð á ný. Elsku Sigga okkar, við þökk- um þér fyrir samfylgdina í gegn- um lífið, væntumþykjuna, hlýjuna og allt sem þú kenndir okkur. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Ástarkveðja, þín tengdabörn, Sigurður, Rúnar og Margrét. Sigríður Helga Ívarsdóttir  Fleiri minningargreinar um Sigríði Helgu Ívarsdótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Okkar ástkæra ÞÓRUNN BENNÝ FINNBOGADÓTTIR lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 26. febrúar. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 9. mars klukkan 15. Aðstandendur Móðir mín, tengdamóðir og langamma, MARÍA HILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn 24. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 8. mars klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Lauf - Félag flogaveikra eða Alzheimersamtökin. Rannveig Sigurgeirsdóttir Sverrir Jónsson Erla Jóna Sverrisdóttir Aron Logi Andrason Skarphéðinn Elí Andrason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.