Morgunblaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Sokkarnir voru veðurtepptir í Dyfl-
inni í viku sökum snjóa, því tafðist
salan á þeim aðeins í byrjun,“ segir
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmda-
stjóri Krabbameinsfélagsins, um
sölu á sokkum til styrktar Mottu-
mars.
„Það gengur mjög vel að selja
sokkana, en það er ennþá nóg til.
Pökkunardeildin í Skógarhlíðinni
leggur sig fram nánast dag og nótt.“
Safnað er fyrir „Karlaklefanum“,
vefgátt fyrir karla til upplýsingar
um krabbamein. Halla segir rann-
sóknir sýna að karlmenn nýti sér
upplýsingar, stuðning og ráðgjöf á
annan hátt en konur og félagið vilji
mæta því með vefsvæði fyrir karla.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, fékk afhent sokkapar í byrjun
átaksins og klæddist þeim nýverið á
mynd.
„Við erum sannfærð um að það
hefur haft mikil áhrif, Guðni er
áhrifavaldur í tísku,“ segir Halla og
hlær við.
Sokkarnir eru röndóttir, hvítir,
rauðir og bláir, í stærðunum 36-40
og 41-45, og fást í netverslun félags-
ins auk ýmissa verslana. Aðspurð
segir Halla að karlasokkarnir seljist
mun betur.
„Okkur langar að höfða meira til
kvenna, karlar eru t.d. mjög dugleg-
ir að styðja bleiku slaufuna, sem er
krabbameinsverkefni kvenna.“
Halla hvetur þjóðina til að taka þátt í
Mottudeginum 16. mars nk.
Sokkarnir biðu veðurtepptir
í viku á flugvellinum í Dyflinni
Mottumars fer vel af stað Konur hvattar til þátttöku
Ljósmynd/Krabbameinsfélagið
Sokkarnir Biðu veðurtepptir í viku
en fást nú til styrktar Mottumars.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við höfum gríðarlegar áhyggjur af
ástandinu í umferðarmálum hér á
landi. Það er ekki bara það að veg-
irnir séu að molna
niður heldur er
umferðin orðin
svo ótrúlega mik-
il. Frá okkar bæj-
ardyrum séð er
ástandið þannig
að það þarf að
ráðast í þjóðar-
átak til að koma
vegunum í lag.
Það þarf að hugsa
stórt þarna og
fjárfesta í þessum innviðum án taf-
ar,“ segir Sigurjón Andrésson, for-
stöðumaður markaðsmála og for-
varna hjá Sjóvá.
Morgunblaðið greindi í gær frá
umferðarslysi sem varð við Kirkju-
bæjarklaustur. Mörg alvarleg um-
ferðarslys hafa orðið í vetur og fimm
hafa látist í umferðinni það sem af er
ári. Hávær krafa er uppi í samfélag-
inu um úrbætur í vegamálum.
Sigurjón bendir á að frá hruni hafi
þessi mál stöðugt þróast til verri
vegar. Ferðamönnum hafi fjölgað
hratt og umferð aukist, en á sama
tíma hafi endurbætur og fram-
kvæmdir setið á hakanum.
„Við erum komin á eftir. Ég nefni
sem dæmi að frá Klaustri austur að
Höfn í Hornafirði eru um 20 ein-
breiðar brýr og innviðir í samfélag-
inu þar eru mjög þandir út af ágangi
vegna fjölda ferðamanna. Það er afar
löng vegalengd í heilbrigðisstarfs-
fólk og lækni sitthvorumegin við
Jökulslárlón og nánast útilokað að
bregðast hratt við mögulegu stór-
slysi.“
Hann kveðst fagna því að sam-
gönguráðherra boði að auknu fjár-
magni verði varið í framkvæmdir á
vegum í ár. Ekki veiti af.
„Þegar við byggjum þessa vegi þá
þarf að byggja þá til framtíðar og
hugsa stórt. Vegirnir þurfa að vera
að minnsta kosti 2+2 og uppfylla
bæði nútímastaðla og nútímakröfur.
Við höfum því miður stunduð sparað
aurinn en kastað krónunni í þessum
efnum eins og sést á Reykjanes-
braut. Hún er til fyrirmyndar að
mörgu leyti en er aðeins hálfkláruð.
Það þýðir ekki að hugsa þetta svona.
Við höfum nýleg dæmi um tvö slys
þar sem bílum er ekið yfir á rangan
vegarhelming og framan á aðra bíla.
