Morgunblaðið - 28.03.2018, Side 20

Morgunblaðið - 28.03.2018, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 ✝ Arnar SigurðurHelgason fædd- ist í Reykjavík 6. apríl 1973. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 20. mars 2018. Foreldrar hans eru Berglind Sig- urðardóttir, hjúkr- unarfræðingur, f. 30.12. 1950, kær vinur hennar er Sveinn Árnason, rafvirki, f. 11.9. 1952, og Helgi Hjálmarsson, raf- virki, f. 20.10. 1947, d. 26.7. 1993. Börn Arnars eru: 1) Ebba Dís, f. 25.9. 2001, 2) Sunna Líf, f. 18.11. 2005, móðir þeirra er Súsanna Finnbogadóttir, og 3) Aron Máni, f. 16.12. 2008, móðir hans er Harpa Guðbrandsdóttir. Sam- býliskona Arnars síðustu ár er Sigríður Reykjalín Hreggviðs- dóttir, f. 20.11. 1970, hún á fjög- ur börn úr fyrra hjónabandi. Systkini Arnars eru 1) Íris Alda, f. 11.9. 1978, og 2) Helgi Steinar, arki- tekt, f. 3.4. 1982, gift- ur Todd Edward Kulc- zyk, listmeðferðar- og fjölskyldufræðingi, f. 26.10. 1972. Að loknu grunn- skólanámi stundaði Arnar Sigurður nám við Fjölbrautaskólann í Ármúla, símvirkja- nám við Iðnskólann í Reykjavík og nám í sjónvarps- þáttagerð í Viborg í Danmörku. Arnar starfaði m.a. hjá Prent- smiðjunni Odda, Stöð 2, Húsa- smiðjunni og Útvarpi Sögu. Árið 2011 greindist Arnar með arfgengan hrörnunarsjúkdóm (Dystrophia Myotonica, DM) sem lagðist m.a. á vöðva- og stoðkerfi og ágerðist mjög á síðari árum með tilheyrandi örorku. Arnar Sigurður verður jarð- sunginn frá Seltjarnarneskirkju í dag, 28. mars 2018, klukkan 15. Elsku ástin mín, ég trúi því ekki ennþá að þú sérst farinn, þú kvaddir okkur alltof fljótt. Þessi tími sem við áttum var alltof stutt- ur en yndislegur og mun ég geyma hann í hjarta mér. Á hverj- um degi sagðir þú mér að þú elsk- aðir mig og gast ekki farið að sofa fyrr en þú sagðir þessi orð við mig. Við kynntumst um miðjan október 2014 og spjölluðum við mikið sam- an á facebook og í síma. Svo kom að því að við ákváðum að hittast og þú bauðst mér heim til þín í spjall og töluðum við saman langt fram á nótt. Og varð það ást við fyrstu sýn. Kynntist ég þá þinni yndis- legu og ástríku fjölskyldu Þú vildir allt gera fyrir mig, börnin mín og þín. Tókst börnun- um mínum eins og þau væru þín. Elsku ástin mín, þú reyndir að hafa samband á hverjum degi við börnin þín, móður og systkini til að vita hvernig þau hefðu það og spjalla. Fyrsta afmælisdaginn minn eftir að við kynntumst þá gafstu mér 12 bleikar rósir og strumpa- sporðdreka sem ég hef alltaf haft á náttborðinu mínu því að þú vissir að uppáhaldsliturinn minn var bleikur. Á gamlársdag 2014 hringdum við endalaust hvort í annað því að ég var með fjölskyldunni minni og þú, elsku ástin mín, með þinni. Svo þegar þú varst á heimleið löngu eftir miðnætti þá hringdir þú og spurðir hvort þú mættir ekki frek- ar koma til mín en að fara heim til þín. Auðvitað sagði ég já því að ég var búin að sakna þín svo mikið. Eftir þetta kvöld vorum við óað- skiljanleg og fljótlega fórum við að búa saman. Það var alltaf mikið fjör og kát- ína þegar börnin þín komu og gistu hjá okkur því að þá vorum við níu manns á heimilinu og lætin eftir því, en ég elskaði það því að þetta voru börnin okkar, ástin mín. Við vorum farin að tala um að fara til Bandaríkjanna eftir fimm ár þegar þú yrðir fimmtugur og ætluðum við að taka Ebbu Dís dóttur