Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 PIANO NÝ SENDING 14.995 Tog á milli vestrænna ríkja ogRússa er fyrirferðarmikið nú. En um meginátakalínur má lesa á vefsíðu Alberts Jónssonar fv. sendiherra:    Ráðandi þættir í utanríkisstefnuRússlands lúta annarsvegar að því að tryggja ítök á áhrifa- svæði, sem nær til fyrrverandi Sovétlýðvelda nema Eystasalts- ríkjanna. Hins vegar ræður einkum för að varðveita stöð- ugleika og rík- isvald í Rúss- landi. Náin tengsl eru hér á milli þannig að óstöðugleiki á áhrifasvæðinu er talinn fela í sér hættu á óróa í Rússlandi sjálfu og ógn við rík- isvaldið. Ennfremur er litið á áhrifasvæðið sem stuðpúða gegn utanaðkomandi ógn.    Í huga rússneskra stjórnvaldalúta þessir þættir að tilvistar- hagsmunum og ógn við þá er til- vistarógn. Því breyta viðskipta- þvinganir gegn Rússum í kjölfar Úkrænudeilunnar ekki stefnu rússneskra stjórnvalda varðandi Úkrænu. Endanlegt markmið þeirra er að hafa neitunarvald yfir utanríkisstefnu Úkrænu til að koma í veg fyrir aðild hennar að NATO og ESB. Ríki á áhrifasvæð- inu njóta enda ekki fullveldis- og sjálfsákvörðunarréttar.    Trump-stjórnin hefur ekkibreytt neinu grundvallaratriði í stefnu Bandaríkjanna gagnvart Rússlandi, enda hurfu hvorki deilumál né gerólíkir hagsmunir ríkjanna við forsetaskiptin. Að áliti Moskvustjórnarinnar hafa Bandaríkin þá stefnu að styðja við innlend sundrungaröfl í Rússlandi, skáka því á alþjóðavettvangi, ein- angra það, og veikja efnahags- lega.“ Albert Jónsson Meginlínurnar STAKSTEINAR Veður víða um heim 26.3., kl. 18.00 Reykjavík 6 rigning Bolungarvík 5 léttskýjað Akureyri 4 léttskýjað Nuuk -12 léttskýjað Þórshöfn 5 léttskýjað Ósló 1 heiðskírt Kaupmannahöfn 3 skúrir Stokkhólmur 0 heiðskírt Helsinki -1 heiðskírt Lúxemborg 8 heiðskírt Brussel 10 léttskýjað Dublin 10 rigning Glasgow 9 skýjað London 11 heiðskírt París 12 heiðskírt Amsterdam 7 þoka Hamborg 5 skýjað Berlín 8 léttskýjað Vín 7 skýjað Moskva 4 alskýjað Algarve 15 heiðskírt Madríd 14 léttskýjað Barcelona 16 skúrir Mallorca 16 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 19 léttskýjað Winnipeg 1 þoka Montreal 1 léttskýjað New York 6 heiðskírt Chicago 5 skýjað Orlando 23 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:03 20:04 ÍSAFJÖRÐUR 7:06 20:12 SIGLUFJÖRÐUR 6:48 19:55 DJÚPIVOGUR 6:32 19:34 Framkvæmdir við gatnamót Geirs- götu/Lækjargötu/Kalkofnsvegar eru að hefjast að nýju en þær hafa legið niðri síðan í desember. Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir því að starfsmenn verktakans, Lóða- þjónustunnar ehf., verði komnir á fulla ferð strax eftir páska. Vonir standa til að verkinu ljúki í apríl/maí og þá verði umferðin um gatnamótin með eðlilegum hætti. Miklar þrengingar hafa verið á svæðinu og umferðin því verið hæg. Oft hafa myndast biðraðir, sérstak- lega á Geirsgötunni í austurátt, enda bara ein akrein. Útbúin voru svo- kölluð T-gatnamót í stað sveigðrar Geirsgötu eins og áður var. Geirs- gatan er nú hornrétt á Lækjargötu/ Kalkofnsveg. 30 kílómetra hámarks- hraði verður á þessum götum. sisi@mbl.is Lokafrá- gangur við gatnamót Morgunblaðið/Hanna Gatnamótin Umferð um svæðið hef- ur verið hæg enda þrengslin mikil. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bæjarráð í Vestmannaeyjum tók já- kvætt í ósk The Beluga Building Company ehf. í síðustu viku, um að fyrirtækið fengi afnot af Klettsvík við komu mjaldra (Beluga-hvala) til Vestmannaeyja. Þetta staðfesti Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, í samtali við Morg- unblaðið. „Við erum mjög jákvæð fyr- ir þessu. Við höf- um unnið að und- irbúningi þessa verkefnis með fyrirtækinu Merl- in síðustu þrjú árin. Það bendir ekk- ert til annars en að málið fái já- kvæða endanlega afgreiðslu,“ sagði Elliði. Elliði segir að Merlin hafi stofnað Beluga Building Company hér á landi utan um þessar væntanlegu byggingarframkvæmdir í Klettsvík, vegna mjaldranna og raunar fleiri dýra. Elliði segir að samhliða aðstöð- unni fyrir mjaldrana stefni Beluga Company að því að koma upp vold- ugu fiskasafni, þar sem sýndar verði staðbundnar tegundir og jafnframt verði komið upp ákveðnu athvarfi fyrir lunda. „Við vonum að fram- kvæmdir geti hafist á vordögum og vonandi verður endanleg ákvörðun um verkefnið tekin í maí eða júní, þar sem enn er þetta verkefni í undirbúningi. Verði það svo, geta verklegar framkvæmdir hafist strax í kjölfar þess,“ sagði Elliði. Mjaldrar og lundar verða í Klettsvík  Styttist í endanlega ákvörðun Merlin um uppbyggingu í Eyjum, segir Elliði Elliði Vignisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.