Morgunblaðið - 27.03.2018, Side 16

Morgunblaðið - 27.03.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 Sproti með viðarfótum - ýmsir litir í boði STOFNAÐ 1956 Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur s: 510 7300 www.ag.is Sproti 405 Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir 27. mars 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 98.95 99.43 99.19 Sterlingspund 139.46 140.14 139.8 Kanadadalur 76.5 76.94 76.72 Dönsk króna 16.372 16.468 16.42 Norsk króna 12.718 12.792 12.755 Sænsk króna 11.95 12.02 11.985 Svissn. franki 104.41 104.99 104.7 Japanskt jen 0.9424 0.948 0.9452 SDR 143.87 144.73 144.3 Evra 121.96 122.64 122.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.4195 Hrávöruverð Gull 1348.4 ($/únsa) Ál 2048.0 ($/tonn) LME Hráolía 69.11 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Samkvæmt nýrri úttekt Rannsókn- armiðstöðvar skapandi greina í Háskóla Íslands voru heildartekjur íslenska tónlistariðnaðarins á árun- um 2015-2016 um 3,5 milljarðar króna, auk 2,8 milljarða í afleiddar gjaldeyristekjur til samfélagsins vegna komu tónlistarferðamanna til landsins. Flutningur lifandi tónlistar stóð fyrir tæplega 60% af þessum tekjum en hljóðrituð tónlist og höf- undarréttur fyrir um 20% hvort. Rannsóknin er gerð að undirlagi Samtóns, Útón og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, þar sem markmiðið var að rannsaka hagrænt umhverfi tónlistar á Íslandi. Sigtryggur Baldursson, fram- kvæmdastjóri Útón, Útflutnings- skrifstofu íslenskrar tónlistar, segir í samtali við Morgunblaðið að könn- unin gefi góða vísbendingu um styrk greinarinnar, einkum hvað varðar tónleikahald og -hátíðir á Íslandi. Enn vanti betri gögn um útflutning íslenskrar tónlistar til að ná heild- stæðri niðurstöðu þar um. „Í mál- efnasamningi ríkisstjórnarinnar er sagt að vinna eigi að betri hagvísum fyrir skapandi greinar. Með þessari könnun stígum við fyrsta skrefið, og við ætlumst til að Rannsóknarmið- stöð skapandi greina fái umboð frá stjórnvöldum, eða hreinlega að Hag- stofan taki við boltanum í framhald- inu,“ segir Sigtryggur. Of góð í að flytja út listamenn Hann segir að afleiddar tekjur, tekjur af hótelgistingu, flugmiðum, bjórsölu o.fl., séu varlega áætlaðar í rannsókninni, en þær sýni glögglega þau miklu hagrænu áhrif sem tón- listarstarfsemin hafi hér á landi. „Við viljum að ríkið styðji við tónlistar- hátíðir, eins og Reykjavíkurborg gerir með sínum hátíðarsjóði. Sá stuðningur kæmi margfaldur til baka í afleiddum tekjum.“ Sigtryggur segir að könnunin eigi einnig að benda fólki á að það sé eftir miklu að slægjast ef íslenskir tónlist- armenn sem ná langt erlendis geri frekar út frá Íslandi en útlöndum. „Við teljum að nú sé einstakt tæki- færi fyrir athafnafólk með áhuga á tónlist til að stofna tónlistarforlög að erlendri fyrirmynd hér á landi. Þetta eru fyrirtæki sem annast allt í senn alþjóðlega markaðssetningu, dreif- ingu, sölu, höfundarréttarmál og bókanir. Vandinn síðustu ár hefur verið að við höfum verið að flytja „hráefnið“, tónlistarmennina, óunnið úr landi. Við erum eiginlega orðin of góð í því. Til framtíðar þarf að sjá betri uppbyggingu á litlum fyrir- tækjum hér í þessum geira. Þar eru mikil sóknarfæri.