Morgunblaðið - 27.03.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 27.03.2018, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 ykkur ömmu til Lech á skíði. Þeg- ar mér var tilkynnt að mér væri boðið með sagðist ég því miður ekki komast vegna þess að ég væri að fara í æfingaferð í hand- boltanum til Þorlákshafnar. En sem betur fer var hægt að tala mig til og ég fór í skíðaferðina. Fljótin eiga stað í hjörtum okk- ar allra í fjölskyldunni, það var sveitin þín. Þú varst alltaf svo spenntur þegar við vorum að fara að veiða og varst allt í öllu. Nú seinni árin hringdum við í þig til að láta þig vita hvernig veiðin gengi. Börnin mín voru svo lánsöm að fá að kynnast þér. Það myndaðist sérstakt samband á milli ykkar. Þú varst alltaf svo áhugasamur um þau og vildir vera inni í þeirra lífi. Því verð ég ævinlega þakklát. Núna þarf ég að útskýra fyrir þeim hvar elsku besti langafi er og það getur stundum verið erfitt. Takk fyrir allt, elsku besti afi minn. Ég er svo þakklát fyrir allt sem við áttum saman. Núna ertu kominn á betri stað og líður mun betur. Þangað til næst. Þín Kristín Brynja Gústafsdóttir. Elsku afi. Nú hefur þú kvatt þetta líf og löngu og farsælu ævi- starfi þínu er lokið. Þótt við vitum að dauðinn bíður okkar allra erum við aldrei viðbúin þegar sá sem er okkur kær er kvaddur á brott. Þakklæti er okkur systkinum efst í huga þegar við kveðjum þig, elsku afi, því margs er að minnast og gleðjast yfir öllum þeim stund- um sem við fengum að njóta með þér. Þegar við lítum til baka rifjast upp allar yndislegu samveru- stundirnar með þér og ömmu í Álftamýrinni. Vikulegur laugar- dagsgrautur með stórfjölskyld- unni þar sem þú settist í hæginda- stólinn þinn eftir grautinn og ræddir við okkur um dægurmálin og spurðir hvernig gengi í skóla og vinnu. Flatkökubakstur í bíl- skúrnum og ómissandi lauf- brauðsbakstur fyrir jólin vekur hlýjar minningar sem og stuttar einlægar heimsóknir með spjalli um daginn og veginn. Alltaf tókuð þið amma á móti okkur með hlýju og væntumþykju. Álftamýrin var alltaf mikið athvarf og griðastað- ur frá amstri hversdagsins, öll vandamál voru einfaldlega skilin eftir við dyrnar þegar við gengum inn. Slík hlýja er ekki sjálfgefin og maður áttar sig á því seinna á lífs- leiðinni hversu heppin við vorum að eiga þig að. Það er ekki hægt að minnast þín án þess að hugsa til yndis- legra minninga um ykkur ömmu fyrir norðan í sveitinni, þar kenndir þú okkur að leggja kapal, fórst með okkur í berjamó og að veiða silung. Þú tókst okkur einn- ig með þér í ófáar skíðaferðir í Bláfjöll og á Siglufjörð, þar sem þú kenndir okkur á skíði og laum- aðir að okkur bláum ópal í stóla- lyftunni. Það er ómetanlegt að þú fékkst einnig að kynnast barna- barnabörnunum þínum og fyrir það erum við óendanlega þakklát. Hvíl í friði elsku afi, minning þín lifir í hjörtum okkar. Ragna Hlín og Kári Björn Þorleifsbörn. Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur, haginn grænn og hjarnið kalt hennar ástum tekur. (Hannes Hafstein.) Afi Björn kunni ógrynni af vís- um, ljóðum og sögum sem hann fór reglulega með fyrir mann við ýmis tækifæri. Ein af mínum fyrstu minningum er að sitja í fanginu á afa og biðja hann um að segja mér söguna um kirkjusmið- inn á Reyni en þessa sögu bað ég ítrekað um að heyra í hvert skipti sem við hittumst. Afi Björn átti langa og farsæla ævi en ég fékk þann heiður þegar ég var nem- andi við Verzlunarskóla Íslands