Morgunblaðið - 27.03.2018, Side 13
Íslenskir hundar Monika með hundunum sínum þremur sem hún á núna. F.v: Ísrima Ljúfa Loppa 7 ára, Töfri Klói
Hektorsson 11 ára og nýja tíkin Stjörnudals Draumey Dimbiltá frá Þýskalandi, en hún er dótturdóttir Klóa. Allir
þessir hundar tengjast Hófi aftur í ættir. „Ég hef alltaf haldið eftir í hverri kynslóð til að geta haft Hófí með mér að-
eins lengur, en enginn kemur í staðinn fyrir hana,“ segir hún.
eins og hugur manns. Ég átti sjeff-
erhund fyrir sem var mjög hændur
að mér og auðveldur í þjálfun, en
Hófí var líkt og sjálftamin, það var
engin fyrirhöfn að þjálfa hana, hún
gerði allt strax sem henni var sagt
að gera. Hún var alveg ótrúlega
þægileg,“ segir Monika og bætir
við að Hófí hafi orðið 15 ára, lifað
til ársins 2003.
Líkt og hún hefði
lesið hugsanir mínar
„Þessi bók hefur verið að
malla í huga mínum í mörg ár, eða
allt frá því að Hófí dó. En svo
ákvað ég að gera eitthvað í því að
gefa bókina út þegar ég fyrir
tveimur árum var svo slæm í baki
að ég var rúmliggjandi, gat hvorki
setið né staðið. Ég gat ekkert gert,
ekki einu sinni verið í tölvunni. Þá
fór ég að hugsa um öll langveiku
börnin sem eru mikið á sjúkrahúsi
og geta ekki haft hjá sér þá hunda
sem til eru heima hjá þeim. Ég fór
að hugsa að það væri gaman að
gefa út bók um Hófí fyrir þessi
börn sem einhver gæti lesið fyrir
þau, eða þau lesið sjálf, en ég naut
þess mjög þegar ég var lítil að
amma mín las alltaf sögur fyrir
mig.“ Næsta skref var að fá mynd-
skreyti en Monika sá fyrir tilviljun
á Facebook mynd af hundi sem
ung hollensk kona hafði teiknað,
Martine Jaspers-Versluijs.
„Ég sendi henni skilaboð og
spurði hvort hún væri til í að
teikna myndir fyrir bókina mína
um Hófí. Hún sagði strax
já, því hún átti sjálf ís-
lenskan hund og hef-
ur verið heilmikið á
Íslandi, og hún dýrkar landið. Ég
sendi henni söguna og hún sendi
mér hugmyndir að myndum til
baka. Þegar ég sá myndirnar leið
mér eins og hún hefði lesið hugs-
anir mínar, þetta var alveg eins og
ég vildi hafa þetta.“
Hófí-bangsar í þróun
Monika ætlaði fyrst að gefa
bókina út sjálf, en bókaútgáfan
Draumsýn var til í að gefa hana út
og nú er ævintýrið um Hófí orðið
að veruleika.
„Þessi fyrsta bók er um það
þegar Hófí kom í heiminn og um
íslenska hundakynið almennt, en
bækurnar verða fleiri, þetta
verður
bókaflokk-
ur, þar
sem ég fer
í gegnum
lífið hennar
Hófíar,
sem hittir til dæmis önnur íslensk
dýr. Ég lagði áherslu á að öll dýrin
í bókunum væru íslensk og náttúr-
an líka, því ég vil hafa þetta ekta.“
Bækurnar um Hófí koma líka
út á ensku og henta því vel fyrir
ferðamenn og sem gjafir til er-
lendra vina.
„Systir mín sem býr í Kanada
er að verða amma og mér finnst
frábært að hún hafi þessa bók bæði
á íslensku og ensku fyrir barna-
börnin, en hún ólst upp á Íslandi
rétt eins og ég þótt hún hafi flutt
aftur til Kanada.“
Monika segir að nú sé verið að
þróa Hófí-bangsa, „því ég vil að
allir krakkar hafi möguleika á að
geta knúsað og lesið fyrir Hófí,
hvort sem þau eru veik eða
heilbrigð. Og púsl og bolir
fara í vinnslu fljótlega. Ég er
Erni og Karítas hjá Draum-
sýn afar þakklát, að fá þetta
tækifæri til að kynna Hófí
fyrir börnum á öllum aldri,“
segir Monika, sem nú á þrjá
hunda sem allir eru af ís-
lensku fjárhundakyni og eiga
ættir sínar að rekja til
Hófíar.
