Morgunblaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018
Undanfarin ár hafa Gummi Hjalta, Stebbi Jóns og fé-
lagar boðið upp á heiðurstónleika í Edinborgarhúsinu á
Ísafirði og að þessu sinni verða þau Janis Joplin og Joe
Cocker heiðruð með tvennum tónleikum, í kvöld og ann-
að kvöld kl. 21. Flytjendur verða söngkonan Þórunn
Snorradóttir, Hjörtur Traustason sem leikur á gítar og
syngur, líkt og Jón Hallfreð Engilbertsson, Tumi Þór Jó-
hannsson leikur á trommur, Stefán Steinar Jónsson
syngur og leikur á hljómborð og Guðmundur Hjaltason
leikur á bassa og syngur. Janis Joplin
Tónleikar Joplin og Cocker til heiðurs
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég hef það alltaf að markmiði að
bjóða upp á mjög ólíka stemningu
milli ára. Í fyrra var ég með
háklassíska dagskrá, en í ár fæ ég til
liðs við mig hina mögnuðu tónlistar-
konu Eivøru Pálsdóttur og tón-
skáldið og píanóleikarann Trónd
Bogason frá Færeyjum,“ segir
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari,
sem í 21. sinn stendur fyrir tónlistar-
hátíðinni Músík í Mývatnssveit um
bænadagana. Fyrri tónleikar hátíð-
arinnar verða í félagsheimilinu
Skjólbrekku á morgun, skírdag, kl.
20 og þeir seinni í Reykjahlíðar-
kirkju föstudaginn langa kl. 20. Mið-
ar eru seldir við innganginn á báðum
stöðum og veitingar í hléi á tónleik-
unum í Skjólbrekku.
Eivør eins og náttúruafl
Auk Eivarar og Tróndar koma
fram með Laufeyju hörpuleikarinn
Elísabet Waage og kontrabassaleik-
arinn Hávarður Tryggvason. „Á
þeim rúmum tveimur áratugum sem
ég hef staðið fyrir Músík í Mývatns-
sveit um bænadagana hefur Elísa-
bet aðeins einu sinni áður komið
fram en Hávarður margoft,“ segir
Laufey og tekur fram að það hafi í
raun verið sambýlismaður hennar
heitinn, rithöfundurinn Þorsteinn
frá Hamri, sem hafi hvatt sig til að fá
Eivøru til að koma fram í Mývatns-
sveit.
„Hann var svo hrifinn af því
hvernig hún nýtir sér færeyska
menningararfinn í sinni tónlist og
vísar markvisst í þjóðlögin. Ég hef
líka verið aðdáandi hennar lengi, því
hún er einstök – eins og náttúruafl.
Ég er afskaplega þakklát fyrir að
Eivør og Tróndur skuli gefa sér tíma
til að vera með, enda er hún bókuð í
tónleikahald út um allan heim,“ seg-
ir Laufey og tekur fram að ekki spilli
fyrir að Eivør hafi tengsl við Mý-
vatnssveitina í gegnum tónlistar-
hjónin Ólöfu Kolbrúnu Harðar-
dóttur og Jón heitinn Stefánsson,
sem Eivør bjó hjá þegar hún fluttist
til Íslands á sínum tíma til að nema
söng hjá Ólöfu Kolbrúnu.
Tangóar og velskt þjóðlag
Að vanda verður boðið upp á ólík-
ar efnisskrár kvöldin tvö í dymbil-
viku. „Á tónleikunum í Reykja-
hlíðarkirkju á föstudaginn langa
reynum við að mynda eina heild þar
sem ekki er klappað á milli verka.
Þar mun ríkja íhugul stemning. Tón-
leikarnir í Skjólbrekku á skírdag eru
venjulegir kammertónleikar. Þar
mun hljóma ástríðufyllri tónlist,“
segir Laufey en meðal þess sem
verður flutt eru tangóar eftir arg-
entínska tónskáldið Astor Piazzolla
sem útsettur er fyrir fiðlu og kontra-
bassa. „Við Hávarður höfum haft
gaman af því að spreyta okkur á
tangóunum í dúettformi.“
Af öðrum tónskáldum á efnis-
skránni má nefna Frakkann Gabriel
Fauré, Rússann Reinhold Glière
sem samdi mikið fyrir hörpu og
bassa, Ítalann Giovanni Bottesini og
Argentínumanninn Alberto
Ginastera auk þess sem Elísabet
spilar velskt þjóðlag með tilbrigðum
fyrir hörpu. „Síðan mun Eivør flytja
eigið efni bæði ein og með okkur í út-
setningum sem Tróndur hefur gert.“
Að sögn Laufeyjar eru heima-
menn í ríkari mæli að taka þátt í
Músík í Mývatnssveit. „Þess má
geta að vinkonur mínar í Vogafjósi
hafa gefið mat sem boðið er upp á í
hléinu í Skjólbrekku, sem ég er mjög
þakklát fyrir.“ Aðspurð segir hún
tónleikagesti að stórum hluta vera
Mývetninga og nærsveitamenn, auk
þess sem ferðamenn mæti auðvitað
líka. „Tónleikarnir eru svo ólíkir og
því eru mjög margir sem mæta bæði
kvöldin, sem er afskaplega ánægju-
legt,“ segir Laufey að lokum.
Ólík stemning milli ára
Tónlistarhátíðin Músík í Mývatnssveit haldin í 21. sinn í dymbilviku Á efnis-
skránni eru verk eftir Fauré, Piazzolla og Eivøru Pálsdóttur sem er meðal flytjenda
Morgunblaðið/Hari
Strengir Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Elísabet Waage hörpuleikari á æfingu fyrr í vikunni.
Morgunblaðið/Kristinn
Eftirsótt Eivør Pálsdóttir flytur
eigið efni á tónleikunum tveimur.
Ljóðskáldið Linda Vilhjálmsdóttir
hreppti um liðna helgi verðlaun sem
kallast upp á ensku „European Poet
of Freedom“, og mætti kalla „Evr-
ópska frelsisskáldið“, á alþjóðlegu
ljóðahátíðinni í Gdansk í Póllandi
sem kennd er við ljóðagerð um frelsi
og haldin var í fimmta sinn.
Verðlaunin hlaut Linda fyrir
ljóðabókina Frelsi, sem kom út árið
2015. Átta skáld víðsvegar að úr
Evrópu kepptu um verðlaunin og
höfðu tilnefndar bækur þeirra allra
verið þýddar á pólsku. Jacek Godek
þýddi Frelsi og nefnist bókin
Wolnoœæ á pólsku.
Linda og Godek tóku saman við
verðlaununum á hátíðinni. Verð-
launaféð sem Linda hlaut nemur
100.000 zloty, nær þremur millj-
ónum króna, og þá fékk þýðandinn
20.000 zloty í sinn hlut.
Þess má geta að Godek hefur þýtt
allnokkrar íslenskar bækur á
pólsku, meðal annars verk eftir
Steinar Braga, Hallgrím Helgason,
Jón Kalman Stefánsson og Viktor
Arnar Ingólfsson, auk ljóða eftir
Jónas Hallgrímsson.
Markmið hátíðarinnar er að
heiðra og kynna þann þátt ljóðlistar
sem, eins og segir í stefnuskrá hátíð-
arinnar, fæst við eitt mikilvægasta
viðfangsefnið fyrir lesendur í dag –
frelsi – á afgerandi listrænan hátt.
Verðlaun Þýðandinn Jacek Godek
og Linda Vilhjálmsdóttir í Gdansk.
Hreppti
frelsis-
verðlaun
Bók Lindu Vilhjálms-
dóttur verðlaunuð