Morgunblaðið - 13.03.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018
augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Falleg hönnun frá
Blómahengi
verð 970 kr.
Bókastoðir
verð 860 kr. stk.
Hilluvinklar
verð frá
660 kr. stk.
Snagi
HRÓI HÖTTUR
verð 980 kr. stk.
Snagi ALBER
verð frá
1.330 kr. stk.
Til í fleiri litum
Snagabretti
verð 5.980 kr. stk.
L
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
Ný
vefverslun
brynja.is
Það er ekki víst að neinn hefðivelt því fyrir sér hversu fáir
sóttu „landsfund“
Viðreisnar.
Það er ekki út-bólginn áhugi
fyrir þessu klofn-
ingsbroti, sem slys-
aðist inn í ríkis-
stjórn, sem sprakk
út af engu, þegar enginn átti von
á því og enginn varð leiður yfir
því.
Jafnvel þótt einhver hefði velt þessum landsfundi fyrir
sér eina örskotsstund hefði hann
ekki pælt í því hvort pínlega fáir
hefðu setið hann.
En svo var birt frétt um hvemörg prósent formaður Við-
reisnar hefði fengið í formanns-
kjöri.
Mbl.is taldi augjóst að innslátt-armistök hefðu orðið þegar
fjöldi atkvæða sást hvergi, hvern-
ig sem leitað var.
En Ásdís Rafnar upplýsti aðþað væri sérstök ákvörðun
að gefa ekki upp atkvæðafjöldann!
Viðreisn lætur stundum eins ogí henni sé að finna helstu
vörn gegn „leyndarhyggjunni“ og
því kom þetta mjög á óvart. Og
rétt eins og þegar Björt framtíð
dró Viðreisn með sér úr ríkis-
stjórn að næturþeli brotnuðu leið-
togar hennar nú undan þrýstingi
og létu toga út úr sér að formað-
urinn hefði aðeins fengið 61 at-
kvæði á landsfundi.
Það var vissulega dálítið pínlegten þó ekki nærri eins pínlegt
og pukrið og leyndarhyggjan um
úrslitin.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Pínlega pínlegt
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.3., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík -1 heiðskírt
Akureyri -1 skýjað
Nuuk -5 snjókoma
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 0 þoka
Kaupmannahöfn 4 rigning
Stokkhólmur 2 þoka
Helsinki 0 súld
Lúxemborg 9 skýjað
Brussel 11 skúrir
Dublin 10 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 9 skúrir
París 10 rigning
Amsterdam 10 skúrir
Hamborg 10 rigning
Berlín 9 rigning
Vín 11 skúrir
Moskva -3 snjókoma
Algarve 14 skýjað
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 13 skúrir
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -8 heiðskírt
Montreal 1 snjókoma
New York 4 heiðskírt
Chicago 3 þoka
Orlando 20 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:53 19:22
ÍSAFJÖRÐUR 7:59 19:26
SIGLUFJÖRÐUR 7:43 19:09
DJÚPIVOGUR 7:23 18:51
Uppselt er orðið á tvo leiki á HM í
Rússlandi í sumar; úrslitaleikinn
sjálfan og leik Íslands og Argentínu í
riðlakeppninni, sem fram fer í
Moskvu 16. júní nk.
Í dag klukkan níu opnast á ný
miðasölugluggi vegna mótsins á vef
Alþjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA. Um er að ræða sölu þar sem
miðakaupendur fá strax svör frá kerf-
inu um það hvort miðarnir fást. Klara
Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ,
sagði við mbl.is í gær að hún vissi ekki
hversu margir miðar færu í sölu í dag,
en mikil eftirspurn hefur verið eftir
miðum á meðal íslenskra stuðnings-
manna og eflaust einhverjir svekktir
nú þegar uppselt er orðið á fyrsta leik
liðsins.
Íslenska liðið spilar í borgunum
Moskvu, Volgograd og Rostov gegn
Argentínu, Nígeru og Króatíu dag-
ana 16. til 26. júní.
Glugginn sem opnast í dag er síð-
asta úthlutunin í miðasölunni á HM.
Ekki er þó öll von úti, því síðar verður
opnaður endursölugluggi hjá FIFA
fyrir þá sem eiga miða en hyggjast
ekki nýta þá. Sú gátt verður eina leið-
in til þess að kaupa og selja miða sem
þegar hefur verið úthlutað, en miðar
sem keyptir eru af miðahöfum án
milligöngu FIFA verða ónothæfir
þegar til Rússlands er komið.
Uppselt á fyrsta leikinn í Rússlandi
Miðasölugluggi opnast kl. níu í dag
Endursölugátt FIFA opnuð síðar
Morgunblaðið/Golli
Rússland Aron Einar og Birkir fá
að taka á Króötunum á ný í sumar.
„Ég bíð bara eftir
fréttum,“ segir
Páll Kristjáns-
son, lögmaður
Sunnu Elviru
Þorkelsdóttur,
sem liggur enn á
bæklunarspítala í
Sevilla á Spáni.
Þangað var hún
flutt frá Malaga
23. febrúar síð-
astliðinn. Íslenska lögreglan sendi
spænskum lögregluyfirvöldum
formlega réttarbeiðni um að mál
sem Sunna tengist á Spáni yrði fært
í hendur íslensku lögreglunnar.
„Mál hennar virðist eitthvað hafa
sofnað hjá hinu opinbera. Það hefur
ekkert nýtt gerst þar,“ segir Páll í
samtali við Morgunblaðið. Hann
segist hafa sent fyrirspurn til ríkis-
saksóknara um stöðuna, en lítil svör
fengið. „Þetta virðist hafa sofnað
svolítið eftir að hún komst undir
betri læknishendur. Það er eins og
pressunni hafi aðeins verið létt af
spænskum yfirvöldum,“ segir Páll.
Foreldrar Sunnu eru hjá henni í Se-
villa og segir Páll að henni líði betur,
en leggi þó mikla áherslu á að kom-
ast heim sem fyrst. athi@mbl.is
Sunna Elvira
Þorkelsdóttir
Sunna enn
í Sevilla
Lögmaður segir
málið hafa sofnað