Morgunblaðið - 13.03.2018, Side 19

Morgunblaðið - 13.03.2018, Side 19
Dánaraðstoð er þýð- ing á gríska orðinu euthanasia (góður dauði/að deyja með reisn) sem merkir að binda enda á líf af ásetn- ingi til þess að leysa við- komandi undan óbæri- legum sársauka eða þjáningum. Oft á tíðum hefur verið notast við orðið líknardráp eða sjálfsvíg með aðstoð. Á umræða um dánar- aðstoð erindi? Umræða um dánaraðstoð eða líkn- ardauða hefur reglulega komið upp í íslensku samfélagi, og reyndar víða um heim. Hollendingar eru ákveðnir frumkvöðlar í þessum efnum en þeir lögleiddu dánaraðstoð í kringum aldamótin, Svisslendingar og Belgar hafa fylgt þeim eftir og í sumum ríkj- um Bandaríkjanna er dánaraðstoð leyfð. Dánaraðstoð vekur eðlilega margar siðfræðilegar spurningar. Ekki eru allir sammála um hvort rétt sé að veita slíka aðstoð og margir hræðast hvað slíkt leyfi gætti leitt af sér. Mun fólk kjósa dánaraðstoð af ótta við að vera byrði á ættingjum og sam- félaginu? Hverjir ættu að taka slíka ákvörðun og undir hvaða kring- umstæðum gæti slíkt verið réttlætanlegt, eða er það yfirhöfuð ein- hvern tímann réttlæt- anlegt að velja dauðann fram yfir lífið? Spurn- ingarnar eru margar og flóknar. Staðreyndin er samt sú að ákveðin lönd leyfa dánarað- stoð og Íslendingar hafa nýtt sér slíka aðstoð. Ég tel því að hvort sem okkur líki betur eða verr þá þurfi að taka þessa umræðu. En umræðan þarf að vera málefnaleg, byggð á rökum og reynslu. Hún þarf að vera af yfirvegun og það þarf aðhorfa til margar ólíkra þátta. Þingsályktun um dánaraðstoð Í þeim tilgangi að fram geti farið yf- irveguð umræða sem byggist á stað- reyndum og reynslu annarra landa, lagði ég ásamt fleiri þingmönnum ný- verið fram þingsályktunartillögu um dánaraðstoð. Þingsályktunartillagan gengur út á að fela heilbrigðisráðherra að taka saman upplýsingar um dán- araðstoð og þróun lagaramma um hana þar sem hún er leyfð, sem og tíðni, ástæður og skilyrði dánarað- stoðar og hver reynslan hefur verið. Einnig viljum við að kannað sé hvort í þeim löndum sem ekki heimila dán- araðstoð sé umræða um að leyfa slíkt, þá nefnum við sérstaklega Norður- löndin, Þýskaland og Kanada. Ásamt þessari samantekt um stöðu í öðrum löndum viljum við að gerð verði skoð- anakönnun meðal heilbrigðisstarfs- manna um afstöðu þeirra til dánarað- stoðar, annars vegar hvort starfsmenn telji dánaraðstoð vera réttlætanlega í ákveðnum tilfellum og hins vegar hvort þeir væru tilbúnir að verða við slíkri ósk að uppfylltum skilyrðum og að því gefnu að það samræmdist ís- lenskum lögum. Við óskum eftir því að Hvað er dánaraðstoð? Eftir Bryndísi Haraldsdóttur »Dánaraðstoð vekur fjölda siðfræðilegra spurninga, spurninga sem eiga erindi við okk- ur öll. Bryndís Haraldsdóttir Höfundur er þingmaður. bryndish@althingi.is þessar upplýsingar liggi fyrir í formi skýrslu í lok ágúst 2018. Afstaða almennings og afstaða fagfólks Í skoðanakönnun sem Siðmennt gerði í nóvember 2015 á lífsskoðunum og trú Íslendinga var könnuð meðal annars afstaða almennings til dánarað- stoðar, spurningin var: „Ertu hlynnt/ ur eða andvíg/ur því að einstaklingur geti fengið aðstoð við að binda enda á líf sitt ef hann er haldinn ólæknandi sjúkdómi (líknandi dauði)?“ 74,9% að- spurðra voru mjög eða frekar hlynnt því, 18% voru hvorki né en 7,1% mjög eða frekar andvíg. Flestum kom á óvart þessi mikli stuðningur almenn- ings við dánaraðstoð. Í greinargerð með þingsályktunartillögunni vísum við í tvær eldri kannanir sem gerðar hafa verið meðal heilbrigðisstarfs- manna. Árið 1997 birtist grein í Læknablaðinu þar sem fjallað var um rannsókn þar sem aðeins 5% lækna og 9% hjúkrunarfræðinga töldu líkn- ardráp réttlætanlegt undir einhverjum kringumstæðum en einungis 2% svar- enda gátu hugsað sér að verða við slíkri ósk. Árið 2010 var gerð önnur könnun og þá var niðurstaðan sú að líknardráp þótti réttlætanlegt hjá 18% lækna og 20% hjúkrunarfræðinga en aðeins 3% vildu verða við slíkri ósk. Þannig er ljóst að töluverð breyting hafði átt sér stað meðal heilbrigð- isstarfsfólks á árunum 1997 til 2010, áhugavert er að vita hver afstaða heil- brigðisfólks er í dag. Umtalsverður munur er á afstöðu almennings og heilbrigðisstarfsfólks, það kann að vera skiljanlegt að einhverju leyti. Umræða um dánaraðstoð innan heil- brigðisgeirans er einhver þó að um- ræða og áhersla á líknandi meðferð, framþróun og gæði hennar fái eðlilega meira rými. Umsagnir um þingsálykt- unina eru mismunandi. Þannig virðist mörgum rétt að skoða málið frekar en fagstéttir telja umræðuna þegar til staðar meðal þeirra og engin ástæða sé til að færa hana inn á Alþingi. Þessu er ég ósammála enda myndi það að leyfa dánaraðstoð kalla á töluverða breytingu á löggjöf, þess vegna tel ég nauðsynlegt að umræðan um dánarað- stoð sé ekki eingöngu meðal fagfólks heldur líka meðal almennings. Hér er um að ræða stórar siðfræðilegar spurningar sem eiga erindi við okkur öll. 