Morgunblaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 Sproti með viðarfótum - ýmsir litir í boði STOFNAÐ 1956 Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur s: 510 7300 www.ag.is Sproti 405 Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir RAFVÖRUR Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Sorpkvarnir í vaska ICQC 2018-20 Það hefur líklega ekki fariðframhjá þeim sem fylgjastmeð kvikmyndum hér álandi að Ísold Uggadóttir, leikstjóri Andið eðlilega, hlaut leik- stjóraverðlaunin á síðustu Sun- dance-hátíð í Bandaríkjunum. Sundance er einver virtasta kvikmyndahátíð í heimi, að koma mynd á dagskrá hennar telst afrek út af fyrir sig, en það heyrir svo sannarlega til tíðinda að vinna þar til verðlauna og einna helstu verð- launa hátíðarinnar í þokkabót. Verðlaun og viðurkenningar segja kannski ekki alla söguna, enda er kvikmyndagerð ekki kappakstur, en þetta er a.m.k. mikið gleðiefni fyrir aðstandendur og hlýtur að koma sér vel við dreifingu og kynn- ingu myndarinnar. Andið eðlilega fjallar um tvær konur, sem þrátt fyrir verulega ólíkan bakgrunn eiga það sameig- inlegt að vera á flæðiskeri staddar og eiga sér engrar bjargar von. Önnur þeirra er Lára, ung íslensk kona sem býr á Ásbrú ásamt syni sínum Eldari. Lára á ekki krónu með gati, hún er að missa íbúðina og það reynist henni mikil þraut að fæða og klæða sjálfa sig og soninn. Það er látið í veðri vaka að sitthvað úr fortíð Láru hafði orðið til þess að hún hafi brennt allar brýr að baki sér og mæðginin geti því ekki leitað til neins nákomins í þessari miklu neyð. Það reynist því himnasending þegar henni er boðið starf í vegabréfaeftirlitinu uppi á velli. Lára mætir í starfsþjálfun og legg- ur sig alla fram. Dag einn veitir hún því eftirtekt að eitthvað er bogið við vegabréf konu sem er á leið í gegn- um eftirlitið. Sú kona heitir Adja og er hin að- alpersónan í myndinni. Adja er tek- in til hliðar og yfirheyrð, hún reyn- ist vera frá Gíneu-Bissá og vegabréfið hennar er falsað. Í kjöl- far þess að hún er gómuð er hún tekin föst og er umsvifalaust flækt í net íslensks skrifræðis. Hún sækir um hæli og fær herbergi í húsi fyrir hælisleitendur í Keflavík. Smám saman kynnumst við bæði Láru og Ödju betur og leiðir þeirra skarast. Sagan í Andið eðlilega er marg- slungin og kemur víða við en hún er ákaflega haganlega smíðuð og ljóst að handritið hefur verið unnið af mikilli kostgæfni. Það er góð stíg- andi í kvikmyndinni, hún er spenn- andi en fer sér að engu óðslega. Ótal spurningar vakna og fjölbreytileg vandamál verða á vegi persónanna en þráðurinn er þétt spunninn og úr verður rammsterkt drama. Sumir atburðir gætu virst ofurlítið tilvilj- anakenndir, sérstaklega í augum þeirra sem ekki þekkja til hér- lendis. Lára og Adja búa í smábæ, þar sem er síður en svo ótrúlegt að rekast á fólk af tilviljun, en það gæti hugsast að áhorfendum sem ekki þekkja til þyki ankannalegt að þær gangi endurtekið í flasið á hvor ann- arri. Þá má líka spyrja sig hvort hvort það sé sannfærandi að Adja rétti Láru hjálparhönd, þar sem hún lagði líf hennar í rúst. Því fer þó fjarri að þetta skemmi heildar- myndina, sagan rígheldur og er óvenjulega vönduð á íslenskan mælikvarða. Myndin fjallar um fólk sem á bágt, fólk sem er minnimáttar, þarf að berjast við ofurefli eða hefur misstigið sig á lífsleiðinni. Þrátt fyr- ir það er myndin ekki væmin og gerist ekki sek um óþarfa vorkunn- semi í garð persónanna. Hér er ein- faldlega fjallað um fólk sem er í erf- iðri stöðu (sumir myndu segja vonlausri) sem reyna eftir bestu getu að mjakast áfram í von um að dagurinn á morgun verði kannski ofurlítið skárri en dagurinn í dag. Leikurinn er verulega góður, það sést langar leiðir að Kristín Þóra og Babedita hafa unnið heimavinnuna sína til að gæða persónur sínar lífi. Hinn ungi Patrekur er líka flottur í hlutverki Eldars. Samtölin eru vel skrifuð og flutt en gjarnan