Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 30

Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018 eldu á milli fimm girnilegra tegunda f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru ægilegir, ljúffengir og fljótlegir. ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS V a þ Tilkynnt var í gær að Menningar- félag Akureyrar hefði ráðið Mörtu Nordal í starf leikhússtjóra Leik- félags Akureyrar. Marta var leik- kona við LA á árum áður, hefur auk þess leikið við Borgarleikhúsið og Þjóðleikhúsið, en undanfarin ár ein- beitt sér að leikstjórn. Árið 2010 stofnaði Marta, ásamt Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikhóp- inn Aldrei óstelandi og hefur hóp- urinn sett á svið fimm sýningar sem hafa vakið athygli. Auk þess hefur Marta leikstýrt fjölda verka fyrir út- varp. Um þessar mundir leikstýrir hún söngleiknum Rocky Horror sem verður frumsýndur síðar í mánuð- inum í Borgarleikhúsinu. Í tilkynningu segir að Marta komi til Menningarfélags Akureyrar á spennandi tímapunkti, en fyrir helgi var skrifað undir nýjan samning Ak- ureyrarbæjar og MAk um stuðning við félagið næstu þrjú árin. Skemmtilegt leikhús Marta segist hafa ákveðnar hug- myndir um það hverju hún vilji ná fram í nýju starfi „Draumurinn er að halda áfram þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað eftir sameininguna hjá Menningarfélagi Akureyrar, nú þegar er komið aukaframlag til stuðnings félaginu,“ segir hún. „Og markmiðið er að auka aðsóknina og fá fleiri Akureyringa í leikhús; ég vil leggja sérstaka áherslu á góðar barna- og fjölskyldusýningar – á skemmtilegt leikhús. Nú er ég að ljúka öðrum verk- efnum en er engu að síður byrjuð að móta drög að næsta leikári og þau þurfa að vera tilbúin í júní.“ Þegar Marta er spurð að því hvort það muni hjálpa í nýja starfinu að hafa starfað sem leikkona hjá LA, þá segist hún sannfærð um það. „Ég bjó í eitt og hálft ár á Akureyri og kynntist því að leika í Samkomuhús- inu og því hvað höfðar til Akureyr- inga. Þeir þurfa að eiga hlutdeild í leikhúsinu og vera stoltir af því – það er grundvallarforsenda fyrir að Ak- ureyringar hafi áhuga á leikhúsinu og langi til að koma á sýningar. Leikfélag Akureyrar er eitt af elstu menningarfélögum landsins, sagan er löng og órofin. Mikilvægi félagsins er mjög mikið í okkar menningarflóru, og mér finnst mik- ilvægt að það eflist og myndi sterkt mótvægi við Reykjavíkurmenning- una. Þetta er eina starfandi atvinnu- leikfélagið fyrir utan höfuðborgar- svæðið og verður að vera öflugt.“ Marta kemur til með að leikstýra einhverjum sýningum sjálf en hlakk- ar líka til að finna rétta fólkið fyrir þau verkefnin sem sett verða á svið. „Hverjir valdir eru í verkefnin segir oft meira en verkefnavalið sjálft,“ segir hún. „Ég bý að því að þekkja alla í þessum bransa hér, fylgist mjög vel með og tel að LA geti veitt nýútskrifuðu fólki mikilvæg tæki- færi, bæði leikstjórum sem eru að stíga sín fyrstu skref og leikurum. Það er spennandi fyrir LA að geta átt þátt í mikilvægum þroska nýrra listamanna.“ Marta er með MBA-gráðu frá Há- skólanum í Reykjavík og BA-gráðu í leiklist frá The Bristol Old Vic Theatre School á Englandi. Hún hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa innan sviðslista. efi@mbl.is Marta Nordal tekur við LA  Ráðin leikhússtjóri á Akureyri Morgunblaðið/RAX Leikhússtjóri „Markmiðið er að auka aðsóknina og fá fleiri Akur- eyringa í leikhús,“ segir Marta. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag, þriðjudag, klukkan 12 mun óperusöngkonan Guja Sandholt syngja fyrir gesti og eru tónleikarnir öllum opnir. Flytur Guja aríur eftir Händel, Strauss yngri, Mascagni og Wagner við undirleik Antoníu Hev- esí píanóleikara og listræns stjórn- anda Hádegistónleika Hafnarborgar. Ferðalag raddbreytinga Guja hefur komið fram sem mezzósópran, en hún vinnur nú að því að koma röddinni upp á svið sópr- ans. Verkin sem hafa verið valin til flutnings að þessu sinni vísa til þessa ferðalags söngkonunnar um radd- sviðið og hafa tónleikarnir því hlotið titilinn „Klæðskipti og raddbreyt- ingar í hádeginu“. „Við byrjum tónleikana á verki fyrir mezzósópran og endum á alvöru dúnduraríu fyrir sópran eftir Wagn- er,“ segir Antonía. Verkin spanna vel á annað hundrað ár í tónlistarsög- unni og mun Guja meðal annars flytja verk sem hafa oft verið flutt af karlmönnum. Hún tekur fram að þetta séu allt aríur sem hún hefur ekki flutt áður, fyrir utan eina, og segir „rosalega skemmtilegt“ að prófa þetta. Aðspurð segir Guja það svakalega spennandi að vinna sig yfir í sópran. „Mig dreymdi alltaf um að geta sung- ið stærri sópranverk en hélt að ég væri ekki sópran. Svo kom það svo skemmtilega á óvart að það er hægt ef maður þjálfar röddina rétt upp.“ Antonía segist hafa orðið vör við miklar breytingar á rödd Guju. „Ég vissi af Guju þar sem við vorum báð- ar tengdar óperunni og Gamla bíói í den. Ég þekkti til hennar og radd- arinnar en nú hafa orðið svaka breyt- ingar á henni. Hún er allt önnur manneskja,“ segir hún og hlær. „Við ætlum að leika okkur með radd- sviðin,“ bætir Antonía svo við. Um samstarf þeirra tveggja segir Guja: „Þetta er í fyrsta skipti sem ég vinn með Antoníu og það er búið að vera frábært að kynnast henni svona vel. Það er alveg æðislegst að vinna með Antoníu og það er sérlega gott að hún skuli standa að þessari tón- leikaröð. Við erum svo heppin að eiga hana hérna og hún er frábær píanisti og raddþjálfi. Hún er meðal okkar fremstu hér á landi, myndi ég segja.“ Víðförul söngkona Guja býr í Amsterdam í Hollandi og er sjálfstætt starfandi söngkona. Á undanförnum árum hefur hún unn- ið við ýmis verkefni í Hollandi, Þýskalandi, á Íslandi og víðar en hún er einnig listrænn stjórnandi Óperu- daga sem haldnir verða í haust. Guja kemur reglulega fram með hollenska útvarpskórnum og sem einsöngvari í óratóríum, óperum og á ljóða- tónleikum. Hún hefur stundað nám í Reykjavík, London, Salzburg og Ut- recht. Ljósmynd/Áslaug Íris Hádegistónleikar Guja Sandholt óperusöngkona og Antonía Hevesí píanóleikari koma fram í Hafnarborg í dag. Með nýja rödd  Tónleikar í Hafnarborg  Bjóða gestum að vera með í ferðalagi Guju Sandholt frá mezzósópran yfir í sópran Vinsæl bandarísk stúlknasveit, Fifth Harmony, kemur fram á tón- leikum í Laugardalshöll 16. maí næstkomandi og mun forsala miða hefjast 14. mars. Fifth Harmony var stofnuð árið 2012 í sjónvarpsþættinum X-Factor og hefur síðan notið mjög mikilla vinsælda. Á sex árum hefur hún gefið út þrjár plötur, sem hafa selst í hálfri milljón eintaka, og sópað til sín fjölda verðlauna, þar á meðal þrennum MTV Europe Music- verðlaunum ásamt sex styttum á Teen Choice-hátíðinni. Meðal vin- sælla laga þeirra má nefna „Worth It“ og „Work From Home“. Vinsælar Stúlknasveitin Fifth Harmony var stofnuð í vinsælum sjónvarpsþætti. Fifth Harmony leikur í Laugardalshöll Teiknimyndin The Emoji Movie fékk slæma útreið þegar hin árlegu Razzie-kvikmyndaverðlaun voru veitt í Bandaríkjunum um helgina, í 38. skipti. Þetta eru skammarverð- laun, kennd við gyllt hindber, sem þeir hreppa sem þykja hafa staðið sig verst í kvikmyndabransanum á nýliðnu ári. The Emoji Movie, með allskyns tjákn í aðalhlutverkum, þótti svo afspyrnuslæm að hún hreppti fern verðlaun, sem versta kvikmyndin, versta samsuðan á hvíta tjaldinu, fyrir verstu leik- stjórn og versta handrit. Tyler Perry var valin versta leik- konan fyrir frammistöðuna í Boo 2! og Tom Cruise versti leikarinn fyr- ir The Mummy. Versta leikkona í aukahlutverki var Kim Bas- inger fyrir frammistöðuna í Fifty Shades Darker og Mel Gibson versti karl í auka- hlutverki fyrir Daddy’s Home 2. Þá fékk Fifty Sha- des Darker skammarverðlaun sem veitt eru fyrir verstu endurgerð, framhald eða stuld og Baywatch fékk sérstök verðlaun fyrir að vera svo vond kvikmynd að áhorfendur elski hana. Teiknimyndin um tjáknin sú versta Tom Cruise

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.