Morgunblaðið - 13.03.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 13.03.2018, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 ✝ Beta Einars-dóttir fæddist 17. apríl 1923 á Hvanneyri. Hún lést 2. mars 2018 á Skjóli í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Guðbjörg Lís- bet Kristjánsdóttir, f. 12.1. 1887 á Norður- Bár í Eyrarsveit, d. 1.9. 1979, og Einar Jónsson, f. 21.4. 1885 í Sauðhaga á Völlum, d. 29.7. 1969. Dætur Einars og Guðbjargar voru níu talsins. Þóra, f. 1913, d. 2000, Hulda, f. 1914, d. 1982, Þórdís, f. 1916, d. 1983, Guðlaug, f. 1918, d. 2004, Sigurlín, f. 1919, d. 2001, Anna, f. 1921, d. 1998, Hildur, f. 1927, d. 2002, og Hjördís, f. 1930. Beta bjó fyrstu fjögur árin á Krossi í Innri-Akraneshreppi. Hún fluttist svo á Akranes þar sem hún dvaldi fram yfir unglingsár. Hún stundaði tvo vetur nám við Hús- mæðraskólann á Hallormsstað, frá 1941-1943. Hún lærði svo hjúkr- unarfræði við Landspítalann 1943- 1946. Beta giftist eftirlifandi eigin- manni sínum Fjalari Sigurjónssyni 14. júní 1947. Foreldrar hans voru dór Gíslason, látinn 2002. c) Anna Beta Gísladóttir. Sambýlismaður hennar er Sigurjón Magnússon og börn þeirra eru Baldur Gísli og Fjalarr. 2) Máni Fjalarsson, f. 1954. Fyrrverandi kona hans er Gunnþóra Gunnarsdóttir og börn þeirra eru a) Guðrún Beta Mána- dóttir b) Gunnar Steinn Mánason og hans dóttir heitir Gunnþóra Rós c) Fjalarr Páll Mánason. Sam- býliskona hans er Alda Dröfn Guð- björnsdóttir og sonur þeirra er Guðbjörn Máni. Sonur Öldu úr fyrra sambandi er Alexander Mar- on. Máni er giftur Önnu Einars- dóttur og eru börn hennar af fyrra hjónabandi a) Sigrún Gylfa- dóttir. Hún er gift Kristjáni Haukssyni og börn þeirra eru Björg og Daníel Borgar. Dóttir hennar úr fyrra sambandi er Emelía Anna b) Silja Gylfadóttir, gift Birni Ásbjörnssyni. Þau eiga saman Vigdísi Ylfu og Ými Hrafn. Barn hennar úr fyrra sambandi er Gylfi Maron. c) Gunnhild Gylfa- dóttir. Hún er í sambúð með Ragn- ari Ágústi Rúnarssyni og á hún dótturina Önnu Marín úr fyrra sambandi. d) Garðar Óli Gylfason, giftur Kozhyn G. Rashid og þeirra börn eru Adam og Mina. Útför Betu fer fram frá Ás- kirkju í dag, 13. mars 2018, klukk- an 15. Anna Þ. Sveins- dóttir, f. 1894 á Skatastöðum í Aust- urdal í Skagafirði, d. 1990, og Sigurjón Jónsson, prestur á Kirkjubæ í Hróars- tungu, f. 1881 á Há- reksstöðum á Jökul- dalsheiði, d. 1965. Beta og Fjalarr bjuggu í Reykjavík fyrstu búskaparárin og fluttust svo til Hríseyjar árið 1952 þar sem Fjalarr þjónaði sem prestur í 11 ár. Árið 1963 fluttu þau að prestsetrinu Kálfafellsstað í Suðursveit og bjuggu þar til árs- ins 1989 þar til þau fluttu að Lang- holtsvegi 39 í Reykjavík. Þá starf- aði Beta sem hjúkrunarfræðingur á Hrafnistu í hátt í áratug. Eftir það vann hún sem sjálfboðaliði á vegum Rauða kross Íslands í Kópavogi sem heimsóknarvinur. Börn Betu og Fjalars eru: 1) Anna Fjalarsdóttir, f. 1947. Eiginmaður hennar er Gísli Skúlason, f. 1939, og börn þeirra eru: a) Fjalarr Gíslason og eiginkona hans er Elín Björg Jónsdóttir. Þeirra börn eru Arnþór, Hildur og Vera. b) Hall- Nú er hún Beta mín, vörður og verndari um sjötíu ár og gott betur, farin í sína fyrstu heimsreisu. Vegurinn til lífsins liggur um him- indjúpin og þar einhvers staðar í ei- lífðar útsæ vakir Eylendan allra, sem á fósturjörð er ekki lengur vært að lifa. Nú hefur hún fengið botn í það sem ég var oft er færi gafst að staglast á öðrum til ama og leiðinda. Gáfulegra væri mér að guma minna af sérvisku minni í ei- lífðarmálunum og fara mér hægt og bíða átekta í skjóli efans. Það næðir vonandi ekki um mann á meðan. Það eru orðin