þína með okkur og fara í Star Wars-garðinn því að þið höfð- uð svo mikinn áhuga á Star Wars. Elsku ástin mín, þú hafðir alltaf meiri áhyggjur af mér en þínum veikindum þó þú værir miklu veik- ari. Og reyndir að hjálpa öðrum þó að getan til þess væri ekki mikil. Ástin mín, ég veit að pabbi þinn tók vel á móti þér. Ég elska þig og sakna þín en við sjáumst aftur þegar þú tekur á móti mér þegar minn tími kemur. Bið ég Guð að styðja við börnin þín, móður og systkini. Sigríður. Það er með mikilli sorg í hjarta – og þyngra en tárum taki – sem við kveðjum kæran son og bróður hinstu kveðju, aðeins tæplega 45 ára að aldri. Arnar okkar greindist með arf- gengan vöðvarýrnunarsjúkdóm árið 2011, sem hann hafði erft frá föður sínum sem lést á sama aldri árið 1993. Þetta var mikið áfall fyrir hann og okkur öll í fjölskyld- unni en hann tók því þó af ein- stöku æðruleysi og sagðist ætla að lifa lífinu eins og hann gæti þótt hann þyrfti oft hjálp til að komast ferða sinna, en sjúkdómurinn ágerðist mjög síðustu tvö árin. Báðir urðu þeir feðgar bráðkvadd- ir vegna alvarlegra hjartsláttar- truflana sem geta fylgt þessum sjúkdómi. Arnar hafði ákaflega gott geðs- lag – oftast kátur, orðheppinn og kvartaði sjaldan. Hann var mikil félagsvera og átti marga góða vini og kunningja sem hann var í miklu og góðu sambandi við. Þeir syrgja hann nú eins og börnin hans þrjú sem hann elskaði framar öllu. Við munum nú ylja okkur við minningar um allar þær góðu samverustundir sem við áttum í sumarbústaðnum okkar Sælukoti þar sem hann stjórnaði grillinu oftast. Einnig fjölskylduferðina okkar til Frakklands sumarið 2013, þar sem allt mögulegt kom upp á og hann þ. á m. eyddi heilli nótt á slysó í París eftir slæmt fall – eitt af mörgum – en allt fór þó vel og var ferðin dásamleg þegar upp var staðið enda oft í minnum höfð. Þegar litið er til baka yfir ævi Arnars okkar skiptast þar vissu- lega á skin og skúrir en hann vildi hafa lífið skemmtilegt og var mjög duglegur að mæta þar sem eitt- hvað áhugavert var að gerast, s.s. tónleikar og leikhús ásamt því að vera viðstaddur alla viðburði dætra sinna í skóla og frístundum. Hann var KR-ingur í húð og hár og mætti á alla leiki síns félags á meðan hann gat. Arnar var mjög fjölskylduræk- inn, heyrði í börnunum sínum og okkur nær daglega enda vildi hann fylgjast vel með því sem við værum að gera. Stoð hans og stytta hin síðustu ár var hún Sísí og á hún hjartans þakkir skildar fyrir hversu ómet- anlega vel hún reyndist Arnari. Við trúum því að nú sé hann kominn á stað í æðri heimum þar sem pabbi blessaður bíður hans og hann er laus úr sínum veika lík- ama. Hann verður jarðsettur við hlið pabba síns og við sjáum fyrir okkur að nú geti þeir fengið sér bjór saman og spjallað um daginn og veginn, nokkuð sem hann sakn- aði m.a. svo sárt eftir að pabbi hans kvaddi. Arnar var góður og greiðvikinn sonur, bróðir og faðir. Við biðjum að Guð almáttugur verndi og styrki börnin hans og gefi okkur öllum þrótt til þess að takast á við þennan mikla og ótímabæra missi. Mamma, Íris systir og Helgi Steinar bróðir. Æskuvinur fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Góður drengur og traustur vinur sem vildi allt fyrir vini sína gera. Þig hef ég þekkt svo lengi að minningar án vináttu þinnar eru ekki til staðar. Þegar við kynntumst