Morgunblaðið - 27.03.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 27.03.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 mynt í sjálfsala, fylla á sápukúta og hreinsa plönin. Stundum eru við- skiptavinirnir klaufar og loka sig inni á sjálfvirka básnum. Þá þarf Geir að hafa hraðar hendur. Um helgina kom slíkt tilfelli upp og hentist Geir þá upp stiga og lagaði rofa í loftinu. Hann VIÐTAL Baldur Arnarson Baldur@mbl.is Geir Magnússon, athafnamaður í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, býð- ur til sölu bílaþvottastöð í heimabæ sínum, Mechanicsburg. Tekjumögu- leikar eru sagðir góðir og fastakúnn- ar margir. Hvor þvottastöð er með fimm bása. Á fjórum afgreiða viðskiptavinir sig sjálfir en á þeim fimmta er sjálfvirk þvottastöð. Stöðvarnar liggja vel við umferð. Geir hóf rekstur þeirra á níunda áratug síðustu aldar. Hann hafði þá gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum, með- al annars fyrir Coldwater Seafood, Iceland Seafood og Iceland Import Incorporation, félag Álafoss í New York. Hann fluttist til Mechanics- burg árið 1975 þegar hann var ráðinn af Sambandinu til að reka fyrirtækið Iceland Seafood, sem þá hét Iceland Products. Fyrirtækið seldi í upphafi fisk, ull og lambakjöt. Fæddur 1933 og íhugar að minnka við sig Geir, sem verður 85 ára í ár, rekur tvær bílaþvottastöðvar í bænum. Hann segir koma til greina að selja aðra hvora eða báðar. „Það er hugsanlegt að ég selji jafn- vel báðar stöðvarnar fyrir rétt tilboð. Hef rætt um það í nokkur ár. Ef það snjóar mikið segi ég stundum við sjálfan mig að ég þurfi að minnsta kosti að selja aðra stöðina. Svo kemur góður mánuður og aurarnir hrúgast inn. Þá finnst manni kannski óþarfi að vera að selja einmitt núna. Ég er ekki skipulagður maður. Ég er frekar eins og laus kútur í brimi. Ég berst hér og þar,“ segir Geir. Eins og að vera mjólkurbóndi Sólríkt var í Mechaniscburg um helgina. Snjórinn að bráðna og vor í lofti. Rykið af götunum settist á bíl- ana. Geir hafði því í nógu að snúast vegna stöðvanna. Setja þurfti smá- stekkur enn upp í ruslagáma til að troða ruslið. „Ég hef líkt þessu við að vera mjólkurbóndi. Maður þarf að fara að minnsta kosti tvisvar á dag til að at- huga slöngurnar og moka skítinn eft- ir bílana,“ segir Geir. Hann segir nokkra heimamenn hafa augastað á stöðvunum. „Hér er maður sem á þrjár stöðvar og honum finnst hann geta bætt við einni í viðbót. En ég hugsa að hann bjóði aðeins hálfvirði. Það er ekki svo að ég sé kominn með þetta á söluskrá. Svo skiptir máli hvernig útborgunin er. Ég ætla ekki að bíða eftir 15 ára veðláni. Það skiptir þó í raun ekki nokkru máli, því ég á meira en nóg í mig og mína. Ég er enn að fá borgað fyrir þessa þriðju sem ég seldi,“ segir Geir sem seldi eina stöð á síðasta ára- tug. Var hún í nokkurri fjarlægð frá hinum tveimur. Mun ekki kaupa Cadillac Spurður hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur þegar hann hefur minnkað við sig skyldurnar á bíla- þvottastöðvunum svarar Geir með sögu af gullfiskum. „Hefurðu nokkurn tímann lesið um gullfiska? Hér hefurðu gullfiskabúr og hér synda gullfiskarnir í hring,“ segir Geir og teiknar fiskabúr með höndunum. „Þegar þú hellir þeim í baðkar synda þeir í hring. Eins er með mig. Þannig að ég geri ekki ráð fyrir miklum breytingum. Við erum þrælar vanans. Ég ætla ekkert að kaupa Cadillac og fara í fín föt. Ég er ákaflega ánægður með einfaldan lífs- stíl, eins og þú hefur séð. Nei, ég hef engin plön. Ég myndi vera frjálsari til að fara heim til Íslands. Eftir þrjá daga er ég hins vegar kominn með heimþrá og vil fara hingað. Mínir vin- ir eru dauðir, eða örkumla eða gam- almenni, allir nema Jón Ólafsson lög- fræðingur sem ég tala við næstum alla daga. Ég á ekki lengur heima á Íslandi. Þetta er mitt líf. Hér á ég heima,“ sagði Geir á heimili sínu í Mechanicsburg um helgina. Býður bílaþvottastöð til sölu  Fyrrverandi forstjóri Iceland Seafood hyggst minnka við sig í heimabæ sínum í Pennsylvaníu  Fluttist til Bandaríkjanna 1975  Verður 85 ára í ár  Mun líka reka áfram eina bílaþvottastöð Morgunblaðið/Baldur Arnarson Athafnamaður Geir Magnússon fór til Bandaríkjanna árið 1975 til að starfa fyrir dótturfélag Sambandsins, Iceland Seafood. Bílaþvottastöð Önnur af tveimur stöðvum sem Geir hefur rekið. Gömul og verðmæt íslensk frímerki og bréfaumslög seldust fyrir 18,7 milljónir króna að meðtöldum sölu- launum á 50 ára afmælisuppboði sænska frímerkjauppboðshússins Postiljonen í Malmö á dögunum. Þetta er nærri fjórum milljónum króna hærra verð en byrjunarboð hljóðuðu upp á. „Það er ánægjulegt að geta þess að stór hluti eigulegustu hlutanna sem í boði voru að þessu sinni rötuðu til íslenskra safnara,“ sagði Steinar Friðþórsson, starfsmaður hjá Post- iljonen, í samtali við Morgunblaðið. Stærsti hluti þess íslenska frí- merkjaefnis sem að þessu sinni var í boði kom úr safni erlends stórsafn- ara sem hefur verið iðinn safnari ís- lenskra frímerkja í hátt í hálfa öld. Nafn hans hefur ekki verið gefið upp en á uppboðinu var safn hans auð- kennt heitinu HÖFN með vísan í Höfn í Hornafirði sem safnarinn að eigin sögn hreifst mjög af eftir komu sína þangað fyrir allmörgum árum. Meðal áhugaverðs efnis á uppboð- inu var eina þekkta eintak af 20 aura grænbláu aurafrímerki frá árinu 1891 með rauðri svokallaðri „í gildi“- yfirprentun frá árinu 1902. Það seld- ist á 4.600 evrur, rúmlega 560 þús- und íslenskar krónur. Postiljonen hefur selt fjölda ís- lenskra frímerkja á undanförnum árum, mest til erlendra safnara. Mikla athygli vakti þegar uppboðs- húsið seldi frímerkjasafn Indriða heitins Pálssonar forstjóra fyrir um 70 milljónir íslenskra króna í mars 2016 til erlends stórsafnara. „Við höfum selt frímerkjaefni frá Íslandi fyrir um 157 milljónir króna á síð- ustu mánuðum,“ sagði Steinar Frið- þórsson í samtali við Morgunblaðið í fyrravor. gudmundur@mbl.is Flest frímerkin koma aftur heim  Um 19 milljónir fyrir íslensk frímerki á uppboði í Malmö Sjaldgæft Þetta gamla aurafrí- merki seldist fyrir um 560 þús. kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.