Morgunblaðið - 27.03.2018, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Ateria fór með sigur af
hólmi í Músíktilraunum á laugardag-
inn en hún er skipuð þremur ungum
konum, þeim Ásu Ólafsdóttur sem
verður 18 ára í næsta mánuði, systur
hennar Eiri sem er 15 ára og frænku
þeirra Fönn sem er aðeins 12 ára en
verður 13 ára eftir tæpan mánuð.
Ása og Eir hafa verið áður í hljóm-
sveitum, Eir í Umbru og Ása í Kyrrð
fyrir um ári. Ateria er hins vegar
fyrsta hljómsveit Fannar.
Ateria leikur „einhvers konar ný-
goth“, eins og Ragnheiður Eiríks-
dóttir, ein dómnefndarmanna Mús-
íktilrauna, komst að orði í pistli sín-
um um úrslitakvöldið hér í
Morgunblaðinu í gær og lýsti lögum
og textum sem dimmum og djúpum.
Þríeykið lék á trommur, selló, bassa,
gítar, hljómborð og Eir sá um söng-
inn en Ása raddaði með og voru
raddanirnar dularfullar og settu ís-
lenskan þjóðlagablæ á lagasmíð-
arnar, eins og Ragnheiður lýsti því í
pistli sínum.
Úr latnesku heiti æðarfuglsins
Blaðamaður sló á þráðinn til Ásu í
gær og spurði hana fyrst hvaðan
nafn hljómsveitarinnar kæmi. „Það
kemur af latnesku heiti æðarfugls-
ins, Somateria mollissima,“ svarar
hún og er í kjölfarið spurð hvers
vegna heiti æðarfuglsins hafi orðið
fyrir valinu. „Af því við stundum æð-
arrækt á sumrin uppi í sveit og höf-
um mjög gaman af æðarfuglum,“ er
svarað um hæl.
Ása, Eir og Fönn og stofnuðu
hljómsveitina í haust og segir Ása
þær hafa komið einu sinni fram fyrir
áhorfendum áður en þær tóku þátt í
Músíktilraunum. Það var helgina áð-
ur en tilraunirnar hófust. „Við vorum
að hita upp fyrir Hellidembu á Loft,“
segir hún og er spurð að því hvort
þær hafi verið taugaóstyrkar. „Nei,
ég held ekki, við vorum allar frekar
rólegar.“
Það hefur varla farið fram hjá
þeim sem fylgdust með úrslitum
Músíktilrauna að stúlkurnar þrjár
urðu heldur betur hissa þegar til-
kynnt var um sigursveitina. Áttu
þær alls ekki von á þessu? „Ég hélt
að þetta gæti ekki gerst,“ segir Ása.
Þær hafi talið sig kannski eiga mögu-
leika á þriðja sætinu en alls ekki því
fyrsta.
Þrjú og hálft lag
Ása er spurð að því hversu mótuð
lögin þeirra séu. „Tvö þeirra eru
nokkuð mótuð en eitt er frekar nýtt
þannig að við munum móta það að-
eins meira,“ segir hún og er í kjölfar-
ið spurð að því hversu mörg lög sveit-
in eigi. „Þrjú og hálft, eiginlega,“
svarar Ása og að til standi að full-
klára hálfa lagið fyrir tónleika hljóm-
sveitarinnar á tónlistarhátíðinni
Aldrei fór ég suður á Ísafirði um
páskana. Fleiri hátíðir eru svo fram-
undan hjá Ateria, Secret Solstice í
júní og Iceland Airwaves í byrjun
nóvember.
„Maður er náttúrlega alltaf undir
áhrifum frá þeim sem maður hefur
hlustað á,“ segir Ása, spurð út í
áhrifavalda Ateria. „Svo erum við
með frekar ólíkan tónlistarsmekk,
við Eir hlustum svolítið á það sama
en Fönn á allt aðra tónlist,“ segir
hún. Og hvaða tónlist skyldi það
vera? „Bara alls konar, frá Led
Zeppelin til Bach,“ svarar Ása og
blaðamaður verður býsna hissa,
varla mörg ungmenni að hlusta á Led
Zeppelin og Bach á vorum tímum.
Kvíði, grámi og ragnarök
Ása á að baki átta eða níu ára
píanónám og er byrjuð að læra á org-
el. Hún lék á gítar í Músíktilraunum
og byrjaði að læra á það hljóðfæri í
haust, fyrir aðeins hálfu ári eða svo.
Geri aðrir betur! Og Ása er aðallaga-
og textasmiður Ateriu. Hún er beðin
um að segja frá því um hvað textar
hennar fjalla. „Fyrsta lagið sem við
spiluðum á Músíktilraunum, ég
samdi grunninn að því fyrir um
tveimur árum og ég er ekki alveg viss
hvað ég var að spá en ég held að það
sé um kvíða. Hugmyndina að text-
anum við þriðja lagið sem við spil-
uðum bjuggum við til saman og vor-
um að spá í gráan hversdagsleikann í
því. Annað lagið sem við spiluðum er
nýjast og í því eru nokkrar vísanir í
Völuspá, eins og ragnarök séu að
koma í versunum og völvan í viðlag-
inu,“ segir Ása og að tónlistin sé í
takt við yrkisefnin.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alsælar Fönn, Eir og Ása voru hæstánægðar og hissa þegar þær tóku við
verðlaunum fyrir 1. sæti Músíktilrauna árið 2018, laugardaginn 24. mars.