var eins og mér hefði verið kippt inn í nýj- an og spennandi heim, hugmynda- flug þitt með eindæmum og drif- krafturinn ótrúlegur. Þú varst snillingur í að grafa upp sjóræn- ingjaupptökur á VHS-spólum af kvikmyndum sem ekki voru komnar í bíó, hljóðblanda nýjar útgáfur af vinsælum lögum og ekki má gleyma framleiðslu og leikstjórn á ýmsum stuttmyndum og tónlistarmyndböndum sem tekin voru upp á 8 mm upptöku- vélina hans pabba þíns. Þér var svo margt til lista lagt og má með sanni segja að aldrei hafi verið lognmolla í kringum þig. Minnisstætt er þegar þú útvegað- ir ólöglegan FM-sendi og til varð útvarpsstöðin Aldan. Stöðin náði dreifingu yfir hluta Vesturbæjar- ins, okkur og kannski fleirum til mikillar ánægju. Önnur góð minn- ing er þegar við gerðum okkur ferð á eina af útvarpsstöðvum borgarinnar í von um að fá spilaða þína eigin hljóðblönduðu útgáfu af laginu BAD með Michael Jackson sem þá var nýlega komið út. Ekki man ég hvort það fékk spilun en þarna varstu kominn á heimavöll og áttir eftir að vera viðloðandi út- varp á einhvern hátt til fjölda ára eftir þetta. Þegar þú varðst eldri fór að bera á einkennum sjúkdómsins sem átti eftir að setja mark á líf þitt. En þrátt fyrir að sjúkdóm- urinn hafi dregið úr þér með ár- unum varstu alltaf jafn glaðlyndur og bjartsýnn. Aldrei heyrði ég þig kvarta, né léstu sjúkdóminn stoppa þig í því sem þig langaði til að taka þér fyrir hendur, enda harður af þér eins og KR-ingum sæmir. Þín er og verður sárt saknað og mikið vildi ég að árin með þér hefðu orðið miklu fleiri, en minn- ingarnar sem þú gafst mér eru ótalmargar og fyrir þær er ég innilega þakklátur. Eins sárs- aukafullt og það er að missa þig þá hughreysti ég mig við tilhugs- unina að þú og Helgi, pabbi þinn, njótið þess nú að vera saman eftir margra ára aðskilnað. Kæru Berglind, Íris Alda og Helgi Steinar, það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast ykkur í gegnum æskuvin minn, hann Arn- ar. Hjá ykkur fannst mér ég ávallt vera velkominn og á ég margar góðar minningar frá heimsóknum mínum á heimili ykkar. Ég sendi ykkur, Sigríði Reykjalín unnustu Arnars og börnum hans, Ebbu Dís, Sunnu Líf og Aroni Mána, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Birgir Snævarr. Rokkkóngurinn! Ég man vel þegar ég kynntist Arnari. Ég var 13 ára gamall, heldur einmana og vandræðaleg- ur á diskóteki í Hagaskóla þegar upp að mér vindur sér grannvax- inn og brosmildur drengur og spyr mig nafns og hvort ég sé ekki hress. Og dregur mig á dansgólfið, það verði að prófa aðeins að dansa í hring. Og það má segja að þaðan hafi ekki orðið aftur snúið hvað vinskap okkar snertir. Við urðum nær óaðskiljanlegir. Og það sem við tókum okkur ekki fyrir hend- ur. Í fyrsta skipti sem hann bauð mér heim til sín fór hann með mig í bílskúrinn þar sem hann hafði komið upp örlitlu og frumstæðu hljóðveri en hann hafði eignast út- varpssendi og notaði til útsend- inga í Vesturbænum. Þannig var áhugi hans, og í framhaldinu minn, á útvarpi kviknaður og gerðum við fjölmargt á því sviði árum saman. Arnari á ég ótalmargt að þakka. Miklu meira en ég held að hann hafi nokkurn tíma gert sér grein fyrir, en það var ekki síst sökum þessarar skilyrðislausu vin- áttu sem mér tókst sjálfum að brjótast út úr skelinni í ýmsu tilliti. Ef ég hefði ekki slegið til og