Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018
✝ Loftur AlticeÞorsteinsson
fæddist í Reykjavík
árið 1944. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 26. febrúar
2018 eftir langa og
hetjulega baráttu
við MND-sjúkdóm.
Foreldrar hans
voru Indíana Be-
rentsdóttir, f. 18.
september 1922 frá Krókskoti,
Hvalsnessókn, Gull., síðast bús. í
Keflavík, d. 29. nóvember 1991,
og Mitchell Benjamin Altice, f.
13.5. 1917 í Bedfordsýslu, Virg-
iníu í Bandaríkjunum, d. 29.8.
1993 í Hixon, Tennessee.
Loftur átti þrjá hálfbræður í
Bandaríkjunum.
Loftur var uppalinn í Sand-
gerði. Hann lauk stúdentsprófi
frá ML árið 1965 og lauk verk-
fræðiprófi frá Háskóla Íslands
árið 1969. Loftur lauk prófi í
byggingarverkfræði frá KTH í
Stokkhólmi árið 1976
og fór í framhalds-
nám í vatnaverk-
fræði við Queeńs
University, Kanada,
1976 og við Colorado
State University
USA 1980. Hann
starfaði sem verk-
fræðingur hjá Vega-
gerð ríkisins frá
1972, við vatnaverk-
fræðileg viðfangs-
efni, m.a. brúun Borgarfjarðar og
fallvatna á Skeiðarársandi. Eftir
að Loftur lauk störfum hjá Vega-
gerðinni rak hann eigin
heildverslun um árabil og sinnti
auk þess kennslu í nokkur ár.
Loftur var kvæntur Sigríði
Crawford Victorsdóttur, f. 2. feb.
1943 frá Grenivík. Stjúpsonur
Lofts er Arnar Þór Sveinsson, f.
1966, afabörn Lofts eru Kolbrún,
f. 2000, og Kári, f. 2002.
Loftur verður jarðsunginn frá
Áskirkju í Reykjavík í dag, 6.
mars 2018, klukkan 15.
Á vormánuðum árið 1990
ákváðu níu skólafélagar úr
Menntaskólanum á Laugarvatni
að fara að hittast reglulega til að
spila á spil. Átta voru bekkjar-
félagar sem luku námi frá ML
árið 1965 en sá eini sem var ögn
yngri hafði verið annar helsti
hvatamaður að þessari hóp-
myndun og fékk þess vegna að
vera með.
Þessum sið hefur verið haldið
allar götur síðan, við höfum hist
einu sinni í mánuði yfir veturinn.
Stöku sinnum höfum við farið
saman út að borða með konum
okkar og í seinni tíð hafa kon-
urnar líka hist án okkar karl-
anna, drukkið saman kaffi og
spjallað.
Loftur, félagi okkar, var einn
af hópnum. Hann var kappsamur
við spilamennskuna, eins og ann-
að sem hann tók sér fyrir hend-
ur; og vildi ekki eyða allt of mikl-
um tíma í tedrykkjuna (það var
drukkið kaffi fyrstu árin en eftir
því sem árunum fjölgaði varð
óæskilegra að drekka kaffi að
kvöldlagi).
Fyrir nokkrum árum fékk
Loftur illvígari andstæðing að
fást við en okkur spilafélaga sína.
Hann tókst á við hann af þeim
krafti sem alltaf einkenndi hann;
vildi alls ekki láta undan síga,
hvað þá að gefast upp. Smám
saman dró þó af honum og hann
þurfti meiri aðstoð við að komast
á milli staða; en hann mætti í
spilamennskuna meðan þess var
nokkur kostur og vildi, eins og
ævinlega, láta hana ganga hratt
og vel fyrir sig.
Við kveðjum nú góðan dreng
með hugheilli þökk fyrir sam-
veruna og vottum Siggu og fjöl-
skyldunni okkar innilegustu
samúð.
