Morgunblaðið - 28.03.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Rússlandi hefst
eftir tæpa þrjá mánuði og Ísland leikur sinn fyrsta leik
í keppninni gegn Argentínu í Moskvu 16. júní nk. Á
fundi bæjarráðs Garðabæjar í gær var m.a. rætt um
möguleika á beinni útsendingu frá leiknum á Garða-
torgi. Bæjarráð samþykkti að gerð yrði kostnaðar-
áætlun fyrir verkefnið og að áfram yrði unnið að mál-
inu í samstarfi við hagsmunaaðila á Garðatorgi.
Eflaust er í fleiri sveitarfélögum verið að vinna að
sambærilegum verkefnum. Í minnisblaði frá fundinum
í Garðabæ kemur fram að árið 2016 voru beinar út-
sendingar í a.m.k. fimm sveitarfélögum frá leik eða
leikjum Íslands á Evrópumótinu í Frakklandi; Reykja-
vík, Akranesi, Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjanesbæ.
Í minnisblaðinu er m.a. bent á samlegðaráhrif við 17.
júní. Þannig gæti umgjörð á torginu og tæknibúnaður
sem yrði settur upp á Garðatorgi fyrir útsendinguna
nýst áfram við hátíðahöld á þjóðhátíðardaginn. Einnig
er þar fjallað um leyfismál, tæknibúnað, kostnað og
umgjörð. aij@mbl.is
Gylfi og Messi á Garða-
torgi í beinni frá Moskvu?
AFP
Á góðri stundu Lionel Messi og félagar í landsliði Arg-
entínu. Vel verður fylgst með þeim í Moskvu 16. júní.
Víða beinar útsendingar
frá Evrópumótinu 2016
Má heita
Alparós og
Bambus
Karlmenn mega
nú bera eigin-
nöfnin Levý,
Lóni, Líus,
Bambus og Tóti
og kvenmenn
mega heita Alpa-
rós, Nancy og
Ýlfa. Nöfnin átta
voru færð á
mannanafnaskrá
með úrskurðum
Mannanafnanefndar frá 20. mars
sem birtir voru í gær.
Þá var þremur millinöfnum hafn-
að af nefndinni, þar á meðal nafninu
Pírati. Nafninu Lóni, sem var sam-
þykkt sem eiginnafn, var hafnað sem
millinafni þar sem millinöfn mega
ekki hafa nefnifallsendingu. Beiðni
um nafnið Pírati var hafnað þar sem
það er ekki dregið af íslenskum orð-
stofni og hefur nefnifallsendingu.
Þykir það því ekki fullnægja skil-
yrðum um mannanöfn. Beiðni um
millinafnið Strömfjörð var hafnað á
þeim grundvelli að nafnið er ekki
dregið af íslenskum orðstofni. Þetta
er annar úrskurður Mannanafna-
nefndar á árinu en í janúar voru
nöfnin Sólúlfur, Maríon og Bárðdal
(sem millinafn) samþykkt en nöfn-
unum Zelda, Theo, Zion og Alex
(sem kvenmannsnafn) var hafnað.
Mannanöfn Átta
nöfnum var bætt á
mannanafnaskrá.
Millinafnið Pírati
ekki samþykkt
Ólöf Ragnarsdóttir
olofr@mbl.is
Ekkert nýtt kom fram á fundi hjúkr-
unarfræðinema og stjórnenda Land-
spítala sem fram fór í gær. Þetta
segir Hildur Holgeirsdóttir, út-
skriftarnemi í hjúkrunarfræði, í
samtali við Morgunblaðið. Boðað var
til fundar í kjölfar yfirlýsingar sem
hjúkrunarnemar, sem útskrifast
sumarið 2018, sendu frá sér um að
þeir ætli ekki að ráða sig á Landspít-
ala nema þeim bjóðist grunnlaun
upp á 450.000 krónur. Hildur segir
að þeim hafi verið tjáð að ekki sé
hægt að breyta grunnlaunum sökum
þess að gerðardómur er á samning-
um hjúkrunarfræðinga. Úrskurður
gerðardómsins gildir út mars 2019.
