Morgunblaðið - 28.03.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 28.03.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  74. tölublað  106. árgangur  HELDUR NÁMSKEIÐ UM HEIM VISKÍSINS ÖLDUR EILÍFÐARINNAR MISSTI SJÓNINA OG FÓR AÐ ÆFA SPRETTHLAUP CRESCENDO ★★★★ 31 ÍÞRÓTTIRJAKOB JÓNSSON 12-13 Ljósmynd/HS Orka Virkjun Sigurður Ingi Jóhannsson tók fyrstu skóflustunguna að Brúarvirkjun.  Framkvæmdir að Brúarvirkjun eiga að hefjast strax eftir páska en leyfið hefur nú verið kært í annað sinn. Náttúruverndarsamtök Suð- urlands og Landvernd vilja stöðva framkvæmdina en Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveit- arstjórnarráðherra, tók fyrstu skóflustunguna að virkjuninni á föstudag. Í haust gaf Bláskóga- byggð út framkvæmdaleyfi sem var kært til úrskurðarnefndar um- hverfis- og auðlindamála. Þá var ákveðið að bæta úr ágöllum og í kjölfarið var gefið út nýtt fram- kvæmdaleyfi. Nú krefjast Land- vernd og Nátturuverndarsamtök Suðurlands þess að nýja leyfið verði fellt úr gildi og framkvæmdir stöðvaðar. »11 Vilja stöðva fram- kvæmd Brúarvirkj- unar í Tungufljóti Agnes Bragadóttir Bogi Þór Arason Ólöf Ragnarsdóttir Mikhail Degtjarjev, þingmaður og formaður nefndar um íþrótta-, ferða- og æskulýðsmál í neðri deild rúss- neska þingsins, segir ákvörðun ís- lenskra ráðamanna um að sniðganga heimsmeistaramótið í knattspyrnu næsta sumar bera þess merki að Ís- land sé í raun ekki fullvalda ríki. „Sniðganga íslenskra ráðamanna á heimsmeistara- mótinu í Rúss- landi hefur ekkert að gera með rann- sóknina á eitrun- inni fyrir Sergei Skripal og dóttur hans. Ísland er orðið gísl – eða eins og þeir segja, fórnarkostnaður – í röð pólitískra ögrana af hendi Breta og Bandaríkjamanna. Því miður þá er fullveldi „lands íssins“ ekki nógu mik- ið til þess að ráðamenn geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir sem stjórnast af hagsmunum þjóðarinnar,“ hafa rússneskir miðlar eftir Degtjarjev. Bandaríkin beiti þrýstingi Stjórnvöld í Rússlandi saka yfir- völd í Washington um að beita sam- starfslönd sín þrýstingi og segjast ætla að svara fyrir sig. Alls hafa stjórnvöld 23 ríkja vísað 116 Rússum úr landi vegna ásakana Breta um að rússnesk stjórnvöld hafi staðið fyrir taugaeitursárás á Skripal. Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utan- ríkisráðuneytisins, segir í samtali við Morgunblaðið engin viðbrögð hafa komið frá rússneskum yfirvöldum eftir að greint var frá ákvörðuninni í fyrradag. „Rússneski sendiherrann kom sínum sjónarmiðum fram á fund- inum í gær [mánudag] og eftir það hefur ekkert gerst.“ Segir Ísland ekki fullvalda  Rússneskur þingmaður telur Ísland vera peð Breta og Bandaríkjamanna  Engin viðbrögð frá yfirvöldum í Rússlandi eftir fundinn með sendiherra Rússa MSkella skuldinni á … »8, 17 Mikhaíl Degtjarjev Morgunblaðið/Kristinn Orkugjafi Það getur kostað sitt að fylla á tankinn hér á landi. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Costco eru einir um að láta neyt- endur njóta þessarar þróunar,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- enda (FÍB), og vísar í máli sínu til styrkingar íslensku krónunnar gagnvart Bandaríkjadal að undan- förnu, en hann segir almennt fylgni vera á milli lækkunar eldsneytis- verðs og styrkingar krónu. Algengt verð olíufélaganna á bensíni í gær var 212,80 krónur og á dísilolíu 206,60 til 206,90 krónur. „Eldsneytisverð hefur haldist svo gott sem óbreytt hér á landi frá ára- mótum. En það er þó einn aðili á markaði sem hefur verið að lækka sig að undanförnu og það er Costco,“ segir Runólfur og bendir á að þeir hafi lækkað verð sitt um 5 krónur nýverið. Þannig er verð á bensíni hjá þeim 183,90 krónur og dísilolíu 180,90 krónur. Eggert Þór Kristófersson, for- stjóri N1, segir margt hafa áhrif á eldsneytisverð, s.s. heimsmarkaðs- verð og stjórnmálaástand. »4 Sterk króna skilar sér ekki  Verð á eldsneyti hefur haldist nær óbreytt frá áramótum Margir voru á ferðinni í miðborg Reykjavíkur í gær og það var erill í Austurstræti. Fimm daga fríhelgi páskanna er nú að bresta á og því er í mörg horn að líta hjá fólki í dymbilvikunni við ýmsan undirbúning, því ófáir nýta dagana til að ferðast. Ágætt veður verður víðast hvar framan af páskahelginni, en þegar kemur fram á laug- ardag og sunnudag má víða reikna með élja- gangi og síðar hríðarveðri. Erill í Austurstræti í dymbilvikunni Morgunblaðið/Hari  Nú eru í Urriðaholti í Garðabæ fullfrágengin hús með 460 íbúðum Yfir 500 íbúðir eru á ýmsum stig- um framkvæmda og á þeim öllum að vera lokið síðari hluta næsta árs. Forkynning stendur nú yfir á til- lögu að deiliskipulagi í austurhluta Urriðaholts og er gert ráð fyrir um 500 íbúðum þar. Áætlað er að íbúðir í austurhlutanum verði full- byggðar árið 2021. Íbúafjöldi í Urriðaholti í heild gæti orðið allt að fimm þúsund manns. »10 Um þúsund íbúðir í Urriðaholti í árslok Reykjavíkurborg telur óraunhæft að gera ráð fyrir því að ný lög um per- sónuvernd og vinnslu persónu- upplýsinga taki gildi 25. maí. Í sama streng tekur Samband ís- lenskra sveitarfélaga, sem bendir á að þessi löggjöf sé afar umfangsmikil og muni hafa gífurleg áhrif á opin- bera aðila sem og einkaaðila. Dómsmálaráðuneytið er nú að kynna lagafrumvarp sem ætlað er að innleiða nýlega reglugerð Evrópu- þingsins og Evrópusambandsins um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og frjálsa miðlun slíkra upplýsinga. Samtök atvinnulífsins og sjö önnur fyrirtækjasamtök hafa sent frá sér sameiginlega umsögn um frumvarp- ið þar sem undirbúningur málsins er gagnrýndur og sagt að ekkert tillit hafi verið tekið til fjölmargra at- hugasemda sem gerðar hafi verið við frumvarpsdrögin á fyrri stigum. Íslensk erfðagreining bendir á að í frumvarpinu sé séríslenskt ákvæði um rannsóknir á heilbrigðissviði sem ekki sé í reglugerð Evrópusam- bandsins. Engin rök séu fyrir því að það verði lögfest á Íslandi. »18 Telja lögfestingu í maí ekki raunhæfa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.