“ Sigtryggur segir að gjarnan sé tal- að fjálglega um mikilvægi listarinnar fyrir menninguna í landinu en ekki um raunverulega tekjuöflunarmögu- leika greinarinnar. „Listirnar eru mikilvæg starfsgrein.“ Samkvæmt niðurstöðum könnun- arinnar eru tónlistarmenn að stærst- um hluta karlmenn, en 70% svarenda voru karlkyns og 30% kvenkyns. Tekjur af tónlistarstarfsemi 3,5 milljarðar 2015 og 2016 Velgengni Hljómsveitin Kaleo er ein þeirra íslensku hljómsveita sem hafa verið að gera það gott erlendis. Tónlistariðnaðurinn » 1.292 tónleikar voru haldnir erlendis árið 2017. » Heildartekjur vegna tón- leikahalds erlendis voru 90- 227 milljónir króna. » Einungis þriðjungur tónlist- armanna hefur yfir 40% tekna af eigin tónlistarstarfsemi. » Helmingur þess hóps hefur fullar tekjur af tónlist. » Tónleikahald skilar 75% þeirra sem hafa tónlist að atvinnu mestum tekjum.  Afleiddar tekjur 2,8 milljarðar  Útón vill að ríkið styðji við tónlistarhátíðir Verðbólga mældist 2,8% í mars og er í fyrsta skipti í fjögur ár komin yfir markmið Seðlabankans sem er 2,5%. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,56% milli febrúar og mars. Að sögn Jóns Bjarka Bentssonar, aðalhagfræðings Íslandsbanka, er ekki víst að verðbólga fari aftur und- ir markmið bankans á næstunni. „Rauði þráðurinn í þróuninni síð- ustu mánuði er að verðbólga hefur stigið hraðar en greinendur áttu almennt von á vegna þess að hús- næðisliðurinn hefur verið á sigl- ingu,“ segir hann í samtali við Morg- unblaðið. Jón Bjarki bendir þó á að hægt hafi á hækkunartakti húsnæðis- verðs. Samkvæmt Hagstofunni hækkaði íbúðaverð um 13,2% und- anfarna 12 mánuði en hækkunin var 24% þegar mest lét síðasta sumar. „Tvennt togast á í skammtímaspá okkar. Það er annars vegar óvissan varðandi þróun íbúðaverðs. Haldi það áfram að hækka verulega er lík- legt að verðbólga fari vaxandi. Hins vegar vegur á móti óvissan um hvort gengi krónu muni styrkjast fram á haustið,“ segir Jón Bjarki. Spurður hvort það sé í kortunum að það hægi á hækkunum fasteigna- verðs segir hann: „Það eru runnar á okkur tvær grímur með það eftir hækkanir síðustu mánuði. Hækkun- in hefur reynst lífseigari en við reiknuðum með, sérstaklega hjá byggðarkjörnum á landsbyggðinni sem eru í þægilegu ökufæri frá höf- uðborgarsvæðinu og þar sem hefur verið uppgangur. Dæmi um það er Reykjanes, Árborg og Akranes.“ helgivifill@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Seðlabanki Í fyrsta skipti í fjögur ár fór verðbólga yfir markmið . Verðbólgan fór yfir markmið SÍ  Hefur aukist hraðar en grein- endur áttu von á Berþóra Þorkels- dóttir mun láta af starfi forstjóra Íslensk- Ameríska um komandi mán- aðamót. Berg- þóra tók við starfi forstjóra ÍSAM í árslok 2015 en áður hafði hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá Fast- usi, sem er dótturfélag ÍSAM. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, segir að ákvörðunin sé tekin í góðri sátt milli aðila. Nú bíði það verkefni stjórnarinnar að finna eftirmann Bergþóru. ÍSAM á einnig Mylluna, Ora, Frón og Kexverksmiðjuna á Ak- ureyri. Innan tíðar mun starfsemi fyrirtækjanna flytjast að Korpu- torgi. Lætur af starfi forstjóra Bergþóra Þorkelsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.