að taka viðtal við hann um ævi hans í tengslum við verkefni í ís- lensku. Við hittumst í nokkur skipti og afi fór yfir líf sitt, alveg frá barnsaldri og fram á efri ár en þessi tími var ein besta samveru- stund sem við höfum átt saman. Ég gæti í raun skrifað margar blaðsíður um þær ánægjulegu samverustundir sem við höfum átt, samverustundir sem ég er mjög þakklátur fyrir. Hvíl í friði, elsku afi minn, og takk fyrir allt. Ragnar Freyr. Það að fá að alast upp með öfum og ömmum hafa lengi verið talin forréttindi og því getum við bræð- ur verið hjartanlega sammála. Þegar litið er til baka á ótal minn- ingar og samverustundir með Birni afa klökknar maður, sumar minningar eigum við með honum einir en öðrum deilum við. Allir eigum við sameiginlegt að hafa í fyrsta skipti sest undir stýri með afa í Fljótum í Skagafirði á ferðum fjölskyldunnar að Ysta-Mói. Í sveitinni lærði maður margt; að veiða og verka fisk, moka flór og auðvitað það mikilvægasta – að samverustundir með fjölskyldu eru ómetanlega verðmætar. Afi hefur alltaf verið okkur bræðrum frábær fyrirmynd og kennari. Þegar horft er til baka er óhjá- kvæmilegt að hugsa til skíðaferða með afa í Bláfjöll, Skálafell eða á Sigló. Þar var hart barist um að fara með afa upp í lyftu eða í nest- istíma. Það var ekki bara vegna þess að afi var frábær, fyndinn og skemmtilegur heldur lumaði hann oft á góðum mola, Werther’s Orig- inal eða ópal. Þrátt fyrir að það hafi verið aukabónus þegar maður var yngri, er gaman að líta nú til baka og átta sig á að verðmætin fólust alls ekki í molanum heldur miklum gæðastundum með frá- bærum manni. Við ólumst upp í mikilli íþrótta- fjölskyldu og má segja að afi hafi þar sett tóninn. Hvort sem um var að ræða skíði, hjól, blak, brids eða aðrar íþróttir, afi gat þetta allt. Hann hjólaði daglega í Laugar- dalslaug og þegar aldurinn færð- ist yfir stoppaði það hann ekki heldur fékk hann sér hentugra hjól til að komast leiðar sinnar. Við bræðurnir höfum alltaf get- að leitað til afa og ömmu. Á ákveðnu aldursskeiði kvarta sum- ir kannski undan því að fara of oft til ömmu og afa. En við bræðurnir höfum aldrei upplifað það. Hvert einasta laugardagshádegi frá því við munum eftir okkur hittist fjöl- skyldan í grjónagraut hjá ömmu og afa í Álftamýri og skipar „grauturinn“ stóran sess í uppeldi okkar. Að koma saman einu sinni í viku með Rögnu ömmu, Birni afa og öllum börnum, barnabörnum og seinna barnabarnabörnum þeirra er sennilega dýrmætasti fjársjóðurinn. Það er þannig ömmu og afa að þakka að stór- fjölskyldan þekkist jafn vel og hún gerir í dag. Þegar við vorum ungir var venjan að barnabörnin fengu pen- ing fyrir „blandi í poka“ eftir grautinn í Álftamýri. Auðvitað sá afi sóknarfæri í þessum nam- mióðu barnabörnum sínum og setti okkur fyrir ljóð til að læra og flytja svo fyrir hann í næsta graut. Það fór að sjálfsögðu eftir aldri barna hversu erfitt ljóðið var. Þegar þú svo reyndir við ljóðið næsta laugardag fékkstu 100 krónur, ef þú þurftir að styðja þig við blað fékkstu 150 krónur og ef ljóðið var flutt blaðlaust var stundum hægt að vinna sér inn 200 krónur. Afi var að sjálfsögðu dómari í þessari keppni og sann- gjarnari, glaðlegri og meira hvetj- andi dómara var ekki hægt að hugsa sér. Að þessum lærdómi búum við bræður enn í dag og þegar spurt er hvers vegna í ósköpunum maður kunni ákveðin ljóð eða texta getur maður brosað, hugsað til baka og svarað: Við átt- um besta afann. Björn