Morgunblaðið - 28.03.2018, Qupperneq 36
„Lokakafli deildakeppninnar var erf-
iður fyrir okkur því síðustu sjö eða
átta leikirnir voru leikir þar sem mik-
ið var undir. Það var erfitt að þurfa að
vinna marga leiki á þessum kafla en
ákveðinn léttir fyrir liðið að það
skyldi takast og að liðið sé komið í
úrslitakeppnina,“ segir
Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir, ein
traustasta stoðin í
körfuknattleiksliði
Skallagríms sem
tryggði sér sæti
í úrslitakeppni
Íslandsmóts-
ins eftir mikinn
endasprett. »4
Mikil pressa á liðinu
á lokasprettinum
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 87. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Gekk í veg fyrir bíl
2. Göngustígurinn er eitt drullusvað
3. Sá fjórtán ísbirni á sólarhring
4. Bauð annarri konu í kafbátinn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður
hefst á morgun á Ísafirði og stendur
yfir í þrjá daga og er hátíðin nú haldin
í fimmtánda sinn. Hljómsveitir og
plötusnúðar munu troða upp og fer
aðaldagskráin fram í Kampa-
skemmunni á föstudaginn langa og á
laugardaginn. Meðal þeirra sem
koma fram í ár eru Kolrassa krók-
ríðandi, Dimma, 200.000 naglbítar,
Auður, Hatari, Between Mountains, Á
móti sól, Une misére, Kuldaboli og
sigursveit Músíktilrauna í ár, Ateria.
Af plötusnúðum má svo nefna DJ
Mugison og DJ Jón Pál sem er bæj-
arstjóri í Bolungarvík. Frekari upplýs-
ingar um hátíðina má finna á aldr-
ei.is.
Morgunblaðið/Freyja Gylfa
Aldrei fór ég suður
í fimmtánda sinn
Skáldsaga Auðar Övu Ólafsdóttur,
Ör, sem í enskri þýðingu ber titilinn
Hotel Silence, hlýtur prýðilegan dóm
í dagblaðinu Financial Times og segir
m.a. í honum að taktinum í skrifum
Auðar og stemningunni sé ágætlega
lýst sem bjöguðum. Auður skrifi í
bókinni um góðan karlmann í kreppu
og þau skrif einkennist af hrárri feg-
urð. Auður hlaut Ís-
lensku bókmennta-
verðlaunin í flokki
fagurbókmennta í
fyrra fyrir Ör og er
tilnefnd til Bók-
menntaverðlauna
Norðurlanda-
ráðs fyrir Ís-
lands hönd í ár
fyrir skáld-
söguna.
Gagnrýnandi FT hrif-
inn af bók Auðar Övu
Á fimmtudag (skírdagur) Hæg austlæg eða breytileg átt, en
norðaustan 8-13 syðst. Slydda eða rigning SA-til framan af degi,
þurrt annars staðar og víða bjart veður. Hiti 1 til 8 stig að deginum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 13-20 á morgun, en
20-25 á Suðausturlandi og syðst á landinu. Rigning eða slydda um
landið austanvert og snjókoma til fjalla, en þurrt að kalla vestantil.
VEÐUR
„Mér finnst vera á teikn á
lofti um að Keflavíkurliðið
muni klára dæmið og fara í
undanúrslitin. Ég hef ein-
hvern veginn þá tilfinningu
því þeir eru fullir sjálfs-
trausts og það sem þeir
gera virkar inni á vell-
inum,“ segir Viðar Örn
Hafsteinsson, þjálfari Hatt-
ar, um oddaleik Hauka og
Keflavíkur á Íslands-
mótinu í körfuknattleik
í kvöld. »3
Keflvíkingar eru
fullir sjálfstrausts
Tíu af sextán liðum sænsku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu karla
munu spila áttatíu prósent leikja
sinna á komandi leiktíð á gervigrasi.
Þessi tíu félög eru öll með gervigras
á sínum heimavelli og leika því sam-
tals 24 af 30 leikjum sínum í deild-
inni, fimmtán heimaleiki og níu úti-
leiki, á þannig undirlagi. Þetta er met
í sænsku knattspyrnunni. »2
Aldrei fleiri leikir á
gervigrasi í Svíþjóð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Teresusystur, kærleiksboðberar,
sem helga sig því að sinna hinum fá-
tækustu meðal fátækra, hafa unnið
mikilvægt mannúðarstarf á Íslandi í
rúm 20 ár. Þeim ber að vinna starf
sitt í kyrrþey og halda sig því frá
kastljósi fjölmiðla, en Morgunblaðið
fékk undanþágu frá reglunni og
skyggndist á bak við tjöldin.
