Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 12
Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Það virðist vera kynjamunurá yfirbragði mynda semsettar eru á fésbókina hjáunglingum og ungu fólki18 ára og eldra. Strákarnir setja bíla, bjór, buddý og sjálfs- myndir á meðan stelpurnar setja fjölskyldumyndir, fjölbreyttari vinamyndir og vel útfærðar sjálfs- myndir þar sem þær eru vel til hafðar með selfí-stút á munni og hönd á mjöðm,“ segir Finnur Frið- riksson, dósent í íslensku við kenn- aradeild Háskólans á Akureyri, um niðurstöður rannsóknar frá 2015 um sköpun sjálfsmyndar og tján- ingu unglinga í máli og myndum á fésbókinni. Finnur heldur fyrir- lestur um niðurstöðurnar á þriðju- dagsfyrirlestri í Listasafninu Ket- ilhúsi á Akureyri í hádeginu í dag. „Við vorum meðal annars að skoða hvaða prófílmyndir og for- síðumyndir unglingar setja upp á fésbókinni til þess að draga upp mynd af sjálfum sér á fésbókinni. Miðli sem þau stjórna sjálf og ákveða hvaða ímynd þau vilja draga upp af sér sjálfum. Það eru sjaldan myndir af fólki nývöknuðu á fés- bókinni,“ segir Finnur. Hann segir það ekki hafa verið skoðað í rannsókninni hvort og þá hvaða munur sé á framsetningu fullorðinna og unglinga á fésbók- inni. En í umhverfi Finns noti full- orðna fólkið hlutlausari mynd sem prófílmynd og passi gjarnan að stuða engan. Marka sér stöðu og ögra „Unglingarnir eru hins vegar að marka sér stöðu félagslega og ögra og gera ýmislegt til þess að verða áberandi svo að eftir þeim verði tekið. Við eldri erum kannski öruggari og vitum við hvern við er- um að tala. Ég er ekki viss um að unglingar geri sér alltaf grein fyrir því hvað því fylgir að fá neikvæða athygli frá misgæfulegu fólki,“ seg- ir Finnur sem tekur það fram að hann sé málfræðingur í grunninn en ekki félagsfræðingur. „Börn og unglingar í heild vita og kunna bet- ur á það hvernig netið og netmiðl- arnir virka og nýta sér það. Þau eru alin upp við netið. Við sem komin erum yfir miðjan aldur not- um líklegast flest aðeins fésbókina og sumir tvitter, segir Finnur. Í rannsókn HA var rætt við tvo rýnihópa eldri unglinga og það kom í ljós ákveðið ábyrgðarleysi gagnvart öðrum á netinu. „Þau sögðu að þeim fyndist í lagi að henda inn á fésbókina Vel útfærðar sjálfur hjá unglingunum Finnur Friðriksson, dósent í íslensku við Háskólann á Akureyri, segir frá rann- sókn þar sem skoðað var hvaða prófíl- og forsíðumyndir unglingar setja upp á fés- bókina til þess að draga upp mynd af sjálfum sér. Unglingar marka sér stöðu fé- lagslega á fésbókinni og ögra og gera ýmislegt til þess að verða áberandi svo eftir þeim sé tekið. Þeir vanda sig á fésbókinni, þá grunar að mamma geti séð skrifin. Fésbókin Finnur Friðrikson, dósent í íslensku við kennaradeild Háskólans á Akureyri, kynnir niðurstöður rannsóknar á þriðjudagsfyrirlestri í Ketilhúsi. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Áhrif fornleifaarfs á kínverskar nú- tímasjónmenntir er fyrirlestur sem fram fer á vegum Konfúsíusarstofn- unarinnar Norðurljós á morgun, miðvikudag, klukkan 12 til 13. Dr. Alison Hardie fjallar um notk- un mynda frá fornum menningar- slóðum og hefðbundna byggingarlist í grafískri hönnun sem og öðrum sjónmenntum í Kína á 20. og 21. öld. Fjallað verður um spennandi fornleifarannsóknir, byggingarlist, uppgötvanir og rannsóknir. Má þar sem dæmin nefna Shang og Zhou oracle bein, Wu Liang-helgidóminn, vegglistir Mural-hellisins og skúlp- túra. Fyrirlesturinn fer fram í Odda, stofu 206, og er öllum heimill að- gangur. Fróðleikur frá fornu fari Fornleifarannsóknir og upp- götvanir í Kína á 20. og 21. öld Bókarkápa Teikningar sem fundust í Dunhuang 1987, hönnuð af Zhang Shouyi. Verkið Allar mínar systur, verður sýnt á Reykjavík Dance Festival, Unglingurinn í Reykjavík, í Hafnar- húsinu 8. og 11. mars Allar mínar systur er einskonar femínísk útópía þar sem útgangs- punkturinn er nornir sem lækn- ingakonur og hugmyndin um mæðraveldi. Með samstöðu, auð- mýkt og sköpunarkrafti töfra norn- irnar fram hvert ritúalið á fætur öðru og eru áhorfendur teknir með í einskonar hugleiðslu eða sálar- meðferð. Verkið er innblásið af sam- tímanum og er óður til hans, til byltingarinnar sem á sér stað núna, til systralagsins, til fjórðu öldunnar, til þriðju, annarrar og fyrstu ald- anna. Allar mínar systur, er samið af Unglingurinn í Reykjavík Femínísk útópía um nornir sem lækningakonur og mæðraveldi Leshringurinn konu-og karlabækur í Borgarbókasafninu Menningarhús Árbær stendur fyrir leshring á morg- un kl. 16.15. Leshringurinn er í um- sjón Jónínu Óskarsdóttur. Bók mánaðarins sem lesin verður er eftir Sigríði Þorgrímsdóttur og heitir, Alla mína stelpuspilatíð. Einnig verður lesin smásaga úr úr bókinni Doris deyr, eftir Kristínu Eiríksdóttur; Þátttakendur þurfa að skrá sig til þátttöku. Leshringurinn hefst kl. 16.15 og stendur til kl. 17.15 Nánari upplýsingar veitir: Jónína Óskarsdóttir á netfanginu: jonina.oskarsdottir@reykjavik.is Blindur er bóklaus maður Leshringur Gaman að koma saman. Alla mína stelpuspilatíð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.