er kosið að láta persónur segja fátt og frek- ar brugðið á það ráð að láta líkams- tjáningu og svipbrigði miðla skila- boðum. Það er einungis á færi úrvalsleikara að miðla svo miklu innihaldi með látbragðinu einu sam- an og í þessu tilfelli gefst þessi tækni vel, þar sem hér er einmitt um úrvalsleikara að ræða. Öll tæknileg atriði eru í stakasta lagi. Kvikmyndatakan er fín og hent- ar viðfangsefninu vel. Sviðsmyndin er sérlega skemmtileg og gaman að sjá mynd sem kannar Suðurnes, Ásbrú og flugvallarsvæðið í allri sinni harð- neskjulegu dýrð. Búningar og gervi eru vel unnin og ljá persónunum heil- mikla vídd, sérstaklega í tilfelli Láru en í útliti er persónan Lára gjörólík leikkonunni Kristínu Þóru. Á heildina litið var hljóðvinnsla góð, fyrir utan stöku staði þar sem erfitt var að greina hvað persónum fór á milli. Andið eðlilega er stórfín mynd, hún er vel skrifuð og leikstjórnin af- bragðsgóð. Þetta er fyrsta verk Ísold- ar í fullri lengd en það er enginn byrj- endabragur á því og það stendur jafnfætis myndum eftir þaulvant kvik- myndagerðarfólk. Sagan er fersk og talar beint inn í samtímann en er jafn- framt sígild og tímalaus saga um bar- áttuna fyrir mannsæmandi lífi. Vel undirbúin Kristín Þóra og Patrekur í Andið eðlilega. „Leikurinn er verulega góður, það sést langar leiðir að Kristín Þóra og Babedita hafa unnið heimavinnuna sína til að gæða persónur sínar lífi. Hinn ungi Patrekur er líka flottur í hlutverki Eldars,“ segir meðal annars í gagnrýni um kvikmynd Ísoldar Uggadóttur. Landamærin í lífinu Smárabíó, Laugarásbíó, Borg- arbíó og Háskólabíó. Andið eðlilega bbbbm Leikstjórn og handrit: Ísold Uggadóttir. Kvikmyndataka: Ita Zbroniec-Zajt. Klipping: Frédérique Broos. Tónlist: Gísli Galdur. Aðalhlutverk: Babetida Sadjo, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Patrik Nökkvi Pétursson. 95 mín. Ísland, 2018. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Isavia hefur boðið listamanninum og sýningarstjóranum Kristínu Scheving að setja upp röð sýninga í Leifsstöð þar sem ljósakerfið í að- albyggingu flugstöðvarinnar er virkjað í samtali við vídeóverk í miðrými byggingarinnar, eins og segir í tilkynningu. Sigrún Harðardóttir er fyrsti listamaðurinn í röð sýnenda og hófst sýning á verki hennar 8. febr- úar sl. og stendur til og með 21. mars. Nefnist það „Gaia Breathing Variation lll“. Ásdís Sif Gunn- arsdóttir sýnir næst, frá 22. mars til 3. maí og Haraldur Karlsson sýnir frá 30. ágúst til 10. október verk- ið „Brain“. „Þeir sem sækja húsið heim eru inni í innsetningunni frá því þeir ganga upp á aðra hæðina og alla leið að versl- unarsvæðinu,“ segir í tilkynn- ingu og að sýningarnar séu til- raunaverkefni þar sem valdir ís- lenskir listamenn muni sýna verk sín út árið 2018. Listamenn sýna í Leifsstöð Ásdís Sif Gunnarsdóttir Stockfish-kvikmyndahátíðinni lauk í fyrradag í Bíó Paradís og voru verðlaun afhent í stutt- myndakeppninni Sprettfiski á lokaathöfn hátíðarinnar. Metfjöldi umsókna barst í keppnina og voru sex myndir valdar til þátttöku en í dóm- nefnd sátu kvikmyndaleikstjór- arnir Hafsteinn Gunnar Sig- urðsson og Ísold Uggadóttir og framleiðandinn Hlín Jóhann- esdóttir. Var það stuttmyndin Vikt- oría eftir Brúsa Ólason sem þótti sú besta en hún fjallar um Viktoríu sem stritar við að vera með búskap á ættaróðal- inu þrátt fyrir breytta tíma, eins og því er lýst í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíð- arinnar. Brúsi hlaut í verðlaun einnar milljónar króna tækjaúttekt hjá Kukli. Í umsögn dómnefndar um myndina segir: „Hér er á ferð falleg og einföld saga, gædd hlýrri og mannlegri aðal- persónu sem ófeimin tekst á við mótlæti upp á eigin spýtur og hreyfir við áhorfendum.“ Brúsi hlaut Sprettfiskinn fyrir Viktoríu Sigurvegarinn Brúsi hæstánægður með verðlaunin Sprettfisk á Stockfish. Ljósmynd/Patrik Ontkovic

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.