Fyrir hönd spilafélaganna og
pókerdrottninganna,
Guðni Kolbeinsson.
Hafa ber þá í heiðri sem
drengilega og af atorku hafa
unnið í þágu þjóðarhags og
landsmanna allra.
Loftur Altice Þorsteinsson er
eftirminnilegur baráttumaður
gegn Icesave-smánarsamningum
ríkisstjórnar Steingríms J. og
Jóhönnu. Greinar hans í þessu
blaði, á eigin bloggi og á thjod-
arheidur.blog.is voru með því
bezta sem birtist um málið, enda
leitaði hann víða efnisfanga með
eigin rannsóknum og bréfaskipt-
um við erlend yfirvöld, fjármála-
eftirlit Breta og Hollendinga,
Englandsbanka, Seðlabanka
Hollands, fjármálasérfræðinga
við efnahags- og háskólastofnan-
ir og blöð eins og Financial Tim-
es og þýzk og hollenzk blöð.
Þannig aflaði hann mikilvægra
gagna sem hann vann úr og birti,
ekki sízt í mörgum greinum í
Mbl. Höfðu þær víðtæk áhrif í
andófshreyfingunni, fengu jafn-
vel viðurkenningu þáv. viðskipta-
ráðherra, Árna Páls, á fundi
hans, Kristrúnar Heimisd. o.fl.
með fulltrúum andstæðinga Ice-
save-frumvarpanna.
Ósíngjarnt og ævinlega ólaun-
að var framlag Lofts til félaga
sem börðust í Icesave-málinu:
Þjóðarheiðurs, þar sem hann var
frá upphafi varaformaður og
einn afkastamesti skriffinnur
vefsins thjodarheidur.blog.is
sem fjallaði nær daglega um
málið árum saman, einnig með
samráðsfundum stjórnar félags-
ins við fulltrúa InDefence (sam-
taka sem áttu heiðurinn af fyrri
undirskriftasöfnun gegn Ice-
save-ruglinu) og síðar með þátt-
töku hans meðal leiðandi manna í
Samstöðu þjóðar gegn Icesave,
regnhlífarsamtökum þar sem fé-
lagar úr nefndum samtökum o.fl.
lögðu drög að vel heppnaðri und-
irskriftasöfnun á vefnum Kjós-
um.is, með áskorun á Ólaf for-
seta, sem á endanum hafnaði
seinustu Icesave-löggjöfinni
(Buchheit-samningnum) og
ruddi því braut, með samsinni
60% meirihluta í þjóðaratkvæða-
greiðslu, að málið fór fyrir
EFTA-dómstólinn. Þar unnu Ís-
lendingar sigur, sýknaðir 100%
af ólögvörðum kröfum Breta,
Hollendinga og ESB, þurftu
jafnvel ekki að borga eigin máls-
kostnað!
Undirritaður kynntist Lofti
um 1990 sem áhugaverðum
spjallfélaga í steinapottinum í
Laugardal, en hann var fróð-
leiksmaður um uppruna og for-
sögu norrænnar menningar. Síð-
ar, í febr. 2010, stofnuðum við
með fjölda annarra Þjóðarheið-
ur, samtök gegn Icesave. Ég hlýt
að þakka honum hér samstöðu
og vináttu um árabil, mikla vinnu
við stjórnarfundi okkar, aðgerðir
og skrif. Þrátt fyrir útilokun
RÚV á okkur og moldviðri
vinstrimanna gegn Þjóðarheiðri
og Samtökum þjóðar gegn Ice-
save fór almenningur og þjóð-
arbúið að endingu með sigur af
hólmi í þessu mikilvæga grund-
vallar- og fordæmismáli. Það
varðaði mestu.
Sorgarefni er, að þessi mikli
vitmaður og fjörugi andi varð að
lúta í lægra haldi fyrir illvígum
MS-sjúkdómi sem hafði m.a.
áhrif á talfæri hans. Vel gat hann
þó rætt mörg mál og var fram
undir seinustu tíð hress vits-
munalega, sem sjá mátti á blaða-
greinum hans og skrifum á
Moggabloggi Samstöðu þjóðar.
Loft hefði mátt heiðra að verð-
leikum, mörgum öðrum fremur,
með fálkaorðunni eða öðrum
hætti. En eitt er víst að þakklátir
fylgja samherjarnir honum síð-
asta spölinn og biðja honum far-
arheilla inn í aðra veröld.
Jón Valur Jensson.
Dáinn, horfinn, harmafregn.
Sár söknuður nístir hjartað, þótt
við slíku hefði mátt búast er
maður sjaldnast tilbúinn fyrir
móttöku sorgarfrétta. Það var
fyrir rúmlega fjörutíu árum að
ég, þá starfsstúlka í gestamót-
töku Hótels KEA Akureyri, var
að ljúka kvöldvakt að inn kom
hótelgestur, sem ég varla gaf
gaum sökum anna, en eftir að
þessi maður hafði skráð sig í
gestabókina leit hann á mig og
brosti því fallegasta og eftir-
minnilegasta brosi, sem ég hafði
nokkurn tíma séð.
Ári seinna hitti ég Siggu,
gamla vinkonu, og kynnti hún
mig fyrir mannsefninu sínu. Viti
menn, var þá ekki þarna kominn
maðurinn með fallega brosið.
Með okkur tókst einlæg vinátta
sem aldrei hefur skugga á borið.
Heimili Lofts og Sigríðar við
Laugarásveginn hefur alla tíð
staðið okkur fjölskyldunni að
norðan opið og móttökurnar eins
og kóngafólki sæmir. Þangað var
gott að koma. Húsbóndinn með
sína ljúfu nærveru, var allra
manna fróðastur um sögu og
menningu annarra þjóða, minn-
ist ég þar sérstaklega brennandi
áhuga hans á Vestgotum, það var
sama hvert umræðuefnið var,
hann var alls staðar heima, enda
bæði djúpvitur og víðlesinn.
Hann skrifaði meðal annars ótal
greinar í blöð og tímarit um
menn og málefni.
Nú hefur Loftur vinur minn
yfirgefið okkur. Hann laut í
lægra haldi, eftir harða baráttu
við miskunnarlausan sjúkdóm,
sem engum eirir. Hans verður
sárt saknað, en eftir lifir minn-
ingin um einstakan mann, sem
vildi hvers manns götu greiða.
Elsku Sigga, Arnar, Kolbrún og
Kári, þið hafið misst mikið. Megi
ástríkur himnafaðir umvefja
ykkur í dag og alla aðra daga.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ásdís Árnadóttir.
Loftur Altice
Þorsteinsson
✝ Páll JanusPálsson fædd-
ist á Ísafirði 30.
júlí 1925. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
fjarða á Patreks-
firði 25. febrúar
2018.
Foreldrar hans
voru Páll Janus
Guðmundsson, f. í
Staðarsókn í Súg-
andafirði 2. janúar 1902, d.
1924, og Sigríður María Er-
lendsdóttir, f. í Ísafjarðarsýslu
25. mars 1904, d. 8. febrúar
1980.
Faðir hans fórst á sjó í des-
ember 1924 og móðir hans
giftist síðar Kolbeini Steinlaugi
Brynjólfssyni, f. 1895, sem
gekk Páli í föðurstað. Systkini
Páls voru Kristín Jónína Kol-
beinsdóttir, f. 1927, d. 2014,
Brynjólfur Önfjörð Kolbeins-
son, f. 1929, d. 1952, og Frið-
gerður Sirrey Kolbeinsdóttir,
f. 1937, d. 1996.
Páll Janus giftist 20. mars
1956 Kristínu Elínborgu Þór-
arinsdóttur, f. á Bíldudal 19.
júní 1924, d. 31. mars 2016.
Foreldrar hennar voru Þór-
arinn Kristjánsson, f. í Fremri-
Hvestu, Selárdalssókn 21. des-
ember 1894, d. 13. mars 1962,
og Kristín Pálína Jóhanns-
dóttir, f. í Hokinsdal í Arn-
arfirði 23. júní 1900, d. 18.
ágúst 1983. Börn: Þórarinn, f.
1943, d. 1985; Guðný, f. 1947,
maki Sævar Ólafsson; Kristín,
f. 1949, maki Sveinmar Gunn-
þórsson; Sigurður Páll, f. 1955,
maki Ólína Einarsdóttir.
Barnabörnin eru
13, barnabarna-
börnin eru 22 og
barnabarnabarna-
börnin fjögur.
Páll Janus ólst
upp á Ísafirði og
var á sumrin í
sveit í Jökul-
fjörðum. Um tví-
tugt hélt hann að
heiman og var
ferðinni heitið til
Reykjavíkur. Komið var við á
Patreksfirði þar sem honum
var boðin vinna og þar með
voru spilin lögð. Palli, eins og
hann var alltaf kallaður, fékk í
gegnum tíðina mörg starfs-
tengd viðurnefni eins og Palli
kokkur þegar hann var til sjós
og svo Palli lögga eftir að
hann hóf störf hjá lögreglunni
1961.
Hann vann í lögreglunni til
ársins 1984 og eftir það starf-
aði hann sem bifreiðaeftirlits-
maður þar til hann lét af störf-
um vegna aldurs.
Palli Jan var stofnfélagi
Lionsklúbbs Patreksfjarðar ár-
ið 1962 og var hann mjög stolt-
ur af því að vera félagi, hann
sótti félagafundi og samkomur
allt fram á síðustu stund.
Palli og Bogga hófu búskap
á Patreksfirði árið 1947 og ár-
ið 1954 keyptu þau Hlíðarveg 2
og bjuggu þar allt til ársins
2016. Síðasta eina og hálfa ár-
ið bjó hann í þjónustuíbúð og
svo á Heilbrigðisstofnuninni
þar sem hann lést.
Útför Páls Janusar fer fram
frá Patreksfjarðarkirkju í dag,
6. mars 2018, klukkan 14.
Elsku afi. Á þessum tíma-
mótum koma upp í hugann
ógrynni af minningum. Minn-
ingar um tíma þar sem allt var
hægt, bíllinn gat flogið, hundar
gátu birst hvar sem var, þrek-
hjólið komst hringinn í kringum
landið á nokkrum mínútum,
spilareglur voru meira viðmið
en annað og engin takmörk
voru fyrir ímyndaðan heim. All-
ar höfum við átt góða tíma á
Hlíðarvegi 2, alltaf heitur mat-
ur í hádeginu og vel tekið á
móti öllum. Við syrgjum ynd-
islegan afa og þá tíma sem liðn-
ir eru og aldrei koma aftur en
minnumst þín með hlýju og
gleði í hjarta. Takk fyrir allt og
við sjáumst aftur síðar.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Margrét Fanney, Rakel
Dögg, Sigríður María
og Ágústa Sólveig
Sigurðardætur.
Páll Janus
Pálsson
vildir frekar heyra fréttir af fólk-
inu þínu. Þú varst umhyggjusöm
og hugsaðir vel um fólkið í kring-
um þig. Þú varst líka jákvæð og
kvartaðir sjaldan.
Takk fyrir allt saman, elsku
amma. Við eigum dásamlegar
minningar um þig sem ylja okkur
á erfiðum tímum.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín
Berglind Hrönn.
Sigríður, sem oft var kölluð
Sigga, var mjög eftirminnileg
kona. Okkur kom alltaf vel saman
enda höfðum við sömu áhugamál,
hún var alltaf með lakkaðar negl-
ur, hárið fínt og flott, og alltaf
með einhverja skartgripi á sér.