farið með þessum nánast óþægilega hressa strák á dansgólfið í Haga- skóla. Ef ekki hefði verið fyrir vin- áttuna við Arnar hefði ég ekki kynnst flestum vina minna í dag. Arnar var límið milli okkar allra, maðurinn sem kallaði okkur alltaf til og hélt vinskapnum gangandi, alveg fram á síðustu stundu. Þó svo á móti hafi blásið á síðustu ár- um breyttist hann aldrei. Alltaf sama staðfestan, jafnvel þrjóskan. Aldrei lét hann veikindi sín stöðva sig heldur gerði það sem hann langaði til, sama hversu skynsam- legt það var. Hann ætlaði ekki að breyta einu né neinu veikindanna vegna, heldur halda sínu striki í einu og öllu. Og það gerði hann. Ég á ótal stórkostlegar minningar um Arnar. Og fyrir þær er ég ákaflega þakklátur, en það er afar sár til- hugsunin að þú munir ekki rifja þetta allt saman upp með mér, eins og þú gerðir svo oft. Ég á eftir að sakna þín mikið, kæri vinur, allra símtalanna (líka þeira sem ég gat ekki svarað!), ferðanna á KR-leik- ina og alls þess sem við höfum gert og ætluðum að gera. Vonandi bíð- ur þín pitsan, sem aldrei kom frá Karlinum í tunglinu, á himnum. Ég kveð þig með sömu orðum og þú kvaddir mig undantekninga- laust alltaf hreint: Áfram KR! Egill Örn Jóhannsson. Elsku vinur. Ég trúi því varla ennþá að þú sért farinn svona snemma frá okkur. Ég get ekki neitað því að hafa leitt hugann að því undanfarna mánuði að þú, í þinni baráttu, ættir væntanlega eftir að vera sá fyrsti af vinahópn- um til að yfirgefa okkur en ein- hvern veginn var sú hræðilega til- hugsun langt frá því að vera tímabær. Ég á svo ótal margar minningar um þig. Nærri fjóra áratugi stútfulla af minningum. Þú varst í raun fyrsti vinurinn sem ég eignaðist á lífsleiðinni. Þar sem ég sit hérna og hlæ og græt á víxl rennur það upp fyrir mér að við vorum í raun bara hreinræktaðir glæpamenn á þessum fyrstu árum af langri vináttu okkar. Við brut- um stúta af tómum Sanitas-flösk- um og skiptum þeim út fyrir nýjar 7up í öllum söluturnum Vestur- bæjar. Þú komst nefnilega að því að Sanitas-tapparnir væru ekki með innsigli sem brotnaði eins og hjá Coke og að brotnum stút með tappa væri hægt að skipta út fyrir nýja flösku. Þetta svikaskím okkar gekk frábærlega þangað til okkur var hent út öfugum úr söluturn- inum við Hringbraut. Við áttum þá allavega 9 lítra af 7up undir skrif- borðinu þínu. Við grétum líka sam- an bak við blokk á Reynimelnum eftir að hafa stolið gúmmíköllum í Úlfarsfelli, algjörlega sannfærðir um að núna færum við aldrei til himna. Við kveiktum í heimsins stærstu hrúgu sem gerð hefur ver- ið úr saltpétri og flórsykri fyrir framan Góðborgarann í Úlfarsfelli sem við háðum blóðugt stríð við. Úlfarsfell allt hvarf í reykjar- mökkinn. Þegar þér áskotnaðist slideshow-vasaljós seldum við strákunum úr hverfinu miða á stórkostlegt spidermansjóv á Mel- haganum, sem var ef til vill ekkert frábær díll fyrir þá sem borguðu. Tólf skitnar spiderman-slædur á hvítu laki. Við fölsuðum miða í tív- olíið á Melavellinum og komumst alla leið í Kolkrabbann, þar til einn úr hópnum skalf of mikið þegar hann rétti fram falsaðan miðann og var rifinn upp á hnakkadramb- inu. Við sem vorum þegar sestir flúðum úr sætunum skelfingu lostnir. Hver dagur með þér var ævintýri þessa daga. Þú varst ein- hvern veginn alltaf allt í öllu. Upp- haf, endir og miðja í öllum