Morgunblaðið - 06.03.2018, Page 16

Morgunblaðið - 06.03.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan GÆÐA BAKKAMATUR Sjá heimasíðu www.veislulist.is Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins, bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskaran matreiðslu. Hádegismatur Verð kr. 1.370 Lágmark 3 bakkar + sendingargjald d MisMUnAndi RéTTiR AllA dAGA viKUnnAR EldUM EinniG fyRiR MöTUnEyTi 6. mars 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 100.43 100.91 100.67 Sterlingspund 138.41 139.09 138.75 Kanadadalur 78.04 78.5 78.27 Dönsk króna 16.561 16.657 16.609 Norsk króna 12.837 12.913 12.875 Sænsk króna 12.142 12.214 12.178 Svissn. franki 107.09 107.69 107.39 Japanskt jen 0.9504 0.956 0.9532 SDR 145.46 146.32 145.89 Evra 123.35 124.05 123.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.8828 Hrávöruverð Gull 1326.3 ($/únsa) Ál 2143.0 ($/tonn) LME Hráolía 64.07 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hagnaðist um tæplega 3,4 millj- ónir bandaríkjadala árið 2017, eða sem jafngildir um 340 milljónum króna á núverandi gengi. Árið áður nam hagn- aðurinn um 21,4 milljónum dala. Þetta kemur fram í ársuppgjöri CCP sem fjallað er um á mbl.is. Tölvuleikjaframleiðandinn réðst í um- fangsmikla endurskipulagningu á síð- asta ári. Tekjur fyrirtækisins drógust saman um 14% á milli ára. Tekjurnar námu tæplega 69,6 milljónum dala eða 7 milljörðum króna árið 2017. Eiginfjár- hlutfallið var 59% í árslok. Hagnaður CCP dregst saman í 340 milljónir STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það virtist ekki mikil ókyrrð í lofti á vettvangi stjórnar Icelandair Group fyrr en Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, upplýsti að hann hygðist hverfa frá stjórnarborðinu eftir að- eins eitt ár á vettvangi. Helstu leik- endur héldu þétt að sér spilunum í kjölfar tilkynningarinnar en á laug- ardag varð ljóst að sjö einstaklingar sækjast eftir því að fylla sætin fimm sem móta munu stefnu flug- félagsins næsta árið. Þannig hafa fjórir af fimm núver- andi stjórnarmönnum boðið fram krafta sína áfram. Þar fer fremstur í flokki stjórnarformaðurinn Úlfar Steindórsson sem hefur setið í stjórninni frá árinu 2010 með full- um stuðningi Lífeyrissjóðs verslun- armanna. Sjóðurinn er langstærsti hluthafinn með 14,69% sem er tæp- um 5% meira en það sem Lífeyris- sjóður starfsmanna ríkisins á, sem næstur kemur í röðinni yfir stærstu hluthafa. Áreiðanlegar heimildir Morgunblaðsins herma að Úlfar muni njóta þess óskoraða stuðnings af hálfu sjóðsins á aðalfundi Ice- landair Group sem fram fer á fimmtudag. Þá á Ómar Benediktsson sæti í stjórninni og situr þar sem varafor- maður. Hann naut stuðnings einka- fjárfesta sem komu að félaginu af nokkrum krafti á síðasta ári. Stuðn- ingur við hann reyndist minni en búist var við í stjórnarkjörinu í fyrra en hann hefur talsverða reynslu af flugrekstri og er talinn, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins, hafa áunnið sér traust á fyrsta ári sínu við stjórnarborðið. Þá á sæti í stjórninni Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Við- skiptaráðs Íslands. Hún kom inn í stjórnina árið 2009 með fulltingi Íslandsbanka á þeim tíma þegar bankinn stóð uppi með tugprósenta- hlut í félaginu í kjölfar hrunsins. Þá á einnig sæti í stjórninni Ást- hildur Margrét Otharsdóttir sem kom inn í stjórnina árið 2012. Hún er einnig stjórnarformaður Marel, langstærsta félagsins sem skráð er í Kauphöll Íslands. Stuðningur á floti Frambjóðendurnir þrír sem nú vilja komast nýir inn í stjórn félags- ins eru þau Guðmundur Hafsteins- son, framkvæmdastjóri hjá Google, Heiðrún Jónsdóttir lögmaður og stjórnarmaður í Íslandsbanka, Sím- anum og Olís og Helga Viðarsdótt- ir, stofnandi Spakurs. Heimildir Morgunblaðsins herma að Guðmundur Hafsteinsson njóti stuðnings sjóðastýringarfyrirtækis- ins Stefnis sem fer með þriðja stærsta hlutinn í Icelandair, 9,74%. Stefnir studdi Georg Lúðvíksson í stjórnarkjörinu í fyrra. Heiðrún Jónsdóttir mun sam- kvæmt heimildum hafa fengið