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 Á hálum ís Maður á göngu með hundum sínum á ísilögðu Rauðavatninu. Þótt gaman sé að ganga eða renna sér á skautum á ísnum er mikilvægt að fara varlega því ekki er víst að hann sé traustur. Eggert Í síðustu viku lagði Miðflokkurinn fram tímamótamál á Al- þingi sem litla athygli hefur fengið, nefnilega frumvarp um að verð- trygging lána taki framvegis mið af neysluvísitölu án hús- næðisliðar. Þessi til- högun hefði sparað ís- lenskum heimilum u.þ.b. 50 milljarða króna einungis síðustu 12 mánuði hefði hún gilt þann tíma. Ætla má að frumvarpið snerti um hundrað þúsund heimili og hefði því getað sparað hverju íslensku heimili sem ber verðtryggt lán um 500 þúsund krónur á tímabilinu sem um ræðir með sömu forsendum. Frumvarpið er einnig gott fyrsta skref í því að afnema vísitölubind- ingu neytendalána. Undanfarna áratugi hefur áhættan af lán- tökum alfarið verið lántakandans. Það er langt frá því að vera sanngjarnt eins og öll- um má ljóst vera. Um- ræðan um málið á þingi í síðustu viku var vönduð og málefnaleg. Athygli vakti að þátt- taka tveggja rík- isstjórnarflokka, Framsóknar og Sjálf- stæðisflokks takmarkaðist við örfá andsvör. Sá þriðji, VG sem kallar sig á tyllidögum málsvara verka- lýðs tók ekki þátt í umræðunni. Tveir stjórnarandstöðuflokkar tóku heldur ekki þátt í umræðunni. Ekki Píratar og ekki heldur Sam- fylkingin sem einu sinni kallaði sig Jafnaðarmannaflokk Íslands. Áhugaleysið um bætt kjör hundr- að þúsund heimila í landinu nær einnig til fjölmiðla. Aðeins einn þeirra, útvarpsstöðin Bylgjan, hef- ur fjallað um frumvarpið og áhrif þess. Nú er það ekki hlutverk stjórnmálamanna að hafa áhrif á umfjöllun fjölmiðla um einstök mál. Ýmsir fjölmiðlar búa einnig við það að þjóna lund eigenda sinna í ýms- um málum og svo sem lítið um það að segja. Stjórnmálamönnum hlýt- ur hins vegar að vera leyfilegt að hafa skoðun á áhugaleysi fjölmiðla um kjör hundrað þúsund heimila í landinu. Í því ljósi er athyglisvert að gaumgæfa áhugaleysi eins ákveðins fjölmiðils á fyrrnefndu máli. Einn fjölmiðill á Íslandi hefur nokkra sérstöðu. Sá fjölmiðill nýtur fjögur þúsund milljóna framlags úr ríkissjóði ár hvert auk þess að hafa óheftan aðgang að auglýsinga- markaði og hefur þess utan lög- bundið hlutverk sem birtist í að fjölmiðillinn skal m.a. hafa eftirfar- andi í hávegum sbr. lög um fyr- irtækið: „Veita víðtæka, áreið- anlega, almenna og hlutlæga frétta- og fréttaskýringarþjónustu um inn- lend og erlend málefni líðandi stundar.“ Umræddur fjölmiðill er sem sagt RUV ohf. sem kallar sig „okkar allra“ og „útvarp allra landsmanna“ á hátíðlegum stund- um og jafnvel dagsdaglega. Gæti eins heitið RUV á kostnað okkar allra. RUV ohf. hefur einnig í þjón- ustu sinni sérstakan þingfréttarit- ara sem tryggir að ávallt sé getið helstu mála sem fram koma á þingi í fréttum fyrirtækisins. Þegar margumrætt þingmál sem snertir hundrað þúsund heimili í landinu kom fram í síðustu viku var RUV ohf. hins vegar nokkur vandi á höndum og verður að virða fyrir- tækinu til vorkunnar að gleyma umfjöllun um málið. Frá Kósóvó bárust nefnilega þau válegu tíðindi þennan dag að allmargar klukkur í landinu höfðu seinkað sér vegna ótryggs rafmagns. Um þessi tíðindi var fluttur nokkur langhundur í sexfréttum og til þess að tryggja að þetta ótrygga ástand í Kósóvó færi ekki fram hjá nokkrum manni var ítarefni um þessa skelfingu í Tíu fréttum sjónvarps sama kvöld. Eftir Þorstein Sæmundsson » Stjórnmálamönnum hlýtur hins vegar að vera leyfilegt að hafa skoðun á áhugaleysi fjölmiðla um kjör hundrað þúsund heimila í landinu. Þorsteinn Sæmundsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins. thorsteinns@althingi.is Klukkurnar í Kósóvó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.