Gonxha Bojaxhiu, síðar þekkt sem
Móðir Teresa frá Kalkútta, þar sem
hún kom á fót trúarsamfélaginu
Kærleiksboðberunum, fæddist í
Skopje, núverandi höfuðborg Make-
dóníu, 1910 og lést 1997. Hún var
albönsk að uppruna og varð heims-
þekkt fyrir störf sín, hlaut meðal
annars friðarverðlaun Nóbels 1979
og var tekin í dýrlingatölu 2016.
Yfir 4.500 kærleiksboðberar
starfa í um 130 löndum, þar af sex á
Íslandi hverju sinni síðan í árslok
1996, samkvæmt ákvörðun Móður
Teresu. Núverandi systur hér eru
frá Filippseyjum, Írlandi, Indlandi
og Kenía. Þær lifa einföldu lífi, byrja
daginn með bænastund klukkan
fimm á morgnana, útbúa morgun-
mat fyrir fátæka og þurfandi alla
virka morgna, sinna öðru líknar-
starfi eftir hádegi og ljúka deginum
með bænastund klukkan níu á kvöld-
in. Starfið hófst í Breiðholti í
Reykjavík fyrir um tveimur áratug-
um en fyrir sjö árum keyptu syst-
urnar hús við Ingólfsstræti og sinna
starfinu þar og þaðan.
Mikilvægt starf
Tugir fólks mæta í morgunmatinn
hjá þeim hverju sinni, jafnt Íslend-
ingar sem útlendingar, heimilislaust
fólk, fólk í óreglu, flóttamenn og aðr-
ir einstaklingar í biðstöðu. Fólk sem
þarf aðstoð. Karlar og konur sem
eru þakklát fyrir umhyggjuna. Sjá
má ánægju í augum þeirra og í sam-
tölum kemur fram að von er til stað-
ar. Kærleikurinn skilar sér. Í nógu
er að snúast en systurnar taka á
móti gestunum með brosi á vör og
ekki síður aðstoðarmönnum úr kaþ-
ólska söfnuðinum. Einn þeirra er
Bjarni Halldórsson. „Ég reyni að
mæta á föstudagsmorgnum og geng
í hvaða verk sem er,“ segir hann á
meðan hann sinnir uppvaskinu.
„Systrunum þykir líka vænt um að
við gefum okkur tíma til þess að tala
við fólkið.“
Elínrós Líndal segir starf
kærleiksboðberanna hérlendis ein-
stakt. Systurnar mæti Guði í öllum,
jafnvel þeim sem aðrir hafa gefist
upp á að hjálpa, og geri það með
elsku, virðingu og umhyggju. „Það
er oft meðalið sem þeir allra veik-
ustu þurfa en við samfélagið eigum
ekki alltaf nóg af,“ segir hún og
heldur áfram að skera ost ofan á
brauð. ,,Ég þekki það af eigin
reynslu, en einn afar dýrmætur fjöl-
skyldumeðlimur átti um sárt að
binda um tíma og fékk systraþel, ást
og kærleik hjá systrunum þegar
enginn annar gat gefið það. Læknar,
stofnanir og ég vorum búin að gefast
upp, en líklegast ekki Guð. Nú hefur
þessi fjölskyldumeðlimur fengið full-
an bata og heldur áfram að gefa
hann til baka til samfélagsins. Ég
starfa stundum með kærleiks-
systrum til að launa þeim greiðann,
en í sannleika sagt gefur þetta starf
okkur meira en orð fá lýst. Það að
vera til staðar fyrir okkar minnstu
bræður er hluti af tilgangi lífsins.“
Kærleikurinn ofar öllu
Mannúðarstarf
Teresusystra á
Íslandi í rúm 20 ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í eldhúsinu Bjarni Halldórsson og Elínrós Líndal aðstoða stundum systur, fara í uppvaskið og annað tilfallandi.
Bænaherbergi Bænahald er mikilvægt í lífi systranna í Ingólfsstræti.