hvatningu til þess að bjóða sig fram til stjórnar þegar ljóst var að Georg yrði ekki í kjöri. Þeirri hvatningu hafi fylgt fyrirheit um ákveðinn stuðning. Ekki liggur fyrir á þess- ari stundu hvaðan sá stuðningur kemur. Hún sat um nokkurra ára bil í stjórn Gildis sem á 7,39% í Ice- landair og þá mun hún vera ágæt- lega kynnt á vettvangi Stapa lífeyr- issjóðs á Akureyri en sjóðurinn á 4,23% í félaginu. Ekki liggur ljóst fyrir af sam- tölum við stóra hluthafa í Icelandair hvar Ásthildur Margrét og Katrín Olga sækja helst stuðning. Hann hefur legið víða á síðustu aðalfund- um en þess má m.a. geta að Gildi lífeyrissjóður greiddi öllum fimm einstaklingum sem kjöri náðu síðast jafnt hlutfall atkvæða. Heimildir Morgunblaðsins herma að sjóður- inn kunni að beita annarri nálgun í stjórnarkjörinu að þessu sinni. Sömu sögu er að segja um Lífeyr- issjóð starfsmanna ríkisins. Ólík sjónarmið vegast á Meðal þess sem ítrekað hefur komið upp í samtölum Morgun- blaðsins við áhrifafólk í eigendahópi Icelandair í aðdraganda stjórnar- kjörsins nú er krafa um að fjöl- breyttur hópur með ólíkan bak- grunn skipi stjórnina að loknum aðalfundi nú. Þeir fjórir stjórnar- menn sem sækjast eftir endurkjöri eru allir með Cand.oecon. gráðu frá Háskóla Íslands. Þá eru tveir þeirra með MBA-gráðu frá háskól- um Vestanhafs og einn þeirra er með Msc-gráðu á sama sviði frá Danmörku. Ræða við hluthafana Í ljósi þess hversu mikið rót er komið á stjórnarkjörið er víða fundað um það þessa dagana hvern- ig hluthafar hyggjast verja atkvæð- um sínum á aðalfundinum á fimmtudag. Í aðdraganda þess ákvarðanaferlis hafa nokkrir fram- bjóðendanna verið iðnir við að kynna sig og sínar áherslur, nái þeir kjöri til stjórnar. Segja kunn- ugir að það sé ákveðin tilbreyting fólgin í því að öflugur hópur fram- bjóðenda bítist um sæti við stjórn- arborðið hjá eina ferðaþjónustu- fyrirtækinu sem skráð er á markað hér á landi. Barátta um atkvæðin að tjaldabaki hjá Icelandair Stjórnarkjör Nú er tekist á um hverjir stýra munu Icelandair næsta árið.  Fjórir af fimm núverandi stjórnarmönnum gefa kost á sér  Þrír nýir um hituna Erlend staða þjóðarbúsins var já- kvæð um 190 milljarða króna um áramótin, sem samsvarar 7,5% af vergri landsframleiðslu, og batnaði hún um 63 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi. Erlend staða þjóðar- búsins hefur aldrei verið betri, að því fram kemur í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka. Í Korni Íslandsbanka segir að er- lendar eignir þjóðarbúsins hafi num- ið 3.092 milljörðum króna en erlend- ar skuldir 2.902 milljörðum króna. Erlenda staðan batnaði á fjórða fjórðungi bæði vegna hreinna fjár- magnsviðskipta og vegna jákvæðra gengis- og verðbreytinga. Síðar- nefndi liðurinn skýrist einkum af ríf- lega 5% verðhækkun á erlendum verðbréfamörkuðum. Í tilkynningu Seðlabankans segir að verðhækkanir á mörkuðum hafi bætt stöðu þjóðarbúsins um 33 millj- arðakróna á fjórða fjórðungi Arion banki segir að innlendir aðilar hafi tekið losun fjármagns- hafta í vor fagnandi. Fjárfesting í erlendum verðbréfum hafi aukist verulega. Innlendir aðilar hafi fjár- fest fyrir 90 milljarða króna í erlend- um verðbréfum á síðari helming árs- ins, þar af 47 milljarða á fjórða fjórðungi. Fjármagnsjöfnuðurinn var já- kvæður um 73 milljarða árið 2017, og þar af 24 milljarða á fjórða fjórðungi. Arion banki segir að það merki að Íslendingar hafi fært innlendar eign- ir yfir í erlendar umfram tilfærslu erlendra aðila í innlendar eignir sem því nemur. Þannig var eignastaða Íslendinga gagnvart útlöndum að batna sem endurspeglast í bættri erlendri stöðu. Morgunblaðið/Golli Haftalosun Landsmenn tóku losun fjármagnshafta í vor fagnandi. Erlend staða aldrei verið betri  Fjárfest fyrir 90 milljarða erlendis á síðari árshelmingi Finnur ekki í stjórn Í frétt í gær um aðalfund Origo var ranglega sagt að Finnur Oddsson hefði verið kjörinn í stjórn félagsins. Hið rétta er að Finnur er forstjóri Origo og situr ekki í stjórn. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.