Öll skiptin sem hún kom í mat til
okkar eftir að hún fór á dvalar-
heimili eru mér mjög mikilvæg,
það var alltaf jafn gaman að koma
heim úr skólanum og þá beið mín
ljúffengur matur og ekki var það
verra að amma tók á móti mér.
Amma var mjög hrifin af páfa-
gaukunum okkar, hún var í raun
sú eina sem var róleg þegar fugl-
arnir komu fljúgandi í áttina að
henni, þeir sátu oft á öxlinni
hennar og voru að kroppa í
eyrnalokkana hennar. Þegar ég
var 14 ára og var í Vinnuskólan-
um þá var ég að mestu leyti að
vinna í námunda við dvalarheim-
ilið og ég kom þá oft til ömmu
þegar ég var í hádegismat, amma
var alltaf svo glöð að sjá mig og
bauð mér alltaf nammi úr namm-
iskálinni sinni. Amma var alltaf
hjá okkur um jólin, hún var mikið
jólabarn og henni þótti mjög
gaman að fá pakka og að hafa
herbergið fullt af jólaskrauti.
Amma var 99 ára þegar hún dó,
hún hefði orðið 100 ára 6. apríl nk.
og hún var farin að hlakka mikið
til að verða árinu eldri og fagna
þeim áfanga með ættingjum sín-
um, henni þótti alltaf mjög gaman
að fá alla ættingjana saman. Eftir
að amma var bundin við hjólastól
þá fór ég stundum með hana út í
garð við dvalarheimilið þar sem
hún gat séð blómin og allan gróð-
urinn, amma elskaði blóm og allt
sem tengdist gróðri. Í fyrrasum-
ar þá kom hún í heimsókn og þá
var mikil sól og gott veður, við
fjölskyldan ákváðum að setjast út
og sóla okkur og þá tók ég eftir
því að það að láta sólina sleikja
sig er eitthvað sem ömmu þótti
gaman. Amma hefur verið klett-
urinn minn frá því að ég man eftir
mér, ég hef alltaf litið upp til
hennar og hún hefur stutt mig í
gegnum erfiða tíma og hún vildi
alltaf vera meðvituð um allt sem
ég tæki mér fyrir hendur. Hún
var alltaf til staðar fyrir mig og
það var ótrúlega gott að tala við
hana. Það er skrítið að hafa enga
Siggu ömmu til að heimsækja
lengur og ég mun sakna þess að
eiga skemmtilegar samræður
með skemmtilegri konu. Ég mun
sakna hennar ástkæru ömmu
minnar afskaplega mikið en við
skulum ylja okkur við ljúfar
minningar um góða konu og
minnast þess að nú er hún laus
frá veikindum sínum. Ég vil
þakka ömmu samfylgdina í gegn-
um árin og um leið votta ég börn-
um og aðstandendum hennar
mína dýpstu samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Katrín Eva Einarsdóttir.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
VALBORGAR SOFFÍU
BÖÐVARSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Hrafnistu
í Hafnarfirði fyrir góða umönnun.
Magnús Júlíus Jósefsson
Böðvar Magnússon
Jósef Rúnar Magnússon
Ragnar Sveinn Magnússon Marjorie Nivin Mota Arce
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug
vegna andláts móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
SOFFÍU SIGURJÓNSDÓTTUR,
Leirubakka 18,
Reykjavík.
Hafdís Bára Eiðsdóttir Jakob Friðþórsson
Kolbrún Ólafsdóttir
Ottó Eiður Eiðsson Birna Theódórsdóttir
Björg Eiðsdóttir Sturla Birgisson
Sigurjón Eiðsson Jóhanna Magnúsdóttir
Bjarni Eiðsson Ragnhildur Árnadóttir
Auður Eiðsdóttir
Jón Helgi Eiðsson Björg Guðmundsdóttir
Kristinn Eiðsson Þórunn Haraldsdóttir
ömmubörnin