Morgunblaðið - 27.03.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk
Rússneskir rannsóknarmenn og
sjónarvottar segja að neyðarútgang-
ar hafi verið lokaðir og brunaviðvör-
unarkerfi ekki verið í gangi þegar
eldur geisaði í verslunar- og afþrey-
ingarmiðstöð í námuborginni Kem-
erovo í Síberíu. 64 létu lífið í eldsvoð-
anum, þeirra á meðal mörg börn sem
voru lokuð inni í kvikmyndasal.
Eldurinn kviknaði í efstu hæð
fjögurra hæða byggingar klukkan
fjögur e.h. að staðartíma í fyrradag
þegar mikið margmenni var í versl-
unum, kvikmyndasölum og keilusöl-
um byggingarinnar.
Rússneskir fjölmiðlar höfðu eftir
embættismönnum sem rannsaka
eldsvoðann að útgangar hefðu verið
lokaðir og komið hefðu í ljós „alvar-
leg brot“ á eldvarnareglum. Hermt
er að slökkvitæki hafi ekki verið í
lagi og tæknimaður, sem annaðist
eldvarnir miðstöðvarinnar, er sagð-
ur hafa slökkt á viðvörunarkerfinu
eftir að það hafi farið í gang vegna
brunans. Maðurinn var handtekinn
og færður til yfirheyrslu ásamt fjór-
um öðrum mönnum, m.a. yfirmanni
fyrirtækis sem rekur miðstöðina.
Rannsóknarmennirnir sögðu að
mestur hluti þaks byggingarinnar
hefði hrunið. Sjónarvottar sögðu að
börn hefðu lokast inni í kvikmynda-
sal vegna þess að útgöngudyrnar
hefðu verið læstar.
Faðir sem missti þrjár dætur í eld-
inum sagði að ein þeirra hefði hringt
í hann til að segja honum að þær
gætu ekki opnað dyrnar. „Ég hróp-
aði til hennar að reyna að komast út
úr kvikmyndasalnum en gat ekkert
gert, það var allt í logum fyrir fram-
an mig,“ hefur fréttaveitan AFP eft-
ir honum.
Eldsupptök ókunn
Ekki var vitað um upptök eldsins.
Haft var eftir aðstoðarhéraðsstjóra í
Kemerovo að grunur léki á að eldur-
inn hefði kviknað þegar barn hefði
leikið sér að kveikjara á fjaðradýnu
og hún fuðrað upp. Það hefur þó ekki
verið staðfest og rússneska ríkis-
sjónvarpið sagði að talið væri líklegt
að kviknað hefði í út frá rafmagni
eins og í flestum fyrri stórbrunum í
Rússlandi.
Mörg börn lokuðust
inni í byggingunni
64 fórust í eldsvoða í verslunar- og afþreyingarmiðstöð
AFP
Mannskæður bruni Slökkviliðsmenn reyna að slökkva eld í verslunar- og afþreyingarmiðstöð í Kemerovo í Síberíu.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Bandaríkjunum, sextán
aðildarríkjum Evrópusambandsins
og fleiri löndum ákváðu í gær að vísa
tugum rússneskra stjórnarerindreka
úr landi vegna tilraunar til að ráða
fyrrverandi rússneskan njósnara af
dögum í Bretlandi. Brottvísanirnar
eru álitnar mikill sigur fyrir stjórn
Theresu May, forsætisráðherra
Bretlands, og benda til þess að af-
staða Donalds Trumps Bandaríkja-
forseta til stjórnvalda í Kreml hafi
harðnað verulega, að sögn stjórn-
málaskýrenda.
Ráðamennirnir í Rússlandi neituðu
enn ásökun breskra stjórnvalda um
að þeir hefðu staðið fyrir tilraun til að
myrða Sergej Skripal, fyrrverandi
rússneskan njósnara sem var á mála
hjá bresku leyniþjónustunni. Rússar
sögðust ætla að svara þessum „óvin-
samlegu aðgerðum“.