uppá- tækjum. Hvort sem það var að redda risastórum kínverjum fyrir næstu Rambómynd, reka ólöglega útvarpsstöð í bílskúrnum hjá þér eða plana næturbolta á körsaran- um. Þú kunnir allt og gast allt. Maðurinn með samböndin. Rokk- kóngurinn. Kenndir mér að kó- pera Sinclair spectrum-leiki og teipa hvellhettur utan um tíkalla. Þrátt fyrir að vera mikil efni end- aði þó hvorugur okkar sem glæpa- maður. Þú varst einfaldlega allt of góð sál til þess. Ég var líklega bara heppinn með vini. Það eru nefnilega forréttindi að hafa átt þig að í nærri 40 ár, elsku vinur minn. Ég vona að þú sért einhvers staðar á góðum stað núna. Kannski bara með pabba þínum og þú með kjúklingavængi, tuð- andi í einhverjum hvað John Elway hafi verið frábær leik- stjórnandi. Sem hann var ekki, Arnar. Hann var bara svona skít- sæmilegur. Ólíkt þér. Þú varst al- gjörlega frábær leikstjórnandi. Elsku Berglind, Íris, Helgi og Sísí, hugur minn er hjá ykkur á þessari erfiðu stundu. Jón Ari Helgason. Kæri vinur. Nú ertu horfinn á braut eftir áralanga baráttu við miskunnar- lausan sjúkdóm. Enginn átti von á að tími þinn kæmi svo skjótt og áfallið er mikið en ég reyni þó að leita huggunar í því að þú hafir ekki þurft að sökkva enn dýpra í þá líkamlega erfiðleika sem sjúk- dómnum fylgja. Þú tókst á við þessa baráttu með húmorinn að vopni og gerðir oft grín að því hvað þú værir heppinn því að nú gætir þú alltaf fengið bestu bíla- stæðin í bænum. Þú hafðir einstakt hjartalag og kostir þínir voru fjölmargir. Þú varst fyrst og fremst mikill prin- sippmaður og það var bara sumt sem var þér algjörlega heilagt. Þú beist eitthvað í þig og slepptir aldrei og það er eiginleiki sem fleiri mættu búa yfir, jafnvel þótt þessir hlutir hafi oft á tíðum verið ansi kómískir og, að manni fannst, léttvægir. Það eru ekki margir sem myndu t.d. panta sér pitsu á veitingastað og þrátt fyrir að það hafi verið einu áleggi ofaukið þá stöðvaði það þig ekki við að borða hana þar til einungis minnsta sneiðin var eftir. Þjónninn var svo kallaður til og honum vingjarn- lega bent á að það hefði verið rangt álegg á henni og að það eina rétta í stöðunni væri að fá inneign sem sárabætur fyrir þessi leiðu mistök þeirra. Ógleymanlegur svipur þjónsins mun seint líða mér úr minni. Þrátt fyrir mótbárur þjónsins (þar sem þú hafðir jú nánast klárað pitsuna) þá tókst þér að fá þína inneign enda var um að ræða algjört prinsippmál og ekki séns að hagga þér. Þetta er einungis ein kostuleg minning af mörgum og ná þær nær 30 ár aftur í tímann. Á þess- um tíma brölluðum við ýmislegt og í gegnum þig margfaldaðist fjöldi vina minna og úr varð þessi þétti vinahópur sem hefur haldið góðu sambandi til þessa dags. Þú varst sannur vinur vina þinna og fyrsti maður til að bjóða fram aðstoð ef á þurfti að halda. Ég á eftir að hugsa með hlýhug til- baka um ókomin ár til allra ódauð- legu gullmolanna sem þú reyttir af þér, um símtölin sem oft á tíðum gerðu mann hugsi, allar sögurnar og umfram allt góða sál sem nú er horfin á braut. Elsku vinur, nú ertu vonandi kominn á betri stað. Eftir skilur þú stóran hóp fólks sem hugsar til þín með hlýhug og ást. Ég veit að ég mun ávallt hugsa til þín þegar kemur að föstum liðum tilverunn- ar, s.s. leikjum á KR-vellinum, bíóferðum, Super Bowl-partíum, þessum „djöfulsins hita á grillinu“ ásamt áðurnefndum símtölum sem þú sleist ávallt með orðunum: „Áfram KR!