Morgunblaðið - 27.03.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 27.03.2018, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 86. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Madsen talaði um að gera … 2. Mataræðið breytti öllu 3. Fór holu í höggi og fékk tvo … 4. Ég hefði gefist upp án Þóris »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Gítarleikarinn Tryggvi Hübner var við setningu Blúshátíðar í Reykjavík 2018 um helgina útnefndur heiðurs- félagi Blúsfélags Reykjavíkur 2018. Fyrstu tónleikar hátíðarinnar af þrennum fara fram á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld. Þar koma m.a. fram Laura Chavez og Ina Forsman. Annað kvöld koma m.a. fram Larry McCray og The Blue Ice band, en á lokakvöld- inu á skírdag verður íslenskur blús. Tryggvi Hübner heiðurs- félagi Blúsfélagsins  Fiðluleikarinn Laufey Sigurðardóttir stendur í 21. sinn fyrir tónlistarhátíð- inni Músík í Mývatnssveit um bæna- dagana. Fyrri tónleikarnir verða í félagsheimilinu Skjólbrekku á skírdag kl. 20 og þeir seinni í Reykjahlíðarkirkju föstudag- inn langa kl. 20. Með Laufeyju koma fram Ei- vør Pálsdóttir, Tróndur, Elísabet Waage og Há- varður Tryggvason. Músík í Mývatnssveit um bænadagana  Nýr fjölþjóð- legur kvartett trommuleikarans Scott McLemore leikur á vordag- skrá Jazzklúbbs- ins Múlans, á Björtuloftum í Hörpu, annað kvöld kl. 21. Sveitina skipa auk Scotts frönsku gítarleikararnir Hilmar Jensson og Pierre Perchaud og Norðmaðurinn Mats Eilertsen á bassa. Kvartettinn er á leið í hljóðver til að taka upp nýja frumsamda tónlist hljómsveit- arstjórans. Kynna nýja músík á leið sinni í hljóðverið Á miðvikudag Austan 8-15 m/s, hvassast syðst. Él á Suðaustur- og Austurlandi, annars þurrt og bjart veður. Hiti 1 til 6 stig að deg- inum en í kringum frostmark norðaustantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-18 m/s, hvassast með Suður- ströndinni. Úrkomulítið síðdegis en él suðaustan- og austanlands. Hiti yfirleitt 0 til 7 stig að deginum. VEÐUR Keflavík lagði Hauka, 75:72, í æsispennandi fjórðu við- ureign liðanna í 8-liða úr- slitum Dominosdeildar karla í körfuknattleik í Keflavík í gærkvöld. Þar með tryggði liðið sér odda- leik í rimmunni en Keflavík hefur unnið tvo leiki í röð. Oddaleikurinn fer fram ann- að kvöld á heimavelli Hauka og sker hann úr um hvort liðið tryggir sér sæti í und- anúrslitum. »3 Keflavík vann sér inn oddaleik „Eftir þetta var það í okkar höndum að halda efsta sætinu með tveggja til þriggja stiga forskot á næsta lið. Þessi staðreynd hélt okkur við efnið allt til loka,“ segir Sverre Andreas Jakobsson, þjálfari Akureyrar hand- boltafélags, sem hefur endurheimt sæti sitt í Olísdeild karla í handknatt- leik, ári eftir fall og uppstokkun inn- an félagsins. Sverre ætlar að halda áfram þjálfun liðsins. »1 Aftur í hóp þeirra bestu ári eftir uppstokkun Jefferson Farfán er þekktasti leik- maður perúska landsliðsins í knatt- spyrnu sem mætir Íslandi í vin- áttulandsleik í New Jersey í nótt. Þessi fljóti sóknarmaður hefur tví- vegis þurft að taka út agabann hjá landsliðinu, vegna lífsstíls sem