Morgunblaðið - 27.03.2018, Page 29

Morgunblaðið - 27.03.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14 TILBOÐS- DAGAR Vertu velkomin í sjónmælingu Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert svo sannarlega fagurkeri og hefur frábæran smekk. Þú býrð líka yfir miklum ástríðum og kynþokka og vilt vera með á nótunum í nútímanum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert í góðu formi í dag! Þig langar til að daðra, leika þér og vera í sambandi við fólk. Þú ert skapandi, forvitin og fram- takssöm manneskja. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér getur orðið ágengt í vinnunni í dag vegna þess að yfirmenn eru móttæki- legir fyrir uppástungum þínum. Vertu lít- illátur en leyfðu þér að njóta árangursins. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér hættir um of til að draga þig í hlé frá fólki en ert nauðbeygður til að hlusta á skoðanir þess og taka tillit til þeirra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er mikil hætta á deilum í dag. Hlustaðu vandlega þegar ástvinir tala og hlustaðu á allt sem þeir hafa fram að færa. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú færð óvenjumikið út úr því að vera með vinum þínum í dag. Brettu upp ermarnar, þú verður kraftmeiri en endranær á næstu vikum og bætir skipulag þitt til muna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt öllum séu sett einhver takmörk myndi fátt gerast ef enginn freistaði þess að komast örlítið lengra. Ekki láta rugling koma í veg fyrir að þú þorir að tjá þig í framtíð- inni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ekki láta það á þig fá þótt yfir- menn og foreldrar séu að gera út af við þig um þessar mundir. Þú getur lært ýmislegt af öðrum í dag. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Horfðu ekki fram hjá því að verk þín kunna að valda einhverjum erfiðleikum, þótt margir njóti góðs af. Haltu fast á mál- um og láttu engan bilbug á þér finna. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gakktu úr skugga um alla hluti áður en þú gengur að samningaborði. Forð- astu að vera með stóryrtar yfirlýsingar um líf annarra. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þegar þú hefur enn ekki komist yfir það sem þú óskar þér, skaltu herða upp hugann. Einhverjir eiga eftir að koma þér á óvart, annaðhvort með gjafmildi eða frekju- gangi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur nú byrinn með þér og ert fær í flestan sjó. Ekki reyna að þröngva ráð- gerðum þínum upp á aðra, leyfðu hlutunum að ráðast. Eitt skref í einu. Sigmundur Benediktsson gerirnýsamþykkt lög frá alþingi að yrkisefni á Leirnum og segir: „tel ég einboðið að gefa verði út nýtt eyðublað til lögvarðrar fullnustu já- kvæðs samþykkis aðila fyrir kyn- mök“: Ef að gera ætla það allt svo jákvætt flæði skráð og vottað skýrslublað skrifi undir bæði. Jón Arnljótsson tekur undir: Þessum hlýða bókstaf ber Bragnar vel því merkið: Þegar skjali þinglýst er, þá má hefja verkið. Ólafur Stefánsson var með á nót- unum: Um helgina hugðist’ ann reyna, að hitta og fordjarfa meyna. Um háttvirt bað svar: hvenær og hvar, og hvort að það kæmi til greina? Síðan fékk Sigmundur eftir- þanka: „En málarýni þingheims er nú samt ekki alltaf óskeikul“: Þingheimur með visku fylltan frama færði lögskráningu með það sama, en verkferlarnir verða þrátt til ama, því velflestum mun hætt að standa’ á sama. Á laugardagskvöldið orti Pétur Stefánsson: Þurr og leiður þreyi hér, þungt ég styn af ekka: Bara ef einhver byði mér brennivín að drekka. Og fékk óðara kveðju úr Mý- vatnssveit frá Friðrik Steingríms- syni: Langt á milli okkar er sem erfið reynist glíma, svo brennivínið býð ég þér bara í gegnum síma. Þá kvað Sigmundur Benedikts- son: Öllu sláið upp í grín óðara þá hittist, ef þið breytið vatni í vín vegalengdin styttist. Enn er ort og sami tónninn sleg- inn, – Páll Imsland heilsar leirliði í rökkrinu og segir: „Það er þetta með þurrkinn!“: Þurrt er veður, þurr er sál, þurr er ég í kverkum. Þetta’ er að verða mæðumál. Mér bregst allt í verkum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Nýtt eyðublað og þurrkur á laugardagskvöldi „AF HVERJU ERTU AÐ KVARTA? ÞEIR FELLDU NIÐUR FLESTA AF ÁKÆRULIÐUNUM.“ „HEPPINN ÉG AÐ HITTA Í STÖNGINA!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... stundum nær en þú heldur. HVERS VEGNA KYSSIR ÞÚ MIG ALDREI SVONA, GRETTIR? GÓÐA NÓTT, LÍSA HEY! ÉG ER AÐ BORÐA! VÁ, ÞETTA VAR GÓÐUR KOSS HEPPINN ERTU HRÓLFUR! ÞÚ SITUR VIÐ HLIÐINA Á FJÁRSJÓÐI! EKKI BARA SITJA ÞARNA! HJÁLPAÐU MÉR AÐ GRAFA EFTIR FJÁRSJÓÐNUM! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Páskarnir eru langsamlega bestahátíðin, sagði góðkunningi Vík- verja í kaffispjalli helgarinnar. Maðurinn hafði komið sér vel fyrir með rótsterkan bolla sér við hönd og staðhæfði þetta eins og ekkert væri sjálfsagðara. En hvað með jól- in, með stóru steikunum og pökk- unum? spurði Víkverji í forundran. x x x Áralöng reynsla mín hefur leittþetta í ljós, sagði félaginn spekingslega. Það er allt of mikið stress um jólin. Allir á harðaspani að undirbúa, allt verður að vera slétt og fellt og svo þegar kemur að hápunktinum eru eiginlega allir búnir á því. Enginn nýtur hátíð- arinnar að fullu því það þarf að þrífa, kaupa inn, elda, pakka inn gjöfum, skrifa kort og svo fram eft- ir götunum. x x x Satt er það, en hvað er svona gottvið páskana? spurði Víkverji. Jú, þú getur eldað og borðað það sem þú vilt, það er engin pressa og börnin eru hæstánægð svo lengi sem þau fá sæmilegt páskaegg. x x x Kaffið var búið og félaginn hvarfá braut. Eftir sat Víkverji og fór í huganum yfir þennan boðskap. Þegar að var gáð var augljóst að þetta er allt saman satt og rétt og ætti að vera hverjum manni ljóst: Páskarnir eru langbesta hátíðin. x x x Augljóst er að Víkverji á góðadaga fyrir höndum. Fimm dag- ar í áhyggjulausu afslappelsi. Góður matur, nægur svefn og súkkulaði- egg. Göngutúrar í ljúfu vorveðrinu. Hámhorf á hámhorf ofan. Kannski Víkverji setjist niður í bjórkollu með félögunum. Eða fari í bíó. x x x Réttast væri þó að nýta tímann íeitthvað gáfulegt eins og að taka til í geymslunni eða mála eitt eða tvö herbergi. Jafnvel byrja vor- verkin í garðinum. Hvernig væri að koma stafræna myndasafninu loks í almennilegt horf? Æ, þar fór það. vikverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn. (Lúk: 1.68)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.