Morgunblaðið - 27.03.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Nýtt frá
Léttir sumarskór
Mjúkur leðurinnsóli
Gúmmísóli
Verð 5.995
Stærðir 36-42
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Kr. 8.900 • Str. S-XXL
7/8 lengd
Gallabuxna-
leggings
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á undanförnum árum hafa veit-
ingahús verið að hasla sér völl á
Grandanum í Örfirisey. Þar er nú
þegar að finna mörg og fjölbreytt
veitingahús og nú liggja fyrir hjá
borgaryfirvöldum beiðnir um 11
nýja veitingastaði á Grandanum.
Á síðasta fundi í umhverfis- og
skipulagsráði borgarinnar lá fyrir
erindi frá Faxaflóahöfnum sf., eig-
anda Grandagarðs 16. Í húsinu
hefur Sjávarklasinn verið til húsa
undanfarin ár. Faxaflóahafnir
sækja um leyfi til þess að í húsinu
verði starfræktur matarmarkaður
og níu veitingastaðir á hluta
fyrstu hæðar. Stefnt er að matar-
markaði í anda þeirrar starfsemi
sem nú fer fram á Hlemmi.
Að erlendri fyrirmynd
Fram hefur komið í samtali við
Þór Sigfússon, stjórnarformann
Sjávarklasans, að í Mathöllinni á
Granda verði básar og vagnar með
nýstárlegum göturéttum „sem
innihalda það besta sem miðin og
landið gefa af sér“. Fyrirmyndin
sé m.a. sótt til Copenhagen Street
Food og Vippa í Osló í Noregi.
Þessu tengt sótti „Rabbabarinn
minn“ um leyfi til áfengisveitinga
til klukkan 24 alla daga í Granda-
garði 16 en umsögnin var nei-
kvæð.
Kría hjól ehf., Grandagarði 5,
sækir um leyfi til að innrétta veit-
ingastað fyrir 80 gesti á fyrstu og
annarri hæð og koma fyrir flótta-
stiga á norðurhlið húss á lóð nr. 7
við Grandagarð. Í næstu húsum
eru fyrir tvö veitingahús, Sjávar-
barinn og Flatey pizza.
Fyrirtækið Hífandi ehf., Eyjar-
slóð, sækir um leyfi til að innrétta
veitingastað fyrir 50 gesti á ann-
arri hæð í sama húsi. Í húsinu eru
m.a. fyrirtækin Sæbjörg og Sjó-
fiskur með starfsemi og áður var
dagsetur Hjálpræðisherins á
fyrstu hæð.
Í næsta nágrenni, Eyjarslóð 5,
er bjórgarðurinn Ægisgarður. Af-
greiðslu allra þessara erinda var
frestað í umhverfis- og skipulags-
ráði.
Vilja breyta Nettóverslun
Loks er þess að geta að fyrir
nefndina hefur verið lagt erindi
frá Samkaupum í Njarðvík. Sótt
er um leyfi til að breyta verslun
Nettó á Fiskislóð 3. Áformað er að
skipta verslunarrýminu og inn-
rétta apótek, koma fyrir nýjum
inngangi á suðvesturhlið og nýrri
hurð á suðurhlið fyrir starfsfólk
og vörumóttöku. Afgreiðslu þessa
erindis var sömuleiðis frestað.
Morgunblaðið/Ómar
Grandagarður 16 Matarmarkaðurinn og veitingastaðirnir verða í 500 fer-
metra húsnæði á 1. hæðinni. Svæðið á Granda breytist því enn á næstunni.
11 nýir veitinga-
staðir á Granda?
Borgin fær beiðni um matarmarkað
og níu veitingastaði í Sjávarklasanum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Formaður Kennarasambands Íslands (KÍ) segir að erfið-
ara sé að koma réttum upplýsingum á framfæri, þannig
að fólk kynni sér þær og setji sig inn í málin. „Fólk tekur í
auknum mæli ákvarðanir á grunni þess sem það sér á
samfélagsmiðlum án þess að kynna sér málin frekar,“
segir Þórður Hjaltested, formaður KÍ.
Þannig svarar hann spurningu um það hvort sú aukna
harka sem virðist vera í félagsmönn-
um aðildarfélaga Kennarasambands-
ins sé merki um að forysta kennara sé
að fjarlægjast félagsmenn. Hann neit-
ar því og vísar til breyttrar umræðu.
„Ég þekki þetta einnig frá öðrum
löndum. Kennarasamtök á Norður-
löndunum standa frammi fyrir því
sama. Í Noregi var til dæmis kolfelld-
ur samningur og þá var sú skýring
gefin að menn hefðu vanmetið áhrif
samfélagsmiðla á umræðuna. Ég tel
að við þurfum að bregðast við með því
að efla kynningarstarf okkar í sambandi við alla kjara-
samninga. Upplýsa félagsmenn um innihald samninga og
það sem í þeim felst. Ég er ekki að segja að það hafi ekki
verið gert, allir hafa reynt það eftir bestu getu. Við erum
með heimasíðu og aðildarfélögin með facebooksíður.
Jafnframt eru haldnir kynningarfundir með félags-
mönnum. Við þurfum að gera betur,“ segir Þórður.
Óútkljáð eldri mál
Aukin harka í kennarastéttinni hefur meðal annars
birst í því að kjarasamningar grunnskólakennara hafa
ítrekað verið felldir, nú síðast með miklum mun, og fram-
haldsskólakennarar eru farnir að ræða um verkfalls-
boðun vegna þess að ekki hefur tekist að semja við ríkið.
Þá hefur verið mikil umræða um stöðuna í leikskólunum
vegna skorts á starfsfólki og hugmynda um leiðir til
lausnar sem leikskólakennarar eru ósáttir við.
Þórður segir að þessi mál séu á borði hvers aðildar-
félags fyrir sig en segir þó að þar sé í flestum tilvikum um
að ræða óútkljáð eldri mál við viðsemjendur.
„Staðan er sú í framhaldsskólunum að þar eru óupp-
gerð mál úr fyrri samningum sem fulltrúar þeirra telja að
þurfi að fást efndir á. Hluti af því er stytting framhalds-
skólans í þrjú ár, sem ekki er búið að meta inn í launakjör
kennara. Það er fyrst og fremst út af því sem allt stendur
fast og því er ákveðin pattstaða í málinu,“ segir Þórður.
Varðandi grunnskólakennara segir Þórður að grunn-
ástæðan sé sú að sveitarfélögin bjóði verri launakjör en
ríkið og fyrirtæki á almennum vinnumarkaði fyrir sam-
bærileg störf. „Grunnskólakennarar hafa séð hækkanir
kjararáðs og annarra og er misboðið þegar þeim stendur
aðeins til boða 3% launahækkun. Þess vegna voru samn-
ingarnir felldir. Fleira spilar þar inn í. Óánægja hefur
verið með vinnumat grunnskólakennara sem samið var
um fyrir fjórum árum. Hluti af samningunum núna var að
reyna að leysa þau mál en launaliðurinn skiptir það miklu
máli að fólk sættir sig ekki við launakjörin þegar álagið er
mikið,“ segir Þórður.
Þórður segir að það sama eigi við um kjaramál leik-
skólakennara en fleira komi til. Bendir á að við leik-
skólana eigi að vera fagmenntaðir leikskólakennarar að
tveimur þriðju hlutum. Það sé nú aðeins þriðjungur. „Það
fer illa í stéttina þegar farið er að ræða um að manna
störf á leikskólum með fólki sem komið er á eftirlaun.
Leikskólakennarar, fagstéttin sem ber hitann og þung-
ann af starfinu, telja að verið sé að grafa undan faglegu
starfi með þessu,“ segir hann.
Forystuskipti í apríl
Þórður hefur verið formaður KÍ frá árinu 2011 og gef-
ur ekki kost á sér áfram. Forystuskiptin verða í lok þings
Kennarasambands Íslands sem haldið verður dagana 10.
til 13. apríl. Ragnar Þór Pétursson tekur við formennsku
og Anna María Gunnarsdóttir er nýr varaformaður.
Þing KÍ eru haldin á fjögurra ára fresti. Á þinginu
verður fjallað um kjaramál og skólamál og innri mál
stéttarinnar. Meðal annars verður kjaramálastefna til
næstu fjögurra ára mótuð. „Ég á von á því að það verði
málefnalegar umræður um öll þessi mál,“ segir Þórður.
Erfiðara að miðla
réttum upplýsingum
Bylting samfélagsmiðla hefur áhrif í félagsstarfi kennara
Morgunblaðið/Eggert
Þrýstingur Kennarar hafa notað ýmsar aðferðir til að
vekja athygli á málum. Hér eru þeir mættir í Ráðhúsið.Þórður Á.
Hjaltested
Á föstudaginn, á síðasta degi fyrir
pákskafrí Alþingis, lagði Píratinn
Björn Leví Gunnarsson fram
þriðju fyrirspurn sína til dóms-
málaráðherra um atkvæðakassa.
Þetta var jafnframt 74. fyrirspurn
Björns Levís á yfirstandandi þingi.
Nú vill Björn Leví fá að vita
hversu margir atkvæðakassar voru
notaðir í kosningum til Alþingis
árið 2017, skipt eftir kjördæmum.
Í öðru lagi vill þingmaðurinn fá að
vita hversu margir atkvæðakassar
hafa brotnað, dottið í sundur eða
opnast á annan óæskilegan hátt
við afhendingu, flutning eða notk-
un í einhverjum kosningum frá
árinu 2013 og hvernig hvert atvik
var skráð í gerðabók.
Í greinargerð segir Björn Leví
að í svari ráðherra á þingskjali
348 við fyrirspurn um at-
kvæðakassa hafi ráðherra ekki
svarað 3. tölulið fyrirspurnarinnar
efnislega. „Í svari ráðherra við
fyrirspurn til munnlegs svars á
þskj. 421 um hnjask á at-
kvæðakössum sagði dóms-
málaráðherra að það ætti að vera
hægt að taka saman upplýsingar
um fjölda atkvæðakassa,“ segir
Björn Leví og óskar sem fyrr eftir
skriflegu svari ráðherra.
sisi@mbl.is
Spyr í þriðja
sinn um at-
kvæðakassa