Morgunblaðið - 13.03.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 13.03.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is BL hefur opnað nýjar höfuðstöðvar fyrir Jaguar og Land Rover á Hest- hálsi í Reykjavík. Þar verða seldir nýir og notaðir lúxusbílar í sérhönn- uðu sýningarrými. Íris B. Ansnes er framkvæmda- stjóri Jaguar Land Rover á Íslandi. „Stærstur hluti nýja hússins fer undir sýningarsal fyrir Jaguar og Land Rover. Nú gefst okkur í fyrsta sinn kostur á að sýna allar gerðir í einum sal, eða allt að 14 bíla. Hinn hlutinn, sem er um þriðjungur af jarðhæðinni, verður notaður fyrir notaða lúxusbíla. Annars vegar upp- runavottaða lúxusbíla frá Jaguar og Land Rover, sem við yfirförum og seljum með ábyrgð, en einnig aðra notaða lúxusbíla sem við eignumst og eru tiltölulega nýir og vel með farn- ir,“ segir Íris. Spurð um tilefni þess að BL opnar nýjan sýningarsal segir Íris orðið þröngt um BL á Sævarhöfða. Bílarnir séu í sérhönnuðu rými „Við erum með 10 tegundir frá mismunandi framleiðendum. Eins var það krafa frá Jaguar Land Rov- er, sem hefur stækkað vörulínu sína verulega á fáum árum, að vera með bílana í sérhönnuðu sýningarrými. Þetta var því sameiginleg ákvörðun hjá BL og Jaguar Land Rover,“ segir Íris. Uppbygging nýja sýningarsalarins hefur gengið hratt. BL keypti fast- eignina Hestháls 6-8 í nóvember 2016 en Frumherji var þar með skoð- unarstöð. Leyfi til jarðvegs- framkvæmda fékkst í júní í fyrra og var fullt byggingarleyfi gefið út fyrir aðeins um sjö mánuðum. Húsið allt er hannað og byggt eftir stöðlum Jaguar Land Rover og undir þeirra eftirliti. „Við þurftum að undirgangast margvíslegar kröfur, til dæmis varð- andi staðla í þjónustu og framsetn- ingu á vörum,“ segir Íris og bendir á leðurklædda sófa og sérhannaðar innréttingar. „Upplifunin sem við viljum skapa og umgjörðin um bílana skiptir miklu máli,“ segir hún. Verkstæðið líka eftir stöðlum Sunnan við nýja húsið, fjær Vest- urlandsvegi, er nýtt þjónustuverk- stæði Jaguar Land Rover sem einnig er byggt eftir stöðlum framleið- andans. Þar er einnig standsetning fyrir alla nýja bíla sem BL selur auk miðlægs þjónustuvers. Íris segir kynningu á nýjum Jag- uar E-Pace að hefjast. „Við sjáum gríðarleg tækifæri í honum. Hann er minni en Jaguar F- Pace og á mjög fínu verði. Síðan bíð- um við spennt eftir Jaguar I-Pace, 100% rafmagnsbíl, sem er væntan- legur í haust. Við erum að fá mikið af nýjum og spennandi bílum sem nota rafmagn sem orkugjafa og nægir þar að nefna tengiltvinnbílana Range Rover Sport og Range Rover sem eru væntanlegir með vorinu.“ Íris reiknar með góðri aðsókn í sýningarsalinn. „Það er gríðarlegur áhugi. Við finnum það sérstaklega þegar sól fer að hækka. Þá er meiri áhugi á Jaguar en á vetrarmánuðum, þegar Land Rover kemur sterkari inn. Engu að síður eru Jaguar-bílar flestir með fjórhjóladrifi og því góðir við allar aðstæður.“ Salan á töluvert inni Íris hóf störf hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum, forvera BL, árið 2003. Spurð hvort búast megi við jafnmikilli bílasölu næstu ár og árin 2005-8 segir Íris bílasölu til ein- staklinga ekki orðna meiri en um- rædd ár. Bílaleigur kaupi hins vegar margfalt meira en á þessum árum. „Með hliðsjón af hagsveiflunni eiga einstaklingarnir töluvert inni. Bílaflotinn er enn nokkuð gamall. Því er mikil þörf á endurnýjun og m.t.t. umhverfisáhrifa og þess að nýir bílar menga margfalt minna en gamlir er þörfin á endurnýjun svo sannarlega fyrir hendi.“ Íris segir aðspurð að í ljósi góðs kaupmáttar megi búast við góðri eft- irspurn eftir vandaðri bílum. „Við teljum að þetta ár verði mjög gott í sölu lúxusbíla. Kaupmáttur er góður sem og andinn í þjóðfélaginu. Við teljum okkur því vera með rétta vöru á réttum tíma,“ segir Íris. Mælikvarði á hagsveifluna Özur Lárusson, framkvæmda- stjóri Bílgreinasambandsins, segir það góðan mælikvarða á hagsveifl- una að sala lúxusbíla sé að aukast. „Salan fylgir hagsveiflunni. Þessi markaður var mun lengur að taka við sér en hinn almenni markaður. Lúxusbílamarkaðurinn er ekki stór markaður hér á landi. Hlutdeild seldra lúxusbíla af mannfjölda er til dæmis minni hér en annars staðar á Norðurlöndunum. Það átti líka við árin 2005-2008. Langflestir nýir bílar sem seljast hér eru fjölskyldubílar.“ Özur tók að beiðni Morgunblaðs- ins saman lista yfir sölu lúxusbíla frá ársbyrjun 2015. Var salan í fyrra um tvöfalt meiri en 2015. Tölurnar vísa til heildarsölu. Sala til bílaleiga er því meðtalin. Özur telur sölu til ein- staklinga ráðandi í þessum flokki. Miðað er við skilgreinda lúxusbíla sem kosta frá átta milljónum. Þeir eru á breiðu verðbili. Til dæmis nefn- ir Özur að stærri útgáfan af Range Rover kosti allt að 30 milljónir en Range Rover Sport frá 12 millj- ónum. Özur segir þessa upptalningu langt í frá tæmandi. Til dæmis geti nýr Land Cruiser kostað yfir 11 milljónir. Það sé hins vegar ekki skil- greint sem lúxusbílamerki. Bílar frá 2007 í pressuna Özur bendir á að langt sé liðið frá þensluskeiðinu 2005-2008. Því séu margir lúxusbílar frá því skeiði að fara í förgun. Hann spáir því að í ár seljist 20-22 þúsund nýir fólksbílar á Íslandi. Af því leiðir að ef 600 lúxusbílar seljast í ár verður það um 3% af heildinni. „Lúxusbílamarkaðurinn er við- kvæmasti markaðurinn. Um leið og slæmar fréttir berast hrynur þessi markaður,“ segir Özur. Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna, segir útlit fyrir góða sölu á Porsche í ár. „Við seldum yfir 100 Porsche-bíla í fyrra, sem var mjög gott ár. Til að setja það í samhengi eru það um 300 bílar á hverja milljón íbúa. Það er mjög mikið miðað við flest ríki. Held að það séu fyrst og fremst olíuríki sem eru með meiri sölu miðað við íbúafjölda,“ segir Benedikt. Verðið aðeins frá níu milljónum Hann segir nú hagstætt að kaupa bíla í þessum gæðaflokki. „Það er mikil uppsveifla í þjóð- félaginu. Bílarnir eru líka á sögulega lágu verði. Þótt þeir kunni að kosta margar krónur er verðið frábært. Þá til dæmis miðað við verðið fyrir tíu árum. Að hægt sé að fá Porsche- jeppa á rúmar níu milljónir er með ólíkindum. Porsche-bílar eru til dæmis ekki seldir án leðurs eða raf- magns,“ segir Benedikt. Hann segir tengiltvinnbíla – bíla sem má tengja við rafmagns- innstungu – hafa verið um 80% af sölunni á Porsche á Íslandi í fyrra. Það séu fullkomnustu Porsche-bílar sem seldir hafa verið á Íslandi. „Við erum afar bjartsýnir á söluna í ár. Það er að koma ný útgáfa af Porsche Cayenne sem er hægt að hlaða með rafmagni. Vandamálið er að framleiðandinn annar ekki eftir- spurn. Við fáum því ekki nógu mik- inn kvóta af bílum. Það er einkum það sem er að stríða okkur. Við erum því ekki vissir um að geta selt jafn- marga bíla í ár og í fyrra. Undir venjulegum kringumstæðum ætti ný tegund að seljast meira.“ Sérhannaður salur fyrir lúxusbíla  Nýr sýningarsalur Jaguar og Land Rover  BL býst við mikilli sölu  Skortur á Porsche-bílum Sala á algengum lúxusbílum 2015 til 2018* 2015 2016 2017 2018 *Frá 1. janúar til 10. mars 2018 Heimild: Bílgreinasambandið Heildarsala 2015-2018* 2015 2016 2017 2018* Sala á viku 2015-2018* 2015 2016 2017 2018* 562 103 524 297 10,310,810,1 5,7 10 algengir lúxusbílar 2015 til 2018: Land Rover Discovery Range Rover Sport Range Rover Audi Q7 Volvo XC90 Porsche Panamera Porsche Cayenne Mercedes Benz GLE Mercedes Benz E Lexus RX450H 83 88 115 36 23 27 5 16 10 0 65 64 8147 143 20 0 15 5 44 46 3 94 87 18 13 19 3 34 36 5 21 20 23 54 3 10 59 16 8 Morgunblaðið/Hari Miklar kröfur Íris B. Ansnes, framkvæmdastjóri hjá BL, segir framleiðendur Jaguar og Land Rover hafa gert miklar kröfur um byggingu sýningarsalarins. Upplifun viðskiptavina sé mikilvæg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.