mörg árin frá fyrstu kynnum. Þá vorum við að greiða götu fólksins í þessu landi – eins og fjöldi annarra í sömu iðju – úr troðningum inn í nútímann. Sag- an segir að austur á Gyðingalandi boðaði Jóhannes vegabætur þjóð sinni og þar var úr öðrum jarðvegi að pæla en nánast á bökkum Jöklu. Svo komu verkalok og leiðir skildi. Beta kaus sinn menntaveg og ég baukaði í mínum skóla til loka. Enn urðu endurfundir og nú við Sundin blá – hún komin í Hjúkrunarskól- ann. Hún hafði fundið það sem í eðli bjó að hjúkra þjáðum og verða að liði að líkna og bera birtu inn í dapr- an huga. Það fór nú svo að hún sat uppi með mig – hálfráðvilltan á torgum – ekki brást henni kjark- urinn, það er hægt að móta eitthvað nothæft úr röftum. Og svo krækti ég mér í réttindi til að verða talinn maður með mönnum. Við kvöddum borgina í 37 ár. Þau reyndust okkur engin nauðung þvert í mót. Beta setti mark sitt á mannlífið hvar sem við slógum tjöldum. Heimilið var hennar verk og vé. Hún vildi sjá lífið, gæfuna og gleðina í hjörtum fólksins, í húsinu heima og gróandann í varpanum. Eftir að útivist lauk var haldið í bæ- inn og nú héldu henni engin bönd. Hún vann við hjúkrun á Hrafnistu um nokkurt ára bil og sló ekki slöku við. Lítil kveðja segir allt sem þarf. Henni var þá eitt sinn lagður miði í lófann af vistmanni: „Um huga þinn glæðir og létt er þín lund, þegar lífsins úr flækjum greiðir, og á það leggur þú alla stund, að opna nýjar og betri leiðir.“ Af ærnu er enn að taka en fellum talið. Á þriðja ár átti hún vist á Skjóli. Þar var hlúð að henni af þeim sem réðu á fimmtu hæð og starfsfólki öðru sem meira mæddi á. Hugurinn ber menn annað veifið heim – annað væri undarlegt. Þar er þá einhvers að minnast sem áður var. Hún þakkar vistina og starfsliði öllu allt sem gott var gert. Þar á andi kær- leikans til að vernda húsið. Börnin okkar Anna og Máni eiga auð í sálu sinni – minningarnar um móður sína Betu. Þar var skjólið að finna og þau þakka það á sinn hátt. Niðjar hennar, tengdabörnin Gísli og Anna og venslafólk eru með sama huga að mannbætandi væri að eiga hana að. Hjördís er nú merkisberi systranna níu frá Esju- bergi á Akranesi. Þó allt sé nú klárt á pappírnum, þá eru þriðju endurfundir okkar ekki enn bókaðir. Hún verður að umbera það eins og annað ef slórið endist fram úr hófi. Ef um semst munum við rölta saman um sinn og sjá meira af undrum veraldar. Njóttu þess að vera til og láttu lífið leika um vanga þinn. Kæra vina, sjáumst síðar. Fjalarr Sigurjónsson. „Er ekki allt gott að frétta að austan? var oftast með því fyrsta sem hún Beta spurði mig síðustu misserin þegar ég leit inn til þeirra Fjalars uppi á Skjóli. Hún átti til að gleyma svarinu, þá spurði hún bara aftur því hún var sko ekki búin að gleyma vinum sínum í Skaftafells- ýslunni. Fjalarr hefur setið hjá konu sinni á hjúkrunarheimilinu alla daga síð- ustu árin og sinnt henni af óbilandi fórnfýsi og kærleika. Hún hélt reisn sinni nánast til hins síðasta og þau hjón höfðu lag á að gera heimsóknir til þeirra á Skjól að hátíðastund, rétt eins og að Kálfafellsstað og á Langholtsveg áður, þar sem sam- ræður voru ávallt líflegar yfir veisluföngum um það sem efst var á baugi hverju sinni. Nú var umræð- an frekar sveigð að fortíðinni og þar grafinn upp fróðleikur, ekki síður áhugaverður. Það er alltaf erfitt að kveðja þá sem maður hefur notið samfylgdar við. Beta var sterkur persónuleiki og stórt númer í lífi sinna nánustu – ég leyfi mér að telja mig til þeirra, því þó svo að leiðir okkar Mána skildu var alltaf óslítandi taug milli mín og fyrrverandi tengdaforeldra. Ég sá Betu fyrst fyrir 55 árum. Það var