Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 Kæli- og frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 Allt gekk að óskum í leiðangri fjallaskíðafólks úr Ferðafélagi Ís- lands sem fór á Eyjafjallajökul síð- astliðinn sunnudag. Gengið var upp á jökulinn að norðanverðu, þar sem heitir Grýta, og farið að Goðasteini sem er í 1.557 metra hæð. „Mestallan tímann var sól og ný- fallinn púðursnjór. Strengur af suð- austri mætti okkur þegar upp á há- bunguna kom og með vindkælingu fór gaddurinn í 23 stig. Þegar við komumst svo aðeins út úr kófinu á toppnum blasti við okkur stórkost- legt útsýni yfir Suðurlandið,“ segir Tómas Guðbjartsson læknir, sem var einn fjögurra fararstjóra. Alls tóku 37 manns þátt í ferðinni sem tók alls sjö klukkustundir en komið var niður svokölluð Smjörgil sem eru skammt frá Gígjökuli sem er á leiðinni inn í Þórsmörk. „Frá því ég hóf mína fjalla- mennsku hef ég haldið mikið upp á Eyjafjallajökul. Sá áhugi jókst til muna eftir eldgosið árið 2010, enda sýndi það að þetta er ekkert venju- legt fjall og kraftur þess er ótrú- lega mikill,“ segir Tómas sem með Helga Jóhannessyni lögmanni fer fyrir fjallaskíðahópi FÍ. Er ýmislegt áhugavert á döfinni hjá þeim á næstunni, svo sem ferðir á Snæfell, Heklu og Hvannadalshnúk. Fjallaskíðafólk úr Ferðafélagi Íslands fór á Eyjafjallajökul um helgina Gengið í snjókófi við Goðastein Ljósmynd/Tómas Guðbjartsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Framhald uppbyggingar í Skarðs- hlíðarhverfi í Hafnarfirði er í upp- námi eftir að úrskurðarnefnd um- hverfis- og auðlindamála felldi í gær úr gildi fram- kvæmdaleyfi Hafnarfjarðar- kaupstaðar til Landsnets vegna Lyklafellslínu 1. Ætlunin hefur verið að há- spennulínan verði milli tengivirkja við Sandskeið og í Hafnarfirði og á að koma í stað svonefndrar Hamra- neslínu, sem liggur um hið nýja Skarðshlíðarhverfi. Hafnarfjarðarbær gaf út fram- kvæmdaleyfi fyrir línulögn síðasta sumar og það kærðu Hraunavinir og Náttúruverndarsamtök Suðvestur- lands. Bentu þar m.a. á hættu vegna mengunar enda ætti línan að fara um vatnsverndarsvæði, hraunsvæði yrði raskað auk þess sem ýmsar forsend- ur í orkumálum hefðu breyst frá því málið var lagt upp. – Ógilding leyf- isins af hálfu úrskurðarnefndar byggist hins vegar á því að ekki sé sýnt fram á að lagning jarðstrengs í stað háspennulínu sé raunhæfur kostur. Þá sé ekki ,,… sýnt fram á að jarðstrengskostir séu ekki raunhæf- ir og samanburður á umhverfisáhrif- um þeirra og aðalvalkosts fram- kvæmdaraðila hafi ekki farið fram með þeim hætti sem lög gera ráð fyr- ir,“ eins og komist er að orði. „Úrskurðurinn er áfall,“ segir Haraldur Líndal Haraldsson, bæjar- stjóri í Hafnarfirði, í tilkynningu um þetta mál sem send var út í gær. Þess hafi verið beðið í áratugi að há- spennulínurnar í Skarðshlíð og Hamranesi verði fjarlægðar og því þoli málið enga bið. Bendir bæjar- stjórinn þar á uppbyggingu í Skarðs- hlíðarhverfinu – þar sem eigi að verða 520 íbúðir og ýmis þjónusta á vegum bæjarins. „Þetta eru ekki þær fréttir sem við hefðum vonað að fá frá úrskurðar- nefndinni,“ segir Haraldur Líndal sem væntir svara Landsnets um framhaldið á fundi fulltrúa fyrirtæk- isins með bænum sem haldinn verð- ur í dag. Lyklafellslínu má ekki leggja  Framkvæmdaleyfi vegna háspennulínu fellt úr gildi  Jarðstrengjalausnin sé betur könnuð, segir úrskurðarnefnd  Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði í óvissu  Málið þolir enga bið, segir bæjarstjórinn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Straumur Háspennulínan sem liggur um nýbyggingarsvæði í Hafnarfirði á að víkja. Sú lausn sem koma skyldi í staðinn fær þó ekki samþykki. Haraldur Líndal Haraldsson Regluleg starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. skilaði rekstrarafgangi upp á 201 milljón kr. í fyrra og var hagnaður vegna endanlegs uppgjörs á sölu á byggingarrétti 174 milljónir, sem leiðir til þess að heildarhagnaður árs- ins fyrir skatta nam 321 milljón. Í ársreikningi Ríkisútvarpsins sem birtur var í gær kemur fram að heildarlaun og þóknanir útvarps- stjóra námu 22,9 milljónum kr. í fyrra samanborið við 17,2 millj. kr. 2016. Í áréttingu frá RÚV í gær- kvöldi kemur fram að á árinu 2016 tók útvarpsstjóri fæðingarorlof sem lækkaði heildargreiðslur launa á því ári og því gefi samanburður á milli launa á árunum 2016 og 2017 ekki rétta mynd af þróun mála. ,,Hins vegar ákvað stjórn RÚV að hækka laun útvarpsstjóra á árinu 2017 úr u.þ.b. 1.550 þús í 1.800 þús krónur eða um u.þ.b. 16%.“ Rekstrargjöld RÚV skv. ársupp- gjörinu án afskrifta voru 5.643 milljónir kr. en 5.414 milljónir árið á undan. Afskriftir voru 316 millj- ónir og fjármagnsliðir voru nei- kvæðir um 292 milljónir kr. sam- anborið við 221 millj. kr. árið á undan. Fram kemur í ársreikningnum að skuldir RÚV hafa um árabil ver- ið háar, m.a. vegna uppgjörs á eldri lífeyrisskuldbindingum en með sölu á byggingarrétti hafi tekist að lækka þær umtalsvert. Langtíma- skuldir um áramót voru 3.276.386 milljónir og höfðu lækkað um rúma 3,5 milljarða. Að meðtöldum öðrum fjárskuldbindingum og skamm- tímaskuldum nema skuldirnar um 6,2 milljörðum kr. omfr@mbl.is Hallalaus rekstur RÚV og hagnaður af sölu  Laun útvarps- stjóra hækkuðu um 16% í fyrra Morgunblaðið/Ómar RÚV Stöðugildi voru 260 í fyrra. „Þetta eru vonbrigði,“ segir Steinunn Þorsteinsdóttir, upp- lýsingafulltrúi Landsnets. Þar voru menn í gær að fara yfir mál og meta stöðuna. „Þetta verk- efni hefur lengi verið í undir- búningi, áhætta í umhverfis- málum hafði verið metin svo og mótvægisaðgerðir settar fram. Þá var búið að bjóða fram- kvæmdir út og til stóð að opna tilboð eftir páska. Nú þurfum við að skoða málið upp á nýtt.“ Skoða málið upp á nýtt LANDSNET ENDURMETUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.