„Svarti liturinn í Hófí
var sérstakur, því hann
var mjög sjaldgæfur í ís-
lenska fjárhundinum þá
og því var tilvalið að
halda honum við með
ræktun.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018
ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
munnsogstafla við særindum í hálsi
Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast
upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
HUNANGS
OG SÍTRÓNU-
BRAGÐ
APPELSÍNU-
BRAGÐ
SYKURLAUST
„Hlaup í náttúru Íslands verða sífellt
vinsælli, það ætti ekki að koma á
óvart. Íslendingar hafa löngu upp-
götvað frelsið og fegurðina sem felst
í fjallgöngum. Síðustu 15 ár hafa
götuhlaup einnig rutt sér til rúms á
meðal almennings. Með því að sam-
eina hlaupin og útiveru í náttúrunni
fæst það besta úr báðum heimum.
Þessa upplifun köllum við náttúru-
hlaup,“ segir m.a. á vefsíðunni natt-
uruhlaup.is.
Kostir þess að skokka eða hreyfa
sig eru ótvíræðir, en fleiri kostir eru
einnig tilgreindir, þ.á m. hreint og
tært loft, enginn útblástur, ekkert
svifryk, hægt er að njóta náttúru og
landslags um leið og hlaupið er, auk-
in fjölbreytni í hlaupaleiðum auk
þess sem áfangastaðirnir verði
markmið en ekki bara bið eftir næsta
hlaupi. Og síðast en ekki síst að frið-
sæl náttúran efli andann jafnt sem
líkamann.
Kynningarkvöld fyrir vornámskeið
Náttúruhlaupa, sem hefst í byrjun
apríl, varður haldið frá 20-22 í kvöld,
þriðjudagskvöldið 27. mars. Búið er
að opna fyrir skráningu á vefsíðunni,
en þar sem náttúruhlauparar eiga
von á að það verði fljótt að fyllast
benda þeir þeim sem eru ákveðnir að
skrá sig strax en þeim sem eru for-
vitnir að mæta á kynningarkvöldið og
skrá sig síðan.
Vefsíðan www.natturuhlaup.is
Morgunblaðið/Eggert
Munur Á malbiki hreyfast fætur nánast eins í hverju skrefi en í náttúruhlaupi
má alltaf eiga von á trjárót, steinhnullungi eða óvæntri krappri beygju.
Hlaup úti í náttúrunni efla
andann jafnt sem líkamann
Senn líður að páskum og flestir
ábyggilega komnir í hátíðarskap, ekki
síst börnin og unglingarnir sem eru í
páskafríi frá skólunum. Því er varla
seinna vænna að taka til við páska-
föndrið til þess að punta svolítið
heima hjá sér.
Í Borgarbókasöfnunum í Kringl-
unni, Sólheimum og Spönginni er
mikil stemning fyrir páskunum og
gestum og gangandi boðið að föndra
páskaskraut hver sem betur getur
allan liðlangan daginn frá kl. 10 til 19
í dag, þriðjudaginn 27. mars, og á
morgun, miðvikudaginn 28. mars.
Stundum er skemmtilegra að föndra
með hópi fólks en ein/n heima og því
er upplagt að nota tækifærið og
bregða sér á safnið. Svo má í leiðinni
heim kippa með sér einni eða tveimur
skemmtilegum bókum til að hafa
eitthvað að lesa yfir páskana. Boðið
er upp á föndurefni, tæki og tól á
söfnunum auk páskaskrauts-
hugmynda og leiðbeininga. En það
má líka gera hvað sem er. Ekki er þó
ólíklegt að gulur verði tískuliturinn í
páskaskrautinu í ár rétt eins og mörg
undanfarin ár og egg, ungar og kan-
ínur í aðalhlutverkum. Enginn
aðgangseyrir, heitt á könnunni og all-
ir velkomnir.
Borgarbókasöfnin í Kringlunni, Sólheimum og Spönginni
Föndur Mörgum finnst gaman að búa
til sitt eigið páskaskraut.
Páskaföndur
fyrir unga
sem aldna
Söguhetja Hófí er söguhetj-
an í bókinni Hófí er fædd.
Skannaðu kóðann
til að lesa