Morgunblaðið - 06.03.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Traka 21 lyklaskápurinn skráir hver hefur lykla fyrirtækisins undir
höndum hverju sinni. Skápurinn opnast og afhendir lykil aðeins þeim
sem hefur leyfi til þess. Þetta sparar utanumhald og eykur öryggi.
Lyklar tapast miklu síður og kostnaður vegna þess lækkar.
Lyklaskápur sem
alltaf veit betur
Verð: 179.000 kr.
Gunnar Valur Gíslason, sem á 60 ára afmæli í dag, var staddurúti á golfvelli á Alicante þegar blaðamaður náði tali af honumí gær. „Við konan komum hingað á fimmtudaginn, sluppum
við mesta kuldakastið og núna er sól og blíða og gott veður. Við höf-
um verið dálítið á Spáni og höfum spilað á þessum velli áður. Á afmæl-
isdaginn ætlum við út að borða á góðum stað með vinum og hafa það
notalegt yfir daginn.“
Gunnar er framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Höfðatorgs sem
sér um að byggja háhýsin á Höfðatorgi. „Við erum með leyfi til að
byggja 75.000 fermetra og erum að klára 65.000 fermetra. Þar á með-
al eru íbúðir sem eru að detta í sölu hjá okkur. Svo leigjum við út
skrifstofuhúsnæði og veitingastaði og Fosshótel leigja af okkur hús-
næðið sem þau eru í.“
Gunnar er einnig bæjarfulltrúi í Garðabæ. „Það gengur bara vel í
Garðabæ, fjárhagsstaðan er sterk, mikil íbúðauppbygging er í Urr-
iðaholti og í gangi er útboð á stóru fjölnota íþróttahúsi í bænum.“
Fyrir utan að spila golf ver Gunnar mestum tíma sínum með fjöl-
skyldunni. „Við eigum sumarbústað í Ölveri undir Hafnarfjalli og eyð-
um löngum stundum þar með börnum og barnabörnum. En svo er ég
líka í Lionsklúbbi Álftaness og ýmsum öðrum góðum félagsskap.“
Eiginkona Gunnars er Hervör Poulsen, bókari hjá SÁÁ. Börn
þeirra eru María Fjóla, Andri Valur, Dagbjört Ósk og Maren Rún.
Á góðri stund Hjónin Gunnar Valur og Hervör.
Staddur á Alicante
í afmælisferð
Gunnar Valur Gíslason er sextugur í dag
J
óhanna Laufey Jóhanns-
dóttir fæddist í Reykjavík
6.3. 1948 og ólst upp í
Vogahverfinu: „Æskuslóð-
irnar voru við Sundin blá,
við Elliðaárvoginn og á túnunum við
Langholtsbúið. Foreldrar mínir voru
frumbyggjar í Njörvasundi og á
æskuárum mínum var þetta svæði
langt út í sveit. Frjálsræðið var al-
gjört og sjórinn og bátabryggjurnar
við Elliðaárvog og Vatnagarða, þar
sem nú er Skarfabryggja og Sunda-
höfn, voru uppsprettur endalausra
ævintýra.“
Laufey var í Vogaskóla sem þá var
stærsti barnaskóli landsins með ell-
efu árganga og yfir 1.700 nemendur.
Hún stundaði nám við Verslunar-
skóla Íslands í eitt ár, kynntist þar
eiginmanninum og eftir námið þar
stunduðu þau nám og störf í Dan-
mörku. Hún lauk stúdentsprófi frá
FG 1984, stundaði nám í rekstrar- og
viðskiptagreinum við Endurmenntun
HÍ 1999-2001 og lauk prófum frá
Leiðsögumannaskóla Íslands 2016.
Laufey var stofnandi ferðaskrif-
stofunnar Alís 1983 og meðeigandi og
starfsmaður hennar til 1995. Þar
sinnti hún einkum markaðs- og aug-
lýsingastörfum, auk almennar af-
greiðslu- og sölustörfum..
Laufey Jóhannsdóttir leiðsögumaður – 70 ára
Hjá ömmu Laufey heldur tveggja vikna sumarbúðir fyrir barnabörnin í sumarbústaðnum við Vatnaskóg á hverju
sumri. Frá vinstri: Laufey, Skúli Snær, Margrét Laufey, Laufey Katrín, Óskar Már, Breki, Rán og Úlfur.
Í sveitarstjórnarmálum
og ferðaþjónustunni
Hjónin Laufey og Skúli Gunnar í Kaupmannahöfn í tilefni gullbrúðkaupsins.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.