Morgunblaðið - 13.03.2018, Side 6

Morgunblaðið - 13.03.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 2024 SLT L iðLé t t ingur Verð kr 2.790.000 Verð með vsk. 3.459.600 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Ellefu fastagestir sundlaugarinnar í Laugardal syntu í gærmorgun samtals 21,2 km til að minnast þeirra sem fórust með Hellisey VE-503 að kvöldi 11. mars 1984 og afreks Guðlaugs Friðþórssonar, þá aðeins 22 ára, sem synti um 6 km í land í ísköldum sjónum um nótt. „Við erum bara óformlegur sund- klúbbur sem hittumst í sundi í Laugardalslauginni á morgnana. Við syndum og förum í heitu pott- ana. Ég hef verið með síðan árið 2006 og við höfum gert þetta 12. mars ár hvert, til að minnast þessa hörmulega atburðar og þeirra sem fórust, en líka sundafreks Guðlaugs Friðþórssonar,“ segir Skúli J. Björnsson, einn sundgarpanna. Hann segir þau ekki tengjast Vestmannaeyjum sérstaklega en þau geri þetta samt sem áður, m.a. til að minnast sjóslysa. „Hópurinn hefur haldið þessari hefð síðan árið 2002 en þar á undan hafði ég synt nokkrum sinnum í Vestmannaeyjum,“ segir Kristján Gíslason, en hann og Birgir Þór Jósafatsson syntu fullt sund, 6 km hvor. Aðrir skiptu afganginum á milli sín. ernayr@mbl.is Sundhópur í Laugardalslaug minnist þeirra sem farast í sjóslysum og sundafreks Guðlaugs Friðþórssonar er Hellisey VE-503 fórst Ljósmynd/Guðmundur Kristjánsson Synda ár- lega Guð- laugssund Sundhópurinn F.v. Guðný Hallgrímsdóttir, Páll Arnór Pálsson, Skúli J. Björnsson, Elísabet Guðmundsdóttir, Pétur Ó. Stephensen, Guðjón H. Bernhards- son, Þormar Ingimarsson, Birgir Jósafatsson og Kristján Gíslason. Á myndina vantar Arnar Pál Hauksson og Björn Jónsson. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Ég hringdi í Sólveigu Önnu í morgun og óskaði henni til hamingju með þennan sigur, hann er glæsilegur og þetta er mjög afgerandi niðurstaða fyrir hana, sem er auðvitað bara gott. Ég held að formaður í svona stóru fé- lagi þurfi einmitt að hafa svona afger- andi stuðning og þessi er óumdeild- ur,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um sigur Sólveigar Önnu Jóns- dóttur í formannskjörinu í Eflingu. Gylfi hefur verið erlendis undan- farna viku og kom heim í gærmorgun. Hann gerir ráð fyrir að hitta Sólveigu fljótlega. „Hún tekur við þessu verk- efni í lok apríl og síðan fer seinni hluti kosninga í Eflingu yfirleitt fram að hausti, en þá er trúnaðarráðið og samninganefndin kosin. Mér þykir ekki ólíklegt að nýr meirihluti vilji hafa einhverja hönd í bagga með því og það er bara eðlilegt. Hún er að taka við stóru verkefni og auðvitað fær hún allan stuðning Alþýðusam- bandsins eins og allir sem taka við svona verkefnum,“ segir Gylfi. Harðari tónn síðustu misseri Boðuð hefur verið herskárri stétta- barátta eftir sigur Sólveigar Önnu og harðari gagnrýni beinst að forystu ASÍ og Gylfa sem forseta, einkum frá Ragnar Þór Ingólfssyni, formanni VR, og Vilhjálmi Birgissyni, formanni Verkalýðsfélags Akraness. Gylfi segir að ekki fari neitt á milli mála að tónninn í verkalýðshreyfing- unni hafi orðið harðari síðustu misseri og harkan einskorðist ekkert við þau þrjú. Það sé rétt metið, t.a.m. í skrif- um Styrmis Gunnarssonar, fyrrver- andi ritstjóra, að framganga stjórn- málamanna og kjararáðs eigi stóran hlut að máli. „Það getur ekki hafa far- ið framhjá neinum sem hefur fjallað um þessi mál að ég hef talið hreyf- inguna þurfa að bíta frá sér,“ segir Gylfi, sem kveðst ekkert hafa dreg- ið af sér í gagn- rýni á stjórnmála- öflin í landinu. Fingraför ráð- herra blasi við m.a. við breyting- ar á kjörum kjararáðs. Þá hafi ákvarðanir um kjör forstöðumanna fyrirtækja í eigu ríkisins eftir að þær voru teknar frá