Orri, Ásgrímur og Hjörtur. Margur fær í einkaarf eigingirni og hroka. Það er list sem læra þarf að láta í minni poka. (Hjörleifur Jónsson Gilsbakka.) Afi Björn fór með þessa vísu fyrir einhverju hálfu ári. Það var eitthvað við þessa vísu sem ég tengdi alveg sérstaklega við og er afa þakklátur fyrir að hafa kynnt mér hana og ljóðskap yfir höfuð. Hann fór reglulega með alls kon- ar ljóð og vísur sem gerðu mig undrandi og fullan aðdáunar. Ég skil ekki hvernig hann gat munað þetta allt. Þakklæti er mér ofarlega í huga þegar ég lít um öxl og hugsa um samverustundir okkar. Þau óteljandi skipti sem ég fór eftir skóla í heimsókn og réðist á ís- skápinn þeirra afa og ömmu og lagði mig svo í sófanum í stofunni eða á beddanum hans afa. Hádeg- ið á laugardögum í Álftamýri að borða graut með stórfjölskyld- unni og barnabörnin fengu hvert sinn hundraðkall til að kaupa nammi. Hversu vel afi hugsaði um fuglana sem komu í heimsókn til hans, það var alltaf eitthvað gott fyrir þá í boði. Þegar ég fékk að sitja í fanginu á afa og stýra bíln- um hans í veiði í Fljótunum og síð- ar að keyra bílinn sjálfur undir vökulum augum hans. Þessar minningar og fleiri mun ég varðveita allt mitt líf. Til Reykjavíkur lagði leið langt frá heimahögum. Lifði út sitt æviskeið við graut á laugardögum. (GÓG.) Takk fyrir allt, afi minn. Gunnar Óli. Það var í byrjun febrúar 1970 að undirritaður kom til starfa sem fulltrúi í fjármálaráðuneytinu, ný- útskrifaður úr HÍ. Þá var Magnús Jónsson fjármálaráðherra, og Jón Sigurðsson, sá frábæri embættis- maður, ráðuneytisstjóri. Í brúnni sem skrifstofustjóri í tolladeild ráðuneytisins var Björn Hermannsson lögfræðingur. Eitt af aðalverkefnum mínum fyrstu árin var að vinna undir stjórn Björns í tolladeild ráðu- neytisins. Björn var afar farsæll embættismaður, traustur, vand- virkur og sanngjarn í öllum sínum störfum, svo ekki varð að fundið. Þá var hann sjálfum sér sam- kvæmur í öllum embættisgjörð- um og fastur fyrir ef á þurfti að halda. Ísland hafði hinn 1. janúar 1970 gerst aðildarríki að Fríverslunar- bandalagi Evrópu, EFTA, og var aðalverkefni tolladeildar ráðu- neytisins að vinna að aðlögun inn- lends iðnaðar að fríverslun innan EFTA. Þetta var alger bylting í sam- keppnisumhverfi íslensks iðnaðar og krafðist umbyltingar á ís- lensku tollskránni eftir skuld- bindingu okkar um niðurfellingu verndartolla á innfluttum iðn- varningi frá aðildarlöndum EFTA, samhliða niðurfellingu allra innflutningsgjalda á vélum og hráefnum til íslenskra iðnfyr- irtækja til að mæta nýrri sam- keppni. Þetta krafðist jafnframt um- fangsmikils samstarfs við fjölda aðila, m.a. við Félag íslenskra iðn- rekenda og umfangsmikils alþjóð- legs samstarfs, bæði innan EFTA en einnig við önnur Norðurlönd. Í raun voru þetta trúlega mestu kaflaskipti í atvinnusögu Íslendinga á 20. öld, eða frá heimskreppunni miklu, og í raun mun meiri tímamót en EES- samningurinn 1993. Þetta verkefni var af hálfu ráðuneytisins undir stjórn Björns Hermannssonar og verður ekki annað sagt en að það hafi verið frábærlega af hendi leyst, sér- staklega ef litið er til þess hversu fámenn stjórnsýslan var á þess- um árum, enda var oft unnið myrkranna á milli, oft alla daga vikunnar. Hinn 1. janúar 1973 var Björn að verðleikum skipaður tollstjóri í Reykjavík, sem hann gegndi þar til hann lét af störfum árið 1997 eftir meira en 40 ára farsælan embættisferil. Eftirlifandi eiginkona Björns er Ragna