haustið 1963 sem þau hjón komu norðan úr Hrísey til að sinna kristnihaldi sunnan jökla og settust að á Kálfafellsstað. Mig óraði ekki fyrir því þá að tengsl okkar og vin- átta yrði með þeim hætti sem raun- in varð síðar. Beta var félagslynd og drífandi og þar, sem í öðru, voru þau Fjalarr samhent. Alltaf fylgdi hún honum í messuferðir að Hofi, vel til höfð og glæsileg þó að komin væri um malarveg yfir eyðisand og óbrúuð fljót. Ég man eftir tilþrifum Betu á leiksviði á Hrollaugsstöðum en líka á leiksviði lífsins. Hún var ræktun- arkona, naut þess að hafa blóm í kringum sig úti og inni og geta skot- ist út í garð, eða sent Fjalar, eftir hinum ýmsu grænmetistegundum í súpuna eða salatið. Hverskonar hannyrðir léku í höndum hennar, heimili þeirra Fjalars ber afköstun- um vott og barnabörnin fóru ekki varhluta af þeim heldur, peysur og vesti ultu af prjónunum og prinsessukjólar urðu til úr prestsfrúarkjólum. Alltaf var hún líka fús að miðla kunnáttu sinni til annarra. Vinátta Betu hefur verið mér ómetanleg og ég kveð hana með virðingu og þakklæti fyrir allt sem hún var mér og mínum. Um leið votta ég Fjalari, Önnu, Mána, barnabörnum, systur og öðrum ást- vinum einlæga samúð. Gunnþóra Gunnarsdóttir. Beta Einarsdóttir  Fleiri minningargreinar um Betu Einarsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ingi Már fædd-ist í Reykjavík 11. júní 1954. Hann lést af slysförum 28. febrúar 2018. Foreldrar hans voru hjónin Grétar Aldan Sigurðsson prentari, f. 4. desem- ber 1926, d. 17. des- ember 1994, og Kristín Sigríður Sig- urpálsdóttir starfs- maður á Grund, f. 25. mars 1922, d. 17. júní 2003. Bróðir Inga Más er Guðmundur Aldan Grétarsson, f. 1948. son, f. 30. apríl 1979. 3) Maríanna Ingadóttir, f. 11. október 1985, gift Atla Dungal Sigurðssyni, f. 12. mars 1984. Dætur þeirra eru: a) Viktoría Líf, f. 29. júlí 2005. b) Gabríella Rein, f. 9. maí 2012. c) Freyja Björk, f. 1. júlí 2016. Að grunnskóla loknum nam Ingi Már bílamálun við Iðnskól- ann í Reykjavík og lauk þaðan sveinsprófi og síðar meistara- prófi. Hann starfaði við fagið í rúma tvo áratugi og rak eigið bílasprautunarfyrirtæki um tíma. Ingi Már starfaði einnig við fasteignasölu í nokkur ár áður en hann snéri sér alfarið að ferðaþjónustu. Hann var sjálfstætt starfandi leið- sögumaður allt þar til hann lést. Útför Inga Más fer fram frá Seljakirkju í dag, 13. mars 2018, og hefst athöfnin klukkan 15. Hinn 14. júní 1974 kvæntist Ingi Már Huldu Hjaltadóttur, f. 19. ágúst 1955. Börn þeirra eru: 1) Atli Már Aldan Inga- son, f. 10. október 1975. Dóttir Atla Más og Ragnhildar Bergþórsdóttur hár- greiðslumeistara er Magnea Ýr Atladótt- ir, f. 17. ágúst 1999. Sonur Atla Más og Margrétar Unnar Þórarinsdóttur er Darri Freyr Aldan Atlason, f. 2. júní 2012. 2) Magni Freyr Aldan Inga- Kær vinur er fallinn frá. Penninn er þungur í höndum okkar þegar við skrifum þessi minningarorð um Inga Má, kær- an vin okkar sem fallinn er nú frá, allt of snemma. Þungt högg, sem mun taka langan tíma að átta sig á og komast í gegnum fyrir okkur öll sem hann þekktu. Kippt í burtu frá lífinu svo skyndilega. Kippt í burtu frá fólkinu sínu sem hann elskaði og sem elskaði hann. Einhver hlýtur tilgangurinn að vera, segjum við við okkur sjálf. Það er örlítil huggun í sorgina að hugsa þetta þannig. Meiri öðling en Inga Má var erfitt að finna. Alltaf ljúfur, yfir- vegaður og með einstaklega góða nærveru. Og sem gott var að leita til sama hvað. Sem alltaf var til í glens og grín. Mótorhjólatöffari sem fannst nú ekki leiðinlegt að þeysast um vegina með félögum sínum í „Úrsér gengið“ með Huldu sína sem hnakkskraut. Ingi Már var