„Svara notkun Rússa
á efnavopni“
Stjórn Bandaríkjanna vísaði alls 60
meintum njósnurum Rússa úr landi,
tæpri viku eftir að Trump hafði virt
ráð sérfræðinga sinna að vettugi og
óskað Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seta til hamingju með endurkjörið í
umdeildum kosningum. Þetta eru
mestu brottvísanir rússneskra eða
sovéskra stjórnarerindreka í sögu
Bandaríkjanna. Áður hafði stjórn
Trumps vísað 35 rússneskum stjórn-
arerindrekum úr landi vegna tilrauna
Rússa til að hafa áhrif á kosningarnar
í Bandaríkjunum í nóvember 2016.
Bandarískir embættismenn sögðu
að 48 brottræku leyniþjónustumann-
anna væru við sendiráð og ræðis-
mannsskrifstofur en tólf skráðir sem
stjórnarerindrekar í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í New York.
Nikki Haley, sendiherra Bandaríkj-
anna hjá SÞ, fagnaði ákvörðun
stjórnarinnar og sagði að Rússar
hefðu notað höfuðstöðvar samtak-
anna sem „griðastað fyrir hættulega
starfsemi innan landamæra Banda-
ríkjanna“. Embættismennirnir sögðu
að skrifstofu aðalræðismanns Rúss-
lands í Seattle yrði einnig lokað.
Sextán aðildarlönd Evrópusam-
bandsins ákváðu að vísa alls 33 rúss-
neskum stjórnarerindrekum úr landi.
Á meðal þeirra eru öll norrænu ríkin í
Evrópusambandinu, Danmörk, Finn-
land og Svíþjóð. Stjórnvöld í Úkraínu
vísuðu þrettán Rússum úr landi,
Kanada fjórum, Albanía tveimur og
Noregur einum.
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna sögðu í vikunni sem leið að mjög
líklegt væri að rússnesk stjórnvöld
hefðu staðið fyrir tilrauninni til að
myrða Skripal með taugaeitri, fyrstu
árásinni með efnavopni í Evrópu frá
síðari heimsstyrjöldinni. Talsmaður
Trumps, Sarah Sanders, sagði í gær
að með þessum brottvísunum væru
Bandaríkin og samstarfslönd þeirra
að „svara notkun Rússa á efnavopni á
bresku landsvæði“.
May sagði að með því að sýna Bret-
um samstöðu með brottvísunum
rússneskra stjórnarerindreka væru
samstarfsríkin að senda Rússum
sterk skilaboð. „Við fögnum aðgerð-
um bandamanna okkar í dag, þær
sýna skýrt að við stöndum öll þétt
saman og sendum Rússum mjög
sterk skilaboð um að þeir geti ekki
haldið áfram að virða alþjóðalög að
vettugi,“ sagði forsætisráðherrann.
Boris Johnson, utanríkisráðherra
Bretlands, lýsti aðgerðunum sem
mestu fjölþjóðlegu brottvísunum
rússneskra leyniþjónustumanna í
sögunni.
Tugum Rússa vísað úr landi
Bandaríkin, ESB-lönd og fleiri ríki vísa rúmlega 110 Rússum úr landi vegna morðtilræðis með
taugaeitri í Bretlandi Talið mikill sigur fyrir May og til marks um harðari afstöðu Trumps til Pútíns
Fjöldi brottvísana frá löndum sem gripið hafa til aðgerða vegna málsins
Brottvísanir úr landi í tengslum við Skripal-málið
RÚSSLAND
LETTL.
BANDARÍKIN
1
EISTL.1
KANADA
HOLL.
DANMÖRK
4
4
FRAKKL.
ÍTALÍA
ALBANÍA
ÚKRAÍNA13
PÓLLAND2
2
2
2
TÉKKLAND
FINNLAND
SVÍÞJÓÐ*
RÚMENÍA*
KRÓATÍA*
23
BRETLAND
LITH.
Washington
Seattle
NewYork
London
Moskva
60
ÞÝSKALAND 4
4
3
3
Salisbury
4. mars
Árás gerð
með tauga-
eitri gegn
Sergej
Skripal og
dóttur hans48 úr sendiráði og ræðis-
mannsskrifstofum, 12 úr
höfuðstöðvum SÞ
1
1
Breskum stjórnarerind-
rekum vísað úr landi
23RÚSSLAND
* Fjöldi liggur ekki fyrir
NOREGUR
UNGVERJAL.
1