Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 15

Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018 Umhverfisstofnun telur að notkun lokaðra eldiskvía sé möguleg lausn hvað varðar áskoranir sem fiskeldi á Íslandi stendur frammi fyrir þegar kemur að umhverfisáhrifum eldisins, líkt og uppsöfnun lífræns úrgangs og slysasleppingar fiska svo eitthvað sé nefnt. Þannig segir meðal annars í um- sögn Umhverfisstofnunar til Skipu- lagsstofnunar um tillögu AkvaFuture ehf. að matsáætlun til eldis á allt að 20 þúsund tonnum af laxi í innanverðum Eyjafirði. Áform rekstraraðila um 20 þúsund tonna eldi í Eyjafirði sé um- fangsmikil framkvæmd og því sé mik- ilvægt að mat á umhverfisáhrifum og frummatsskýrsla hennar sé unnin af kostgæfni. Stofnunin telur uppsetn- ingu greinargerðar vera vel skipu- lagða og gögn sett fram á nokkuð skýran hátt. Burðarþolsmat á næsta ári Umhverfisstofnun telur upp nokk- ur atriði sem upplýsingar þurfi að vera um í frummatsskýrslu. Þar kem- ur meðal annars fram að ítarleg um- fjöllun þurfi að liggja fyrir um þol Eyjafjarðar til að taka við auknu líf- rænu álagi frá sjókvíaeldi með tilliti til burðarþolmats Hafrannsókna- stofnunar sem og hvíld eldissvæða. Slíkt burðarþolsmat liggur ekki fyrir en í umsögninni segir að búast megi við því á næsta ári. Þá þurfi að gera ítarlega grein fyrir samlegðaráhrifum með annarri starf- semi í firðinum þar sem áætlað sé að fara í umfangsmikið eldi. Gera þurfi grein fyrir skörun við núverandi og fyrirhugaða starfsemi en einnig áhrif- um sem eldið hefur með annarri nýt- ingu í firðinum, þ.e. samlegðaráhrif- um framkvæmdar við núverandi álag Eyjafjarðar sem er viðtaki frárennsl- is frá landbúnaði, iðnaði og sveitar- félögum á svæðinu. aij@mbl.is Lokaðar eldiskví- ar möguleg lausn  20 þús. tonna eldi í Eyjafirði umfangs- mikil framkvæmd Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Reykjavíkurskákmótið hefst í dag klukkan 15 í Hörpu. Teflt er til minn- ingar um stórmeistarann Bobby Fischer, en hann hefði orðið 75 ára föstudaginn 9. mars. Reyndar var þjófstartað í gær þegar indverska undrabarnið Nihal Sarin tefldi Fisc- her-slemb- iskákfjöltefli í höf- uðstöðvum Gamma, sem er aðalstyrktaraðili mótsins. Sarin tefldi við 11 and- stæðinga og vann níu skákir en gerði tvö jafntefli, við Gunnar Björnsson, forseta Skák- sambandsins, og Guðlaugu Þor- steinsdóttur, margfaldan Íslands- meistara kvenna. Sarin sagði á eftir að þetta hefði verið erfiðara en hann bjóst við enda ekki vanur að tefla slembiskák. Að þessu sinni eru um 250 kepp- endur skráðir til leiks á 36. Reykja- víkurskákmótinu og þar af eru 160 erlendir keppendur frá 35 löndum. Keppendalistinn samanstendur af áhugaverðum undrabörnum, sterk- um skákkonum og svo áhugamönn- um og öflugu heimavarnarliði, að sögn Gunnars Björnssonar forseta Skáksambands Íslands. Mikill áhugi á mótinu Mótið stendur dagana 6.-14. mars. Umferðir hefjast yfirleitt kl. 15 og verða skákskýringar á skákstað á boði fyrir gesti og gangandi. Jafnan er mikill áhugi á Reykjavík- urskákmótinu. Fjöldi áhorfenda kemur í Hörpu á hverjum degi og gíf- urlegur áhugi hefur verið á beinum skákútsendingum á netinu, hér heima og erlendis. Allar skákir á efstu borðum eru sendar út beint á netinu. Tveir keppendanna falla undir það að teljast ofurstórmeistarar, segir Gunnar. Annars er það ungverski stórmeistarinn Richard Rapport (2715 ELO-stig) sem er aðeins 21 árs. Hinn er Úkraínumaðurinn Pa- vel Eljanov (2713) sem hefur marg- sinnis teflt hér og var meðal sig- urvegara á mótinu 2013. Tólf skákmenn hafa meira en 2.600 stig. Mótshaldarar Reykjavík- urskákmótsins hafa ávallt lagt sig fram um að hafa undrabörn með. Þar munu þrír skákmenn vekja meiri athygli en aðrir. Indverjarnir Nihal Sarin og Ramesh Praggn- anandhaa láta sig ekki vanta. Sá síð- arnefndi hefur möguleika á að verða yngsti stórmeistari skáksögunnar. Meðal keppenda er Nodirbek Abdu- sattorov frá Úsbekistan, sem nú er yngsti stórmeistari heims, 13 ára, og sá næstyngsti í skáksögunni. Sterkar skákkonur koma t.d. frá Bandaríkjunum og Slóvakíu. Laura Unuk er t.d. tvöfaldur heimsmeistari stúlkna. Ríflega 80 íslenskir skákmann taka þátt eða 1/3 af mótinu. Meðal þeirra sem þar tefla eru Hannes Hlíf- ar Stefánsson, Jóhann Hjartarson, Þröstur Þórhallsson og Íslandsmeist- arinn Guðmundur Kjartansson. Sem fyrr segir er mótið núna minningarmót um Bobby Fischer. Á afmælisdaginn 9. mars nk. verður haldið Fischer-slembiskákmót í Hörpu sem jafnframt verður fyrsta Evrópumótið í slíkri skák. Fischer- slembiskák fann Bobby Fischer upp þegar honum þótt hin hefðbundna skák vera of fyrirsjáanleg. Sami manngangur er og í venjulegri skák en uppröðun taflmanna á 1. og 8. reitaröð er tilviljunarkennd og alls eru mögulegar upphafsstöður 960 talsins. 250 skákmenn setjast að tafli í Hörpu í dag  Reykjavíkurmótinu þjófstartað með slembiskákfjöltefli Morgunblaðið/Hanna Hugsað um leik Nihal Sarin tefldi slembiskákfjöltefli við 11 andstæðinga. Bobby Fischer Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.