Þetta gerist þegar umferðin er ekki
akreinaskipt. Þarna er verið að
keyra á upp undir 90-100 kílómetra
hraða og það eru einungis tveir
metrar á milli bíla. Svo reka rútur
næstum saman speglana þegar þær
mætast á þessum vegum.“
Hann bendir á að í mörgum nýjum
bílum sé búnaður sem láti ökumann
vita ef hann er að keyra yfir á öfugan
vegarhelming eða keyra út af. „En til
þess að búnaðurinn virki þurfa auð-
vitað að vera hér vegir sem uppfylla
nútímastaðla.“
En hvað með bílstjórana sem
valda þessum slysum? Sigurjón
kveðst telja að bílaleigur standi sig
ágætlega í forvörnum og leiðbeining-
um fyrir erlenda viðskiptavini sína.
Það verði hins vegar ekki komið í veg
fyrir að misjafn sauður leynist í
mörgu fé.
„Margir þessara ökumanna eru
óvanir og lesa aðstæður skringilega.
Þeir hafa ekki þekkingu eða kunn-
áttu til að takast á við aðstæður sem
geta skapast úti á vegunum. Auðvit-
að hræðir þetta okkur Íslendinga.“
Þjóðarátak þarf til að koma vegum í lag
Ráðast þarf í mikla uppbyggingu á vegum, að mati forstöðumanns forvarna hjá Sjóvá Hugsa þarf
stórt Margir erlendir ökumenn eru óvanir og hafa ekki kunnáttu til að takast á við íslenskar aðstæður
Sigurjón
Andrésson
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Bílalest Suðurlandsvegur var lokaður í fjóra tíma eftir slys við Kirkjubæj-
arklaustur á sunnudag. Krafa er uppi um endurbætur á vegum þar.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég á nú eftir að átta mig betur á því
hvað gerðist en þessar skýringar sem
við fengum voru ekki nógu trúverð-
ugar allar,“ segir Guðmundur Andri
Thorsson, 1. varaformaður allsherjar-
og menntamálanefndar Alþingis.
Nefndin fundaði um samræmd próf
og framkvæmd þeirra í gær en eins
og Morgunblaðið hefur greint frá
þurfti að fresta tveimur prófum af
þremur í síðustu viku eftir að tækni-
leg vandamál komu upp. Lilja Al-
freðsdóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, kom á fundinn ásamt
tveimur sérfræðingum úr ráðuneyt-
inu. Auk þeirra kom Arnór Guð-
mundsson, forstjóri Menntamála-
stofnunar, ásamt sérfræðingi frá
stofnuninni.
Guðmundur Andri segir augljóst að
Menntamálastofnun njóti ekki mikils
trausts í samfélaginu eftir þetta klúð-
ur við framkvæmd samræmdu próf-
anna. „Þetta er búin að vera hrak-
fallasaga í nokkur ár, það er alltaf
eitthvað. Mér virðist að það hafi
kannski verið farið heldur geyst í
þessa rafvæðingu. Það er ekki gott að
hafa ekki neitt plan B,“ segir Guð-
mundur Andri, sem vill ekki segja
hvað sé rétt að taka til bragðs varð-
andi prófin.
„Það er enginn augljós kostur í
stöðunni. Ég vona að ráðherra og
hennar fólk komist að skynsamlegri
niðurstöðu.“
Prófin „hrakfallasaga í nokkur ár“
Samræmdu
prófin til umræðu
á nefndarfundi
Morgunblaðið/Eggert
Fundað Arnór Guðmundsson og Lilja Alfreðsdóttir, fyrir miðju, mættu á fund allsherjar- og menntamálanefndar.
„Veðurspáin fyrir næstu daga er
nokkuð góð og ekki áframhald á
snjókomu eins og í síðustu viku sem
olli snjóflóðum á Tröllaskaganum,“
segir Tómas Jóhannesson, jarðeðl-
isfræðingur á snjóflóðavakt Veð-
urstofu Íslands.
„Á Tröllaskaga eru enn veik
snjóalög sem snjóflóð hlaupa á. Við
lækkuðum hættustigið þar úr rauðu
í appelsínugult, en það er kalt og
tekur tíma fyrir snjóalögin að ná
stöðugleika þrátt fyrir að ekki bæti
mikið í snjó. Það féll snjóflóð inn-
arlega í Skarðsdal nærri Siglufirði
um hádegið á sunnudag. Það er til
marks um að þessi lög eru enn
hættuleg. Á Vest- og Austfjörðum
þykir stöðugleiki snævarins nokkuð
góður, en þó þarf að fara varlega,“
segir Tómas og bætir við að viðvör-
unum sé fyrst og fremst beint til
fjallaferðalanga. ernayr@mbl.is
Enn flóða-
hætta á
fjöllum
Veik snjóalög en
þó lægra hættustig