Þorleifsdóttur hjúkrun- arfræðingur, og varð þeim fimm barna auðið. Íslendingar almennt gera sér trúlega oft ekki grein fyrir því hve embættismenn landsins vinna oft af mikilli trúmennsku og ósérhlífni við hin erfiðustu verkefni sem stærri þjóðir hafa her manns til að leysa af hendi. Ef til vill er það vegna þeirrar at- hygli sem stjórnmálamenn þjóð- arinnar fá á hverjum tíma og jafnvel gera kröfu til, en hræddur er ég um að lítið yrði úr þeirra „afrekum“ ef þeir ekki hefðu við að styðjast afburðafólk í Stjórn- arráði og stjórnsýslu landsins, sem í raun ræður miklu meira um framvindu góðra mála og fram- fara landsins alls heldur en oft á tíðum stjórnmálamennirnir vilja vera láta, hvaðan svo sem úr flokki þeir koma. En þetta hefur íslensk stjórnsýsla afrekað í 100 ár eða allt frá fullveldi Íslands 1918. Mættu stjórnmálamenn gjarn- an minna þjóðina oftar á að hún stendur í mikilli þakkarskuld við stjórnsýslu landsins, sem í raun ef tekið er tillit til allra aðstæðna, er í Meistaradeild Evrópu hvað gæði og heiðarleik snertir, svo notað sé orðfæri úr íþróttaheim- inum. Í þeirri sveit frábærra emb- ættismanna mun nafn Björns Hermannssonar skína skært um ókomin ár. Meira: mbl.is/minningar Þorsteinn Ólafsson. Af ýmsum ástæðum verða sumir manni eftirminnilegri en aðrir og þannig verður því háttað með Björn Hermannsson. Nokkrir tugir ára eru síðan ég hitti hann fyrst og þá þegar skap- aðist virðing fyrir honum sem bara óx með árunum. Ekki var það þó embættismannsfas sem henni olli heldur rótaðist hún og gréri upp af því að njóta sem gestur tengdasonarins leiðsagnar Björns við veiðiskap og annað slíkt stúss í hans heimasveit. Björn var að mínu viti eitt af þessum náttúrubörnum og af kynslóð sem numið hafði flestallt um landsins gagn og nauðsynjar og reynt á eigin skinni, sem sköp- um skipti. Miðlun hans á veiði- reynslu og verklagi var ekki af neinni lausung og jók á virðingu fyrir náttúru og umhverfi. Hafði Björn gjarnan það lag á hlutum að eftir að hann hafði fylgt mönn- um til veiða gekk hann sjálfur til berja eða slíks og fylgdist með úr fjarlægð en í lok vaktar var hann mættur með góðar ábendingar sem hann áréttaði kímandi. Þó voru það jafnan hinar ósögðu at- hugasemdir sem virkuðu ekki síður. Allt þetta þakkar maður með virktum. Hér rifjast um leið upp kvöldvökurnar þar sem unað var við söngl af ýmsum toga, sög- ur og aðra glaðværð, og tomma ekki eftir gefin. Því verður von- andi haldið áfram og hans þar minnst með viðeigandi hætti. Segja má að í Fljótunum hafi Björn notið heimavallarins. Und- irspil sveitarinnar skemmdi ekki fyrir, mosagræn fjöll til eggja, kyrrlát vötnin og öldugjálfrið í víkinni þar sem blámi norður- hafsins blasti við með sínum óendanleika. Sólböðuð sveit óháð því hvernig viðraði. Við Sigrún sendum samúðarkveðjur til allrar fjölskyldunnar. Andri Árnason. „Sjá, tíminn, það er fugl sem flýgur hratt.“ (Omar Khajjam – Magnús Ásgeirsson) Þrír aldarfjórðungar, örskots- stund sem er liðin hjá fyrr en var- ir. Það voru vegaskil í lífi okkar krakkanna á Siglufirði þegar við sátum bjartan og svalan haust- morgun í fyrstabekkjarstofunni í Gagnfræðaskólanum á kirkju- loftinu. Við höfðum flest verið saman í hóp síðan við vorum smá- börn í barnaskólanum á Eyrinni, höfðum lokið fullnaðarprófi í maí og vorum nú hér í nýrri mennta- stofnun, um það bil tuttugu börn, flest ófermd enn. En það hafði bæst í hópinn. Nokkrir krakkar, sumir nokkuð