Þreytt á að heyra það sama
Að sögn Hildar voru þrjú verkefni
kynnt á fundinum sem þau hafi
heyrt af áður. Þau feli ekki í sér
hækkun á grunnlaunum sem sé
þeirra helsta krafa. „Þetta er ekkert
nýtt. Hljóðið í hópnum var ekki já-
kvætt eftir fundinn vegna þess að
þetta er svolítið það sama og maður
er búinn að heyra áður,“ segir Hild-
ur en bætir við að gott hafi verið að
fá tækifæri til þess að hitta helstu
stjórnendur spítalans og spyrja
spurninga. „Okkur fannst gott að
heyra í Páli (Matthíassyni forstjóra
Landspítala) og öfugt, held ég.“
Hún segir skrýtið fyrir báða aðila
að vera í þessari stöðu. Hjúkrunar-
nemar ætli þó að standa fast á sínu
og halda áfram baráttunni. „Þetta
breytir í raun engu fyrir okkur.
Þetta breytir ekki yfirlýsingunni,
hún stendur enn. Við viljum fá
hækkun á grunnlaunum án þess að
þurfa að vinna meira fyrir því.“
Spurð um næstu skref segist hún
ætla að leita til Félags hjúkrunar-
fræðinga og fá ráðgjöf. Ekki náðist í
Pál Matthíasson, forstjóra Landspít-
ala, við vinnslu fréttarinnar.
Grunnlaunin ekki hækkuð
Hjúkrunarnemar standa við fyrri yfirlýsingu „Ekkert nýtt“ kom fram á fundi
með stjórnendum Ætla ekki að ráða sig á Landspítala nema grunnlaun hækki
Morgunblaðið/Eggert
Landspítali Hjúkrunarnemar ætla
að standa á sínu í kjarabaráttu.
Sauðburður er vorboði og vestur á Snæfellsnesi þar
sem nokkur hefð er fyrir frístundabúskap í þéttbýlinu
eru fyrstu ærnar bornar. Jón Andrésson á Rifi í Snæ-
fellsbæ er einn þessara bænda og hér sést hann með
fyrstu lömb þessa vors, hrúta tvo sem braggast vel en
eru hafðir á húsi ennþá. Almennt hefst sauðburður þó
ekki fyrr en komið er fram í byrjun maí og þá er mikill
annatími í sveitum landsins.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Hrútlömb á Hellissandi eru vorboðar
Sauðburður er hafinn vestur á Snæfellsnesi
Í reglugerðardrögum mennta-
málaráðherra sem birt voru á sam-
ráðsgátt stjórnvalda í gær er lagt
til að fellt verði niður ákvæði um
forgang nemenda yngri en 25 ára
við innritun í framhaldsskóla. Jafn-
framt er tekið fram að niðurstöður
samræmdra könnunarprófa ráði
ekki við innritun nemenda í fram-
haldsskóla, eins og verið hefur síð-
ustu ár, öðlist önnur reglugerð sem
komin er til umsagna formlegt
gildi, eins og að er stefnt.
Reglan um að fólk yngra en 25
ára væri aftar en aðrir í röðinni
þegar kæmi að innritun í fram-
haldsskóla var sett fyrir nokkrum
árum og hefur verið umdeild.
Menntamálaráðherra boðaði breyt-
ingar á ákvæði um þetta fyrir
nokkru og er málið nú komið í
formlegt ferli umsagna sem hægt
verður að senda inn fram til 5. apríl
næstkomandi.
Reglum um fram-
haldsskóla breytt
„Við viljum nálg-
ast hluti í lausn-
um,“ segir Guð-
ríður Arnar-
dóttir, formaður
Félags fram-
haldsskólakenn-
ara. Samn-
inganefnd
félagsins fundaði
í gær en kenn-
arar setja nú
aukinn þunga í kröfur sínar og vilja
kjarasamning. Eftir páska fundar
samninganefndin með trúnaðar-
mönnum þar sem næstu skref verða
rædd. Spurð hvort til verkfalls
muni koma segir Guðríður það vera
síðasta kostinn.
Framhaldsskólakennarar vilja
skerpa á ýmsu í skólareglum. Það
eigi sér í lagi við um nemendur
undir átján ára aldri, en um þá
gilda lög um fræðsluskyldu.
„Það er hættuleg braut ef skóla-
meistarar eru úrræðalausir og
skólareglur virka ekki þegar nem-
endur brjóta reglur,“ segir Guð-
ríður sem vill að menntamálaráðu-
neytið marki stefnu í þessum
málum. Hún nefnir sem dæmi tilvik
þar sem teknar voru myndir af
kennurum og þeim svo dreift með
ósmekklegum ummælum. Nemand-
inn hafi hins vegar sloppið enda
hafi reglur ekki náð utan um málið.
Það séu vond skilaboð.
Verkfall
síðasti
kostur
Guðríður
Arnardóttir