Morgunblaðið - 13.03.2018, Side 17

Morgunblaðið - 13.03.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 JÓN BERGSSON EHF RAFMAGNSPOTTAR Við seljum þér betri heilsu og fleiri góðar stundir og þú færð heitan pott með í kaupunum Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is 40 ÁRA reynsla Theresa May, forsætisráðherra Breta, sagði í gær afar líklegt að rússnesk stjórnvöld bæru ábyrgð á tilraun til að ráða rússneskan fyrrverandi njósnara, Sergei Skri- pal, af dögum í Salisbury í síðustu viku. May sagði í breska þinginu að rússneskt taugaeitur, novitsjok, hefði verið notað í árásinni. Sagði May að Boris Johnson, utanríkis- ráðherra Bretlands, hefði kallað sendiherra Rússa í Bretlandi á sinn fund í gær og tilkynnt honum að ef rússnesk stjórnvöld gæfu ekki trúverðugar skýringar á mál- inu innan sólarhrings yrði litið svo á að Rússar hefðu beitt ólöglegum aðgerðum gegn Bretlandi. Talsmaður rússneska utanríkis- ráðuneytisins kallaði yfirlýsingu May í þinginu sirkus-sýningu. Rússar krafðir skýringa Kirkjugarður1,8 km Skripal, 66 ára, og Julía, 33 ára dóttir hans, alvarlega veik Allt að 500 manns kunna að hafa komist í snertingu við tauga- eitrið og hefur verið ráðlagt að þvo föt og aðrar eigur Lögreglumaðurinn Nick Baily alvarlega veikur í sjúkrahúsi mældist mengun Tvennt sést á myndum úr öryggismynda- vélum skömmu áður en feðginin fundust með- vitundarlaus Eiginkona og sonur Skripals voru jarðsett þar 2012 og 2017 mengun 21 hefur fengið læknismeð- ferð frá því málið ko m upp Lögregla rannsakar taugagasárás á Sergei Skripal og dóttur hans semmorðtilraun Kráin Mill. Þar mældist Veitingahúsið Zizzi’s. Þar Markaðssvæði Bekkurinn þar sem Skripal og dóttir hans fundust 4. mars Avon Salisbury- brautarstöðin Manor Fields grunnskólinn Dómhúsið í Salisbury Ráðhúsið Heimili Skripals London BRETLAND Salisbury Árásin í Salisbury Heimild : Breska lögreglan/fjölmiðlar 250 m Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Fjörutíu og níu létu lífið og 22 slös- uðust, sumir lífshættulega þegar far- þegaflugvél frá Bangladesh fórst ná- lægt flugvellinum í Katmandú í Nepal í gærmorgun. Flugvélin var að koma frá Dhaka í Bangladesh. Um borð voru 67 far- þegar, flestir frá Nepal og Bangla- desh, og fjögurra manna áhöfn. Flugvélin brotlenti á knattspyrnu- velli skammt frá flugvellinum. Orsök slyssins er ekki ljós en stjórnvöld í Nepal segja að vélin hafi verið stjórnlaus þegar hún kom inn til lendingar. Komst út um glugga Basanta Bohora, einn farþeganna, sem komst lífs af, lýsti því í blaða- viðtali að þegar flugvélin nálgaðist Katmandú hefði hún byrjað að hrist- ast og síðan hefði heyrst hár hvellur. „Ég sat við glugga og tókst að komast út um hann. Ég man ekkert eftir að ég komst út úr vélinni, ein- hver fór með mig á sjúkrahús. Ég er slasaður á höfði og fótum en er hepp- inn að vera á lífi.“ Þetta er mannskæðasta flugslys í sögu Nepals frá árinu 1992 þegar farþegaflugvél fórst í aðflugi til Kat- mandú og 167 létu lífið. Flugslys eru tíð í Nepal og eru orsakir oft raktar til lélegs viðhalds flugvéla, óreyndra flugmanna og illa rekinna flugfélaga. Þá eru aðstæður á flugvellinum í Katmandú oft erfiðar vegna fjallanna í kring. Stundum þurfa flugmenn að fljúga yfir fjöll og taka síðan krappa dýfu í átt að flugvell- inum. Flugvélin sem fórst var af gerð- inni Bombardier Dash 8 Q400 í eigu flugfélagsins US-Bangla Airlines. Vélin var upphaflega í eigu norræna flugfélagsins SAS, sem árið 2007 tók allar vélar sínar af þessari tegund tímabundið úr umferð eftir að þrjár slíkar lentu í óhöppum. Tæknibilun Önnur Bombardier-flugvél, af gerðinni Challenger 604, fórst í Íran síðdegis á sunnudag. Um var að ræða einkaþotu sem dóttir tyrk- nesks kaupsýslumanns hafði leigt til að fljúga með sig og sjö vinkonur sín- ar í „gæsapartí“ til Sameinuðu arab- ísku furstadæmanna. Vélin var á leið til baka til Istanbul þegar hún brotlenti í Zagros-fjöllum, um 400 km suður af Tehran. Allir farþegarnir og þriggja manna áhöfn, allt konur, létu lífið. Íranska flugmálastjórnin sagði að flugmaðurinn hefði óskað eftir því að fá að lækka flugið vegna tæknilegrar bilunar. Hrapaði í East River Þá létu fímm lífið þegar þyrla, í eigu ferðaþjónustufyrirtækisins Li- berty, hrapaði í East River á Man- hattan í New York á sunnudags- kvöld. Talsmaður lögreglunnar í New York sagði við AFP-fréttastofuna, að allir fimm farþegarnir í þyrlunni hefðu látist en flugmaðurinn komst lífs af. Margir sáu þegar þyrlan lenti í vatninu og kafarar voru fljótir á vett- vang. Tveir farþeganna voru úr- skurðaðir látnir á staðnum en þrír voru fluttir á sjúkrahús þar sem þeir létust. Liberty skipuleggur útsýnisflug yfir New York. Lögreglan sagði að ljósmyndarar hefðu tekið þyrluna, sem fórst, á leigu. Ekki er vitað hvað gerðist en bandarískir fjölmiðlar sögðu að flugmaðurinn hefði tilkynnt vélarbilun og sent frá sér neyðarkall skömmu fyrir slysið. Tugir létu lífið í þremur flugslysum  49 létu lífið og 22 slösuðust þegar farþegaflugvél frá Bangladesh fórst í Nepal  Vélin áður í eigu SAS og var kyrrsett árið 2007 vegna bilana í samskonar vélum  11 létust í slysi í Íran og 5 í New York AFP Á slysstað Björgunarmenn á slysstað þar sem farþegavél brotlenti skammt frá flugvellinum í Katmandú. 60 km KATMANDÚ INDLAND KÍNA Flugslys í Katmandú Farþegaflugvél frá Bangladesh brotlendir skammt frá flugvellinum NEPAL Þingmenn repúblikana í rann- sóknarnefnd bandaríska þingsins hafa gert skýrsludrög sem segja að eins árs rannsókn nefndarinnar á rússneskum afskiptum af forseta- kosningunum í Bandaríkjunum árið 2016 hafi ekki skilað neinum vís- bendingum um samráð við kosninga- baráttu Donalds Trumps. Nefndin hafi rekist á dæmi um dómgreindarleysi og óviðeigandi fundi milli meðlima kosningateymis Trumps og Rússa, en ekkert bendi til samráðs, að sögn Mikes Cona- ways, sem fer fyrir nefndinni. Þótt Rússar hafi skipt sér af kosning- unum með ýmsum hætti sýni ekkert að þeir hafi viljað hjálpa Trump. Drögin hafa enn ekki verið kynnt demókrötum, en niðurstaðan er í bága við rannsóknarskýrslu frá jan- úar 2017, sem segir Rússlands- forseta hafa fyrirskipað herferð til að hafa áhrif á niðurstöðu kosning- anna Trump í vil. Engar vís- bendingar um samráð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.