Morgunblaðið - 13.03.2018, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018
Vísindadagur OR
Hörpu miðvikudaginn 14. mars kl. 8.30–15.45
Á vísindadeginum í ár verða nítján stutt og snörp erindi um fjölbreytt og
mikilvæg málefni: örplast, loftslagsmál, launajafnrétti, snjallvæðingu
og ylstrendur, svo nokkuð sé nefnt.
Boðið verður upp á morgunhressingu fyrir fund og léttan hádegisverð.
Ef þú kemst ekki getur þú fylgst með streymi frá erindunum á www.or.is.
Allir velkomnir | Aðgangur ókeypis
Skráning og nánari upplýsingar á or.is.
Taktu þátt í umræðunni á #orsamband
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Drög að ályktunum málefnanefnda
Sjálfstæðisflokksins, sem lagðar
verða fram á landsfundi flokksins,
sem hefst á föstudag, eru nú komin
inn á heimasíðu Sjálfstæðisflokks-
ins.
Þorkell Sigurlaugsson er formað-
ur allsherjar- og menntamála-
nefndar Sjálfstæðisflokksins. Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið að
nefndin hefði lagt
mikla vinnu í
undirbúning
ályktunarinnar.
„Við leggjum
mun meiri
áherslu á
menntamálin í
ályktun okkar en
áður hefur verið
gert. Það er
reyndar sam-
merkt öllum flokkum um þessar
mundir, sem er bara jákvætt,“ sagði
Þorkell.
Hann segir að í ályktuninni komi
skýrt fram áhyggjur af kennara-
menntuninni og hversu fáir velja að
fara í kennaranám. „Lenging kenn-
aranáms í fimm ár skapaði viss
vandkvæði og við bendum á að
rannsaka þurfi betur að kennara-
námið verði þriggja ára nám plús
tveggja ára meistaranám eins og í
öðrum greinum á háskólastigi og
eftir fyrstu þrjú árin hafi myndast
ákveðin starfsréttindi,“ sagði Þor-
kell.
Hann segir að nefndin leggi
áherslu á að gera þurfi kennara-
menntunina meira aðlaðandi og
áhugaverðari og að auka þurfi virð-
ingu fyrir kennarastéttinni. Þá sé
alveg ljóst að launakjör kennara hér
á landi séu engan veginn í samræmi
við það sem tengist lengd námsins
og miðað við það sem tíðkist erlend-
is. Það sé hluti af skýringunni á því
að kennarar sæki í önnur störf.
„Þá teljum við að einnig þurfi að
skoða sérstaklega rekstur skóla-
kerfisins. Við leggjum mikla áherslu
á sjálfstætt starfandi skóla, sem
þýðir að slíkur skóli getur metið
kennara og launakjör meira tengt
árangri en hægt er að gera í op-
inbera skólakerfinu. Ég nefni sem
dæmi að í Háskólanum í Reykjavík
eru allt öðru vísi starfskjör kennara
og samkomulag við þá en í öðrum
skólum,“ sagði Þorkell. Hægt er
kynna sér drögin á xd.is.
Vilja að kennaranámi verði skipt upp
Lagt til á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að kennaranám verði þrjú ár plús tvö ár í master
Þorkell
Sigurlaugsson
Mikilar breytingar verða á bæjar-
stjórn Stykkishólms á næsta kjör-
tímabili. Enginn núverandi bæjar-
fulltrúa gefur kost á sér til endur-
kjörs og sama er með bæjarstjór-
ann, Sturlu Böðvarsson. Um
helgina var kynntur nýr H-listi,
sem hefur farið með stjórn sveitar-
félagsins á þessu kjörtimabili. Efstu
sæti listans skipa Hrafnhildur Hall-
varðsdóttir, Gunnlaugur Smárason,
Þóra Stefánsdóttir, Steinunn Magn-
úsdóttir og Ásmundur Guðmunds-
son. Jakob Björgvin Jakobsson, lög-
fræðingur og uppalinn Hólmari, er
bæjarstjóraefni listans, hljóti hann
meirihluta í kosningum í vor.
Morunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmur Efstu frambjóðendur H-
lista og Jakob Björgvin, fyrir miðju.
Algjör endurnýjun í
Stykkishólmi í vor
Adda María Jó-
hannsdóttir, bæj-
arfulltrúi, verður
oddviti lista Sam-
fylkingarinnar í
Hafnarfirði í
sveitarstjórn-
arkosningunum í
vor. Framboðs-
listi Samfylking-
arinnar var sam-
þykktur á
félagsfundi Samfylkingarinnar um
síðustu helgi. Tveir af þremur nú-
verandi bæjarfulltrúum flokksins
gefa ekki kost á sér.
Friðþjófur Helgi Karlsson, skóla-
stjóri og varabæjarfulltrúi, skipar
2. sætið og 3. sæti skipar Sigrún
Sverrisdóttir, leiðbeinandi.
Adda María leiðir
S-lista í Hafnarfirði
Adda María
Jóhannsdóttir
Margrét Júlía
Rafnsdóttir, bæj-
arfulltrúi, um-
hverfisfræðingur
og kennari, mun
leiða lista Vinstri
hreyfingarinnar
– græns fram-
boðs í Kópavogi
fyrir sveitar-
stjórnarkosning-
arnar í vor.
Listi VG í Kópavogi var sam-
þykktur á félagsfundi nýverið.
Annað sæti listans skipar Amid
Derayat fiskifræðingur, 3. sætið
skipar Rósa Björg Þorsteinsdóttir
kennari, Pétur Fannberg Víglunds-
son verslunarstjóri er í 4. sæti og 5.
sætið skipar Ásta Kristín Guð-
mundsdóttir, félagsráðgjafi.
Margrét Júlía efst á
lista VG í Kópavogi
Margrét Júlía
Rafnsdóttir
2018