kjararáði, átt að stuðla að meiri aga og ábyrgð á launa- hækkunum forstjóranna en niður- staðan blasi hins vegar við. Einnig eigi bótaskerðingar líka stóran þátt í því að tónninn er orðinn mun harðari. „Það hefur verið mitt mat nokkuð lengi að hreyfingin þurfi að bíta frá sér. Ég var þeirrar skoðunar 2014 og 2015 og það var mín tillaga (um sein- ustu mánaðamót) að segja upp þess- um kjarasamningum, þannig að sú harka sem þau eru að endurspegla held ég að sé ekkert alveg einskorðuð við þau,“ segir Gylfi. Hann segist hins vegar vona að menn átti sig á því að ekki sé hægt að gera núverandi forystu verkalýðs- hreyfingarinnar ábyrga fyrir ákvörð- unum ríkisstjórnar og Alþingis. Segir hann að Ragnar Þór og Vil- hjámur hafi sjaldan verið miklir tals- menn samstöðu og það valdi honum miklum vonbrigðum að þessi umræða snúist öll inn á við og fari í einhver hjaðningavíg inni í hreyfingunni. Það sé mjög skrítin leið til uppbyggingar og samstöðu en Gylfi tekur fram að hann hafi ekki heyrt nýkjörinn for- mann Eflingar tjá sig neitt um þetta. Gylfi segist ekki hafa ákveðið hvort hann gefur kost á sér áfram sem for- seti ASÍ á þingi þess í haust. ,,Kosning til formennsku, hvort sem það var í VR í fyrra eða Eflingu núna er bara kosning til formennsku í þessum félögum. Síðan verður þing Alþýðusambandsins haldið í haust. Ég hef aðeins einu sinni ekki fengið mótframboð. Ég var sjálfkjörinn á síðasta þingi, 2016. Ég hef aldrei litið á þetta sem embætti sem ég ætti, heldur kjósa 300 þingfulltrúar í það og það er ekki alltaf gert með velvilja forystumanna stærstu félaganna.“ Eru ekki allir eins þenkjandi „Það er ekkert sjálfgefið að fram- boð til forseta sé endilega með velvilja forystumanna stærstu félaga eða sambanda. Það eru bara þingfull- trúarnir sem ákveða þetta,“ segir Gylfi. „85 þingfulltrúar VR eða 64 þingfulltrúar Eflingar eru vafalaust ekki allir eins þenkjandi. En hvort ég býð mig fram eða ekki, ég hef sagt að ég muni greina frá því síðar.“ Sólveig fær allan stuðning ASÍ  Hringdi í Sólveigu og óskaði henni til hamingju með glæsilegan sigur  Hefur ekki ákveðið hvort hann gefur áfram kost á sér  Hreyfingin þarf að bíta frá sér  Reiði vegna stjórnmála og kjararáðs Gylfi Arnbjörnsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Alvarleg staða er komin upp í kjara- viðræðum samninganefndar ríkisins og Ljósmæðrafélags Íslands. „Við erum að hugsa málið, hvaða möguleikar eru í stöðunni,“ segir Áslaug Í. Valsdóttir, formaður Ljós- mæðrafélags Íslands. „Það er stál í stál í viðræðum vegna þess að ekki er um eiginlegar viðræður að ræða, samtalið er gjörsamlega einhliða af hálfu ríkisins. Ríkið er ekki tilbúið að skoða aðra möguleika en það til- boð sem þeir koma sjálfir með og við höfum þegar hafnað,“ segir Ás- laug. Ljósmæðrafélagið hefur boðað ljósmæður til áríðandi félagsfundar á morgun vegna erfiðrar stöðu kjaramála. Ljósmæðrafélag Íslands og FÍH, fyrir hönd Starfsmannafélags Sin- fóníuhljómsveitar Íslands, eru núna einu BHB-félögin sem eiga ósamið við ríkið af þeim 17 aðildarfélögum BHM sem voru með lausa samninga eftir að gerðardómur á kjör þeirra rann úr frá 1. september sl. Deilu ljósmæðra og SNR var vísað til ríkissáttasemjara 5. febrúar. Fram kom í samtali við formann ljósmæðrafélagsins í seinasta mán- uði að félagið gat ekki fallist á kjara- samninginn sem önnur BHM félög gerðu við ríkið á dögunum þar sem launaþróun ljósmæðra væri sú lang- slakasta bæði innan BHM og þótt víðar væri leitað. Stál í stál í kjaradeilu ljós- mæðrafélagsins og ríkisins  Boða á áríðandi fund um stöðuna Thinkstock/Getty Images Á fæðingardeild Ekki hafa náðst kjarasamningar fyrir ljósmæður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.