fróður um svo margt, sérstaklega hvað varðar landið okkar, Ísland. Þar kom enginn að tómum kofunum enda naut hann þess að ferðast um landið og sýna og fræða fólk um okkar fallega land. Stór hluti í hans lífi var að fara með íslenska jafnt sem og erlenda ferðamenn og sýna þeim fallega Ísland. Þær eru ófáar útilegurnar og utanlandsferðirnar sem við höf- um farið í saman og ætluðum svo sannarlega að fara í fleiri í fram- tíðinni. Og öll notalegu matarboð- in sem við áttum saman og eigum eftir að sakna að ekki verði fleiri. Okkur er sérstaklega minnis- stæð verslunarmannahelgi fyrir nokkrum árum í Sauðhúsaskógi þar sem allir nutu sín í góðum fé- lagsskap í fallegri náttúru Ís- lands sem Inga má þótti svo vænt um. Gætum sagt frá svo ótalmörg- um skemmtilegum og notalegum samverustundum með honum í gegnum tíðina en stiklum á stóru hér. Geymum allar hinar í hugum okkar og hjörtum og munum rifja upp reglulega þegar við minn- umst hans. Dýrmætar minning- ar. Við óskum honum góðrar ferð- ar til nýrra heimkynna þar sem bíða hans ný ævintýri. Við treyst- um á það að hann taki það verk- efni að sér, þegar röðin kemur að okkur, að fara að „guida“ með okkur um nýja heima. Ef við þekkjum Inga Má rétt verður hann búinn að kynna sér hvern krók og kima þar, tilbúinn að fræða okkur um fallega staði. Þangað til yljum við okkur við hlýjar minningar um ljúfan mann og þökkum fyrir samfylgdina og allt það sem við höfum upplifað saman í gegnum tíðina. Elsku Hulda og fjölskylda, við vottum ykkur okkar dýpstu sam- úð á þessum erfiðu stundum. Hvíl í friði, kæri vinur. Þín verður sárt saknað. Þínir vinir, Pálmar, Steinunn (Steina), Freyr og Unnur. Ingi Már Aldan Grétarsson Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNESAR HERMANNS ÖGMUNDSSONAR, Ársölum 1, Kópavogi. Hjördís Þorsteinsdóttir Pétur Einar Jóhannesson Steve Rotherforth Ögmundur Þór Jóhannesson Sigurlína Björg Hauksdóttir Þorsteinn Lúther Jóhannes. Sigríður Guðrún Stefánsdóttir Jón Már Jóhannesson Amelia Pando Garcia Ólafur Geir Jóhannesson Sam Anurak Jansawek Júlía Jóhannesdóttir Árni Júlíusson afabörn og langafabörn Okkar kæri bróðir, mágur og frændi, JÓN STEINAR TRAUSTASON frá Vestmannaeyjum, lést á hjúkrunarheimilinu Árskógum, Reykjavík, laugardaginn 24. febrúar. Útförin fer fram frá Breiðholtskirkju föstudaginn 16. mars klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd eða aðrar góðgerðarstofnanir. Ágústa Traustadóttir Guðmundur B. Sigurgeirsson Brynja Traustadóttir Sigurðar Hafsteinsson Óli Ísfeld Traustason Bonny Harvey Steinunn Traustadóttir Ásta Traustadóttir Sigurður Stefánsson og systkinabörnin Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG SÆMUNDSDÓTTIR frá Heylæk, áður til heimils á Hellu og nú síðast Hvassaleiti 6, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, mánudaginn 5. mars, verður jarðsungin frá Áskirkju í Reykjavík, föstudaginn 16. mars klukkan 13. Guðlaug Yngvadóttir Steinar Gíslason Þorbjörg Yngvadóttir Davíð Sigurðsson Elín Yngvadóttir Guðrún S. Helgadóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri GESTUR KRISTINSSON pípulagningameistari, Lambhaga 48, Selfossi, lést á krabbameinsdeild Landspítalans að morgni 10. mars. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 21. mars klukkan 15. Við þurfum ekki blessuð blómin en vitum að krabbameins- lækningar og rannsóknir þarfnast alltaf styrkja. Oddný Guðmundsdóttir Gestheiður Þorgeirsdóttir Ágúst Þór Berglind Hjördís Bára Þórður Reyr Heiðrún Harpa Þórður Jón Ólafur Katrín Ásta Eva Rán stjúpbörn, barnabörn, barnabarnabörn og systkini

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.