Morgunblaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 TUDOR rafgeymar TUDOR TUDOR Er snjósleðinn tilbúinn fyrir vetrarkuldann? Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu öruggt start með TUDOR Ég er úti á Spáni með manninum mínum, á Torrevieja á Alic-ante. Jú, það má segja að þetta sé afmælisferð,“ segir VigdisFuruseth sem á 50 ára afmæli í dag. Þau voru ekki búin að ákveða hvað þau ætluðu að gera í dag í tilefni af afmælinu. „Það er ekki mikið skipulag í gangi, við gerum það sem okkur dettur í hug, en við förum örugglega fínt út að borða í kvöld.“ Vigdis er frá bóndabænum Løveng í hreppnum Stor-Elvdal í fylk- inu Heiðmörk í Noregi. Hún kom fyrst til Íslands sumarið 1987 með vinkonu sinni sem er hálfíslensk en alin upp í Noregi. „Ég fór síðan heim, en hún varð eftir og giftist strák frá bóndabænum sem hún var að vinna á. Ég kláraði verslunarskólann og ákvað svo að vera eitt ár á Íslandi og læra íslensku. En þá kynntist ég manninum mínum og hef verið hér síðan. Reyndar bjuggum við eitt ár í Noregi, við vorum að spá í að taka við býlinu af foreldrum mínum, en ákváðum að það væri ekki fyrir okkur.“ Eiginmaður Vigdisar, Snorri Freyr Jóhannesson, er frá Syðra- Langholti í Hrunamannahreppi og þar hefur Vigdis búið síðan. Snorri er rafvirki með eigið fyrirtæki og Vigdis starfar við garðyrkju hjá Brún á Flúðum, auk þess sem þau leigja út einn sumarbústað til ferða- manna á landinu sínu. Aðaláhugamál Vigdisar er hestamennska og svo hefur hún líka gaman af því að ganga á fjöll. „Íslenski hesturinn er bestur, ég hef alltaf verið mikið í hestamennsku, en kynntist fyrst íslenska hestinum þegar ég kom hingað.“ Börn Vigdisar og Snorra eru Birgit Ósk og Håkon Snær. Afmælisbarnið Vigdis í fjallgöngu á Þríhyrningi. Ætlaði að stoppa í eitt ár á Íslandi Vigdis Furuseth er fimmtug í dag A ri Teitsson fæddist á Brún í Reykjadal 13.3. 1943 og ólst þar upp við öll almenn sveitastörf. Ari lauk landsprófi frá Laugum 1960, búfræðiprófi frá Hvanneyri 1961 og BSc-prófi í búvís- indum frá Hvanneyri 1973. Ari og eiginkona hans, Elín Magn- úsdóttir, stofnuðu smábýlið Hrísa úr landi Brúnar 1973, byggðu þar íbúð- arhús og hafa haldið þar sauðfé síðan. Auk þess stunduðu þau loðdýrarækt í 16 ár. Ari var héraðsráðunautur og mjólkureftirlitsmaður hjá Bún- aðarsambandi Suður-Þingeyinga 1973-95. Hann var kjörinn fyrsti for- maður sameinaðra Bændasamtaka Íslands á Búnaðarþingi 1995 og gegndi því starfi til 2004. Ari var formaður samtaka nor- rænna bænda NBC 1997-99. Hann var kjörinn í stjórn Sparisjóðs Reyk- dæla 1979 og hefur setið í stjórn spari- sjóðs óslitið síðan og verið formaður sameinaðs Sparisjóðs Suður- Þingeyinga frá sameiningu 1990. Hann var formaður Sambands ís- lenskra sparisjóða frá 2011-2014 Ari hefur setið í fjölmörgum stjórn- um, nefndum og ráðum, þar má m.a. nefna háskólaráð Landbúnaðarhá- skólans á Hvanneyri, stjórn ullar- Ari Teitsson, fyrrv. formaður Bændasamtaka Íslands – 75 ára Allur hópurinn Ari og Elín, ásamt börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum, við skírn Ara Teitssonar yngri. Skeleggur málsvari bænda og landbúnaðar Afmælisbarnið á heimaslóðum Það er sko ekki ofbeitin í Reykjadalnum.Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. tir ttir r n en on á ði- ig- á . el 51, f. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.