Morgunblaðið - 13.03.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.03.2018, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  61. tölublað  106. árgangur  GÓÐUR LEIKUR OG STÓRFÍN KVIKMYND KRAFTMIKLIR UNGLINGAR VIÐGERÐARBYLTING TIL AÐ VINNA GEGN SÓUN DANS- OG SVIÐSLISTAHÁTÍÐ 31 GERT VIÐ BILUÐ TÆKI 12ANDIÐ EÐLILEGA bbbbm 33 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bíla- búðar Benna, segir að leita þurfi samanburðar við olíuríki til að finna jafnmikla sölu á Porsche-bílum miðað við höfðatölu og á Íslandi. Hann óttast að umboðið muni ekki geta flutt inn nógu marga Porsche- bíla í ár til að anna eftirspurn. BL hefur opnað nýjar höfuð- stöðvar fyrir Jaguar og Land Rover. Íris B. Ansnes er framkvæmdastjóri Jaguar Land Rover á Íslandi. Spáir mjög góðri sölu lúxusbíla Hún segir að m.t.t. hagsveiflunnar eigi sala til einstaklinga mikið inni. „Við teljum að þetta ár verði mjög gott í sölu lúxusbíla. Kaupmáttur er góður sem og andinn í þjóðfélaginu. Við teljum okkur því vera með rétta vöru á réttum tíma,“ segir Íris. »14 Anna ekki pöntunum á lúxusbílum  Bílabúð Benna skortir Porsche-bíla  BL opnar söluskála fyrir lúxusbíla Morgunblaðið/Hari Glæsikerrur Íris B. Ansnes í nýjum Jaguar-sportbíl í nýju sýningarrými BL á Hesthálsi. Vandaðasta útfærslan af Jaguar F kostar 30,39 milljónir. Sólskinsstundirnar í Reykjavík fyrstu átta daga marsmánaðar eru nú jafnmargar og flestar hafa mælst áður sömu daga, 68 talsins. Svo margar voru þær einnig 1962, eða fyrir 56 árum. Þetta kemur fram í samantekt Trausta Jónssonar veðurfræðings. Sólin hefur skinið glatt í höfuðborginni og víð- ar um sunnan- og vestanvert landið síðustu daga þannig að nokkrar stundir hafa bæst við. Mánuðurinn hefur jafnframt verið í kaldara lagi, en t.a.m. er meðalhiti í Reykjavík -1,4 stig. Metjöfnun í mars í borginni Morgunblaðið/Hari Sólin hefur leikið við landsmenn, m.a. þennan íselskandi krakkahóp Guðmundur Magnússon Höskuldur Daði Magnússon Samræmdu grunnskólaprófin í ensku og íslensku, sem hætta varð við í miðjum klíðum í síðustu viku vegna tæknilegra mistaka, verða ekki endurtekin í Garðaskóla í Garðabæ. Þetta segir skólastjórinn, Brynhildur Sigurð- ardóttir. Hún segir jafnframt að stjórn- endur skólans áskilji sér rétt til að meta það í næstu atrennu hvort þeir taki þátt í að leggja samræmd könnunarpróf Menntamála- stofnunar fyrir nem- endur. Í yfirlýsingu sem Menntamálastofnun sendi frá sér í gær segir að bandaríska fyrirtækið Assess- ment Systems, þjón- ustuaðili prófakerf- isins, hafi viðurkennt að mistök í uppsetningu evrópsks gagnagrunns stofnunarinnar hafi truflað próftöku í síðustu viku. Menntamálastofnun segist hafa gengið frá ráðn- ingu óháðs aðila til að fara yfir ferlið í heild og leiða í ljós hvort eitthvað í undirbúningi stofnunarinnar hefði mátt betur fara. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmála- ráðherra, og Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar, mættu á fund allsherjar- og menntamálanefndar í gær ásamt sérfræðingum. Guðmundur Andri Thorsson, 1. varaformaður nefndarinnar, segir augljóst að Menntamálastofn- un njóti ekki mikils trausts í samfélaginu. „Þetta er búin að vera hrakfallasaga í nokkur ár, það er allt- af eitthvað,“ segir hann um framkvæmd prófanna. Þá telur hann að ekki hafi verið að fullu skýrt á fundinum hvað fór úrskeiðis: „Þessar skýringar sem við fengum voru ekki nógu trúverðugar allar.“ Endur- taka ekki prófin  Stjórnendur í Garða- skóla bregðast við ólgu Óvissa um prófin » Um 4.300 nem- endur í 9. bekk áttu að þreyta samræmd próf. Fresta varð prófum í ensku og ís- lensku. » Ráðherra hefur boðað hagsmuna- aðila á fund sinn á morgun þar sem far- ið verður heildstætt yfir stöðuna. MSamræmd próf »2 og 18  „Það er ekkert sjálfgefið að framboð til forseta sé endilega með velvilja forystumanna stærstu fé- laga eða sambanda. Það eru bara þingfulltrúarnir sem ákveða þetta,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um gagnrýni verkalýðsfor- ingja á setu hans í forystu ASÍ. „85 þingfulltrúar VR eða 64 þing- fulltrúar Eflingar eru vafalaust ekki allir eins þenkjandi,“ segir Gylfi, sem hefur ekki tekið ákvörð- un um hvort hann gefur kost á sér áfram sem forseti á þingi ASÍ í haust. Hann hringdi í gær í Sól- veigu Önnu Jónsdóttur og óskaði henni til hamingju með sigurinn í Eflingu. »6 Óskaði Sólveigu Önnu til hamingju Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Undarleg uppákoma varð við fang- elsið á Hólmsheiði í gær þegar Sveini Gesti Tryggvasyni, sem dæmdur var í sex ára fangelsi í tengslum við dauða Arnars Jóns- sonar Aspar á síðasta ári, var óvænt sleppt úr haldi. Sveinn áfrýjaði dómi sínum til Lands- réttar og situr í gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur þar. Gæslu- varðhald yfir honum rann út klukkan 16 í gær og svo virðist sem það hafi farist fyrir að fara fram á áframhaldandi varðhald í tæka tíð. Því gekk Sveinn frjáls út úr fangelsinu í gær – en beint í flasið á hópi lögreglumanna. Var hann handtekinn á bílastæðinu við fangelsið á Hólmsheiði og færður beint í héraðsdóm þar sem hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins voru fjórir lögreglu- bílar sendir á vettvang þegar mis- tökin uppgötvuðust, en ekki reyndist þörf á þeim liðsafla því Sveinn Gestur var rólegur og sam- vinnuþýður. Helgi Magnús Gunnarsson vara- ríkissaksóknari var staddur er- lendis þegar Morgunblaðið náði af honum tali í gærkvöld og gat ekki veitt neinar upplýsingar um málið. Ekki náðist í Björgvin Jónsson, lögmann Sveins Gests. Handtekinn fyrir utan fangelsið  Sveini Gesti óvænt sleppt úr haldi í gær Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gæsluvarðhald Sveinn Gestur Tryggvason situr aftur í varðhaldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.