langt að komnir, voru með okkur, greinilega stað- ráðnir í að nema þau forvitnilegu fræði sem í boði voru í þessum risháa loftsal. Meðal þeirra var piltur ljós yfirlitum, ekki ýkja hár en traustlegur, greinilega ungur maður sem veigur var í. Ég áttaði mig þegar við höfðum heilsast. Þetta var Björn frá Mói. Ég hafði oft séð föður hans og vissi að það var forn vinátta með foreldrum okkar. Fljótt kom í ljós að þetta yrði glaðvær og skemmtilegur hópur. Við nutum samvistanna, færð- umst stofu úr stofu, bekk úr bekk, glöð og áhyggjulaus þó að heimsstyrjöld geisaði og lukum gagnfræðaprófi í þann mund sem stríðinu lauk í Evrópu. Björn var þó ekki með okkur um vorið. Hann hafði síðla vetrar haldið til Akureyrar við þriðja mann til að taka próf upp í Menntaskólann. Það tókst vel en hins vegar varð hann fyrir því að missa nánast allar eigur sínar í eldsvoða utan slitur af bankabók sem hann fann er hann leitaði muna sinna í rúst- unum. Ári seinna fór ég norður. Við sögðum yfirleitt norður á Akur- eyri þó að það væri raunar suður. Ég tók próf með Birni og við urð- um samferða til stúdentsprófs. Þarna fóru í hönd æskuglaðir tímar. Við nutum þess að vera til. Svo hrönnuðust upp óveðursský er við vorum í sjötta bekk. Ak- ureyrarveikin geisaði, þeytti sumum brott úr hópnum, skildi aðra eftir sára. Við Björn vorum ekki síður heppnir með samferða- fólk á Akureyri en á Siglufirði. Ég get ekki hugsað mér betra fólk og tryggara en bekkjarsystkini okkar þar. Það skemmtilegasta og tor- skildasta við þau er það að þau eld- ast lítið, eru sömu unglingarnir og þau voru fyrir miðja síðustu öld. Vorið 1949 var óvenju kalt, ekk- ert lauf á trjánum í Lystigarðinum þegar stúdentsmyndin var tekin. Og lífið sjálft beið okkar. Það kynni að næða um okkur í veröld- inni þegar þryti skjól af skóla. En Björn var sami trausti drengurinn og fyrrum, farsæll háskólastúdent og heilsteyptur embættismaður sem í engu brást því sem honum var til trúað. Hann var einnig svo heppinn að eignast mannkosta- konu sem var honum samboðin í einu og öllu, Rögnu Þorleifsdóttur úr Hrísey. Henni og öðrum ástvin- um Björns samhryggjast bekkjarsystkinin úr MA og biðja þeim allrar blessunar. Við sitjum sólbjartan sumardag á veröndinni hjá Birni, þrír gamlir vinir af kirkjuloftinu á Siglufirði. Fátt sem máli skiptir hefur breyst þessa örskotsstund sem flogin er hjá þó að liðnir séu rúmlega þrír aldarfjórðungar síðan við áttumst fyrst orð við. Ólafur Haukur Árnason. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku Ragna okkar. Við send- um þér og fjölskyldu þinni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Birna, Pétur og dætur. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EYSTEINN SVEINBJÖRNSSON, Suðurlandsbraut 66, lést 18. mars á hjúkrunarheimilinu Mörk. Útför hans fór fram í kyrrþey mánudaginn 26. mars. Innilegar þakkir færum við starfsfólki Markar fyrir góða umönnun. Ingibjörg Eysteinsdóttir Sigurður Steinarsson Sjöfn Eysteinsdóttir Valdimar Gunnarsson Sveinbjörn Eysteinsson Dóra Jóhannesdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýndan samhug og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs föður, tengdaföður, afa og langafa, ÆVARS JÓHANNESSONAR tækjafræðings. Jóhannes Ævarsson Sif Garðarsdóttir Sigríður Ævarsdóttir Benedikt Líndal Þórarinn Ævarsson Barbara Ómarsdóttir Ólöf Ævarsdóttir Björn Bögeskov Hilmarsson og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.