ekki er víst að hann hafi þroskast upp úr. Hann er á leið með Perú á HM í fyrsta sinn frá árinu 1982. »4 Baldinn sóknarmaður sem mætir Íslendingum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ráðdeild, sparnaður og útsjónar- semi hafa verið einkennandi fyrir rekstur Grundar við Hringbraut í Reykjavík. Einstök hrærivél, sem tekin var í notkun 1945, og borð og stólar frá 1932 eru meðal annars til vitnis um það. Sagan af stofnun Grundar og uppbyggingunni allri er um leið saga framsýnna atorkumanna – og -kvenna, saga Samverja, nokkurra góðtemplara, sem sinntu matar- gjöfum til fátækra í átta vetur frá 1914, stóðu fyrir söfnun til að kaupa húsið Grund vestan við Sauðagerðistún skammt frá Kapla- skjólsvegi og íþróttasvæði KR, og opnuðu þar samnefnt elliheimili 1922. Það annaði ekki eftirspurn- inni og sex árum síðar, eða 1928, fyrir um 90 árum, var fyrsta skóflustungan að Grund við Hring- braut tekin. Þegar fyrir lá að Vest- ur-Íslendingar ætluðu að fjöl- menna á alþingishátíðina var framkvæmdum flýtt svo þeir gætu gist á nýja heimilinu, en sumir fengu inni á Landspítalanum. Góðir gestir Sigurbjörn Á. Gíslason í Ási, forgöngumaður Grundar, skrifaði grein í Morgunblaðið 19. júní 1930. Þar stendur meðal annars eftirfar- andi: „Okkur, sem að Elliheimilinu stöndum, hefur verið hinn mesti styrkur bæði beinlínis og óbeinlín- is að komu Vestur-Íslendinga. Ýmsir mikilhæfir valdamenn hjer í bæ fóru þá fyrst að styðja bygg- inguna með ráðum og dáð, er von var til að landar að vestan gætu búið í Elliheimilinu fyrstir manna. Við hefðum blátt áfram aldrei ráð- ist í að reisa austurálmu hússins, – og við hefðum að líkindum orðið að hálfhætta við bygginguna um hríð í vetur, ef við hefðum ekki notið þess á margan hátt, bæði hjá ríkisstjórn og fleirum, að við ætluðum að hýsa Vestur-Íslendinga.“ Gestirnir að vestan greiddu vel fyrir gistinguna. Peningarnir voru til dæmis notaðir til þess að kaupa fyrrnefnd húsgögn sem enn eru í notkun á Grund, 86 árum síðar, og líta vel út. Nýlegar sessur eru á mörgum þeirra og armstólarnir hafa verið bólstraðir. „Við höfum passað vel upp á að halda stólunum við og meðal annars lakkað þá reglulega,“ segir Guðrún Birna Gísladóttir, forstjóri Grundar og þriðji ættliðurinn sem stýrir heim- ilinu. Kristján Þ. Sigmundsson bakari sér um allan bakstur sætabrauðs fyrir Grund og Mörk. Hann er ánægður með bandarísku hrærivél- ina sem ákveðið var að kaupa 1941 en kom fjórum árum síðar en til stóð til landsins vegna seinni heimsstyrjaldarinnar. „Þessi Hob- art-vél er með betri hrærivélum sem ég hef unnið með og ég hef verið í bakstri síðan 1984,“ seg- ir hann. „Hún hefur ekki klikk- að.“ Gamalt nýtt á Grund  Fyrsta skóflu- stungan tekin fyr- ir um 90 árum Morgunblaðið/Hari Í gömlum stólum Jóhanna Friðgeirsdóttir spjallar við Guðrúnu Eyjólfs- dóttur, tengdamóður sína og íbúa á Grund. Stólarnir eru sem nýir. Vél Sigríður (föðurnafn óþekkt) hrærir í köku um miðja síðustu öld. Ljósmynd/Kristinn Ómarsson Bilar aldrei Kristján Þ. Sigmunds- son bakari notar vélina vikulega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.