“ Nú kveð ég þig í hinsta sinn á sama hátt. Hvíl í friði, vinur minn – Áfram KR! Davíð Hansson. Okkur var verulega brugðið er við fengum þau skilaboð að heim- an að elskulegur vinur okkar og fjölskyldunnar hefði orðið bráð- kvaddur á heimili sínu þann 20. mars síðastliðinn. Þessi kraftmikli og lífsglaði drengur eins og við fengum að kynnast honum í barnæsku sinni og á unglingsárum sínum er nú horfinn á braut frá okkur, en elsku Arnar, þú munt ætíð lifa í minn- ingu okkar allra. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga) Við vottum börnum hans, sam- býliskonu, móður, systkinum og öðrum aðstandendum dýpstu sam- úð. Bryndís Magnúsdóttir og Ásþór Guðmundsson. Það eru rúm 25 ár síðan ég kynntist Adda. Hann var þá að vinna í Kassagerðinni á öflugum lyftara. Addi þótti fyrirtaks lyft- aradræver en átti það til að sofna undir stýri og keyra hrjótandi í gegnum skilrúm og veggi og hafna með gríðarlegu brambolti á háum pappakassasamstæðum og grafast undir hrúgum af drasli. Verkstjór- inn var af gamla skólanum og vildi frekar að menn notuðu dyrnar til að komast á milli sala. Addi gat í raun lyft öllu á þessari vinnuvél nema augnalokunum. Hann skipti því um gír og fór í rafvirkjun og var vakinn og sofinn við ýmis störf tengd því fagi meðan honum entist heilsa til. Hann var tæknimaður á hinum ýmsu útvarpsstöðvum, t.d. á Útvarpi Sögu þar sem hann gerði gott mót undir styrkri yfirstjórn Arnþrúðar Karls, sem hann bar vel Söguna og hún honum. Adda þótti margt leiðinlegra en að fá sér soldið í svanginn. Heilsu- fæði var hans ær og kýr. Ær og kýr voru hans heilsufæði. Hrifnastur var hann af svokölluðum örorku- mat sem samanstóð af næringar- ríkri glútenlausri hollustu einsog unnum kjötvörum og hvítu hveiti. Kanínufóður vildi hann ekki fyrir nokkurn mun láta inn fyrir sínar varir en kanínum gat hann hins- vegar sporðrennt í massavís með eyrunum og öllu saman. Þar sem hann var mikill smekk- maður á mat og vín og vildi ein- göngu hágæða hráefni þá leið hon- um best sultuslökum á bolnum uppí sófa fyrir framan sjónvarpið með lafandi pizzusneið í annarri og kófsveittan hamborgara í hinni og svellkaldan öllara freyðandi í líterskrús á borðinu, horfandi aðdáunaraugum á lífskúnstnerinn og idolið Homer Simpson slafra í sig pizzur og hamborgara og svolgra í sig bjór fyrir framan sjón- varpið. Greiðviknari maður en Addi var vandfundinn. Hann var alltaf boð- inn og búinn að veita fólki liðsinni, oft óumbeðinn að fyrra bragði þeg- ar hann sá að hann gat komið að gagni. Hann var mikill reddari og var aldrei að benda á klukkuna til að minna á að hann hefði nú annað við tímann að gera en að hugsa um náungann. Hann var alveg bless- unarlega laus við alla þessa frægu alkafræðafrasa um að menn eigi fyrst og fremst að elska sjálfa sig og sinn dýrmæta tíma og sitt mik- ilsverða rassgat. Í dag er í tísku að vera veinandi fórnarlamb með hortaumana niðrá bringu og grenja útúr fólki samúð og athygli, en aldrei heyrði ég Adda barma sér yfir nokkrum sköpuðum hlut, hvorki hrörnunar- sjúkdómnum sem hann gekk með (eða haltraði með öllu heldur) né yfir annarra manna ófullkomleika. Hann áleit sjálfan sig ekki galla- Arnar Sigurður Helgason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.