Morgunblaðið - 27.03.2018, Page 1

Morgunblaðið - 27.03.2018, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  73. tölublað  106. árgangur  FÉLL FYRIR ÍSLENSKA FJÁRHUNDINUM „DROTTNING PASSÍA“ FLUTT Í DYMBILVIKU ÍSLENSKUR ATHAFNAMAÐUR RIFAR SEGLIN MATTEUSARPASSÍA 30 GEIR MAGNÚSSON 14MONIKA DAGNÝ 12-13 Sjötíu og fimm prósent af tekjum þeirra tónlistarmanna sem hafa tón- list að atvinnu hér á landi, stafa af flutningi lifandi tónlistar, samkvæmt því sem ný skýrsla Rannsóknar- miðstöðvar skapandi greina í Há- skóla Íslands leiðir í ljós. Þar kemur einnig fram að flutningur lifandi tón- listar hafi á árunum 2015-2016 staðið undir tæplega 60% af heildartekjum iðnaðarins, en hljóðrituð tónlist og höfundarréttur um 20% hvort. Í rannsókninni, sem gerð var fyrir Samtón, Útón og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, kemur fram að heildartekjur íslenska tónlistar- iðnaðarins á þessum árum hafi verið 3,5 milljarðar króna, auk 2,8 millj- arða í afleiddum gjaldeyristekjum til samfélagsins vegna komu tónlistar- ferðamanna til landsins Sigtryggur Baldursson, fram- kvæmdastjóri Útón, segir í samtali við Morgunblaðið að könnunin gefi góða vísbendingu um styrk greinar- innar, einkum hvað varðar tónleika- hald og -hátíðir á Íslandi. Enn vanti betri gögn um útflutning íslenskrar tónlistar til að ná heildstæðri nið- urstöðu þar um. »16 75% tekna af tónleikahaldi Morgunblaðið/Eggert Atvinnugrein Megas hefur lengi haft tónlist að atvinnu.  Tekjur tónlistariðnaðarins 2015-2016 3,5 milljarðar Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Aðgerðir íslenskra stjórnvalda gagnvart Rúss- landi munu ekki hafa áhrif á samstarf ríkjanna á fjölþjóðavettvangi, en ríkisstjórnin samþykkti í gær að taka þátt í samstilltum aðgerðum gegn Rússum vegna Salsbury-málsins svonefnda. Ákveðið var að rússneskir stjórnarerindrekar yrðu ekki sendir úr landi líkt og aðrar þjóðir hafa ákveðið, heldur yrði tvíhliða fundum með rúss- neskum ráðamönnum og háttsettum embættis- mönnum frestað um óákveðinn tíma. í gær tugum rússneskra stjórnarerindreka úr landi vegna málsins. Um er að ræða rúmlega 110 Rússa, þar af 60 í Bandaríkjunum. Hin Norður- löndin vísa öll einum erindreka úr landi, að undan- skilinni Danmörku þar sem tveir erindrekar verða sendir úr landi. Rússar neita því enn að þeir hafi haft aðkomu að árásinni. Hinar samstilltu aðgerðir eru taldar mikill sigur fyrir Theresu May, forsætisráðherra Breta, og til marks um harðari afstöðu Donalds Trump Banda- ríkjaforseta til Rússlands. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að aðgerðirnar hafi ekki önnur áhrif á sam- skipti ríkjanna og að samstarf við Rússa á öðrum sviðum verði óbreytt. Íslensk stjórnvöld telja að Rússar verði að koma að borðinu við rannsókn Salsbury-málsins, en að mati ríkisstjórnarinnar hafa skýringar þeirra og viðbrögð við árásinni verið ótraustvekj- andi og ófullnægjandi. Sigur May og harðnandi afstaða Trumps Stjórnvöld í Bandaríkjunum, sextán aðildarríkj- um Evrópusambandsins og öðrum löndum vísuðu Samstarfið sett á ís Morgunblaðið/Árni Sæberg Sendiherra Anton Vasiliev, sendiherra Rússlands á Íslandi, að loknum fundi með Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra, í utanríkisráðuneytinu.  Ísland tekur þátt í þvingunaraðgerðum gegn Rússum  Engir stjórnarerind- rekar sendir úr landi  Hefur ekki áhrif á samstarf ríkjanna á fjölþjóðavettvangi MTekur afstöðu með bandalagsþjóðunum »2 & 17 Að Landsnet hafi ekki sýnt fram á að jarðstrengur sé raunhæfur í sam- anburði við loftlínu er veigamikil ástæða þess að Úrskurðarnefnd um- hverfis- og auðlindamála felldi í gær úr gildi framkvæmdaleyfi Hafnar- fjarðarbæjar fyrir svonefndri Lykla- fellslínu. Sú á að koma í stað Hamra- nesslínu sem liggur um nýbygg- ingarsvæði í Skarðshlíð og þarf því að víkja. Haraldur Líndal Haraldsson, bæj- arstjóri í Hafnarfirði, segir úrskurð- inn áfall. Þess hafi verið beðið lengi að línurnar yrðu teknar niður. Hjá Landsneti er verið að fara yfir úr- skurðinn, en lagning línunnar var komin að framkvæmdastigi. »4 Morgunblaðið/ Sigurður Bogi Hafnarfjörður Byggðin á Völlunum. Í uppnámi vegna úr- skurðar  Leyfi fyrir Lykla- fellslínu fellt úr gildi  Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, leggur til að skýrar reglur verði settar um brottvikningu nemenda í framhaldsskólum. Sér í lagi yngri en 18 ára, er heyra undir lög um fræðsluskyldu. „Ein leið væri að líta svo á að samfélagið hafi skyldu til að veita nemendum skólavist til 18 ára ald- urs, en það þarf ekki að vera í ákveðnum skóla. Þannig að ef nem- endur brjóta af sér sé hægt að víkja þeim úr skóla en bjóða þeim skóla- vist í öðrum skóla. Það er ákveðin refsing og mögulega áfellisdómur fyrir viðkomandi en við bregðumst ekki barninu sem samfélag. Að auki fjarlægjum við þar með ger- andann frá þol- andanum,“ segir Guðríður í kjöl- far úrskurðar umboðsmanns Alþingis þess efnis að brott- vikning 16 ára nemanda úr framhaldsskóla hefði verið ólögleg. Nemandinn var með hníf í skólanum og deildi óviðeig- andi mynd af skólasystur sinni á lokaðri facebooksíðu. »10 Hægt verði að vísa nemendum úr skóla en bjóða þeim skólavist annars staðar Guðríður Arnardóttir Nokkuð snjóar um páskana og kalt verður í veðri, segir Einar Svein- björnsson veðurfræðingur. Það verður snjókoma til fjalla á Aust- fjörðum á morgun, miðvikudag, samfara austanátt svo tala má um hríðarveður þar. Annars staðar verður úrkomulaust og þurrt. Á skírdag og föstudaginn langa snýst í NA-átt og svo lægir. Heldur kólnar, að sögn Einars, og á Norð- urlandi verður gaddur – en nætur- frost sunnanlands. Spáð er bjart- viðri víða á Norðurlandi en sólarlitlu syðra og þar má gera ráð fyrir einhverjum snjódreifum á föstudaginn langa. sbs@mbl.is Hret fyrir austan og kuldi um páskana

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.