Morgunblaðið - 28.03.2018, Side 12

Morgunblaðið - 28.03.2018, Side 12
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Undanfarin ár hefur máttgreina að viskíáhugilandsmanna hafi fariðvaxandi og raunar hefur sama þróun átt sér stað um allan heim. „Það kom niðursveifla í viskí- drykkju á 8. og 9. áratugnum og mörgum viskíverksmiðjum var lokað, en undanfarin 10-20 ár hefur viskí- geirinn verið í uppsveiflu, mikil eft- irspurn verið eftir gæðaviskíi og vakning á meðal almennings um þennan einstaka drykk,“ segir Jakob Jónsson, viskífræðingur hjá Royal Mile Whiskies í London og ritstjóri veftímaritsins Viskihornid.com. Jakob er væntanlegur til lands- ins um miðjan apríl til að halda eins dags námskeið um viskí hjá Endur- menntun Háskóla Íslands. Hann seg- ir námskeiðinu ætlað að koma til móts við þá sem eru forvitnir um viskí og vilja fræðast betur um undir- stöðuatriðin. „Kalla mætti nám- skeiðið Viskí-101. Við förum yfir sögu drykkjarins, lærum hvernig viskí er búið til og hvað þarf til, til að viskí sé kallað viskí. Svo verðum við með smökkun þar sem nemendur fá að bera saman skoskt eðalviskí.“ Hvað er svona gott við viskí? Jakob grunar að margir vilji læra betur um þennan eðla drykk, en þyki viskíheimurinn flókinn og viti ekki hvar á að byrja. Svo eru líka sumir sem eiga jafnvel bágt með að skilja hvernig sumum getur þótt viskí góður drykkur. „Þegar ég smakkaði viskí í fyrsta sinn fannst mér það fremur óaðlaðandi og gróft, enda ungur að árum og óreyndur. Ég hélt að viskí væri bara Jack Daniels og Blæbrigðaríkur og glúrinn drykkur Þegar Jakob Jónsson, viskísali með meiru, smakkaði viskí í fyrsta sinn fannst hon- um drykkurinn frekar óaðlaðandi og grófur. Það breyttist þegar hann smakkaði skoskan einmöltung og hefur hann síðan þá kafað djúpt ofan í heillandi heim viskísins. Hann heldur byrjendanámskeið um viskí hjá EHÍ í apríl. Ljósmynd/Eva Vestmann Ástríða Jakob segir ódýrustu blönduðu viskíin ekki endilega henta til að upplifa bestu eiginleika drykkjarins. Með á myndinni er hundurinn Dúddi. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar STÆRSTA OG AFLMESTA AVANT VÉLIN Avant 760i er meðal annars í notkun hjá Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Norðurþing, Borgarbyggð, Skútustaða- hreppi og víðar. FRÁBÆR VÉL FYRIR BÆJARFÉLÖG Verð miðast við gengi EUR 125 Sjá nánar á ÍSLENSKU AVANT síðunni: www.avanttecno.com/www/is 760i Kohler KDI 1903, 57 hö, díeselmótor 80 l/min vökvadælu, 225 bar, vatnskæld Lyftigeta: 1400 kg Lyftihæð: 310 cm Þyngd: 2100 kg Lengd: 306 cm Breidd: 145 cm Hæð: 211 cm Fáanlegur með L, LX eða DLX húsi Saga Eyrarbakka og náttúran með fuglafriðlandinu allt um kring varð kveikjan að Fuglatónleikum Valgeirs Guðjónssonar, sem nú er orðin hefð fyrir um páska. Frá því hann og kona hans, Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, fluttust til Eyrarbakka hafa þau verið hugfangin af sögu þorpsins, umhverfi þess og fuglalífi. Valgeir hefur samið mörg falleg og grípandi lög um íslenska fugla við kvæði Jóhannesar úr Kötlum. Á Fuglatónleikunum, sem haldnir verða í Eyrarbakkakirkju kl. 15 á morgun, skírdag, og á sama tíma laugardag- inn 31. mars, geta tónleikagestir kynnst þekktum íslenskum fuglum og lært örlítið um líf þeirra og kúnstir gegnum lög og texta. „Líf fugla höfðar til allra aldurs- hópa, enda eru þeir um margt mann- legir í hegðun. Þannig er upplagt að tengja kynslóðir saman með tónlist og fuglum nú í páskafríinu, með vorið handan við hornið,“ segir í tilkynn- ingu. Valgeir Guðjónsson fagnar páskum með Fuglatónleikum Tónlistarmaður Valgeir Guðjónsson hefur samið mörg lög um íslenska fugla. Örlítið um líf og kúnstir fuglanna gegnum lög og texta Æðarkóngur Í fuglafriðlandinu. Miðasala er á tix.is og við inngang- inn. Kjallarabandið, sem gerði mánudaga spennandi í fyrsta sinn í sögunni með Mánudjass á Húrra, ætlar að sanna að miðvikudagar eru hinir nýju fimmtu- dagar. Liðsmenn munu tvinna litríka samba-ryþma og almenna gleði inn í grámóskulegt háskólasamfé- lagið í Stúdentakjallaranum frá kl. 21-23 í kvöld, miðvikudaginn 28. mars. Eftirleiðis er svo mein- ingin að vera þar með miðvikudjass fyrsta mið- vikudagskvöld hvers mánaðar. Kvöldin eru með frjálslegu ívafi og allir sem vilja syngja, dansa eða spila á hljóðfæri eru velkomnir og hvattir til að stíga í sviðsljósið og taka þátt. Aðgangur ókeypis. Stúdentakjallarinn Miðvikudjass með Kjallarabandinu Ljósmynd/iconfinder.com Þótt mars sé brátt á enda standa ennþá yfir nokkrar sýningar sem settar voru upp í tilefni af Hönn- unarmars 2018 um miðjan mán- uðinn. Senn fer þó hver að verða síðastur að skoða sýningarnar því tjöldin munu falla laugardaginn 31. mars. Til dæmis tvær sýningar sem Hönnunarstofan Portland, Bald- ursgötu 36, kynnir. Annars vegar Hljómhrif, hátalari án rafmagns, sem Sölvi Kristjánsson vöruhönn- uður hannaði þegar hann rannsak- aði hljóð og áhrif þess. Hins vegar er sýningin Innriinnri þar sem Raphael hönnuður og Ylona Supèr listamaður leika sér að mismun- andi nálgun við hönnun. Síðasti dagur Forms of life/ Lifnaðarhættir í Norræna húsinu er líka á laugardaginn. Sýningin er lif- andi leikmynd nýlegra verka hönn- uða og listamanna sem tengjast Listaháskóla Íslands og var sett upp í samtali við hátíðarsýningu Norræna hússins, Innblásið af Aalto. Sýningar af Hönnunarmars, sem verða opnar til apríloka, eru Ðyz- lexiwhere í Hönnunarsafninu, Önn- ur sæti í Arion banka og Ex-libris í Borgarbókasafninu Grófinni. Þá verða sýningarnar Innblásið af Aalto í Norræna húsinu, Undraver- öld Kron by Kronkron og Safnið á röngunni með Einari Þorsteini Ás- geirssyni í Hönnunarsafninu opnar til hausts. Hönnunarmars 2018 Sýningarnar Hljómhrif, Innri- innri og Lifnaðarhættir út mars Hönnun Hátalari án rafmagns, leikur að mismunandi nálgun í hönnun og lifandi leikmynd eru viðfangsefni sýninga frá Hönnunarmars sem opnar verða til páska.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.