Kvíði, hversdags-
leiki og ragnarök
Ateria er sigursveit Músíktilrauna
Morgunblaðið/Hari
Sigursveitin Ateria í undankeppni Músíktilrauna 20. mars.
The Florida Project
Hin sex ára gamla Moonee
elst upp í skugga Disney
World ásamt uppreisnar-
gjarnri og ástríkri móður
sinni. Uppvaxtarsaga sem
fær hjartað til að slá.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 92/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 17.30
Loveless
Morgunblaðið bbbbm
Bíó Paradís 17.30
Spoor
Metacritic 61/100
IMDb 6,4/10
Bíó Paradís 22.00
Kobieta sukcesu
Bíó Paradís 20.00
Pacific Rim:
Uprising 12
Metacritic 46/100
IMDb 6,1/10
Laugarásbíó 14.00, 17.00,
20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.00, 17.30, 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.20
Smárabíó 17.10, 19.30,
19.50, 22.20, 22.30
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.40
Víti í Vestmanna-
eyjum Sambíóin Álfabakka 13.00,
13.40, 14.00, 15.20, 16.00,
16.20, 17.40, 18.20, 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 13.00,
14.00, 15.20, 17.40, 20.00,
22.20
Sambíóin Kringlunni 14.30,
15.00, 17.20, 19.40, 22.20
Sambíóin Akureyri 17.40,
20.00
Sambíóin Keflavík 17.40,
20.00
Black Panther 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 87/100
IMDb 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.10,
20.40
Sambíóin Egilshöll 17.00,
22.30
Sambíóin Kringlunni 16.40,
19.30, 22.20
Sambíóin Akureyri 22.20
Death Wish 16
Metacritic 31/100
IMDb 6,1/10
Laugarásbíó 17.40, 20.00,
22.20
Smárabíó 20.10, 22.30
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
Gringo 16
Metacritic 46/100
IMDb 6,0/10
Laugarásbíó 20.00
Háskólabíó 18.00
Game Night 12
Metacritic 70/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00
Fullir vasar 12
Morgunblaðið bmnnn
Smárabíó 15.30, 17.50,
20.10
Borgarbíó Akureyri 18.00
Three Billboards
Outside Ebbing,
Missouri 16
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 88/100
IMDb 8,4/10
Háskólabíó 20.40
The Shape of
Water 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 86/100
IMDb 7,8/10
Háskólabíó 21.00
Bíó Paradís 20.00, 22.15
The Greatest
Showman 12
Metacritic 68/100
IMDb 6,4/10
Háskólabíó 18.10
Steinaldarmaðurinn
Metacritic 48/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 13.40, 15.40
Smárabíó 13.10, 15.30
Lói – þú flýgur aldrei
einn Morgunblaðið bbbbn
Laugarásbíó 14.00, 16.00,
18.00
Smárabíó 13.00, 15.10,
17.30
Status Update
Sambíóin Álfabakka 20.00
Bling Sambíóin Álfabakka 13.00
Ævintýri í
undirdjúpum Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.30
Coco Metacritic 81/100
IMDb 8,7/10
Sambíóin Álfabakka 15.00
Sambíóin Kringlunni 14.20
Paddington 2 Metacritic 89/100
IMDb 8,1/10
Smárabíó 13.00
Lara Croft, ævintýragjörn dóttir landkönnuðar
sem týndist, gerir sitt ítrasta til að lifa af þegar
hún kemur til eyjarinnar þar sem faðir hennar
hvarf.
Metacritic 47/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 14.40, 17.20, 20.00, 22.20, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.40, 22.00
Sambíóin Akureyri 17.00, 19.40, 22.20
Sambíóin Keflavík 17.20, 22.35
Smárabíó 14.10, 16.50, 19.50, 22.30
Tomb Raider 12
Red Sparrow 16
Dominika Egorova er elskuleg dóttir sem er staðráðin í að
vernda móður sína, sama
hvað það kostar. Hún er
aðaldansmær sem í fólsku
sinni er komin á ystu nöf.
Hún er meistari í kænsku-
brögðum.
Metacritic 56/100
IMDb 5,4/10
Laugarásbíó 22.20
Smárabíó 22.40
Háskólabíó 17.50
Andið eðlilega Sögur tveggja ólíkra kvenna, hælisleitanda frá Gíneu-Bissá og
ungrar íslenskrar konu sem
hefur störf við vegabréfa-
skoðun á Keflavíkurflugvelli,
fléttast saman og tengjast
þær óvæntum böndum.
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,3/10
Smárabíó 17.50
Háskólabíó 18.10, 20.50
Bíó Paradís 20.00
Borgarbíó Akureyri 18.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio