Morgunblaðið - 28.03.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.03.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 Fjölskyldan Helga Þórdís, Eyjólfur og börn á þorrablóti Víðis 2017. Á stóra og sam- henta fjölskyldu Helga Þórdís Tryggvadóttir er áttræð í dag Helga Þórdís Tryggvadóttir á 80 ára afmæli í dag. Hún fæddistá Bjarnastöðum í Garði og ólst þar upp. Hún fór í vist ogstundaði barnagæslu á ýmsum stöðum á hverju sumri frá sex ára aldri og fram að fermingu. Á unglingsárunum var hún í síldar- söltun, fiskvinnslu og stundaði fleiri störf sem til féllu. Helga Þórdís stundaði ræstingar á skrifstofu Gerðahrepps og starf- aði við Hjúkrunarheimlið Garðvang í mörg ár. Helga hefur sinnt trún- aðarstörfum, hún sat í barnaverndarnefnd um skeið og tónlistarskóla- nefnd Gerðahrepps. Hún er heiðursfélagi Knattspyrnufélagsins Víðis og kvenfélagsins Gefnar í Garði. Hún gekk í kvenfélagið 1954, aðeins sextán ára gömul. Helga Þórdís er mikil félagsvera og stundar félagsstörf í Auðar- stofu í góðra vina hópi. Þar föndrar hún, prjónar og stundar leikfimi. Hún er hrókur alls fagnaðar, um helgar mæta börn hennar og afkom- endur í kaffi í Kríuland 19, þar sem hún býr. Margt er skrafað og glatt er á hjalla. Eiginmaður Helgu Þórdísar var Eyjólfur Gíslason, f. 28. apríl 1934 í Miðhúsum í Garði en hann lést 21. nóvember sl. Þau giftu sig 23. mars 1957 og áttu því demantsbrúðkaup á síðasta ári. Í heild voru þau sam- an í 65 ár. Þau eiga átta börn, Gísla Matthías, Magnús, Kristínu, Gunn- ar Björn, Ingibjörgu Þorgerði, Kristbjörgu, Guðrúnu og Eygló. Barnabörnin eru 30 og barnabarnabörnin 28, og 29. og 30. börnin á leiðinni. Helga Þórdís eyðir afmælisdeginum í dekur og borðar með börnum sínum. K ristín Jónsdóttir fædd- ist 28. mars 1933 á Munkaþverá í Eyja- firði og ólst þar upp. „Þar var mjög mann- margt, upp undir 30 manns þegar ég var að alast upp. Ég tel mig búa að því að þar voru margar kynslóðir, ömmusystkini og vinnufólk. Við fengum hafsjó af sögum og það var mikið sungið en hljóðfæri voru til á heimilinu.“ Kristín lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1949. Hún var í námi í Handíða- og mynd- listarskólanum í Reykjavík 1949- 1952, og tók teiknikennarapróf frá þeim skóla 1952. Hún var í námi í Kunsthåndværkerskolen í Kaup- mannahöfn 1954-1957 og í myndlist í París árið 1959. Hún fór síðan í framhaldsnám í myndlist á Ítalíu 1963-1964. Kristín hefur starfað sem mynd- listarmaður frá 1957. Hún var sú fyrsta hér á landi sem notaði þæf- ingu ullar í myndverk og hefur vakið athygli fyrir efnisnotkun sína. „Það má segja að ég hafi notað ýmiss kon- ar efni í verkin, t.d. ull og plexigler, og einnig skrifaðan texta. Ég gerði mikið af þrívíðum verkum en síðustu árin hef ég farið meira að vinna með hefðbundin efni, vatnsliti, pappír og blýant því það er auðveldara að vinna með þau.“ Kristín tekur þátt í tveimur samsýningum erlendis sem verða haldnar á næstunni. Önnur verður í Connecticut í Bandaríkj- unum og hin í Genf í Sviss en þar mun Kristín sýna ásamt tveimur öðrum íslenskum myndlistarkonum. Kristín var kennari við Mynd- listar- og handíðaskóla Íslands í samtals 12 ár og kenndi við ýmsa grunn- og framhaldsskóla í Reykja- vík og á landsbyggðinni um árabil, m.a. í Dölum, Borgarnesi og Skaga- firði. Kristín starfaði mikið að félags- málum myndlistarmanna, var m.a. í Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, myndlistarmaður – 85 ára Fjölskyldan Una Margrét, Jón Óskar og Kristín stödd á Listabrúnni (Pont des Arts) í París árið 1992. Sveitin togar meira í mann með árunum Listamaðurinn Kristín heldur á verki sínu, „Nýhöfn“. Myndin er tekin árið 1957. Reykjanesbær Hafþór Nói Grétarsson fædd- ist 10. apríl 2017 kl. 11.26 á Heilbrigðis- stofnun Vest- urlands á Akra- nesi. Hann vó 3.616 g og var 54 cm á lengd. For- eldrar hans eru Ása Björg Ingi- marsdóttir og Grétar Þór Þor- steinsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.