Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Þing Kennarasambands Íslands hófst á þriðjudaginn og setti fjöl- miðlaumfjöllun um verðandi for- mann Kennarasambandsins svip á þingið í gær. „Þetta er starfsamt þing eins og venjulega þegar kenn- arar koma saman en það verður ekki framhjá því litið að það hvílir skuggi yfir þinginu út af málefnum verðandi formanns,“ segir Guðríð- ur Arnardóttir, formaður félags framhaldsskólakennara. Fréttamiðillinn Stundin birti í gær yfirlýsingu tveggja fyrrver- andi nemenda Ragnars Þórs Pét- urssonar, verðandi formanns Kennarasambandsins, þar sem hann er sakaður um að hafa borið rangt um ýmsar staðreyndir þegar hann varðist ásökunum fyrrverandi nemanda síns um blygðunarsem- isbrot á Tálknafirði. Vísir birti í desember sl. viðtal við nemandann þar sem hann sakaði Ragnar Þór um að hafa sýnt sér gróft klám á heimili sínu fyrir rúmum tuttugu árum. Ragnar Þór sagði í samtali við Morgunblaðið að sín mál hefðu ekki verið rædd sérstaklega á þinginu eða verið uppi á borðum. Hann vildi ekki tjá sig um nýjar yf- irlýsingar tveggja fyrrverandi nemenda en vísar í yfirlýsingu sem hann sendi Stundinni í gær þar sem hann ítrekar að ásökun á hendur honum um blygðunarsem- isbrot gagnvart nemanda sé ósönn. „Ég hef líka reynt að hafa allar upplýsingar í málinu uppi á borð- um frá upphafi. Ásökunin, sem er kjarni þessa máls, er röng,“ ritar Ragnar á Stundinni. Möguleiki um áskorun á þinginu Umræða hefur verið meðal þing- fulltrúa um mögulega áskorun á Ragnar að stíga niður en hann á ekki að taka við embætti fyrr en á föstudaginn. Aðspurður segist hann hafa heyrt að slík áskorun gæti verið líkleg. „Ég skrifaði um þetta því mér bárust upplýsingar um að mögulega stæði eitthvað svoleiðis til. Ég hef samt ekki hug- mynd um það,“ segir Ragnar. Skuggi hvílir yfir þingi kennara  Málefni verðandi formanns Kennarasambands Íslands setja svip á þing kennara  Nýr formaður ítrekar í yfirlýsingu að ásakanir á hendur sér séu ósannar Ragnar Þór Pétursson Guðríður Arnardóttir Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Við erum búin að undirbúa þetta vel og viljum að þessu fólki líði vel hérna í bænum,“ sagði Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfells- bæjar, í samtali við blaðamann í gær eftir ávarp hans í móttöku flóttafólks frá Úganda sem kom til landsins 19. mars síðastliðinn. „Við erum mjög hreykin og stolt af því að fá þetta tækifæri til að taka á móti þessu fólki frá Úganda. Við finnum það líka á bæjarbúum að þeir eru glaðir að fá nýja íbúa.“ Móttakan hófst eins og áður sagði á ávarpi frá Haraldi, en þar á eftir tók Ásmundur Einar Daðason fé- lags- og jafnréttismálaráðherra til máls. Hann hrósaði Samtökunum ’78 sérstaklega fyrir störf sín og minntist þess að fyrir stofnun þeirra hefði þekkst að hinsegin Íslending- ar flyttu af landi brott. Ótrúlegt væri að nú væri Ísland áfangastaður fyrir hinsegin flóttafólk. Læra að mæta tímanlega Eva Rós Ólafsdóttir er verkefnis- stjóri móttöku flóttafólks hjá Mos- fellsbæ. Hún flutti einnig stutt ávarp á móttökunni í listasal bæj- arins, en þar minntist hún þess að hún hefði ekki getað borðað daginn sem hún átti að taka á móti hópn- um. Hvernig ætti hún að geta séð um þetta fólk? Nokkur barnanna í hópnum hefðu síðan hlaupið í fangið á sér og þá hefði hún vitað að allt yrði í lagi. „Mér finnst þau alveg ótrúlega dugleg. Þetta er rosaleg breyting að vera komin frá Kenía og yfir í Mosó,“ sagði Eva Rós í samtali við blaðamann, en hópurinn bjó í flótta- mannabúðum í Kenía eftir að hafa sætt ofsóknum í heimalandinu þar sem samkynhneigð er ólögleg. „Þau eru að gera litlar breytingar eins og að mæta á réttum tíma. Þeim finnst fáránlegt hvað við mæt- um snemma hérna. Það eru þessar litlu breytingar sem við horfum á sem mjög jákvæð skref,“ sagði Eva Rós. Þótt þau hafi aðeins verið hér í stuttan tíma finnst henni þeim ganga vel að aðlagast. „Þau byrja svo í íslenskunámi í næstu og þarnæstu viku. Þau fá bráðum meiri rútínu og meiri dag- skrá, en þau eru öll mjög áhugasöm um að fara að vinna.“ Eva Rós segir þau jafnvel geta byrjað að vinna samhliða íslensku- náminu. „Svo hafa þau verið í mjög góðu samstarfi við Samtökin ’78, sem hafa stutt mjög við bakið á þeim. Það er mjög mikilvægt fyrir þau að upplifa að mega vera og hvað þau eru samþykkt hérna í þessu samfélagi.“ Stuðningurinn kom á óvart Blaðamaður tók einnig tali tvo flóttamannanna, þá James Keneth Katwere og Hakim Abramz. Þeir kváðust báðir hafa haft það gott síð- an þeir komu hingað til lands fyrir rúmlega þremur vikum. „Ég held ég sé að aðlagast vel. Allir hafa látið okkur líða vel og veitt okkur stuðning. Við finnum að fólk er til staðar fyrir okkur,“ sagði Keneth og Hakim tók undir með honum. Aðspurðir sögðu þeir ekkert hafa komið sér sérstaklega á óvart eftir komuna til landsins, það væri einna helst veðrið sem þeir þyrftu að venj- ast. „Við höfum bara séð góða hluti. Það er engin leið að bera saman Ís- land og Afríku,“ segir Hakim. „Það eina sem kemur á óvart er ástin, umhyggjan og stuðningur- inn,“ sagði Keneth að lokum. Í góðu samstarfi við Samtökin ’78  Hinsegin flóttafólk frá Úganda aðlagast vel í Mosfellsbæ Morgunblaðið/Árni Sæberg Velkomnir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri og Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra á spjalli við nokkra úr flóttamannahópnum. Keneth og Hakim sögðu koma á óvart hversu mikinn stuðning þeir hafa fengið. „Stjórn Læknaráðs Landspítalans lýsir yfir miklum viðvarandi skorti á legurýmum á gjörgæsludeild spítal- ans og ítrekuðum frestunum stærri aðgerða í kjölfarið.“ Svona hefst yf- irlýsing sem Læknaráð Landspítal- ans sendi frá sér í gær. Þar kemur fram að sjúklingar á leið í stærri aðgerðir á borð við hjartaaðgerðir hafi þurft að þola endurteknar frestanir á síðustu stundu og að á síðasta ári hafi 36% allra hjartaaðgerða verið frestað vegna skorts á legurýmum á gjör- gæslu og 20% vegna annarra þátta. Dæmi séu um að fresta hafi þurft hjartaaðgerð hjá sama sjúklingi sex sinnum. Í yfirlýsingunni segir að ástæður ítrekaðra frestana á stórum aðgerð- um séu meðal annars skortur á starfsfólki, skortur á legurýmum og þröngur og úreltur húsakostur sem ekki samræmist nútímakröfum. „Endurteknar frestanir aðgerða leiða til mikillar sóunar á dýrmætum skurðstofutíma og starfskröftum sem mætti nýta mun betur.“ Þá hvetur læknaráð stjórnvöld til þess að leggja þegar í stað fram fjármagn til stækkunar og breyt- inga á núverandi húsnæði, þar sem ljóst þyki að nýr spítali verði ekki tilbúinn til notkunar á allra næstu árum. „Sértækar aðgerðir þarf til að laða fleiri hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til starfa á gjörgæslu- deildum Landspítalans með því að bæta kjör þeirra. Viðvarandi álag hefur valdið því að veikindi hjá starfsfólki hafa aukist, það leitar í önnur störf og nýliðun verið lítil sem engin.“ Núverandi ástand segir ráðið hvorki boðlegt sjúklingum né starfs- fólki spítalans. „Gjörgæsludeildir Landspítalans annast veikustu sjúklinga landsins, ekki er hægt að vísa þeim sjúklingum áfram á önnur sjúkrahús eða stofnanir.“ Aðgerðum frestað allt að sex sinnum  Viðvarandi skort- ur er á legurýmum Morgunblaðið/Ómar Legurými Skortir á gjörgæsludeild. Pistill eftir Ragnar birtist á Stundinni í fyrradag þar sem hann fjallar um hvernig hann ætlar að vinna sem formaður Kennarasambandsins. Guðríður skrifar harðorða athugasemd þar við sem formaður félags framhaldsskólakennara þar sem hún fjallar um ásakanirnar á hendur Ragnari og að hún óttist ekki komu hans í kennarahúsið, auk þess að gera athugasemd við klæðnað Ragnars á þinginu. Harðorð athugasemd SKIPTAR SKOÐANIR SLÓVENÍA 8. júní í 10 nætur Innifalið: Flug og skattar. Gisting á 4* hótelummeð morgunverði alla daga og 7 kvöldverðir innifaldir. Einnig innifalið aðgangseyrir á söfn, sigling á Bled, kynnisferðir o.fl. Nánari upplýsingar á heimsferdir.is Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Frá kr. 229.995 Fagra Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.